Morgunblaðið - 03.09.2007, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 03.09.2007, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir HARRY Redknapp, knatt- spyrnustjóri Portsmouth, segist hafa verið nálægt því að fá Eið Smára Guðjohnsen til liðs við fé- lagið áður en félagaskiptafrest- urinn rann út á föstudaginn. Ís- lenski landsliðsvarnarmaðurinn Hermann Hreiðarsson gekk í raðir Portsmouth í sumar eftir að hafa leikið með Charlton í nokkur tíma- bil. „Ég var að vinna í því að fá Eið en meiðsli hans komu í veg fyrir að hann kæmi til okkar,“ segir Redknapp í enskum fjölmiðlum í gær en íslenski landsliðsfyrirliðinn er á sjúkralist- anum vegna meiðsla í hné sem hafa verið að angra hann. Redknapp úti- lokar ekki að hann reyni aftur við Eið Smára þegar fé- lagaskiptaglugg- inn opnast 1. janúar og sömuleiðis við Peter Crouch, framherja Liv- erpool, en Rafael Benítez, knatt- spyrnustjóri Liverpool, neitaði Portsmouth um að fá framherjann stóra. Eiður hefur leikið með tveimur félagsliðum á Englandi, Bolton og Chelsea, og varð hann m.a. enskur meistari með Chelsea. Enskir fjölmiðlar hafa orðað hann við ýmis félög í sumar. Redknapp náði að krækja í Papa Bouba Diop frá Fulham áður en félagaskiptaglugganum var lokað en hann leikur á miðjunni og var kaupverðið ekki gefið upp. Diop er 29 ára gamall en hann gerði þriggja ára samning við Portsmouth. Hann hefur lítið get- að leikið með Fulham undanfarin misseri vegna meiðsla. Redknapp reyndi að fá Eið Smára Eiður Smári BAYERN München tapaði í gær sínum fyrstu stigunum á þessu tímabili í þýsku 1. deildinni í knatt- spyrnu þegar liðið gerði jafntefli, 1:1, við Hamburger SV á útivelli. Miroslav Klose virtist ætla að tryggja Bayern sinn fjórða sigur í jafnmörgum leikjum þegar hann skoraði á 70. mínútu en það var hans 100. mark í deildinni frá upp- hafi. En Mohamed Zidan náði að jafna metin fyrir Hamburger þrem- ur mínútum fyrir leikslok og tryggði liði sínu stig. Bayern er þó áfram efst og er með 10 stig en fimm lið eru jöfn með 7 stig hvert. Meistarar Stuttgart töpuðu óvænt fyrir ná- grönnum sínum, nýliðum Karls- ruhe, og hafa þar með beðið tvisvar lægri hlut í fyrstu fjórum umferðunum. Þeir eru þar með í fjórða neðsta sæti deildarinnar. Ungverski miðju- maðurinn Tamas Hajnal skoraði sigurmarkið fyrir Karlsruhe snemma í síðari hálfleiknum. Fyrstu stigin forgörðum Miroslav Klose Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék í fyrsta sinn sem norska liðinu Våle- renga í gær er liðið sigraði Start, 3:2, á heimavelli á Ullevaal í Ósló. Árni Gautur Arason var í marki Vålerenga en Jóhannes Harðarson var í leikmannahópi Start en kom ekki við sögu. Gunnar Heiðar fór af leikvelli á 66. mínútu en hann fær ekki háa einkunn hjá netmiðlinum Nettavisen eða alls 4 af 10 mögu- legum. Á heimasíðu Vålerenga fær landsliðsframherjinn fína dóma en hann slapp m.a. einn í gegnum vörn Start á upphafsmínútum leiksins en það tækifæri var blásið af vegna rangstöðu sem stuðningsmenn Våle- renga voru ekki sáttir við. Våle- renga hefur verið í bullandi fall- hættu það sem af er leiktíð en liðið er nú í 9. sæti af alls 14 með 24 stig. Haraldur Guðmundsson var í vörn Aalesund sem sigraði Lyn á heimavelli, 3:1, en Indriði Sigurðs- son var ekki í leikmannahópi Lyn. Haraldur fær 6 í einkunn hjá net- miðlinum Nettavisen en nýliðarnir eru með 24 stig í 10. sæti deild- arinnar. Lyn hefur ekki séð til sólar frá því að Stefán Gíslason fór frá lið- inu og Lyn með 25 stig 7. sæti deild- arinnar. Kristján Örn Sigurðsson tryggði Brann 1:0 sigur á heimavelli gegn Sandefjord. Brann herti þar með takið á efsta sæti deildarinnar en Ólafur Örn Bjarnason var að venju í vörn Brann. Ármann Smári Björns- son var í leikmannahópnum en kom ekki við sögu hjá Brann. Það vekur athygli að Kristján hefur skorað 4 mörk í deildarkeppninni en fram- herjinn Veigar Páll Gunnarsson sem leikur í kvöld með Stabæk gegn Fredrikstad hefur skorað 6 mörk. Hannes Þ. Sigurðsson er með 4 mörk líkt og Kristján í deildinni. Hannes skoraði ekki í gær með Vik- ing frá Stavanger sem tók á móti Lilleström. Leikurinn endaði 1:1 en Hannes var í byrjunarliði Viking. Birkir Bjarnason var í leikmanna- hóp Viking en kom ekki við sögu og Viktor Bjarki Arnarsson var í liði Lilleström en lék ekki. Í netmiðl- inum Nettavisen fær Hannes 6 af alls 10 mögulegum í einkunn fyrir leik sinn. Kristján skorar og skorar KRISTJÁN Örn Sigurðsson skoraði sigurmark Brann gegn Sandefjord í norsku úrvalsdeildinni í gær í 1:0- sigri liðsins og er þetta í annað sinn á leiktíðinni sem íslenski landsliðs- maðurinn tryggir sigur gegn Sandefjord. Brann er með þriggja stiga forskot á Lilleström í efsta sæti deildarinnar þegar 7 umferðir eru eftir. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is Gunnar Heiðar fær misjafna dóma eftir fyrsta leikinn með Vålerenga BRÖNDBY, sigursælasta knatt- spyrnufélag Danmerkur síðustu tvo áratugina, er áfram í hópi botnliða dönsku úrvalsdeildarinnar eftir jafntefli á heimavelli, 1:1, gegn OB í gær. Bröndby er með 6 stig eins og Lyngby og aðeins AGF, lið Kára Árnasonar, er neðar, með 5 stig. Bröndby hefur aðeins náð að vinna einn leik á tímabilinu en stjórn félagsins þarf í dag að taka afstöðu til tilboðs frá Peter Schmeichel, fyrrum landsliðs- markverði Danmerkur. Schmeichel fer fyrir hópi fjárfesta sem vilja kaupa sig inn í félagið fyrir 2,5 milljarða króna. Stefán Gíslason var í liði Bröndby og hann var nálægt því að koma lið- inu í 2:0 í leikn- um í gær en hann átti skalla í þverslá. Stefán var tekinn af velli að loknum fyrri hálfleiknum en hann var þá kominn á ystu nöf með að fá rautt spjald. Rúrik Gíslason og félagar í Viborg komust af botn- inum með því að sigra AGF, 2:0, í Íslendingaslag, en AGF er komið í botnsætið í staðinn. Rúrik kom inn á sem varamaður hjá Viborg á 77. mínútu en Kári Árnason spilaði all- an leikinn með AGF. Bröndby enn við botninn Stefán Gíslason EMIL Hallfreðsson og félagar í Reggina náðu stigi á síðustu stundu í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í gær. Francesco Cozza jafnaði þá metin gegn Torino á útivelli, 2:2, þegar komið var fram yfir venjuleg- an leiktíma. Cozza var þá nýkominn inn á sem varamaður. Emil var áfram í byrjunarliði Reggina en var skipt af velli á 73. mínútu. Lið hans er komið með tvö stig eftir fyrstu tvo leiki sína í deild- inni. Juventus, sem er í deildinni á ný eftir árs fjarveru í kjölfar hneyksl- ismálsins á síðasta ári, vann ævin- týralegan útisigur á Cagliari, 3:2, á eynni Sardiníu. Giorgio Chiellini skoraði sigurmarkið með skalla á lokamínútu leiks- ins en skömmu áður hafði einn leikmaður úr hvoru liði verið rekinn af velli. David Trezeguet og Alessandro Del Piero skor- uðu hin mörk Ju- ventus í leiknum en liðið fer vel af stað og er með sex stig eftir tvær umferðir, eins og Roma. AC Milan og Fiorentina mætast í kvöld en bæði lið unnu í fyrstu umferðinni. Zlatan Ibrahimovic skoraði bæði mörkin fyrir meistaralið Inter sem vann Empoli, 2:0, á útivelli. Reggina jafnaði í lokin Emil Hallfreðsson WESLEY Sneijder frá Hollandi sel- ur ekki eins margar keppnistreyjur og forveri hans í Real Madrid, David Beckham, en Sneijder skoraði tví- vegis í 5:0 sigri liðsins gegn Villareal í gær. Sneijder leikur í treyju nr. 23 líkt og Beckham gerði á sínum tíma. Villareal hafði fyrir leikinn ekki tap- að í síðustu 9 leikjum. „Ég er mjög ánægður með mörkin enda vissum við að tækni hans væri góð og skot hans úr aukaspyrnu geta verið mjög hættuleg,“ sagði Bernd Scühster, þjálfari Real Madrid. „Ég er viss um að hann á eftir að skora fleiri mörk úr aukaspyrnum,“ bætti hann við en Sneijder skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu í leiknum. Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í leikmannahóp Barcelona vegna meiðsla en liðið vann 3:1 sigur á heimavelli gegn Athletico Bilbao þar sem Ronaldinho skoraði tvívegis. Thierry Henry lék sinn fyrsta leik á heimavelli með Barcelona en fyrrum framherji Arsenal náði ekki að skora. „Henry sýndi að hann er ávallt hættulegur,“ sagði Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona. AP Góður Wesley Sneijder, leikmaður Real Madrid, fer framhjá Marcos Antonio varnarmanni Villareal. Sneijder sýndi takta Ragnar Sig-urðsson og Hjálmar Jónsson voru báðir í byrj- unarliði Gauta- borgar sem gerði markalaust jafn- tefli gegn Brommapojk- arna í sænsku úr- valsdeildinni í gær. Gautaborg er á toppi deildarinnar með 33 stig að loknum 20 umferðum en Elfsborg er með jafnmörg stig og á leik til góða.    Arnar Þór Viðarsson var í byrj-unarliði De Graafschap í hol- lensku úrvalsdeildinni í gær þegar liðið gerði 2:2 jafntefli gegn Utrecht á útivelli. Arnar fór af velli á 65. mín- útu en hann er í láni hjá nýliðunum en er samningsbundinn Twente.    Marel Bald-vinsson skoraði fyrir Molde í 2:0 sigri liðsins í norsku 1. deildinni á útivelli gegn Ham/Kam á laugardag. Marel hefur skor- að 5 mörk á leik- tíðinni en hann hefur aðeins tekið þátt í 10 leikjum af alls 21. Marel hefur byrjað inni á í sjö leikjum en komið inn á sem varamaður í þrem- ur. Molde féll úr úrvalsdeildinni sl. vor en liðið er á hraðferð upp aftur og er þessa stundina með 53 stig í efsta sæti.    Baldur Sigurðsson fyrrum leik-maður Keflavíkur var ekki í leikmannahóp Bryne í norsku 1. deildinni þegar liðið lagði Mandals- kam á útivelli, 2:1. Danski framherj- inn Allan Borgvardt fyrrum leik- maður Íslandsmeistaraliðs FH skoraði fyrir Bryne í leiknum en Borgvardt hefur skorað 7 mörk á leiktíðinni. Markahæsti leikmaður deildarinnar er Thiago Martins leik- maður Bodö/Glimt en hann hefur skorað 15 mörk.    Símun Eiler Samúelsen fyrrumfélagi Baldurs úr Keflavík var ekki í leikmannahóp Sogndal sem tapaði á útivell, 2:1, gegn Moss.    Vallarmatsnefnd GolfsambandsÍslands hefur skráð og tekið í notkun nýtt vallarmat fyrir Garða- völl á Akranesi. Vallarforgjöf kylf- inga breytist við nýja matið um 1-3 högg allt eftir grunnforgjöf þeirra. „Forgjafarnefnd Leynis hefur ekki tekið neinar ákvarðanir um breyt- ingu grunnforgjafar hjá fé- lagsmönnum klúbbsins út frá nýju vallarmati,“ segir í frétt frá félaginu.    Georgía og Finnland áttust við íB-deild Evrópumótsins í körfu- knattleik í gær en liðin eru með Ís- lendingum í riðli. Georgía hafði bet- ur, 77:76, en þetta er fyrsti tapleikur Finna í keppninni. Fólk sport@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.