Morgunblaðið - 01.10.2007, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 01.10.2007, Qupperneq 8
Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is Leikurinn var fjörugur alveg frá upp- hafi, en hann hófst einhverra hluta vegna sjö mínútum á eftir öðrum leikjum í síðustu umferðinni. Víking- ar fengu óskabyrjun með marki strax á 6. mínútu og miðað við stöðu mála þá var HK komið í fallsætið. FH-ing- ar sóttu meira og voru oft nærri því að komast í ákjósanleg færi. Þeir jöfnuðu metin eftir stundarfjórðungs leik og þá var Víkingur aftur kominn í fallsætið og var þar þar til yfir lauk. Bæði lið fengu fullt af færum en sem fyrr gekk Víkingum erfiðlega að koma boltanum í markið en FH-ingar bættu við tveimur mörkum. Töpuðum þessu um síðustu helgi „Verðum við ekki að segja að þetta hafi tapast um síðustu helgi þegar við fengum hreinan úrslitaleik á móti Val. Það var bara klúður hjá okkur að nýta það ekki,“ sagði Daði. Daði átti ágætan dag í marki FH, hafði reyndar ekkert rosalega mikið að gera en varði þó nokkrum sinnum ágætlega þegar á þurfti að halda. „Það má líka fara í nokkra leiki í sum- ar þar sem við höfum ekki leikið vel og tapað stigum, en við fengum hrein- an úrslitaleik um síðustu helgi og hefðum getað tryggt okkur sigurinn þá. Síðari umferðin hjá okkur var ekki nægilega góð,“ sagði Daði. Árangur FH-inga síðustu ár er mjög góður. Íslandsmeistarar þrjú síðustu árin, annað sætið núna og sæti í bikarúrslitaleiknum þar sem liðið hefur tækifæri á að verða bik- armeistari í fyrsta sinn. Daði var samt ekki á því að menn tækju titl- inum sem gefnum hlut. „Nei, ég held það nú ekki en það er erfitt að halda sér alltaf jafn gröðum í titilinn eftir að hafa unnið hann þrisvar. Maður verð- ur að halda þetta út í hverjum einasta leik en það gerðum við ekki í nokkr- um leikjum og þar með talið í síðasta leik á móti Val þar sem við klúðruðum þessu. Við komum samt sterkir til baka í dag eftir slakan leik um síðustu helgi og náðum að vinna á móti liði sem var í fallbaráttu. Þeir börðust eins og ljón á móti okkur og við urðum að hafa okkur alla við til að sigra,“ sagði Daði. Nokkrar breytingar voru á byrjun- arliðum félaganna. Þannig voru Auð- un Helgason, Davíð Þór Viðarsson, Matthías Vilhjálmsson og Sverrir Garðarsson á varamannabekk FH. „Þetta var besta liðið mitt í dag og ég var alls ekki að hugsa um bikarúr- slitaleikinn,“ sagði Ólafur Jóhannes- son, þjálfari FH eftir leikinn. „En samt getur vel verið að það hafi eitt- hvað haft með það að gera hvernig ég stillti upp liðinu,“ bætti hann svo við, en bæði Davíð Þór og Sverrir hefðu orðið í banni ef þeir hefðu fengið gult spjald í leiknum á laugardaginn. Dennis Siim meiddist á lokamínút- um fyrri hálfleiks, en hann hafði leikið vel sem miðvörður við hlið Tommy Nielsen. Davíð Þór var þá settur á miðjuna og Ásgeir Gunnar Ásgeirs- son í miðvörðinn og stóð sig með ágætum þar. Magnús Gylfason, þjálfari Víkinga, hafði þrjá menn í sókninni þó svo virt- ist á upphafsmínútunum að Sinisa Kekic ætti að vera fremstur á miðj- unni. Hann var þó fljótlega kominn í fremstu víglínu með þá Egil Atlason og Gunnar Kristjánsson á köntunum. Er á leið síðari hálfleikinn bættist Grétar Sigfinnur Sigurðarson í hóp- inn þar en allt kom fyrir ekki. Morgunblaðið/Árni Torfason Fall Tryggvi Guðmundsson, markahrókur úr FH, hughreystir hér leikmann Víkings eftir leikinn í Víkinni, er ljóst var að Víkingur var fallið. Vonbrigði í Víkinni Víkingar féllu og leika í 1. deild á 100 ára afmælisári sínu ÞAÐ verður hlutskipti Víkinga að leika í fyrstu deild á 100 ára afmæli félagsins, en liðið tapaði á laug- ardaginn fyrir 3:1 FH í síðustu um- ferð Landsbankadeildarinnar og féll þar með um deild. Það voru því mikil vonbrigði í Víkinni á laug- ardaginn og leikmenn ekkert sér- lega kátir er þeir gengu af velli í Víkinni, Víkingar fallnir og þrátt fyrir sigurinn urðu FH-ingar að sjá af Íslandsmeistarabikarnum til Valsmanna eftir að hafa haft hann í sínum húsum í þrjú ár. „Það er allt- af gaman að vinna, en ég verð að viðurkenna að það var ekki nærri jafn gaman í dag og oftast áður,“ sagði Daði Lárusson, markvörður og fyrirliði FH eftir leikinn. 8 MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ knattspyrna „ÞAÐ var fínt að vinna þennan leik, það er ekki nokkur vafi á því. Við fórum í hann til þess og ætl- uðum að vera klárir ef Valur myndi misstíga sig,“ sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH-inga, eftir sigurinn á Víkingum á laugardaginn. Sigur sem dugði samt ekki til að halda Íslandsmeistaratitl- inum fjórða árið í röð. Ólafur sagðist ekki geta sagt nákvæmlega til um hvar FH-ingar hefðu tapað baráttunni um titilinn. „Það er erfitt að segja nákvæmlega til um það hvar þetta tapaðist, það má finna eitt og eitt stig hingað og þangað. Seinni umferðin hjá okkur var ekki nógu góð. Við vorum örugglega værukærir og héldum ekki haus. Stigin sem við töpuðum á móti Fram og HK með stuttu millibili í ágúst. En það er hægt að telja endalaust upp svona þætti og Vals- menn geta örugglega fundið ódýr stig sem þeir töpuðu á leiðinni að titlinum,“ sagði Ólafur. Árangur FH síðustu árin hefur verið gríðarlega góður og Ólafur er nokkuð sáttur við gang mála síðustu árin. „Mér finnst árangurinn fínn. Ég er bú- inn að vera með liðið í fimm ár og við höfum verið Íslandsmeistarar í þrjú ár, tvisvar orðið í öðru sæti og nú erum við komnir í bikarúrslitaleikinn þannig að mér finnst þetta fínn árangur,“ sagði Ólafur. Það er oft sagt að eftir því sem lið vinni meira verði erfiðara að halda mönnum við efnið. Ólafur var sammála því. „Þegar menn eru búnir að vinna mótið þrjú ár í röð er erfitt að halda mönnum á tán- um. Það er bara staðreynd. Það kemur værukærð og jafnvel kæruleysi yfir leikmenn og jafnvel mig líka og allt dæmið í kringum liðið. Ég hef oft sagt það áður og segi það enn að það er auðvelt að mis- stíga sig,“ sagði Ólafur. Um framtíðina vildi hann sem minnst tala. „Það er einn leikur eftir hjá okkur, við Fjölni í bikarúr- slitunum eftir viku. Svo fer ég í golfferð til Portú- gals og svo hugsa ég málið,“ sagði Ólafur. Seinni umferðin ekki nógu góð „ÞETTA tókst því miður ekki hjá okkur,“ sagði Höskuldur Eiríksson, fyrirliði Vík- inga, vonsvikinn eftir tapið á móti FH á laugardaginn. Þar með var ljóst að Víkingar féllu úr Landsbankadeildinni. „Við erum búnir að spila ágætlega í síðustu leikjum. Við höfum komið dýrvitlausir í alla leiki og lagt okkur 100% fram, en það hefur ekki gengið hjá okkur að skora. Það hefur ekkert gengið hjá okkur og þetta er kannski dæmigert fyrir lið sem er í ströggli, það vantar sjálfstraust upp við markið og hlutirnir hreinlega detta ekki með manni. Við komum dýrvitlausir í þennan leik og fengum loksins mark eftir nokkra bið. Markið kom á flottum tíma líka og það kom hellings kraftur og sjálfstraust í liðið en svo fengum við á okkur þetta mark, eitthvert langskot langt utan af velli. Þetta er kannski lýsandi fyrir þá óheppni sem hefur elt okkur. Það er kannski ekki rétt að tala bara um óheppni því þetta er líka klaufaskapur okkar. Jöfnunarmarkið setti okkur dálítið út af laginu, en við héldum áfram að berjast. Annað markið gáfum við þeim hreinlega og síðan þetta síðasta mark á lokasekúndunum, sem skipti engu máli,“ sagði Höskuldur. Um framhaldið sagði hann: „Það kemur bara í ljós. Lífið heldur áfram og núna fer ég í aðgerðir sem ég er búinn að bíða eftir að komast í. Ég fer í aðgerð á ökkla á föstu- daginn og síðan væntanlega í hnéspeglun á næstunni. Nú þarf ég að koma líkamanum í stand og síðan sér maður til.“ Þarf að koma líkamanum í stand Víkingur 1 FH 3 Víkin, úrvalsdeild karla, Landsbanka- deildin, laugardaginn 29. september 2007. Mark Víkings: Sinisa Valdimar Kekic 6. Mörk FH: Dennis Siim 15., Matthías Guðmundsson 56., Arnar Gunnlaugsson 90. Markskot: Víkingur 12 (7) – FH 15 (9). Horn: Víkingur 4 – FH 4 Rangstaða: Víkingur 1 – FH 7. Lið Víkings: (4-3-3) Ingvar Þór Kale - Höskuldur Eiríksson (Valur Úlfarsson 78.), Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Milos Glogovac, Hörður S. Bjarnason – Þor- valdur S. Sveinsson, Jón B. Her- mannsson (Hermann Albertsson 66.), Viðar Guðjónsson (Stefán K. Svein- björnsson 79.) – Egill Atlason, Sinisa Kekic, Gunnar Kristjánsson. Gul spjöld: Höskuldur 3. (brot), Gunnar 42. (brot), Egill 62. (brot). Lið FH: (4-3-3) Guðmundur Sævarsson, Dennis Siim (Davíð Þór Viðarsson 46.), Tommy Nielsen, Freyr Bjarnason – Ás- geir Gunnar Ásgeirsson, Bjarki Gunn- laugsson (Matthías Vilhjálmsson 79.), Sigurvin Ólafsson – Matthías Guðmunds- son, Arnar Gunnlaugsson, Tryggvi Guð- mundsson. Gult spjald: Siim 21,. (brot), Ásgeir 51. (brot). Dómari: Magnús Þórisson, Keflavík, 5. Aðstoðardómarar: Einar Sigurðsson, Áskell Þór Gíslason. Áhorfendur: 935. 1:0 6. Víkingar fengu aukaspyrnu úti á hægri kanti, boltinnvar sendur inn að marki og þar skallaði að því er virtist Tommy Nielsen boltann að eigin marki. Daði Lárusson markvörður FH varði vel en hélt ekki boltanum sem féll fyrir fætur Sinisa Kekic sem þrumaði boltanum upp í þaknetið af stuttu færi. 1:1 15. Eftir sókn Víkinga náðu FH-ingar boltanum og DennisSiim fékk hann við miðlínuna. Hann lék aðeins í átt að marki Víkinga, fann engann samherja til að gefa á og ákvað að negla á markið. Flott skot hans af ríflega 30 metra færi fór efst í hægra markhornið. Flott mark. 1:2 56. FH-ingar sendu boltann fyrir mark Víkings frá hægriog engin hætta virtist á ferðinni en varnarmönnum Víkings tókst ekki að koma boltanum lengra en fyrir fætur Matthíasar Guð- mundssonar sem þakkaði fyrir og skoraði með viðstöðulausu skoti. 1:3 90. Þegar allir voru farnir að bíða eftir lokaflautu dóm-arans, fékk Arnar Gunnlaugsson boltann við vítateig eftir að varnarmanni Víkinga mistókst að koma boltanum frá markinu. Hann sendi boltann laglega framhá besta manni Víkinga, Ingvari Þór Kale. VÍKINGUR Ingvar Þór Kale Höskuldur Eiríksson Gunnar Kristjánsson Sinisa Valdimar Kekic FH Daði Lárusson Guðmundur Sævarsson Dennis Siim Ásgeir Gunnar Ásgeirsson Bjarki Gunnlaugsson Matthías Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.