Morgunblaðið - 03.09.2007, Síða 5

Morgunblaðið - 03.09.2007, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2007 5 íþróttir „VIÐ höfum náttúrlega ekki komist í úrslitaleikinn síðan 2003 svo að það er mjög kærkomið að komast þangað núna. Bikarúr- slitaleikurinn er stærsti leikur sumarsins og að sjálfsögðu ætl- um við okkur að fara alla leið,“ sagði Heimir Guðjónsson, að- stoðarþjálfari FH, sigurreifur að loknum leiknum við Breiðablik í VISA-bikarnum. „Mér fannst við í sjálfu sér sterkari aðilinn megnið af leiknum en eftir að við skoruðum markið, skömmu eftir leikhlé, féllum við kannski of langt til baka og hleyptum þeim inn í leikinn. Ólafur [Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks] gerði reyndar til- færslur á liðinu hjá sér sem virkuðu vel, og þeir skoruðu þetta jöfnunarmark auk þess að fá einhver hálffæri, en í framlenging- unni fannst mér einflaldlega eitt lið á vellinum. Þá fengum við fjölda færa og hefðum vel getað skorað fleiri mörk. Betra liðið vann í dag að mínu mati,“ bætti Heimir við. „Eitt lið á vellinum í framlengingunni“ „ÞAÐ var alveg ótrúlega ljúft að skora þetta mikilvæga mark og eftir að það tókst var ég alveg viss um að við myndum ná því þriðja,“ sagði Tryggvi Guðmundsson, framherji FH, glaður í bragði að leik loknum, en með hjálp markanefs síns kom hann FH yfir í framlengingu þegar hann kom skoraði af markteig eftir að Casper Jacobsen hafði varið skalla miðjumannsins Davíðs Þórs Viðarssonar úr góðu færi. „Eigum við ekki að segja að þarna hafi sést munurinn á varnarsinnuðum miðju- manni annars vegar og sóknarmanni hins vegar,“ bætti Tryggvi við glettinn. Honum þótti sigurinn sanngjarn. „Mér fannst við sem lið miklu betri aðilinn í leiknum og eftir að okkur mistókst að klára leikinn í venjulegum leiktíma kom ekki annað til greina en að negla þetta í framlengingunni. Ég gæti trúað því að við værum einfaldlega í betra formi því í framlengingunni fannst mér þeir virka svolítið lúnir.“ Tryggvi: Vorum miklu betri aðilinn „VIÐ spiluðum erfiðan leik gegn ÍA á fimmtudaginn á hund- blautum velli og fáum svo tvo daga í hvíld á milli, svo að óneit- anlega hlýtur að sitja smáþreyta í mönnum,“ sagði Ólafur Krist- jánsson, þjálfari Breiðabliks, eftir leikinn við FH, en Blikar virtust ansi þreyttir í framlengingunni og tókst ekki að svara mörkum FH. „En svo fáum við núna 14 daga frí sem er nátt- úrlega helvíti gott og þetta er virkilega vel skipulagt,“ bætti Ólafur við, en líklega gætti smákaldhæðni í rödd hans. Breytingar Ólafs á leikskipulagi Breiðabliks í seinni hálfleik glæddu leik liðsins miklu lífi en það dugði ekki til. „Í fyrri hálf- leik fannst mér FH vera miklu betra liðið og við vorum heppnir að sleppa frá honum með jafntefli í höndunum. En svo þegar við skorum markið fannst mér við sýna okkar rétta andlit og við hefðum vel getað stolið sigrinum í lok venjulegs leiktíma þegar við fengum tvö fín færi til að skora,“ sagði Ólafur. „Hefðum getað stolið sigrinum í lokin“ Þrátt fyrir að engin mörk væru skor- uð í fyrri hálfleik var mikið líf í leikn- um og strax á 5. mínútu átti Matthías Guðmundsson ágætis skalla að marki Blika sem var varinn. Matthías var duglegur við að koma sér í færi í fyrri hálfleik, líkt og hann hefur verið í sumar, og átti meðal annars tvö önnur skot í fyrri hálfleik sem Casper Ja- cobsen í marki Blika sá þó við. Þeir grænklæddu fengu líka sín færi og til að mynda átti Árni Kristinn Gunn- arsson, einn besti maður vallarins í gær, viðstöðulaust skot utan vítateigs sem fór rétt framhjá marki FH. Heilt yfir voru FH-ingar þó sterk- ari aðilinn í fyrri hálfleik og sama staða var uppi á teningnum í byrjun þess seinni. Sókn FH bar svo loks ár- angur á 52. mínútu þegar Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, sem nýlega var valinn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikina við Spán og N-Írland, hélt uppteknum hætti frá því í deildar- leiknum við KR á dögunum og skor- aði mark með þrumuskoti úr mark- teignum. Blikar voru fljótir að svara Ólafur Kristjánsson þjálfari skipti skömmu síðar þeim Guðmanni Þór- issyni og Magnús Páli Gunnarssyni inn á og færði Nenad Petrovic úr mið- verði og á miðjuna, og við það náði Breiðablik betri tökum á leiknum. Jöfnunarmarkið kom reyndar strax í kjölfarið, og það hefur ef til vill gefið liðinu aukinn kraft því það sem eftir lifði venjulegs leiktíma voru Blikar ívið betri aðilinn og meðal annars átti Srdjan Gasic skalla rétt yfir FH- markið eftir hornspyrnu, og Nenad Zivanovic skaut slöku skoti úr góðri stöðu í vítateignum eftir frábæran undirbúning Árna Kristins. FH hefði þó allt eins getað stolið sigrinum í lok venjulegs leiktíma þegar Tryggvi Guðmundsson slapp í gegn vinstra megin og vippaði yfir Casper, en bolt- inn fór framhjá markinu. „Aldrei spurning í framlengingunni“ FH sýndi mátt sinn og megin í framlengingunni gegn þreytulegu Blikaliðinu og skoraði tvö góð mörk auk þess að fá fjölda færa eftir að Blikar færðu liðið sitt framar. Verð- skuldaður sigur FH því staðreynd. Ásgeir Gunnar lék á miðjunni hjá FH mestan part venjulegs leiktíma en var skipt út af áður en framleng- ingin hófst. Hann sagði það vissulega ekki hafa verið auðvelt að fylgjast með utan vallar. „Það var náttúrlega gaman að horfa á restina utan vallar fyrst að við unnum leikinn, en það er samt miklu erfiðara að bíða stress- aður fyrir utan í svona leik,“ sagði Ás- geir Gunnar. „Mér fannst við vera betri framan af og allt þangað til við komumst yfir, en eftir að þeir jöfnuðu þá var meira jafnræði með liðunum til loka venju- legs leiktíma. En í framlengingunni fannst mér í raun aldrei spurning hvernig þetta myndi fara. Ég veit ekki hvort það var þolið eða viljinn sem var meiri hjá okkur, en mér fannst bara meiri kraftur í okkur þá,“ bætti Ásgeir Gunnar við. Líkt og flestallir í liði FH átti hann góðan leik og sinn þátt í að koma lið- inu í úrslitaleik keppninnar, en þang- að hafa FH-ingar ekki komist síðan árið 2003, þegar þeir töpuðu 1:0 fyrir ÍA, þrátt fyrir að liðið hafi orðið Ís- landsmeistari þrjú síðustu ár. Breiða- blik verður hins vegar enn að bíða þess að komast í úrslitaleikinn, en þangað hefur liðið einu sinn áður komist, fyrir 36 árum síðan. „FH-liðið betri aðilinn“ Árni Kristinn Gunnarsson átti sem áður segir frábæran leik í stöðu hægri bakvarðar hjá Breiðabliki, og hann var að vonum svekktur í leikslok. „Það er náttúrlega alltaf ömurlegt að tapa, hvort sem maður spilar vel eða illa, en ef ég á að vera alveg hreinskil- inn þá fannst mér FH-liðið betri að- ilinn í dag,“ sagði Árni Kristinn eftir leikinn. „Engu að síður fannst mér að eftir að við gerum breytingarnar á lið- inu, og erum þá komnir með það lið sem við höfum spilað á lengst af í sumar, værum við betri aðilinn fram að framlengingu. Þar voru FH-ing- arnir sterkari og áttu skilið að vinna. Mér fannst við eiga í talsverðum erfiðleikum með að spila okkar venju- lega fótbolta í þessum leik og ég held að það sé að stórum hluta vegna þess að framherjinn okkar gat illa haldið boltanum enda fengu hafsentar FH- inga að komast upp með alveg fárán- lega hluti. Ég veit ekki hversu oft það var hangið aftan í Prince en dómarinn hefði mátt flauta miklu oftar að mínu mati,“ sagði Árni. Auk hans átt Ca- sper stórgóðan leik í markinu og varði á tíðum mjög vel auk þess að vera vakandi fyrir því að grípa inn í fyr- irgjafir FH-inga. Morgunblaðið/Sverrir Erfiður Tryggvi Guðmundsson var drjúgur fyrir FH-inga í gær og hér eru Arnar Grétarsson, Nenad Petrovic og Gunnar Örn Jónsson með hann í sigtinu. FH nálgast bikarinn BREIÐABLIK sýndi það í Kapla- krika fyrr í sumar að liðið stenst þreföldum Íslandsmeisturum FH ágætlega snúninginn, og það sann- aðist aftur í gær þegar liðin áttust við í undanúrslitum VISA-bikars karla í knattspyrnu. Eftir til- tölulega jafnan leik reyndust FH- ingar orkumeiri í framlengingu og unnu loks sanngjarnan 3:1 sigur. Eftir Sindra Sverrisson sindris@mbl.is Tvö mörk í framlengingu komu FH-ingum áfram í úrslitaleik en Blikar sitja eftir 1:0 52. Eftir fyrirgjöfTommy Nielsens frá hægri og mistök hjá Nenad Petrovic, varnarmanni Breiða- bliks, barst boltinn til Ásgeirs Gunnars Ásgeirssonar sem þrumaði honum upp í þaknetið, rétt utan markteigs. 1:1 65. Árni KristinnGunnarsson átti skot utan vítateigs sem Prince Raj- comar stoppaði innan teigs. Hollendingurinn lagði boltann fyrir sig og skoraði neðst í vinstra markhornið. 2:1 100. GuðmundurSævarsson gaf fyr- irgjöf af hægri kantinum og Davíð Þór Viðarsson átti hör- kuskalla að marki sem Casper Jacobsen varði. Tryggvi Guð- mundsson náði þá til boltans og skoraði af harðfylgi. 3:1 120. Tryggvi Guð-mundsson fékk send- ingu inn fyrir vörn Blika og sótti upp vinstra megin. Hann gaf svo boltann fyrir markið þar sem Atli Guðnason skoraði auðveldlega úr markteignum. FH 3 Breiðablik 1 Laugardalsvöllur, bikarkeppni KSÍ, VISA- bikar karla, undanúrslit, sunnudaginn 2. september 2007. Mörk FH: Ásgeir Gunnar Ásgeirsson 52., Tryggvi Guðmundsson 100., Atli Guðnason 120. Mark Breiðabliks: Prince Rajcomar 65. Markskot: FH 20 (10) – Breiðablik 17 (6). Horn: FH 10 – Breiðablik 6. Rangstöður: FH 3 – Breiðablik 5. Skilyrði: Stillt og gott veður. Völlur góður. Lið FH: (4-3-3-) Daði Lárusson – Guð- mundur Sævarsson, Sverrir Garðarsson, Tommy Nielsen, Freyr Bjarnason – Davíð Þór Viðarsson, Dennis Siim, Ásgeir G. Ás- geirsson (Sigurvin Ólafsson 81.) – Matthías Guðmundsson (Atli Guðnason 109.), Matt- hías Vilhjálmsson (Arnar Gunnlaugsson 91.), Tryggvi Guðmundsson. Gul spjöld: Nielsen 109. (brot) Rauð spjöld: Engin. Lið Breiðabliks: (4-4-2) Casper Jacobsen – Árni K. Gunnarsson, Srdjan Gasic, Nenad Petrovic, Arnór S. Aðalsteinsson – Gunnar Örn Jónsson, Arnar Grétarsson, Olgeir Sigurgeirsson (Guðmann Þórisson 63.), Nenad Zivanovic (Kristján Óli Sigurðsson 100.) – Kristinn Steindórsson (Magnús Páll Gunnarsson 63.), Prince Rajcomar. Gul spjöld: Kristján Óli 114. (mótmæli), Arnar 115. (mótmæli), Prince 117. (mót- mæli). Rauð spjöld: Engin. Dómari: Garðar Örn Hinriksson, Stokks- eyri. Aðstoðardómarar: Sigurður Óli Þórleifs- son og Áskell Þór Gíslason. Áhorfendur: 2.221.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.