Morgunblaðið - 09.11.2007, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Eftir Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Byrjun Jóns Inga Þorvaldssonar frá
Akranesi í kappakstri lofar góðu,
eins og hann sýndi og sannaði á
seinni keppnishelgi haustmótaraðar
Palmer Audi–formúlunnar (FPA).
Þótt reynsluminnstur væri lauk
hann stigakeppninni í 22. sæti af 27
keppendum sem tóku þátt. Hann
hyggur á fulla þátttöku í formúlunni
næsta sumar.
Keppir við reynslubolta
„Ég get ekki verið annað en sáttur
við þann árangur sem ég hef náð og
vonast til að geta tekið þátt í allri
FPA–mótaröðinni á næsta ári,“ seg-
ir Jón Ingi um keppnina. Keppt var
þrisvar í Snetterton–brautinni í
Norfolk sl. sunnudag en viku áður
fóru þrjú fyrri haustmótanna fram í
hinni sögufrægu Brands Hatch–
braut suðaustur af London. Fremstu
ökumenn af yngri kynslóðinni í
Bretlandi bættust í hópinn seinni
helgina og var keppnin því harðari. Í
fyrstu keppninni í Snetterton ræsti
Jón Ingi í 20. sæti og kom í mark í
sama sæti. Í annarri keppninni ræsti
hann í 21. sæti og endaði í 19. sæti.
Besta árangri dagsins náði hann síð-
an í þriðja kappakstrinum þar sem
hann lagði upp í 19. sæti og náði með
harðfylgi að vinna sig upp í 17. sætið
eftir að hafa misst þrjá ökumenn
fram úr sér um miðbik keppninnar.
„Rétt eins og um síðustu helgi
missti ég nánast alla fram úr mér í
startinu í fyrstu tveimur umferðun-
um þar sem ég hafði ekkert náð að
æfa ræsinguna. Þar sem keppnin um
síðustu helgi fór fram í rigningu
þurfti ég síðan að læra upp á nýtt að
ræsa í þurru og náði ekki almenni-
lega tökum á því fyrr en í þriðju um-
ferðinni. Í þeirri umferð átti ég fyrir
vikið mjög skemmtilegan slag við þá
sem voru næstir mér í rásröðinni.Ég
er hins vegar einfaldlega með lang-
minnstu reynsluna af ökumönnunum
í þessari keppni. Það eru aðeins fjór-
ir ökumenn í hópnum með svipaðan
bakgrunn og ég í akstursíþróttum,
þ.e.a.s. koma beint úr Rotax körtum,
en þeir hafa allir mun meiri reynslu
af því en ég.“
Miklu nær brautartíma
bestu manna
„Hinir 17 eru allir reynsluboltar
úr hinum ýmsu greinum kappakst-
urs, svo sem Formula Renault, For-
mula Ford, Formula BMW og
Champcar Atlantics. Fyrir vikið hef-
ur verið gríðarlega lærdómsríkt að
keppa við þá þar sem við fáum ná-
kvæm gögn úr bílnum eftir hverja
aksturslotu og samanburð við besta
tíma sem næst í þeirri lotu. Þótt ég
sé ekki að ná framar í rásröðina en
um fyrri helgina þá er ég hins vegar
stöðugt að ná framförum og er nú
mun nær brautartíma bestu manna.
Um síðustu helgi var besti tími minn
í tímatökunum 3,6% frá tíma
fremstu manna en í tímatökunum í
gær var ég kominn niður í 2,9% frá
þeim fremstu í rásröðinni. Og í kepp-
endahópi sem þessum þá er hvert
sæti frá botninum stórsigur fyrir
mig,“ segir Jón Ingi um þátttöku
sína í FPA–mótaröðinni. Karate-
meistarinn fyrrverandi segir og að
þátttakan hafi verið alveg sérstök
lífsreynsla.
„Ég held ég hafi aldrei þurft að
klífa brattari lærdómskúrfu í nokkru
sem ég hef tekið mér fyrir hendur og
fyrir vikið er þetta búin að vera
magnaðasta lífsreynsla mín hingað
til.“
Íslenskir áhugamenn eiga þess
kost að fylgjast með keppninni í
sjónvarpi á næstunni. Sýnt verður
frá haustmótaröð FPA á sjónvarps-
stöðinni Motors TV, sem m.a. er
dreift á Breiðbandinu og Digital Ís-
landi. Hófust þær sýningar í gær og
standa yfir næstu tvær vikur.
Hyggur á fulla þátttöku
í FPA-formúlunni
Bríkur Glímir hér við beygjubríkur í kappakstri í Snetterton á seinni keppnishelgi Palmer Audi-formúlunnar.
Lærdómsríkt „Ég held ég hafi aldrei þurft að klífa brattari lærdómskúrfu í nokkru sem ég hef tekið mér fyrir
hendur,“ sagði Jón um kappaksturinn og nefndi jafnframt keppnin hefur verið einstök lífsreynsla.
Vandvirkur Jón Ingi Þorvaldsson snurfusar hjálminn fyrir keppni.
ÞÝSKI bílasmið-
urinn Daimler
setti nýtt met í
nýliðnum október
er hann seldi
114.600 bifreiðar í
Þýskalandi. Hef-
ur fyrirtækið
aldrei selt svo
marga bíla í októ-
ber. Nemur
aukningin 11,8%
frá sama mánuði
í fyrra.
Í fólksbílalínu Daimlers eru teg-
undirnar Mercedes–Benz, Smart
og Maybach. Af
fyrstnefndu teg-
undinni seldust
103.900 bílar, sem
er 10,3% aukning
og sala Smart–
bíla jókst um
28,7% frá í októ-
ber í fyrra og
nam 10.700 bílum.
Heildarsalan
fyrir tímabilið
janúar til október
nam 1,067 milljónum bíla sem er
1,9% aukning miðað við sama 10
mánaða tímabil árið 2006.
Metsala hjá Daimler
í Þýskalandi
Toyota Land Cruiser 100
VX. 04/01, ekinn 163 þ km.
Sjsk, disel, 35", leður, topplú-
ga, sumar- og vetrardekk,
DVD ofl. Verð 4.450.000 kr.
Raðnúmer: 113377
Hyundai Tucson 4x4 disel.
10/05, ekinn 29 þ km. Sjsk,
leður, hraðastillir. Verð
2.790.000 kr. Raðnúmer:
120233
Toyota Land Cruiser 120 GX.
06/06, ekinn 43 þ km. Sjsk,
disel, hraðastillir, dráttarkúla.
Verð 4.450.000 kr. Raðnúmer:
151118
Toyota Hiace 4WD 2.5.
06/05, ekinn 40 þ km. Bsk,
disel, 9 manna, dráttarkúla.
Verð 2.480.000 kr. Raðnúmer:
151122
Volvo 240 GL. 03/87, ekinn
176 þ km. Sjsk, dráttarkúla,
sumar- og vetrardekk, auka
felgur. Gullmoli. Verð 250.000
kr. Raðnúmer: 113332
Skoda Octavia II 4x4. 12/05,
ekinn 36 þ km. Bsk, bensín,
hraðastillir. Verð 2.150.000 kr.
Raðnúmer: 151052
Toyota Corolla 1.6 VVT-I
Sport. 10/04, ekinn 41 þ km.
Bsk. Verð 1.650.000 kr.
Raðnúmer: 170014
Toyota Land Cruiser 120
VX. 09/05, ekinn 42 þ km.
Sjsk, disel, spól- og skriðvörn,
Webasto, dráttarkúla. Verð
5.390.000 kr. Raðnúmer:
151028
Toyota Yaris Sol 1.4 disel.
05/07, ekinn 15 þ km. MM
skipting. 100 % lán, ca. 23 þús
kr. á mánuði. Verð 1.670.000
kr. Raðnúmer: 170007
Yamaha SX Viper 700 121".
2002, ekinn 3 þ km. Panna,
tanktaska, yfirbreiðsla. Verð
470.000 kr. Raðnúmer: 204849
Baldursnesi 1, 600 Akureyri, s. 460-4300
M
bl
9
20
98
4