Morgunblaðið - 09.11.2007, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
HIÐ vel þekkta mótorhjól sem hóf
vinsældir nakinna mótorhjóla upp í
hæstu hæðir er nú endurfætt og hef-
ur fengið heitið Ducati Monster 696.
Breytingarnar á hjólinu eru talsvert
miklar og líklega verður það fyrsta
sem harðir Ducati aðdáendur taka
eftir Trellis–grindin fræga en hún er
nú orðin æði snubbótt því hún endar
um miðbik hjólsins þar sem öllu hefð-
bundnari steypt álgrind tekur við.
Horfið frá fyrri gæðum
Form hjólsins er svipað því sem áð-
ur var en þó er allt orðið nýtískulegra
en það er einmitt á skjön við þá hug-
myndafræði sem gamla Monster
hjólið byggði á því það var hrein og
klár vísun í gamla tíma einfaldra en
öflugra mótorhjóla sem ætluð voru
fyrir götuna.
Ducati tapar þó litlu af ljómanum
sem umlykur merkið og hefur fyrir-
tækið reynt að gæta þess að halda í
„Fríða og dýrið“ ímyndina og því er
mótorhjólið í senn kraftalegt á að líta
og létt.
Hjólið var kynnt 5. nóvember á al-
þjóðlegu mótorhjólasýningunni
EICMA í Mílanó og vakti hið nýja
skrímsli mikla eftirtekt enda er hjólið
orðið eins konar goðsögn og hefur
meðal annars átt stóran þátt í að rétta
við fjárhag Ducati.
Vél hjólsins er tveggja strokka og
skilar 80 hestöflum og á að vera mjög
þýðgeng. Til að stöðva gripinn eru
frambremsurnar mjög öflugar fyrir
hjól í þessum flokki en þær eru 320
mm og með fjögurra stimpla dælum.
Ducati kynnti einnig til sögunnar
tvö önnur ný mótorhjól, 848 og 1098
R en þeir gripir eru ekki þeir hent-
ugustu fyrir íslenskar aðstæður en
engu síður afskaplega heitir og
heillandi.
Nýtt
skrímsli
Skrímslið Ducati Monster er endurfætt í 696 gerðinni og mun hjólið
hækka mörg þau viðmið sem tengjast þessum flokki mótorhjóla.
RUTH Kelly, samgönguráðherra
Bretlands, hefur hvatt ríki Evrópu-
sambandsins (ESB) til að setja það
sem takmark að í útblæstri nýrra bíla
verði magn gróðurhúsalofts, koltví-
ildis, ekki yfir 100 grömmum á kíló-
metra að meðaltali á árabilinu 2020–
2025.
Kelly segir við breska blaðið The
Times að með þessum tímaramma,
þ.e. að markmiðinu verði náð innan
13–18 ára, hafi bílafyrirtækin góðan
tíma til að þróa nýjar tæknilausnir er
geri þeim kleift að uppfylla skilyrðin.
Umhverfisverndarsamtökin Friends
of the Earth hafa hvatt til þess að
fyrir árslok 2020 nemi útblástur gróð-
urhúsalofts frá bílum að jafnaði ekki
meira en 80 grömmum á kílómetra,
sem er um helmingi minna magn en
nýir fólksbílar á breskum markaði í
dag losa að jafnaði.Morgunblaðið/ÞÖK
Vill takmarka útblástur CO2 við 100 g/km
M.Benz ML350 Special Edition,
árg. 2005, ek.65þús.km, Bose hljómtæki,
Verð 4490 þús. kr. Stórglæsilegur bíll!!
Dodge Ram 2500, árg. 2006,
ek.13 þús. km, Verð Tilboð 4150 þús. kr.
áhv. 1700 þús. kr. Verð áður 4390 þús. kr.
Gullfallegur bíll!!
MMC Galant GLSI/Sendan,
árg. 2002, ek.98 þús. km,
Verð 1490 þús. kr, áhv.1000 þús .kr.
Jeep Cherokee overland,
árg. 2004, ek. 49 þús. km, Verð tilboð 2750 þús.
kr, áhv.1420 þús. kr, Verð áður 2990 þús. kr.
Ford F350 Crew 4X4,
árg. 2005, ek. 96 þús. km, Verð 3690 þús. kr.
áhv. 2400 þús. kr.
Dodge Ram 2500 Hemi 4X4 37"
Breyttur, árg. 2006, ek. 42 þús. km, Bedslider, NMT,
o.fl. Verð 3990 þús. kr. Einn góður á rjúpuna!!
Ford Mondeo Ghia Station,
árg. 2001, ek. 75 þús. km, Verð 1070 þús. kr,
áhv. 990 þús. kr. Fæst á yfirtöku+sölulaun
Chrysler Sebring LX Plus,
árg. 2002, ek.91 þús. km, Verð tilboð 850 þús.
kr, Verð áður 990 þús. kr. Glæsilegur bíll!!
Jeep Grand Cherokee Limited 4X4,
árg. 2004, ek. 40 þús. km, einn með öllu,
Verð Tilboð 2990 þús. kr, áhv.1850 þús. kr.
Range Rover Sport Dísel,
árg. 2006, ek.16 þús. km,
Verð 6990 þús. kr.
Funahöfða 1 • Opið virka daga kl. 10:00-18:30 • Laugardaga kl. 12:00-16:00
M
bl
9
33
20
7
Haft er eftir þýska tímaritinu Der Spiegel að
áform séu uppi um að breyta svæðinu, þar sem
Nürburgring kappakstursbrautin og hin frægi
hringur Nordschleife eru staðsett, í skemmti-
garð.
Þegar hefur viðamikil áætlun verið lögð fyr-
ir þá sem málið varðar og ætti málið líklega að
sækjast auðveldlega þar sem brautin er talin
ábyrg fyrir þeirri gríðarlegu uppbyggingu
sem orðið hefur í héraðinu síðan norðurhluti
brautarinnar var opnaður árið 1927. Síðast-
liðin 80 ár hefur fólk alls staðar að sótt Nür-
burgring heim og nú er svo komið að svæðið,
sem var eitt af fátækustu héruðum Þýska-
lands, annar engan veginn eftirspurn enda
heimsækja svæðið um tvær milljónir gesta á
hverju ári.
Gríðarleg tækifæri
Forsvarsmenn svæðisins hafa uppi hug-
myndir um að byggja svæðið upp á fjórum
mismunandi meginstoðum en þær eru kapp-
akstur, viðskipti, ævintýri og ferðalög. Áætl-
anirnar munu svo verða að veruleika á næstu
tveimur árum en 150 milljónum evra, um 13
milljörðum íslenskra króna, verður varið í
verkefnið og er vinna við það þegar hafin.
Meðal þess sem á að verða í boði á svæðinu
verður fjögur þúsund fermetra skáli fyrir
áhorfendasport eins og risatrukkasýningar,
mótorhjólakeppnir og jafnvel tónleika en jafn-
framt verður boðið upp á hefðbundnari
skemmtigarð í ætt við Disney World.
Á svæðinu verður einnig byggt 4 stjörnu
hótel með gistirými fyrir 400 manns sem ætti
að koma sér vel þar sem ein af stúkum svæð-
isins verður endurbyggð svo hægt sé að höfða
jafnt til þeirra sem vilja sjá kappakstur sem og
viðskiptalífsins sem þar myndi hafa spennandi
vettvang fyrir hvers konar viðskiptatengsl.
Meginþema svæðisins verður eftir sem áður
Nürburgring og Nordschleife og mun verða
sterklega byggt á þeim hefðum sem skapast
hafa í kringum þetta heillandi og fallega svæði
í Þýskalandi.
Nürburgring breytt í skemmtigarð
Stórt Áætlað er að byggja yfir hluta mótorsportsins í Nürburgring með fjögur þúsund fermetra höll sem á að rúma 4500 manns í sæti.