Morgunblaðið - 01.10.2007, Qupperneq 12
12 MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
knattspyrna
Hannes Þ.Sigurðs-
son og Birkir
Bjarnason
komu báðir
inná sem vara-
menn í 3:0-
sigri Viking
gegn Ströms-
godset í
norsku úrvals-
deildinni í knattspyrnu á laug-
ardag. Birkir á 63. mín og Hannes
á 70. mínútu.
Kjartan Henry Finnbogasonlagði upp sigurmarkið fyrir
Åtvidaberg sem sigraði Sylvia, 2:1,
í nágrannaslag í sænsku 1. deild-
inni í gær. Sylvia er „litla liðið“ í
Norrköping og Åtvitaberg er þar
rétt hjá.
Jóhannes Karl Guðjónsson varekki í leikmannahópi Burnley
sem gerði 1:1 jafntefli við Crystal
Palace í ensku 1. deildinni í knatt-
spyrnu.
Arnar Þór Viðarsson lék allantímann með Graafschap gegn
sínum gömlu félögum í Twente
þegar liðin gerðu markalaust jafn-
tefli í hollensku úrvalsdeildinni í
gær.
Grétar Rafn Steinsson lék meðAZ Alkmaar sem óvænt tap-
aði fyrir Heracles á útivelli, 2:1.
Hólmar Örn Rúnarsson sat ávaramannabekknum hjá
Silkeborg allan tímann þegar liðið
gerði markalaust jafntefli við Hvi-
dovre í dönsku 1. deildinni í gær.
Silkeborg er í sjötta sæti, fimm
stigum á eftir Vejle sem er í topp-
sætinu.
Emil Hallfreðsson lék allan tím-ann fyrir Reggina sem gerði
1:1 jafntefli við Lazio á heimavelli í
ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í
gær. Emil og félagar komust úr
botnsætinu með jafnteflinu en
Reggina hefur 3 stig eftir sex leiki,
hefur gert þrjú jafntefli og tapað
þremur.
Stefán Gíslason tók út leikbann íliði Bröndby sem gerði 1:1
jafntefli við Randers í dönsku úr-
valsdeildinni í gær. Bröndby hefur
vegnað illa og er í næst neðsta sæti
deildarinnar með 7 stig eftir 11
leiki.
Sigþór Júl-íusson
hefur ákveðið
að leggja
knatt-
spyrnuskóna á
hilluna. Sig-
þór, sem var í
liði KR sem
gerði 1:1 jafn-
tefli við Fylki á
í lokaumferð Landsbankadeild-
arinnar laugardaginn, er að flytja
til Luxemborgar vegna atvinnu
sinnar.
Eggert Jónsson lék allan tímannmeð Edinborgarliðinu Hearts
þegar liðið vann góðan útisigur á
St.Mirren, 1:3, í skosku úrvals-
deildinni í gær. Hearts er í sjötta
sæti deildarinnar með 11 stig, átta
stigum á eftir Celtic og Rangers
sem eru í efstu sætunum.
Marel Baldvinsson var í byrj-unarliði Molde í norsku 1.
deildinni í gær í 2:1-sigri liðsins á
útivelli gegn Tromsdalen. Molde er
langefst í deildinni með 63 stig að
loknum 25 umferðum.
Fólk sport@mbl.is
Jónas Grani, sem er 34 ára gamall,
skoraði átta mörk fyrir Fram í
fyrra en hann kom frá FH fyrir það
tímabil, eftir að hafa lítið fengið að
spila. „Mér hefur tekist að sýna að
ég get skorað mörk á meðan ég er
inni á vellinum, en það gerist lítið í
þeim efnum ef ég vermi bekkinn.
Ég reyndi aðeins að gera mitt besta
og það tókst í sumar.“
Það er ekki á hverju tímabili sem
leikmaður úr liði í fallbaráttunni
hreppir gullskóinn eftirsótta og
auðséð að mörk Jónasar hafa hjálp-
að þar mikið til. „Ég skoraði
kannski mikið af mörkum en þetta
er hópíþrótt og það þarf margt ann-
að til. Liðið er skipað ellefu ein-
staklingum og það er enginn einn
leikmaður sem vinnur fótboltaleiki
og enginn einn sem heldur liðinu
uppi,“ segir Jónas sem reiknar ekki
með að hætta á toppnum. „Það
verða ábyggilega einhverjir sem
segja mér að hætta á toppnum en
heilsan er góð og allt opið í þeim
efnum. Sjálfsagt verður það ofan á
að leika áfram, enda erfitt að hætta
núna.“ Samningi Jónasar við Fram
lýkur eftir tímabilið og segist hann
lítið geta sagt til um hvað verði í
framhaldinu.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Markakóngur Framararnir Jónas Grani Garðarsson og Theódór Ósk-
arsson. Jónas varð markakóngur Landsbankadeildarinnar með 13 mörk.
„Reyndi aðeins að gera
mitt besta og það tókst“
„MARKMIÐ mitt snerist aðeins um
liðið og númer eitt var að halda því
uppi í deildinni. Þetta er hópíþrótt
og gengur því allt út á hópinn,“
sagði hógvær Jónas Grani Garð-
arsson, sóknarmaður Fram, eftir
leikinn gegn Breiðabliki en þá varð
ljóst að hann er markahæsti leik-
maður deildarinnar þetta árið. Jón-
as skoraði alls þrettán mörk á leik-
tíðinni – af 25 mörkum Fram í
Landsbankadeildinni – en Helgi
Sigurðsson, framherji Vals, skoraði
tólf og hlýtur silfurskóinn.
Tvö mörk í lokaleiknum tryggðu Jónasi Grana Garðarssyni markakóngstitilinn
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
JÓNAS Grani Garðarsson úr Fram varð
markakóngur úrvalsdeildar karla en hann
tryggði sér nafnbótina með því að skora bæði
mörk Framara gegn Breiðabliki á laugardag-
inn og skoraði 13 mörk alls. Með því fór hann
fram úr Helga Sigurðssyni úr Val, sem hefur
verið markahæstur í allt sumar en náði ekki að
skora gegn HK og endaði með 12 mörk.
Jónas Grani er fyrsti markakóngur Framara
í deildinni í 20 ár, eða síðan Pétur Ormslev
varð markahæstur árið 1987. Framarar áttu
reyndar markakóng 1. deildar í fyrra en það
var enginn annar en Helgi Sigurðsson, sem
missti af því að jafna afrek Arnars Gunnlaugs-
sonar frá 1991-1992, sem þá varð markahæst-
ur, fyrst í næstefstu deild og svo efstu deild
með ÍA. Þeir Tryggvi Guðmundsson úr FH og
Sinisa Valdimar Kekic úr Víkingi urðu síðan
jafnir í þriðja til fjórða sæti markalistans með
átta mörk hvor. Það er athyglisvert að fjórir
markahæstu leikmennirnir eru allir á fertugs-
aldri, en Kekic verður 38 ára síðar í haust,
Jónas Grani er 34 ára og þeir Helgi og
Tryggvi eru báðir 33 ára.
Jónas fyrsti markakóngur Fram í 20 ár
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
Þetta er annar meistaratitill Helga á ferlinum en
ungur að árum varð hann meistari með Víkingi
árið 1991 og þá varð hann bikarmeistari með
norska liðinu Stabæk.
„Við misstum aldrei trúna í þessari baráttu
okkar við FH og annars hefðum við aldrei náð
þessu. Það kom að því að FH missti dampinn og
við nýttum okkur það til fullnustu með því að
leggja þá í Kaplakrika. Við ræddum um það fyrir
mótið að takmarkið væri að ná titlinum. Willum
sagði við okkur að við þyrftum 36 stig til að
verða meistarar og við gerðum gott betur. Will-
um barði endalaust inn í okkur sjálfstraustið og
við leikmennirnir vorum tilbúnir að leggja mikið
á okkur og núna erum við að uppskera árangur
þess erfiðis.“
Líklega mitt besta ár
Hvað með sjálfan þig. Varst þú ánægður með
þína spilamennsku í sumar?
„Ég er hrikalega stoltur af sjálfum mér og lið-
inu. Ég væri að ljúga að þér ef ég segði ekki að
ég hefði viljað enda sem markakóngur en ég
kom til Vals til þess að verða Íslandsmeistari en
ekki markakóngur. Jónas Grani á gullskóinn
fyllilega skilinn. Hann er búinn að standa sig frá-
bærlega. Ég skoraði bara ekki mörk. Ég lagði
nokkur upp og vann mikið og ég get gengið mjög
stoltur frá þessu Íslandsmóti. Ég held satt best
að segja að þetta hafi verið mitt besta ár frá
upphafi.“
Var ekki sárt að horfa á eftir æskufélagi þínu,
Víkingi, niður úr deildinni?
„Jú auðvitað er það. Víkingur hefur alltaf kom-
ið vel fram við mig og það er leitt að sjá þá falla.
Ég held hins vegar að þeir komi fljótt upp.“
Helgi Sigurðsson átti stóran þátt í Íslandsmeistaratitli Valsmanna
Kom til Vals til að verða
meistari en ekki markakóngur
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þakkar fyrir sig Helgi Sigurðsson, markahrókur úr Val, þakkar stuðningsmönnum Vals.
„ÉG vissi að ég var að fara í mjög gott lið og þó
svo að það hafi verið erfitt að yfirgefa Fram held
ég að þetta hafi verið rétt skref sem ég tók fyrir
sjálfan mig og núna þegar Íslandsmeistaratitill-
inn er í höfn kom það á daginn,“ sagði Helgi Sig-
urðsson, framherjinn snjalli í liði Valsmanna, við
Morgunblaðið eftir að hafa tekið á móti verð-
launum sínum. Helgi skoraði 12 mörk fyrir Val
og reyndist liðinu mikill happafengur en hann
ákvað að yfirgefa Fram og ganga til liðs við
Hlíðarendaliðið.