Morgunblaðið - 01.10.2007, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 01.10.2007, Qupperneq 7
Morgunblaðið/Brynjar Gauti Á loft Sigurbjörn Hreiðarsson, fyrirliði Íslandsmeistara Vals, lyftir Íslandsbikarnum á loft. Morgunblaðið/Brynjar Gauti gna titlinum. ið l Hlíðarendaliðsins MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2007 7 Áhorfendur jafnt sem leikmenn vöknuðu rækilega þegar Hallgrímur skoraði fyrir Keflavík úr fyrsta færi sínu áður en tvær mínútur voru liðnar. Fögnuðurinn var varla hljóðnaður þegar Vjekoslav Svadumovic jafnar úr fyrsta færi ÍA á 15. mínútu. Keflvíkingar kættust aftur fimm mínútum síðar og síðan enn betur sex mínútum eftir það en þá höfðu Keflvík- ingar skorað úr fyrstu þremur góðu færum sínum. Áfram héldu Keflvíkingar að sækja því gestirnir af Akranesi vörðust aftarlega af miklum móð en ekki var mikil hætta á ferð. Er leið á leikinn dró hinsvegar af þeim og Akurnesingar gengu strax á lagið. Mikil þvaga skapaðist upp við mark Keflvíkinga á 36. mínútu áður en Bjarni Guðjónsson fyrirliði ÍA þrumaði boltanum í markið mínútu fyrir leikhlé. Síðari hálfleikur var síðan að langmestu eign gestanna, sem vörðust vel og voru síðan fljótir að sækja fram enda jókst þunginn þar til Jón Vil- helm Ákason jafnaði fimm mínútum eftir að hann kom inná. Sárt að missa leikinn niður Jónas Guðni Sævarsson fyrirliði Keflavíkur var ósáttur með að halda ekki fengnu forskoti. „Það er sárt að við skyld- um missa leikinn niður eftir að vera 3:1 yfir en leikurinn var erfiður svo ég held að úrslitin hafi verið sanngjörn þegar upp er staðið,“ sagði Jónas Guðni eftir leikinn. Hann sagði fyrri viðureign liðanna þar sem úrslit réðust á mjög umdeildu marki ekki hafa sett mark sitt á þennan leik. „Við vorum ekk- ert að hugsa um fyrri viðureignina, frekar að fréttamenn og kannski bæjarbúar væru búnir að ræða það mikið en mér fannst leikurinn prúðmannlega spilaður.“ Miklu skipti að Guðmundur Steinarsson og Þórarinn B.Kristjánsson voru ekki með vegna meiðsla, eins og fleiri. Þess í stað var Kenneth I. Gustafsson, sem hefur leikið í vörn Keflvíkinga í sumar, settur í fremstu víglínu en hafði ekkert þangað að gera og skilaði sáralitlu. Hallgrímur Jónasson, sem lék að mestu í vörn Keflvíkinga í sumar en brá sér í fleiri hlutverk þegar mannekla hrjáði liðið, skoraði tvö af þremur mörkum Keflvík- inga en sagðist ekki viss um hvort hann hefði mátt skila meiru í leikinn. „Ég veit ekki hvort ég hef náð að gera mitt,“ sagði Hallgrímur eftir leikinn. „Við skorum þrjú mörk sem er fínt en fáum á okkur þrjú sem er ekki nógu gott. Aðstæðurnar í dag voru mjög erfiðar, það var erfitt að fóta sig, sérstaklega þegar líða fór á leikinn. Við ætluðum okkur að vinna Skagann hér í dag en það tókst ekki og við erum frekar svekktir með það,“ bætti Hallgrímur við og sagði ætlunina að færa sig aftar á völlinn til að láta gestina sækja. „Það var ákveðið fyrirfram að við myndum bíða aftarlega og láta Skagamenn gefa langar sendingar fram völlinn og vinna svo úr því en við duttum jafn- vel of aftarlega í vörnina.“ Stuðningsmenn á kostum Stuðningsmenn beggja liða fóru á kostum er þeirra menn börðust á vellinum. Vel fór á með þeim, kallast var á þvert yfir stúkuna með stuðningssöngvum í mesta bróðerni. Í hálfleik brugðu þeir sér á bak við stúkuna, skiptu um treyjur og skiptu síðan um helming í stúkunni. Aðrir áhorfendur vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar harðir stuðningsmenn ÍA sungu Keflavíkursöngva og öfugt. Þegar aðeins var liðið á seinni hálfleik stóðu þeir síðan upp og hittust fyrir miðri stúku þar sem aftur var skipt um treyjur undir lófataki annarra áhorfenda beggja liða. ÍA skrefi nær Evrópusæti Þungur leikur í Keflavík en nóg af mörkum AÐSTÆÐUR voru ekki sem bestar þegar Skagamenn sóttu Keflvíkinga heim á laugardaginn, blautur og þung- ur völlur, sem varð talsvert tættur er leið á leikinn en skemmtilegir stuðningsmenn fengu þó að sjá nóg af mörk- um þegar liðin skildu jöfn, 3:3. Keflvíkingar höfðu ekki að miklu að keppa en Skagamenn gátu með stigi eða stigum aukið möguleika sína á að halda þriðja sæti deildarinnar, sem gefur Evrópusæti – ef FH vinnur Fjölni í bikarúr- slitum næsta laugardag og Fylki tækist ekki að vinna KR, sem gekk eftir. „Það má segja að við höfum verið nálægt því að vinna leikinn, komnir með 3:1-forystu, en eigum við ekki að segja að fyrst við náum ekki að halda þeirri forystu er eitthvað að sjálfstraustinu,“ sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflvíkinga Keflvíkingar byrjuðu mótið vel og fengu 18 stig úr fyrstu átta um- ferðunum, unnu þar af leikina í 6., 7, og 8. umferð. Síðan tapaði liðið fyrir ÍA á Akranesi með mjög um- deildu marki fyrirliða ÍA en náði síðan ágætis árangri í Evr- ópukeppninni þótt þeir töpuðu báð- um leikjum sínum þar. Kristján sagði hins vegar að Evrópukeppnin hefði slegið liðið út af laginu en ekki úrslitin á Skaganum. „Þetta er svolítið Keflavíkurlegt keppn- istímabil. Ef horft er til baka á tíma- bil Keflvíkinga undanfarin ár þá byrjar liðið vel en svo er gefið eftir svo ég held að menn verði núna að setjast niður og spá í hvað gerist. Við sögðum í byrjun móts að við ætluðum að elta FH en líka að það mætti ekki mikið út af bregða því hópurinn er ekki eins stór og hjá toppliðunum. Við máttum kannski við því að missa einn eða tvo en þeir urðu miklu fleiri svo við gáfum eft- ir. Evrópuleikir okkar voru frábær- ir en tóku svolítið máttinn úr okkur og svo misstum við tvo menn með heilahristing,“ bætti Kristján við. „Ég veit ekki hvernig verður með leikmenn næsta tímabil, það er of snemmt að segja til um það, en við erum að gera upp sumarið og það verður á næstu dögum því við erum komnir langt með viðræður.“ Keflavíkurlegt keppnistímabil 1:0 2. Einar Orri Einarsson náði boltanum og komst upp hægrikantinn. Gaf þaðan inn að markteig þar sem Hallgrímur Jón- asson skallaði boltann í vinstra hornið. 1:1 15. Björn Bergmann Sigurðarson vann boltann á hægri kantiá móts við miðjan vítateig og skallaði fyrir markið á Vjekoslav Svadumovic, sem klippti snyrtilega boltann í loftinu framhjá markverði Keflavíkur í mitt markið. 2:1 20. Hallgrímur Jónasson þrumaði að markinu, boltinn fór ívarnarmann ÍA og yfir Pál Gísla Jónsson markvörð, í þver- slána og inn út við stöng. 3:1 26. Marco Kotilainen tók hornspyrnu frá hægri. Keflvíkingarnáðu úr mikilli þvögu í markteig ÍA að skalla að markinu en boltinn barst síðan til Guðjóns Árna Antoníussonar, sem skallaði í markið af stuttu færi í mitt markið. 3:2 44. Í mikilli sókn Skagamanna upp hægri kantinn var boltinngefinn fyrir mark Keflavíkur. Varnarmaður Keflvíkinga skall- aði frá markinu en þá kom Bjarni Guðjónsson á fullri ferð og þrumaði utan vítateigs í hægra hornið. 3:3 65. Bjarni Guðjónsson gaf fyrir markið frá hægri kanti. Varn-armenn Keflavíkur hittu ekki og Jón Vilhelm Ákason var fyrstur til að átta sig, skaut af stuttu færi. Bjarki Freyr Guðmundsson markvörður var með hendur á boltanum en náði ekki að stöðva hann og hann rann inn í markið út við stöng. KEFLAVÍK Bjarki Freyr Guðmundsson Guðjón Árni Antoníusson Guðmundur Viðar Mete Branislav Milicevic Jónas Guðni Sævarsson Hallgrímur Jónasson Marco Kotilainen ÍA Kári Steinn Reynisson Árni Thor Guðmundsson Heimir Einarsson Dario Cingel Björn Bergmann Sigurðarson Bjarni Guðjónsson Helgi Pétur Magnússon Vjekoslav Svadumovic Keflavík 3 ÍA 3 Keflavíkurvöllur, síðasta umferð Lands- bankadeildar karla, laugardaginn 29. sept- ember 2007. Mörk Keflavíkur: Hallgrímur Jónasson 2., 20., Guðjón Árni Antoníusson 26. Mörk ÍA: Vjekoslav Svadumovic 15., Bjarni Guðjónsson 44., Jón Vilhelm Ákason 65. Markskot: Keflavík 11 (5) – ÍA 9 (4). Horn: Keflavík 3 – ÍA 6. Rangstaða: Keflavík 1 – ÍA 3. Lið Keflavíkur: (4-4-2) Bjarki Freyr Guð- mundsson – Guðjón Árni Antoníusson, Guð- mundur Viðar Mete, Nicolai Jörgensen, Branislav Milicevic – Marco Kotilainen (Högni Helgason 79.), Jónas Guðni Sævars- son, Einar Orri Einarsson, Hallgrímur Jón- asson – Magnús Sverrir Þorsteinsson (Pétur Heiðar Kristjánsson 79.), Kenneth Ingemar Gustafsson. Gul spjöld: Jónas Guðni Sævarsson 75. (brot). Lið ÍA: (5-4-1) Páll Gísli Jónsson – Kári Steinn Reynisson, Árni Thor Guðmundsson, Dario Cingel, Heimir Einarsson, Guðjón Heiðar Sveinsson – Björn Bergmann Sig- urðarson, Bjarni Guðjónsson, Helgi Pétur Magnússon, Andri Júlíusson (Jón Vilhelm Ákason 60.) – Vjekoslav Svadumovic. Gult spjald: Bjarni Guðjónsson 11. (brot), Andri Júlíusson 45. (brot), Dario Cingel 89. (brot). Dómari: Kristinn Jakobsson, KR, 5. Aðstoðardómarar: Oddgeir Eiríksson og Sverrir Gunnar Pálmason. Áhorfendur: 891. Eftir Stefán Stefánsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.