Morgunblaðið - 01.10.2007, Side 5

Morgunblaðið - 01.10.2007, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2007 5 SINISA Valdimar Kekic, hinn 37 ára gamli sóknarmaður Víkinga, skoraði sitt 50. mark í efstu deild í leiknum við FH á laugardaginn. Það dugði ekki til sigurs, þar sem FH-ingar skoruðu þrjú mörk, 3:1. Hann hafði fyrir þetta tímabil skor- að 42 mörk fyrir Grindavík í deild- inni og gerði 8 mörk fyrir Víkinga í ár. Kekic, sem kom frá Júgóslavíu til Grindavíkur árið 1996, er 34. leikmaðurinn frá upphafi sem nær að skora 50 mörk í efstu deild og er aðeins annar leikmað- urinn af erlendu bergi brotinn sem nær þessum áfanga. Hinn er Mi- haljo Bibercic sem gerði 52 mörk fyrir ÍA, KR og Stjörnuna á sínum tíma. Kekic með 50. markið Morgunblaðið/Árni Torfason Svekktur Sinisa Valdimar Ke- kic að vonum svekktur með að hafa fallið í 1. deild. „VIÐ byrjuðum af krafti, skoruðum mark snemma og mér fannst þetta allt á réttri leið. Við heyrðum að Valur væri yfir og áttum von á að FH gæfi eftir er liði á leikinn og þetta virtist allt vera að ganga eftir. En þá kom þetta jöfnunarmark lengst utan af velli. En við hættum ekki og reyndum og reyndum og prófuðum allt sem við áttum að því er mér fannst. Það bara tókst ekki í dag,“ sagði Magnús Gylfason, þjálf- ari Víkinga, eftir að þeir töpuðu fyr- ir FH í Víkinni og féllu úr Lands- bankadeildinni. „Við fengum færi til að skora fleiri mörk en það tókst ekki. FH- ingar fengu líka fullt af fínum fær- um eftir að við opnuðum okkur. Mér fannst við reyna allt sem við gátum, notuðum öll tromp sem við höfðum, komumst á bak við þá og náðum að senda fyrir markið, en það tókst ekki að skora og við sitjum uppi með þetta. En við vorum ekki að falla beint í þessum leik. Við erum búnir að vera óheppnir uppi á Skaga, óheppnir í Keflavík, óheppnir á Kópavogsvelli, skelfilega dómgæslu hérna tvisvar eða þrisvar í sumar. Það er svo margt sem hjálpast að í þessu og svo auðvitað okkar eigin aumingja- skapur. Það virðist líka vera þannig að það gengur ekkert upp hjá liði sem er í strögli. Ég nefndi til dæmis leik- inn á móti Val þar sem við áttum að vera 3:0 yfir en þeir voru allt í einu 3:0 yfir og varla búnir að fá færi. Þetta er saga liða sem eru í strögli. Þau skora ekki, þau nýta ekki færin og kannski spenna sig of hátt eða leikmenn eru nægilega góðir. Þetta er okkar hlutskipti okkar í ár og við verðum að taka því og stefna að því að komast upp á næsta ári,“ sagði Magnús. Hann gerði þriggja ára samning sem er uppsegjanlegur af beggja hálfu núna þegar eitt ár er eftir af honum. „Við skoðum þessi mál í ró- legheitunum á næstu dögum,“ sagði Magnús. Prófuðum allt sem við áttum KR 1 Fylkir 1 Mark KR: Óskar Örn Hauksson 55. Mark Fylkis: Peter Gravesen (víti) 90. Markskot: KR 9 (3) – Fylkir 15 (5) Horn: KR 7 – Fylkir 7 Rangstaða: KR 3 – Fylkir 1 Lið KR: (5-4-1) Stefán Logi Magnússon – Sigþór Júlíusson, Pétur Marteinsson, Gunnlaugur Jónsson, Kristinn Magnússon – Óskar Örn Hauksson (Skúli Jón Frið- geirsson 88.), Ágúst Gylfason, Bjarnólfur Lárusson, Rúnar Kristinsson (Sigmundur Kristjánsson 82.), Jóhann Þórhallsson – Grétar Hjartarson (Björgólfur Takefusa 78.). Gult spjald: Bjarnólfur 32. (brot). Rauð spjöld: Engin. Lið Fylkis: (4-4-2) Fjalar Þorgeirsson – Andrés Már Jóhannesson, Kristján Valdi- marsson, David Hannah, Víðir Leifsson – Guðni Rúnar Helgason (Páll Einarsson 69.), Valur Fannar Gíslason (Ólafur Stígs- son 61.), Halldór Hilmisson, Peter Grave- sen – Albert Ingason (Haukur Ingi Guðna- son 86.), Christian Christiansen. Gult spjald: Albert 32. (stimpingar). Rauð spjöld: Engin. Dómari: Jóhannes Valgeirsson, KA 4 Áhorfendur: 2.170. KR Stefán Logi Magnússon Rúnar Kristinsson Óskar Örn Hauksson FYLKIR Peter Gravesen Halldór Hilmisson EGILL Már Markússon dæmdi á laugardaginn sinn síðasta leik í efstu deild karla í knattspyrnu en hann var þá dómari í viðureign Vals og HK á Laugardalsvell- inum. Egill Már, sem er 43 ára, er að ljúka sínu 19. tímabili sem dómari í efstu deild karla en endapunkturinn verður bikarúr- slitaleikurinn um næstu helgi, milli FH og Fjölnis. „Ég ákvað að hætta á mínum eigin forsendum og finnst þetta vera orðið gott. Þetta er mitt 20. tímabil í efstu deild því ég var línuvörður eitt sumar áður en ég fór að dæma í deildinni,“ sagði Egill Már við Morgunblaðið eftir leikinn. Hann dæmdi 11 leiki í deildinni í sumar og á því að baki alls 166 leiki í efstu deild karla á þessum 19 árum, leikjahæstur þeirra sem dæmdu í sumar. Egill Már var FIFA-aðstoð- ardómari frá 1992 og síðan FIFA- dómari frá 1999 þar til hann hætti á þeim vettvangi fyrir ári síðan. Síðasti leikur Egils Más 1:0 55.Rúnar Kristinsson komst upp að vítateig Fylkis og renndiboltanum inn á vítateiginn. Þar var Óskar Örn Hauksson á auðum sjó og skoraði með skoti í nærhornið. 1:1 90. Andrés Már Jóhannesson féll í vítateig KR eftir tæklinguGunnlaugs Jónssonar. Vítaspyrna dæmd og úr henni skoraði Peter Gravesen með góðu skoti. Eftir Kristján Jónsson Loga Ólafssyni þjálfara KR var létt þegar niðurstaðan lá fyrir: ,,Létt- irinn er auðvitað mjög mikill. Mark- miðið var að halda þessu liði í deild- inni og það tókst með öllum tiltækum ráðum. Við verðum bara að vera ánægðir með að hafa náð því markmiði. Við vissum að það yrði erfitt að spila á móti FH og Val en hins vegar treysti ég liðinu fullkomlega í leikina gegn hinum liðunum. Úrslitin hafa verið bærileg gegn öðrum liðum eins og sigrarnir gegn Víkingi og HK. Þetta nægði. Ég verð að viðurkenna að þetta var erfiðara en ég bjóst við. Þessi sár voru djúp og það hefur tekið langan tíma að fá þau fullgróin og þau eru það væntanlega ekki enn. Það er verkefni næsta árs að lagfæra þau mál. Allt er gott sem endar vel. Við enduðum á því að halda sæti okkar í deildinni þrátt fyrir að hafa verið í neðsta sæti meira og minna allt mótið. Þannig að þetta er kærkom- ið. Ég tel að KR sé þannig félag að það eigi að vera í efstu deild. Að mínu mati yrði hún ekki söm án KR,“ sagði Logi Ólafsson þjálfari KR að leiknum loknum en hann vill ekkert gefa upp að svo stöddu um áhuga sinn á því að halda áfram sem þjálfari KR: ,,Ég get bara sagt þér að hvorki ég né stjórnin vildum semja um meira en þessa sjö deild- arleiki þannig að ég get ekki svarað neinu um það.“ Ekki þarf að eyða miklu púðri í að segja frá leiknum sjálfum en hann var í rólegri kantinum enda aðstæður ekki eins og best verður á kosið á blautum KR-vellinum. Rún- ar Kristinsson var maðurinn á bak við mark KR sem Óskar Örn Hauksson skoraði, en sá lipri kant- maður hefur fundið sig ágætlega hjá KR á lokaspretti mótsins. Fylk- ismenn lögðu ekki árar í bát og sóttu hart að marki Vesturbæinga þar sem Stefán Logi Magnússon markvörður reyndist þeim erfiður. Peter Gravesen tókst þó að jafna metin úr vítaspyrnu undir lok leiks- ins. En þar sem Víkingur var að tapa fyrir FH á sama tíma þá skipti það engu máli fyrir KR-inga. Varnarleikurinn til fyrirmyndar Fylkir missti þó af tækifæri til þess að ná þriðja sætinu þar sem ÍA náði ekki að sigra í Keflavík. Leifur Garðarsson þjálfari Fylkis er nokkuð sáttur við árangur sum- arsins: ,,Fyrir fram settum við okk- ur það einfalda markmið að vinna heimaleikina og ná jafntefli á úti- völlum. Þá hefðum við unnið mótið. Það gekk ekki alveg upp. Okkur gekk mjög vel á útivelli eins og oft áður en við getum gert betur heima. Varnarleikur okkar á tíma- bilinu var til fyrirmyndar enda fáum við á okkur fæst mörk allra í deildinni. Höldum hreinu í sjö eða átta leikjum ef ég man rétt. Síðasta þriðjung mótsins gekk sóknarleik- urinn mun betur en framan af móti og það þurfum við að taka með okk- ur á næsta tímabili,“ sagði Leifur sem er ánægður í Árbænum: ,,Það er mjög vel að málum staðið í Ár- bænum og í raun til fyrirmyndar. Það er bara einn aðili sem er ekki að standa sig og það er Reykjavík- urborg. Bæði núverandi eða fyrr- verandi meirihluti hafa dregið lapp- irnar í því að byggja upp aðstöðu fyrir Fylkismenn. Það er það eina sem er neikvætt fyrir lok sumarsins að ekki skuli vera búið að tæta upp völlinn okkar og byggja nýjan.“ Morgunblaðið/Golli Með tunguna úti KR-ingurinn Óskar Örn Hauksson vandaði sig rosalega þegar hann sendi knöttinn í netið hjá Fylkismönnum. Sextán stig dugðu KR „Markmiðið var að halda liðinu í efstu deild,“ sagði Logi Ólafsson, þjálfari KR KR-INGAR enduðu í áttunda sæti með sextán stig eftir að hafa verið í fallsæti á löngum köflum í sumar. KR gerði jafntefli við Fylki 1:1 í síð- ustu umferðinni og bjargaði sér þar með frá falli úr Landsbankadeild- inni. Aldrei fyrr hefur það gerst að sextán stig dugi til þess að bjarga liði frá falli frá því að þriggja stiga reglan var tekin upp í efstu deild karla árið 1985.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.