Morgunblaðið - 01.10.2007, Page 6
Meistaragleði Baldur Aðalsteinsson, Hafþór Ægir Vilhjálmsson, Dennis Bo Mortensen og Kjartan Sturluson kunnu að fag
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
Það var því stór stund í herbúðum
Valsmanna þegar fyrirliðinn Sigur-
björn Hreiðarsson lyfti Íslandsbik-
arnum á loft og það mátti sjá mörg
Valstárin falla þegar bikarinn var haf-
inn á loft undir sigurlagi hljómsveit-
arinnar Queen; „Við erum meistar-
arnir“.
Valsmenn vissulega verðugir
meistarar en þeir sýndu ótrúlega
seiglu og tókst að skjótast fram úr
FH-ingum á hárréttum tíma undir
öruggri stjórn Willums Þórs Þórsson-
ar, sem stendur uppi sem mikill sig-
urvegari sem þjálfari. Willum gerði
KR-inga í tvígang að Íslandsmeistur-
um og skilaði Hafnarfjarðarliðinu
Haukum upp í 1. deild þegar hann var
þar við stjórnvölinn.
Það var kannski enginn meistara-
bragur á Valsmönnum gegn sprækum
HK-ingum og það skiljanlegt í ljósi
þess hve mikið var í húfi. Valsmenn
máttu ekki misstíga sig og leikur liðs-
ins markaðast nokkuð af taugaspenn-
ingi sem eðlilegt var. Valur hóf leikinn
mjög vel og þeir léttu mjög pressunni
af sjálfum sér og ekki síst fjölmörgum
stuðningsmönnum sínum þegar Atli
Sveinn Þórarinsson skoraði á 13. mín-
útu leiksins. Eftir þetta mark má
segja að Valsmenn hafi farið í nokkurs
konar hlutlausan gír og ekki laust við
að taugar sumra leikmanna Vals, sem
ekki hafa staðið í svona sporum áður,
væru við það að bresta.
HK-ingar færðu sig hægt og bít-
andi upp á skaftið og ekki síst eftir að
út spurðist að Víkingur væri kominn
með yfirhöndina gegn FH-ingum sem
þýddi að HK var komið í fallsæti.
Valsmönnum brá heldur betur í brún
á 24. mínútu þegar Oliver Jaeger setti
boltann í net Valsmanna en markið
var dæmt af þar sem Egill Már Mark-
ússon hélt því fram að Jón Þorgrímur
Stefánsson hefði brotið á Kjartani
Sturlusyni, markverði Vals. „Þetta
var ekkert brot og markið hefði þar
með átt að standa,“ sagði Jón Þor-
grímur við Morgunblaðið eftir leikinn.
Jaeger skaut svo Valsmönnum aft-
ur skelk í bringu á fyrstu mínútu síð-
ari hálfleiks þegar hann skallaði beint
á Kjartan úr dauðafæri og þar má
segja að Valur hafði sloppið með
skrekkinn. Síðari hálfleikur var ann-
ars mjög tíðindalítill. Valsmenn tóku
enga áhættu í leik sínum, þeir vörðust
aftarlega, sóttu fram á fáum mönnum
og virtust einfaldlega bíða eftir því að
Egill Már flautaði leikinn af. Helgi
Sigurðsson var þó ekki nema hárs-
breidd frá því að róa alla Valsmenn,
ekki síst þá hjartveiku, á 62. mínútu
þegar hann átti glæsilegt skot að
marki HK-inga. Boltinn stefndi upp í
markhornið en hann small í álverkinu
og þar með voru Valsmenn með önd-
ina í hálsinum allt til leiksloka.
Átti HK að fá víti?
HK-ingar náðu ágætri pressu af og
til að marki Vals og þeir heimtuðu
vítaspyrnu þegar komið var fram yfir
venjulegan leiktíma. Boltinn hafði
greinilega viðkomu í útréttri hendi
Atla Sveins innan teigs eftir skalla
Þórðar Birgissonar en Egill Már
dæmdi aukaspyrnu á Þórð fyrir hrind-
ingu sem tæplega var hægt að greina
eftir að hafa séð atvikið í sjónvarpi.
Hvort sem HK hefði átt að fá víti eða
ekki tókst Hlíðarendapiltum að halda
fengnum hlut og fögnuður þeirra var
gífurlegur þegar Egill Már tók loka-
flautið.
Löng eyðimerkurganga
Hún hefur verið löng og ströng
eyðimerkurganga Valsmanna að Ís-
landsmeistaratitlinum. Síðustu ár
hafa reynst félaginu ákaflega erfið en
í þrígang á síðustu sjö árum hafa
Valsmenn fallið úr efstu deild. Með
sameiginlegu átaki hefur nú Vals-
mönnum tekist ætlunarverk sitt. Þeir
eru komnir á þann stall þar sem þeir
vilja vera og herforingjanum Willum
Þór tókst að búa til meistaralið þar
sem liðsheildin er sterk og samhent
allt frá fremsta til aftasta manns.
Helgi gerði gæfumuninn
Vörn Valsmanna í sumar var ákaf-
lega traust með miðverðina Atla
Svein Þórarinsson og Skotann Barry
Smith í fantaformi, bakverðirnir
Birkir Már Sævarsson og Rene Carl-
sen léku vel í allt sumar og á miðjunni
létu Húsvíkingarnir Baldur Ingimar
Aðalsteinsson og Pálmi Rafn Pálma-
son mikið að sér kveða og með þeim í
liði baráttuhundarnir Baldur Bett og
Sigurbjörn Hreiðarsson. Það sem
gerði þó líklega útslagið um að Vals-
menn stóðu uppi sem sigurvegarar að
mati undirritaðs var tilkoma Helga
Sigurðssonar í liðið. Þar fengu Vals-
menn feitan bita og óhætt er að segja
að Helgi hafi reynst Valsmönnum gull-
kálfur en saman náðu hann og Guð-
mundur Benediktsson að mynda einn
besta sóknardúettinn í deildinni. Í
leiknum gegn HK stóðu Atli Sveinn og
Barry Smith einna helst upp úr, Pálmi
og Sigurbjörn voru duglegir á miðj-
unni og Helgi sívinnandi í fremstu víg-
línu.
HK tókst það sem fáir spáðu
HK-ingar geta borið höfuðið hátt,
bæði með leikinn gegn Val, þar sem
þeir náðu að standa verulega uppi í
hárinu á nýkrýndum meisturum, og
sumarið í heild. Það reiknuðu afar fáir
með að Kópavogsliðið myndi halda
velli og sumir gengu svo langt að spá
því að það næði ekki tveggja stafa
stigafjölda. En með einstökum bar-
áttuvilja, elju og dugnaði tókst HK-lið-
inu, sem að mestu er skipað heima-
mönnum, að kveða alla spádóma í
kútinn.
Valur stóðst álagi
Sigraði HK og landaði Íslandsmeistaratitlinum eftir 20 ára bið 20. meistaratitill
„ÉG hef haldið með Val í 50 ár. Þið
eruð æðislegir,“ sagði Vilhjálmur
Þ. Vihjálmsson, borgarstjóri í
Reykjavík, þegar hann ávarpði
leikmenn Vals þar sem þeir böðuðu
sig í kampavíni í búningsherberg-
inu eftir að hafa landað Íslands-
meistaratitlinum með 1:0-sigri á
HK í lokaumferð Landsbankadeild-
arinnar. 20 ára bið Valsmanna eftir
þeim stóra þar með loks á enda og
20. Íslandsmeistaratitill félagsins
frá upphafi staðreynd.
6 MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
knattspyrna
Valur 1
HK 0
Laugardalsvöllur, úrvalsdeild karla,
Landsbankadeildin, laugardaginn 29. sept-
ember 2007.
Mark Vals: Atli Sveinn Þórarinsson 13.
Markskot: Valur 9 (3) – HK 6 (3).
Horn: Valur 10 – HK 4.
Rangstöður: Valur 5 – Fram 2.
Skilyrði: Rigning með köflum, 6-10 m/s og
völlurinn blautur. Hiti um 10 stig.
Lið Vals: (4-4-2) Kjartan Sturluson – Birkir
Már Sævarsson, Barry Smith, Atli Sveinn
Þórarinsson, Rene Carlsen – Baldur Ingi-
mar Aðalsteinsson (Hafþór Ægir Vil-
hjálmsson 30.), Sigurbjörn Hreiðarsson,
Pálmi Rafn Pálmason, Bjarni Ólafur Ei-
ríksson – Guðmundur Benediktsson, Helgi
Sigurðsson.
Gul spjöld: Atli Sveinn 63. (brot).
Rauð spjöld: Engin.
Lið HK: (5-4-1) Gunnleifur Gunnleifsson –
Stefán Eggertsson, Ásgrímur Albertsson,
Finnbogi Llorens, Jóhann Björnsson (Dav-
íð Magnússon 85.), Hermann Geir Þórsson
– Calum Þór Bett (Þórður Birgisson 84.),
Hörður Már Magnússon, Brynjar Víðisson
(Almir Cosic 76.), Jón Þorgrímur Stefáns-
son – Oliver Jaeger.
Gul spjöld: Jón Þorgrímur 24. (brot),
Brynjar 71. (brot).
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Egill Már Markússon, Grótta, 4.
Aðstoðardómarar: Sigurður Óli Þorleifs-
son og Gunnar Gylfason.
Áhorfendur: 2.352.
VALUR
Kjartan Sturluson
Rene Carlsen
Barry Smith
Atli Sveinn Þórarinsson
Pálmi Rafn Pálmason
Helgi Sigurðsson
HK
Gunnleifur Gunnleifsson
Stefán Eggertsson
Finnbogi Llorens
Jóhann Björnsson
Brynjar Víðisson
ÓHÆTT er að segja að Valsmenn
hafi tryggt sér Íslandsmeistaratit-
ilinn í knattspyrnu í ár með góðri
frammistöðu á útivöllum. Þeir unnu
sjö af níu útileikjum sínum í sumar
og gerðu eitt jafntefli en töpuðu að-
eins einum leik, gegn ÍA á Akra-
nesi, 2:1.
Á heimavelli sínum unnu Vals-
menn hinsvegar aðeins fjóra leiki af
níu en gerðu fjögur jafntefli og
uppskáru því 16 stig á heimavelli.
Þetta er lakasti árangur Íslands-
meistara á heimavelli frá árinu
1991 þegar Víkingar fengu aðeins
13 stig og töpuðu fjórum leikjum á
heimavelli, en kræktu hinsvegar í
24 stig af 27 mögulegum á útivöll-
um. En þrátt fyrir að hafa ekki
vegnað betur en þetta á Laug-
ardalsvellinum var Valur aðeins
annað tveggja liða í deildinni sem
skoruðu í öllum heimaleikjum sín-
um í sumar. Hitt liðið var andstæð-
ingur þeirra á laugardaginn, HK,
sem skoraði í öllum leikjum sínum á
heimavelli, Kópavogsvelli.
Valur
meistari á
útivöllum
1:0 13. Atli Sveinn Þór-arinsson skoraði af
stuttu færi eftir þunga sókn og
fyrirgjöf frá Baldri Ingimari
Aðalsteinssyni.
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
,,Vissulega göngum við stoltir af velli þrátt
fyrir tapið. Við erum stoltir yfir því að hafa
haldið okkur í deildinni en ég er svolítið
svekktur að við gátum ekki gert betur í þess-
um síðasta leik því það vantaði svo lítið uppá.
FH-ingar skiluðu sínu með því að leggja Vík-
ing að velli en því miður náðum við ekki að
skila því til baka. Ég er FH-ingum þakklátur
en ég hefði viljað að við gerðum út um þetta
sjálfir,“ sagði Gunnar Guðmundsson, þjálfari
HK-inga, við Morgunblaðið eftir ósigurinn
gegn Val.
Gunnar þurfti að bíða í nokkrar mínútur
með að fagna öruggu sæti í deildinni því leikur
Víkings og FH hófst síðar en sigur Víkinga
hefði þýtt að HK hafði fallið.
HK-ingum tókst að afsanna spár flestra
sparkspekinga en fáir reiknuðu með að HK
fengi nægilega mörg stig til að halda sæti sínu.
,,Þegar enginn á von á neinu er maður oft
vanmetinn og það gerðist hjá okkur í sumar.
Ég er með stráka sem eru tilbúnir í að leggja
sig alla fram og eru með hjartað á réttum stað.
Ég er stoltur af þeim. Við vitum að næsta ár
verður erfiðara. Þá verðum við ekki lengur ný-
liðarnir svo við verðum að bæta í og vera
ennþá einbeittari. Strákarnir öðluðust gríð-
arlega reynslu á þessu fyrsta ári í efstu deild
sem kemur þeim til góða,“ sagði Gunnar, sem
verður áfram við stjórnvölinn hjá Kópavogslið-
inu.
Er FH-ingum þakklátur
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
„ÞETTA er stór áfangi á mínum ferli því ég
hef aldrei orðið Íslandsmeistari áður,“ sagði
Akureyringurinn Atli Sveinn Þórarinsson
við Morgunblaðið en hann tryggði Vals-
mönnum sigurinn á HK og um leið Íslands-
meistaratitilinn með því að skora eina mark
leiksins.
„Tilgangurinn með því að koma til Vals
var að berjast um Íslandsmeistaratitilinn.
Menn segja alltaf, sem er alveg rétt, að mik-
ilvægast er að liðið vinni en það rosalega
sætt að skora sigurmarkið í þessum mik-
ilvæga leik. Strákarnir hafa gert í því að
skjóta á mig fyrir að skora ekki einu sinni
mörk á æfingum en mér tókst að skora og
það annan heimaleikinn í röð,“ sagði Atli
Sveinn en hann opnaði markareikning sinn
með Valsliðinu gegn ÍA í 16. umferðinni þeg-
ar hann skoraði fyrsta markið í 2:2-jafntefli.
Hvað gerði gæfumuninn að ykkur tókst að
skjótast fram úr FH á lokametrunum?
„Fólk talaði um það, þegar okkur mistókst
í þrígang að komast fram úr FH, að við vær-
um ekki með lið sem gæti farið alla leið.
Þetta stappaði hins vegar stálinu í okkur og
herti okkur. Við leikmennirnir vissum alltan
tímann að við gætum gert þetta og við höfð-
um rétt fyrir okkur,“ sagði Atli, sem lék afar
vel í miðvarðarstöðunni með Valsmönnum í
sumar en hann og Barry Smith mynduðu
eitt sterkasta miðvarðarparið í deildinni.
Strákarnir gerðu í því að skjóta á mig