Morgunblaðið - 01.10.2007, Qupperneq 20
20 MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FJÖLSKYLDUHJÁLP Íslands er
að hefja sitt fimmta starfsár og þörfin
hefur aldrei meiri við að aðstoða kon-
ur, börn og karla í neyð. Við treystum
á fyrirtæki og einstaklinga með fjár-
magn, fatnað og matvæli. Peningar
eru af skornum skammti og því þarf
að gæta vel að kaupa þau matvæli
sem hagstæðast er að kaupa hverju
sinni.
Frá upphafi hafa eft-
irtaldir aðilar og fyr-
irtæki styrkt starfið í
formi matvæla o.fl.:
Ólafur Jóhann Ólafsson
rithöfundur, Helgi S.
Guðmundsson, Frón-
kex, Myllan-Brauð,
MS, Dreifing, Ömmu-
bakstur, Lýsi, Nesbú-
egg, Sölufélag garð-
yrkjumanna,
Bakarameistarinn,
Mjólka, Papco, Plast-
prent, Emmessís, Góa-
Linda, Selecta. Færum
við þeim hjartans þakkir fyrir.
Mikið væri það yndislegt a geta út-
hlutað nýjum fiski, kjúklingum, kjöti
og góðu úrvali grænmetis. Þess í stað
erum við að úthluta kjötfarsi og
hrossabjúgum sem er það ódýrasta
sem völ er á en við úthlutum til yfir
100 fjölskyldna á hverjum mið-
vikudegi. Það eru um 250 ein-
staklingar með börnunum sem hvern
miðvikudag treysta á matargjafir hjá
Fjölskylduhjálp Íslands. En við sníð-
um okkar stakk eftir vexti.
Við biðlum til auðmanna þessa
lands um að styðja við bak starfsins
með fjárframlögum en þeir hinir sömu
munu fá ársreikning þar sem fram
kemur hvaða matvæli við kaupum og
frá hverjum. Þar kemur líka í ljós að
hver einasta króna fer til að hjálpa fá-
tæku fólki á Íslandi. Allt starf er unnið
í sjálfboðastarfi.
Það er mjög átak-
anlegt hversu margir
skjólstæðingar okkar
hafa ekki efni á að nota
okkar góða heilbrigð-
iskerfi. Margir geta ekki
leyft sér að nota tann-
læknaþjónustu, hvað þá
að leysa út lyfin sín eða
láta snyrta hár sitt.
Hér er nýleg dæmi-
saga: Ung fimm barna
móðir leitar til okkar
sökum mikillar fátækt-
ar, hún er öryrki, býr
með fimm börnum sín-
um í sumarbústað. Þeg-
ar hún kom til okkar síðasta miðviku-
dag var hún illa haldin því hún hafði
ekki haft efni á að leysa út geðlyfin sín
í langan tíma og geðeinkennin því
komin vel í ljós. Það var mjög sorglegt
að horfa upp á þessa ungu konu sem
var svo illa haldin að það stakk mann
beint í hjartastað. Þessa konu vantaði
allt. Við hjálpuðum henni að leysa út
geðlyfin sem kostuðu bara 1.200
krónur sem ekki er há upphæð, létum
hana hafa peninga fyrir bensíni á bíl-
inn svo hún kæmist til okkar aftur
eftir tvær vikur því hún þarf að fara
um langan veg til að koma til okkar.
Þá létum við hana hafa mikið magn af
matvælum fyrir hennar stóru fjöl-
skyldu og síðast enn ekki síst fékk
hún hlýjan fatnað, þykkar og góðar
sængur og mörg þykk teppi svo þeim
yrði ekki eins kalt í sumarbústaðnum
í vetur. Þessi kona hefur ekki getað
leyft sér að nýta þjónustu tannlækna
hvað þá aðra þjónustu innan okkar
góða heilbrigðiskerfis.
Kæru auðmenn Íslands, hjálpið
okkur við að hjálpa þeim fjölmörgu
fátæku fjölskyldum sem til okkar
leita.
Bankareikningar okkar eru: 101-
26-66090 og 546-26-6609.
Kt. 660903-2590.
Með fyrirfram þakklæti fyrir
stuðninginn.
Opið bréf til auðmanna Íslands
Ásgerður Jóna Flosadóttir
biður auðmenn Íslands að
styrkja Fjölskylduhjálpina
»Mikið væri það ynd-islegt að geta út-
hlutað vikulega nýjum
fiski, kjúklingum, kjöti
og góðu úrvali grænmet-
is í stað þess að úthluta
kjörfarsi og bjúgum.
Ásgerður Jóna
Flosadóttir
Höfundur er formaður
Fjölskylduhjálpar Íslands.
Stjórn landssamtakanna Lands-
byggðin lifi, LBL, sendi undirritaða
sem annan fulltrúa sinn á fund Hela
Norden ska leva, HNSL, sem fór
fram á Álandseyjum dagana 24. og
25. ágúst sl.
Ævintýraleg saga
Álandseyja
Vegna hernaðarlega
mikilvægrar legu sinn-
ar í Eystrasalti við
mynni Helsingjabotns
voru eyjarnar áður fyrr
bitbein evrópskra her-
velda. Þegar Rússar
náðu Finnlandi af Sví-
um 1809 fylgdu Álands-
eyjar með. Síðan voru
eyjarnar lengi hersetn-
ar af Rússum. Þegar
Bretum og Rússum
laust saman í Krím-
stríðinu upp úr miðri
19. öld gerðu Bretar
flotaárás á eyjarnar.
Upp úr því stríði komu
menn sér saman um
sérstöðu eyjanna og
voru þær lýstar frið-
arsvæði, og engar her-
stöðvar mátti hafa þar.
1917 losnuðu Finnar
undan Rússum og urðu
sjálfstæð þjóð. Sama ár
fór fram þjóð-
aratkvæðagreiðsla á
Álandseyjum. Kaus yf-
irgnæfandi meirihluti eyjarskeggja
að sameinast Svíþjóð, enda var og er
mikill meirihluti þeirra sænskumæl-
andi. Hófst nú deila Svía og Finna um
hvort eyjarnar ættu að vera hluti af
Svíþjóð eða Finnlandi. Deilunni lauk
þegar Þjóðabandalagið kvað upp
þann úrskurð 1921, að eyjarnar
skyldu vera hluti af Finnlandi en með
nokkurt sjálfstæði. Einnig var ítrek-
að í úrskurðinum, að engar her-
stöðvar mættu vera á eyjunum. Svíar
lýstu því yfir, að þeir væru ósammála
úrskurðinun, en mundu hlíta honum.
Nú má líta svo á, að Álandseyjar
séu hérað innan Finnlands, en með
eigið þing og fjárlög. Opinbert tungu-
mál er sænska. Heildarsamtök
byggða á Finnlandi veittu eyjar-
skeggjum fjárstuðning, svo að þeir
gætu staðið myndarlega að fyrsta
fundi sínum í Hela Norden ska leva.
Hela Norden-fundurinn
Af Norðurlöndunum, Danmörku,
Svíþjóð, Finnlandi, Noregi og Íslandi,
eru Álandseyjar yngstar í samtök-
unum Hela Norden ska leva. Fyrsti
formaðurinn þar er
Mikael Ericksson, ung-
ur maður og ákveðinn.
Mikael hafði boðið
tveimur fulltrúum frá
hverjum lands-
samtökum áður upptal-
inna landa til fundarins.
Norðmenn sendu engan
fulltrúa, Danir tvo,
Finnar og Svíar einn
hvor, en frá Íslandi
mættu tveir fulltrúar,
ég og formaður LBL,
Ragnar Stefánsson.
Mikael hafði und-
irbúið fundinn vel og
boðið var upp á meiri til-
breytingu en venjulega.
Við fengum að skoða
fræga seglskútu, Pom-
mern, sem lá við hafn-
arbakkann. Skútan hef-
ur að geyma merkilegar
stríðsminjar og er gest-
um og gangandi til sýn-
is. Það var einstök upp-
lifun að ganga um
skútuna og skoða mynd-
ir af raunverulegum at-
burðum á veggjum
hennar, sem tengdu
okkur beint við söguna og harða lífs-
baráttu eyjaskeggja áður fyrr.
Einnig var okkur boðið í skoð-
unarferð um eyjarnar og í lokin á
viðamikinn söngleik með færustu
listamönnum frá löndunum kringum
Eystrasalt. Markmið tónleikanna var
að safna fé til verndunar Eystrasalt-
inu, sem er orðið það mengað, að fisk-
arnir, sem veiðast þar, eru varhug-
arverðir heilsu manna. Tónleikarnir
voru einstök upplifun.
Hela Norden-fundurinn var hald-
inn í sumarbústað Mikaels. Stóð
fundurinn yfir á annan dag og var því
ein gistinótt í dæminu. Deildi ég þá
herbergi með varaformanni sænsku
heildarsamtakanna, Hela Sverige ska
leva. Þau samtök eru rótin að HNSL.
Varaformaðurinn, Inez Abrahamson,
er heilsteypt persóna og á sér langa
sögu í virku starfi að byggðamálum.
Við náðum vel saman.
Á fundinum var markvisst tekið á
málum HNSL og farið dýpra ofan í
saumana á markmiðum og framtíð-
arstefnu samtakanna en venjulegt er
á styttri fundum, sem haldnir eru t.d.
í tengslum við byggðaþing. Á fundum
hjá HNSL kemst fólk ekki upp með
neitt múður og langlokutal. Skýrt mál
og málefnaleg umræða er það eina
sem gildir.
Yfirleitt eru allir, sem mæta á
fundi HNSL, á kafi í málum, sem lúta
að framförum á landsbyggðinni. Hjá
bæði finnska og sænska fulltrúanum
er það fullt starf. Enda hefur Svíum
og Finnum gengið betur en öðrum
Norðurlandaþjóðum að aðlaga sig nú-
tímanum til hagsbóta fyrir lands-
byggðina.
Merkileg verkefni á vegum
Landsbyggðarvina í Reykjavík
og nágrenni, sem er deild í LBL
Athygli vöktu þau tvö verkefni,
sem Landsbyggðarvinir í Reykjavík
og nágrenni standa að og ég kynnti
þarna með nokkru stolti. Ber þar
fyrst að nefna unglingaverkefnið,
Heimabyggðin mín. Unglingum í
efstu bekkjum grunnskólans gefst
þar tækifæri til að hugleiða, hvernig
heimabyggð þeirra geti orðið að betri
stað til að búa á eða að eftirsókn-
arverðari stað til að flytjast til.
Hitt verkefnið, sem við köllum nýja
verkefnið okkar, fjallar um ostafram-
leiðslu á heimavelli. Það verkefni
vinnum við í samvinnu við Svía og
Norðmenn. Bæði þessi verkefni
vöktu athygli og umræðu, þykja
metnaðarfull og spennandi.
Lykillinn að árangri í byggðaþróun
samtímans felst í að vinna að verk-
efnum, sem byggjast á frumkvæði og
áhuga fólksins, sem býr á lands-
byggðinni. Á þá strengi er leikið í
báðum þessum verkefnum.
Í ferðalok má segja, að hlýtt viðmót
fulltrúa hinna Norðurlandanna muni
ylja mér um hjartaræturnar í fram-
tíðinni.
Jákvæðir straumar frá Hela
Norden ska leva, Norðurlöndin lifi
Fríða Vala Ásbjörnsdóttir
skrifar um Álandseyjar
og Hela Norden-fund
» Á fundumhjá HNSL
kemst fólk ekki
upp með neitt
múður og lang-
lokutal. Skýrt
mál og mál-
efnaleg umræða
er það eina sem
gildir.
Fríða Vala
Ásbjörnsdóttir
Höfundur er verkefnisstjóri og
formaður Landsbyggðarvina í
Reykjavík og nágrenni.
✝ Þórður IngiGuðmundsson
fæddist í Reykjavík
29. apríl 1991. Hann
lést á Barnaspítala
Hringsins 22. sept-
ember sl. eftir slys
sem hann varð fyrir
í skólasundi í Sund-
laug Kópavogs 26
apríl sl.
Foreldrar Þórðar
Inga eru Hólmfríður
Þórðardóttir og
Guðmundur Sig-
urjónsson. Hólm-
fríður giftist Sigurjóni Kjart-
anssyni og ólst Þórður upp hjá
þeim. Bræður Þórðar eru Kjartan
Logi Sigurjónsson f. 1998, og Egill
Gauti Sigurjónsson, f. 2000.
Hólmfríður er dóttir Hjördísar
Bjartmarsdóttur (látin) og Þórðar
Jónassonar. Seinni kona Þórðar er
Fanney Lára Ein-
arsdóttir. Foreldrar
Guðmundar eru Her-
dís S. Guðmunds-
dóttir og Sigurjón
Jóhannesson. For-
eldrar Sigurjóns eru
Bergljót S. Sveins-
dóttir og Kjartan
Sigurjónsson.
Þórður Ingi var
nemandi í Engja-
skóla til 2001 og síð-
an í Snælandsskóla.
Hann æfði knatt-
spyrnu, fyrst með
Fjölni í Grafarvogi frá 1997-2001
og síðan með HK í Kópavogi frá
2001 til dauðadags. Hann var einn-
ig aðstoðarþjálfari yngri flokka
HK frá 2006.
Útför Þórðar Inga fer fram frá
Digraneskirkju mánudaginn 1.
okt. kl. 15.
Kveðja frá mömmu
Takk fyrir að fá að njóta samvista
við þig, elsku drengurinn minn, þessi
tæp sextán og hálft ár sem við áttum
saman. Auðvitað hefði ég viljað hafa
þig hérna hjá mér í þessu lífi miklu
miklu lengur.
Þú varst svo ótrúlega vel af Guði
gerður. Afburða námsmaður, góður
íþróttamaður, hafðir ríka tónlistar-
gáfu enda lærðir þú bæði á þver-
flautu og gítar. En fótboltinn átti
hug þinn allan þín síðustu ár. Þú
varst metnaðarfullur, hafðir ríka
réttlætiskennd og varst umfram allt
góður strákur. Húmorinn þinn var
hárbeittur, svolítið svartur og náðum
við mæðginin þar vel saman. Þú gast
nú líka verið dálítið þrjóskur og
bráður á köflum, sérstaklega ef þitt
lið tapaði leik eða þér fannst þú
órétti beittur. En þú kunnir líka þá
list að geta fyrirgefið. Nokkuð sem
ekki öllum er gefið.
Ég er þakklát fyrir kvöldið sem
við áttum saman. Kvöldið fyrir hið
örlagaríka slys. Við horfðum saman
á Liverpool-leik og spjölluðum svo
fram eftir kvöldi. Við vorum náin og
samrýnd mæðgin og það sem ég gaf
þér fékk ég margfalt til baka.
Ég sakna þín svo óendanlega mik-
ið, en vonandi læri ég að lifa lífinu án
þín í framtíðinni. Megi Guð varðveita
þig elsku drengurinn minn. Ég kveð
þig með vögguvísunni sem ég söng
alltaf fyrir þig þegar þú varst yngri.
Sofðu unga ástin mín,
– úti regnið grætur.
Mamma geymir gullin þín,
gamla leggi og völuskrín.
Við skulum ekki vaka um dimmar nætur.
(Jóhann Sigurjónsson)
Mamma.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Elsku Þórður minn. Þetta var
bænin sem þið mamma þín fóruð svo
oft með fyrir svefninn þegar þú varst
lítill. Ég man hvað var mikil eining á
milli þín og mömmu þinnar þegar ég
kom inn í líf ykkar, þú þá um þriggja
ára gamall. Þú verndaðir hana og
hún verndaði þig. Þetta einstaka
samband á milli ykkar hélst til síð-
asta dags. Þú varst svo mikil hetja í
augum yngri bræðra þinna, sem
dýrkuðu þig og dáðu. Stóri bróðir
sem gat haldið bolta á lofti þúsund
sinnum. En þú varst líka hetja í aug-
um okkar mömmu þinnar. Hetjan
sem var svo góð í að skilja kjarnann
frá hisminu. Maður gat alltaf leitað
til þín um góð ráð, meira að segja
þegar þú varst fimm ára. Stundum
fannst manni að þú hugsaðir eins og
hundrað ára gamall vitringur.
Ég sakna svo nærveru þinnar. Ég
veit ekki hvort ég mun nokkurn tím-
ann gera eytt síðasta SMS-inu sem
þú sendir mér, helgina fyrir slysið og
þú í draumaferðinni þinni á Anfield í
Liverpool. Liverpool voru þín trúar-
brögð. Þú hafðir svo hárbeittan húm-
or, djúpa og skýra hugsun. Þú hafðir
allt til brunns að bera. Frábær
námsmaður og músíkalskur. Fót-
boltinn átti hug þinn allan. Þar barð-
ist þú um á hæl og hnakka og settir
þér háleit markmið, þótt þú værir
ekkert að flíka þeim. Þú áttir líka
bjarta framtíð fyrir þér á sviði þjálf-
unar og varst einstaklega natinn og
þolinmóður við yngri strákana í bolt-
anum.
En 26. apríl sl. breyttist líf okkar
allra, þegar þú drukknaðir í Kópa-
vogslaug, varst lífgaður við og lást
meðvitundarlaus í næstum fimm
mánuði, fyrst á gjörgæslunni í Foss-
vogi og svo á Barnaspítala Hrings-
ins. Í því ástandi sýndir þú okkur í
eitt skipti fyrir öll hve mikill baráttu-
jaxl þú varst. Þú sýndir okkur
mömmu þinni svo oft merki um að þú
heyrðir í okkur og skildir hvert orð.
En súrefnisskorturinn sem heila-
stofninn varð fyrir við slysið var svo
mikill að meðvitundin lét á sér
standa og að lokum varð langlegan
þér að falli. Við erum samt þakklát
fyrir þennan tíma sem við fengum
með þér og gerum okkur grein fyrir
að þú hefðir aldrei getað sætt þig við
að vera bundinn við hjólastól og ekki
geta stjórnað líkamshreyfingum þín-
um þótt þú hefðir komist til meðvit-
undar.
Þú ert frjáls núna, Þórður.
Hlauptu. Haltu á lofti þúsund sinn-
um. Þakka þér fyrir að leyfa okkur
að kynnast þér, elsku sonur.
Pabbi Sigurjón.
Aufúsugestur var Þórður Ingi
þegar hann kom í heimsókn til afa
síns og ömmu á Húsavík allt frá því
hann var þar ungabarn með foreldr-
um sínum í fyrsta sinn og þar til þess
hann kom þar síðsumars 2006. Sum-
arið 2007 var för hans ráðgerð norð-
ur með föður sínum eins og jafnan en
þangað átti hann ekki afturkvæmt er
örlög hans voru svo skyndilega og
óvænt ráðin. Í síma var þó rætt við
Þórð Inga fram undir lokadag og þá
tíundaði hann fyrir afa sínum og
ömmu hvað á dagana hefði drifið og
hafði frá mörgu að segja.
Glaður drengur og góður mega
gjarnan vera einkunnarorð um hann.
Glaðværð hans smitaði út frá sér.
Hann var félagslyndur, hógvær,
tranaði sér ekki fram, viðkvæmur í
lund. Hann var ekki hár í lofti þegar
hann í garði ömmu sinnar og afa lék
sér með frændsystkinum sínum og
fleirum að knetti þar sem reynitré
tvö voru marksúlur og ekki skorti
marksæknina. Þórður Ingi var
snemma fylginn sér í fótboltanum og
hafði yndi af leiknum, iðkaði knatt-
tækni og hafði næmt auga fyrir sam-
leik.
Hann var athugull og yfirvegaður,
vel að sér og fylgdist grannt með því
sem fyrir augu og eyru bar. Við
Botnsvatn skammt frá Húsavík fór
hann í berjamó á sumrin, lék sér
ungur við að veiða hornsíli í Vatninu,
veiddi fisk við bryggju, fór í hvala-
Þórður Ingi
Guðmundsson
MINNINGAR