Morgunblaðið - 01.10.2007, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2007 9
ÁRMANN Smári Björnsson skoraði
eitt mark í 5:1-sigri Brann á útivelli
gegn Lilleström í gær í norsku úr-
valsdeildinni. Ólafur Örn Bjarnason
og Kristján Örn Sigurðsson voru
báðir í hjarta varnarinnar hjá
Brann sem er með sjö stiga forskot
í efsta sæti deildarinnar. Ármann
fær 4 í einkunn hjá Nettavisen,
Kristján 7 og Ólafur 6.
Viking er með 41 stig í öðru sæti
deildarinnar eftir 3:0-sigur liðsins á
laugardag gegn Strömsgodset.
Brann hefur ekki unnið meistaratit-
ilinn í 44 ár.
Garðar Jóhannsson skoraði í 4:3-
sigri Fredrikstad gegn meistaraliði
Rosenborg. Garðar skoraði fjórða
mark liðsins og er þetta þriðja
mark hans í deildinni í 13 leikjum.
Hann átti þátt í fyrsta markinu og
það þriðja lagði hann upp og fær
hann 7 í einkunn hjá Nettavisen.
Indriði Sigurðsson skoraði sjálfs-
mark í 3:2-sigri Lyn gegn Veigari
Páli Gunnarssyni og félögum hans í
Stabæk. Vonir Stabæk um meist-
aratitil í ár eru nánast úr sögunni.
Bikardraumur liðsins er einnig úr
sögunni en liðið tapaði í undan-
úrslitum bikarkeppninnar á dög-
unum. Indriði fær fína dóma í Net-
tavisen fyrir leik sinn en hann var
valinn maður leiksins og fékk 7 í
einkunn en Veigar fær aðeins 3.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson átti
þátt í fyrsta marki Vålerenga í 4:1-
sigri liðsins gegn Odd/Grenland á
útivelli. Gunnar var í baráttunni um
boltann í markteignum en varn-
armaður Odd/Grenland skoraði
sjálfsmark. Árni Gautur Arason var
í marki Vålerenga og fær hann 5 í
einkunn hjá Nettavisen og Gunnar
Heiðar 6.
Haraldur Guðmundsson var ekki
í liði Aalesund sem tapaði 3:2 á
heimavelli gegn Tromsö.
Ármann skoraði í stórsigri Brann
BIKARMEISTARAR Stjörnunnar
fóru illa að ráði sínu gegn úkraínska
liðinu HC Budevelnyk Brovary í
fyrri viðureign liðanna í 2. umferð
Evrópukeppni bikarhafa í hand-
knattleik en leikurinn fór fram í
Mýrinni í Garðabæ á laugardags-
kvöldið. Gestirnir frá Úkraínu fóru
með sigur af hólmi, 26:25, eftir að
Stjörnumenn höfðu haft yfirhöndina
í hálfleik, 13:9.
Garðbæingar, sem hafa byrjað
leiktíðina afar vel og eru með fullt
hús stiga í N1-deildinni, hófu leikinn
með miklum látum og náðu átta
marka forystu, 10:2, þegar stundar-
fjórðungur var liðinn af leiknum.
Úkraínumennirnir náðu að saxa
hægt og bítandi á forskot Stjörnu-
manna og í leikhléi var munurinn
fjögur mörk.
Í síðari hálfleik hrökk allt í baklás
í sóknarleik Stjörnunnar og leik-
menn liðsins gerðu sig seka um mis-
tök ofan á mistök sem Úkraínu-
mennirnir færðu sér í nyt og þeir
náðu að knýja fram sigur á loka-
sprettinum.
Síðari leikur liðanna fer fram í
Kænugarði um næstu helgi og þar
verður vafalaust á brattann að sækja
fyrir Garðbæinga.
Stjörnuhrap í Mýrinni
Thierry Henryskoraði
þrennu og þar
með sín fyrstu
mörk fyrir Barce-
lona í spænsku
úrvalsdeildinni
þegar liðið burst-
aði Levante, 4:1, á
útivelli. Henry
skoraði þrjú fyrstu mörkin og Lionel
Messi bætti svo við fjórða markinu
en hann lagði upp tvö af mörkunum
sem Henry skoraði. Eiður Smári
Guðjohnsen sat allan tímann á
bekknum.
Sergio Ramos skaut Real Madridað nýju í toppsæti spænsku úr-
valsdeildarinnar þegar hann skoraði
eina mark leiksins í 1:0 útisigri Mad-
ridarliðsins á Getafe í gær.
AC Milan varð að láta sér lynda1:1 jafntefli við Catania í ítölsku
A-deildinni í knattspyrnu í gær og
þar með hefur Mílanóliðið leikið
fimm leiki í röð án sigurs. Bras-
ilíumaðurinn Kaká jafnaði metin fyr-
ir AC Milan úr vítaspyrnu. Evr-
ópumeistararnir eru sem stendur í
11. sæti, sjö stigum á eftir erkifjend-
um sínum í Inter.
Inter vann góðan útisigur á Roma,4:1, í uppgjöri efstu liðanna á ól-
ympíuleikvangnum í Róm. Ludovic
Giuly var vísað af velli í liði Roma á
28. mínútu og það færðu Inter-menn
sér í nyt. Ibrahimovic skoraði úr
vítaspyrnu sem dæmd var á Giuly og
þeir Crespo, Cruz og Cordoba bættu
þremur mörkum við en Perotta skor-
aði mark heimamanna og jafnaði
metin, 1:1.
Edwin van derSar mark-
vörður Englands-
meistara Man-
chester United
meiddist á tá í sig-
urleik United
gegn Birm-
ingham og þurfti
að hætta leik í
hálfleik. Hann verður ekki með Man-
chester-liðinu gegn Roma í Meist-
aradeildinni á Old Trafford annað
kvöld og mun Pólverjinn Tomasz
Kuszczak leysa hann af hólmi líkt og
hann gerði gegn Birmingham.
Jóhann B. Guðmundsson og Eyj-ólfur Héðinsson voru í liði GAIS
sem gerði markalaust jafntefli við
AIK í sænsku úrvalsdeildinni.
Ólafur Ingi Skúlason var ekki íleikmannahópi Helsingborg
sem gerði 1:1 jafntefli við Trelle-
borg.
Sölvi Geir Ottesen var ekki í hópn-um hjá Djurgården sem burst-
aði Örebro, 4:1, og eru lærisveinar
Sigurðar Jónssonar með þriggja
stiga forskot á toppi deildarinnar.
Fólk sport@mbl.is
Ívar Ingimarsson og Brynjar
Björn Gunnarsson voru báðir í
byrjunarliði Reading en Brynjar
Björn var tekinn út af á 77. mín-
útu.
„Fyrri hálfleikurinn er líklega
það besta sem við höfum sýnt á
tímabilinu,“ sagði Harry Redk-
napp, knattspyrnustjóri Portsmo-
uth. Maður leiksins var Benjani
Mwaruwari sem skoraði þrennu
fyrir Portsmouth.
Arsenal, Manchester United
og Liverpool fögnuðu öll 1:0-úti-
sigrum. Forystusauðirnir í Arsenal
lögðu West Ham á Upton Park
með marki frá Robin Van Persie.
„Við höfum átt í erfiðleikum með
að ná stigum á Upton Park og því
var sigurinn mjög sætur. Mér
fannst við verðskulda sigurinn en
við vorum agaðir í okkar leik og
vörðumst vel,“ sagði Arsene Wen-
ger.
Cristiano Ronaldo tryggði
Manchester United sigurinn gegn
Birmingham á St. Andrews með
marki á 50. mínútu. United þótti
ekki sýna neina meistaratakta en
þetta var fimmti sigur liðsins í röð
í úrvalsdeildinni og í þeim hefur
liðið ekki fengið á sig mark.
„Þetta er erfiðasti leikurinn sem
við höfum spilað á tímabilinu.
Birmingham var betri aðilinn í
fyrri hálfleik en í þeim síðari gekk
okkar spil betur fram á við og
vörnin var traustari,“ sagði Sir
Alex Ferguson, stjóri United. Sig-
urinn var dýrkeyptur því mark-
vörðurinn Edwin van der Sar, sem
hefur verið í feiknaformi, meiddist
og þurfti að fara af velli í leikhléi
og leikur ekki í marki meistaranna
gegn Roma í Meistaradeildinni
annað kvöld.
Rafael Benítez, knattspyrnu-
stjóri Liverpool, hrósaði Yossi
Benayoun í hástert eftir 1:0-sigur
liðsins á Wigan. Ísraelsmaðurinn
kom inn á sem varamaður í síðari
hálfleik og tryggði sínum mönnum
sigurinn með fallegu marki eftir
einstaklingsframtak 10 mínútum
fyrir leikslok.
„Það er alltaf mjög þýðingar-
mikið að vinna útisigra og Yossi
breytti leiknum fyrir okkur. Hann
var mjög skapandi og útsjónar-
samur og skoraði svo auðvitað
markið sem réð úrslitum. Við get-
um ekki verið annað en ánægðir
með stöðu okkar. Við erum við
toppinn, eigum leik til góða og
þetta er miklu betra en á síðustu
leiktíð,“ sagði Benítez.
Vandræðagangurinn hjá
Chelsea er algjör en liðið lék sinn
fjórða leik í röð í úrvalsdeildinni
án sigurs þegar það varð að láta
sér lynda markalaust jafntefli
gegn Fulham á Stamford Bridge.
John Terry varð af fara snemma
út af þar sem hann brákaði kinn-
bein og Didier Drogba, sem kom
inn í liðið eftir meiðsli, var sendur
í bað stundarfjórðungi fyrir leiks-
lok þegar hann fékk að líta sitt
annað gula spjald.
„Við þurftum svo sannarlega á
sigri að halda en því miður tókst
okkur ekki að skora. Við fengum
fullt af færum og nógu mörg til að
sigra en því miður voru mínir
menn ekki á skotskónum,“ sagði
Avran Grant, knattspyrnustjóri
Chelsea.
AP
Sigurmark Cristiano Ronaldo skorar sigurmark Manchester United framhjá Maik Taylor, markverði Birmingham, í leik liðanna á St. Andrews.
Hermann opnaði
markareikninginn sinn
HERMANN Hreiðarsson opnaði
markareikning sinn með Portsmo-
uth þegar liðið sigraði Reading í
hreint ótrúlegum markaleik á Frat-
ton Park. 7:4 urðu lokatölurnar og
skoraði Hermann þriðja mark sinna
manna og kom þeim í 3:2 með
skallamarki á 52. mínútu. Hermann
fagnaði markinu með stæl, tók létt
kraftstökk, en Eyjamaðurinn lék
allan tímann í stöðu vinstri bak-
varðar.