Morgunblaðið - 03.09.2007, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Bræður munu berjast á Laug-ardalsvellinum í kvöld þegar
Fylkir og Fjölnir mætast í undan-
úrslitum bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu. Víðir Leifsson er í liði
Fylkis og hann mætir bróður sín-
um Tómasi Leifssyni í liði Fjölnis.
Báðir eru þeir uppaldir FH-ingar
en faðir þeirra, Leifur Helgason,
lék um árabil með FH og var í
fyrsta liði félagsins sem spilaði í
efstu deild árið 1975. Þess má geta
að Leifur var markahæsti leik-
maður deildarinnar eftir fyrstu
umferðina það ár með eitt mark en
allir leikir enduðu þá 0:0 nema hjá
FH-ingum, sem unnu sinn leik 1:0.
Fjölnir verður með 15 ára pilt íleikmannahópi sínum á Laug-
ardalsvellinum í kvöld. Hann heit-
ir Kristinn Freyr Sigurðsson og
hefur vakið athygli fyrir frammi-
stöðu sína með 2. og 3. flokki Graf-
arvogsliðsins í sumar.
GuðlaugJónsdóttir,
fyrrum lands-
liðskona og ein
reyndasta knatt-
spyrnukona
landsins, tryggði
Völsungi mik-
ilvægan útisigur
á Aftureldingu,
3:2, í fyrri úrslitaleik liðanna um
sæti í úrvalsdeildinni sem fram fór
í Mosfellsbæ í gær. Liðin mætast
aftur á Húsavík á miðvikudaginn.
HK/Víkingur stendur líka velað vígi eftir sigur á Hetti,
4:3, á Egilsstöðum í fyrri leik lið-
anna í gær. Liðin mætast aftur í
Víkinni á miðvikudaginn. Karen
Sturludóttir skoraði tvö marka
HK/Víkings og hefur gert 23 mörk
fyrir liðið í 1. deildinni í sumar.
Tékkneskifrjáls-
íþróttamaðurinn
Roman Šebrle
sigraði í tug-
þraut á HM í
Ósaka í Japan.
Hann fékk 8.676
stig í keppninni
en Maurice
Smith frá Ja-
maíku varð annar með 8.644 stig
og Dmitrí Karpov frá Kasakstan
varð þriðji með 8.586 stig. Šebrle,
sem er 32 ára, er ólympíumeistari
í tugþraut og hann á einnig heims-
metið, 9.026 stig. Hann náði for-
ustunni í næstsíðustu keppn-
isgreininni í Ósaka þegar hann
kastaði spjóti 71,18 metra og bætti
þar með eigin árangur. Bryan
Clay, sem varð heimsmeistari árið
2005, varð að hætta keppni og
Tom Pappas, sem vann árið 2003,
sömuleiðis.
Fólk sport@mbl.is
Bernard Lagat skráði nafn sitt í
sögubækur heimsmeistaramótsins
þar sem hann varð sá fyrsti sem nær
að sigra í 1.500 m og 5.000 m hlaupi á
HM. Lagat er fæddur í Kenýa en frá
árinu 1997 hefur hann búið í Banda-
ríkjunum og árið 2004 fékk hann rík-
isborgararétt í Bandaríkjunum. Að-
eins tveir hlauparar hafa sigrað í
þessum greinum á sama stórmóti.
Paavo Nurmi frá Finnlandi gerði það
árið 1924 á Ólympíuleikum og Hic-
ham El Guerrouj frá Marokkó end-
urtók leikinn 84 árum síðar. „Það er
stórkostlegt að vera sá fyrsti sem
nær þessum áfanga, ég vissi að ég
gæti náð góðum árangri, en ég lét
mig ekki dreyma um tvenn gullverð-
laun,“ sagði Lagat. Eliud Kipchoge
frá Kenýa varð annar í hlaupinu en
hann og Lagat ólust upp á sama
„blettinum“ í litlu þorpi í Kenýa.
Vlasic í sérflokki
Blanka Vlasic frá Króatíu reyndi
hvað hún gat til þess að koma einu
heimsmeti á blað í Osaka en þrjár til-
raunir hennar við 2,10 m í hástökki
kvenna dugðu ekki til en Vlasic sigr-
aði í keppninni. Vlasic, sem er 23 ára,
endaði í fjórða sæti á HM árið 2005
og í 7. sæti á HM í París árið 2003.
Heimsmet Stefka Kostadinova frá
Búlgaríu stendur því enn en hún fór
yfir 2,09 m í Róm árið 1987. Vlašic
hefur stokkið hæst yfir 2,07 m en á
síðustu 10 árum hefur hún bætt ár-
angur sinn jafnt og þétt og árið 2003
fór hún í fyrsta sinn yfir 2 metra.
Vlasic hefur sigrað á 12 af síðustu
13 mótum sem hún hefur tekið þátt í
utanhúss og áttu flestir von á því að
hún myndi sigra í Osaka. „Ég held að
mér hafi aldrei liðið betur, ég hafði
stefnt að þessu í mörg ár. Það var
mikil pressa á mér, allir áttu von á
því að ég myndi sigra. Ég þurfti því
að standast álagið og halda ró minni
á meðan keppnin fór fram,“ sagði
Blanca en hún er 1,93 m á hæð.
Blanca er skírð í höfuðið á borginni
Casablanca en faðir hennar keppti á
Miðjarðarhafsleikum í borginni á
þeim tíma sem hún kom í heiminn í
fyrrum Júgóslavíu. Joško Vlasic,
faðir hennar, var einn fremsti tug-
þrautarmaður heims á sínum tíma
og á hann enn króatíska metið í tug-
þraut – sem hann setti árið 1984.
Finnar sterkir í spjótinu
Jan Zelezný frá Tékklandi á enn
heimsmetið í spjótkasti sem hann
setti árið 1996. Tero Pitkämäki frá
Finnlandi var langt frá því að bæta
heimsmetið í gær í úrslitum spjót-
kastsins í karlaflokki en hann var sá
eini sem rauf 90 metra múrinn.
Pitkämäki kastaði 90,33 m og ólymp-
íumeistarinn Andreas Thorkildsen
varð annar með 88,61 m og bronsið
fékk Bandaríkjamaðurinn Breaux
Greer sem kastaði 85,21 m.
AP
Í sögubækurnar Bernard Lagat, sem keppir fyrir Bandaríkin, sigraði í 5.000 m hlaupi á HM í frjálsíþróttum í gær og voru það önnur gullverðlaun hans á
HM. Hann er sá fyrsti sem sigrar í 1.500 og 5.000 á HM en annar varð Eliud Kipchoge frá Kenýa. Lagat og Kipchoge koma frá sama bænum í Kenýa.
Ekkert heimsmet féll
Heimsmeistaramótinu í frjáls-
íþróttum lauk í gær í Osaka í Japan
og vakti það athygli að ekkert
heimsmet var sett á mótinu og er
þetta aðeins í þriðja sinn sem HM í
frjálsum fer fram án þess að heims-
met séu bætt. Bandaríkjamenn
náðu flestum verðlaunum eða 26
alls og 14 gullverðlaunum. Kenýa
varð í öðru sæti á þessu sviði með 5
gullverðlaun og 13 verðlaun alls.
Í HNOTSKURN
»Catherine Ndereba fráKenýa sigraði í maraþon-
hlaupi kvenna.
»Bandarísku sveitirnar íkarla- og kvennaflokki
höfðu yfirburði í 4x400 m boð-
hlaupi
»Maryam Yusuf Jamal fráBahrain sigraði í 1.500 m
hlaupi kvenna.
»46 þjóðir unnu verðlaun áHM, 22 þjóðsöngvar voru
spilaðir og 64 þjóðir áttu kepp-
endur sem komust í úrslit.
Bernard Lagat skráði nafn sitt í sögubækurnar á HM Finnar fögnuðu gulli
í spjótkasti karla Bandaríkjamenn sigursælir Vlasic í sérflokki í hástökkinu
BANDARÍSKI spretthlauparinn
Tyson Gey er fljótasti maður heims
en hann varð þrefaldur heimsmeist-
ari á HM í frjálsíþróttum í Osaka í
Japan. Gey var ekki eini þrefaldi
heimsmeistarinn því Allison Felix
frá Bandaríkjunum sigraði í 200 m
hlaupi; hún var í báðum boðhlaups-
sveitunum sem fengu gull í 4x100 m
og 4x400 m.
Gey sigraði í 100 m og 200 m
hlaupunum og hann var einnig í
4x100 m sveit Bandaríkjanna.
„Gullverðlaunin í boðhlaupinu
skiptu mig mestu máli því þar var
ég að vinna með liðsfélögum mín-
um,“ sagði Gey en fáir vissu af
styrk hans fyrir heimsmeist-
aramótið.
Aðeins þrír hafa náð þremur
gullverðlaunum á HM, Carl Lewis,
Maurice Greene og hinn 25 ára Gey
sem setti mótsmet í 200 m hlaupinu
– 19,76 sek. Lewis vann þrenn gull-
verðlaun 1983 og 1987, en Greene
árið 1999.
„Ég þarf að styrkja mig mikið til
þess að ná heimsmetinu af Michael
Johnson í 200 metrunum,“ sagði
Gey en metið er 19,32 sek.
Afrek Felix er ekki síðra en hún
hafði fyrir HM í Osaka aldrei tekið
þátt í boðhlaupum á stórmóti. „Ég
hef aldrei hlaupið boðhlaup áður á
stórmóti og ég var ekki viss við
hverju ég átti að búast. Það gekk
allt upp og tilfinningin er stórkost-
leg,“ sagði Felix.
Felix og Gey fengu þrenn
gullverðlaun í Osaka
Eftir Sindra Sverrisson
sindris@mbl.is
ANNA Björg Björnsdóttir, knattspyrnukona úr Fylki
og landsliðskona, heldur til Danmerkur að loknu leik-
tímabilinu og hyggst finna sér þarlent lið til að leika
með.
„Ég er lítið búin að skoða lið og ætla bara að gera
það þegar ég verð komin út,“ sagði Anna Björg í sam-
tali við Morgunblaðið, en hún hefur farið mikinn með
Fylki í sumar, skorað níu af tólf mörkum liðsins í ellefu
leikjum í úrvalsdeildinni.
Ástæða þess að Anna Björg heldur utan er þó ekki
sú að hana langi sérstaklega til að skipta um félag
heldur er unnusti hennar Christian Christansen, sem
sömuleiðis er framherji Fylkis, á leið til Danmerkur
þar sem hann mun leika með Hjörring í samnefndum
bæ. Liðið er sem stendur í þriðju efstu deild. Christian-
sen er að ljúka sínu þriðja tímabili með Fylki en hann
kom til Árbæjarliðsins frá AaB í Álaborg í júníbyrjun
2005.
„Svo er þarna Fortuna Hjörring sem er mjög gott
kvennalið sem Hólmfríður Magnúsdóttir spilaði með og
ég gæti vel hugsað mér að spila með því liði, en eins og
ég segi þá ætla ég bara að sjá til með þetta,“ sagði
Anna Björg, sem hyggur á nám í næringarfræði í Ála-
borg.
Anna Björg er 26 ára og lék sína fyrstu A-landsleiki,
fjóra talsins, fyrr á þessu ári, þrjá þeirra í byrjunarliði
Íslands.
Fortuna, sem hefur lengi verið eitt sterkasta kvenna-
liðið í Danmörku, varð í öðru sæti dönsku úrvalsdeild-
arinnar á síðasta ári og er sem stendur í efsta sæti
deildarinnar með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir,
en liðið komst til að mynda í úrslitaleik Evrópukeppn-
innar árið 2003.
Fylkispar til Danmerkur
Anna Björg og Christian Christiansen á leiðinni til Hjörring