Morgunblaðið - 19.11.2007, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar
sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins
SIDELINE Sports, sem var stofnað árið 2001, stendur
fyrir öflugri markaðssetningu á alþjóðamarkaði sem
hugbúnaðar- og ráðgjafafyrirtæki við þjálfun íþrótta-
fólks í mismunandi íþróttagreinum. Stofnendur Sidel-
ine Sports og aðaleigendur þess eru Guðbrandur Þor-
kelsson og Brynjar Karl Sigurðsson en um 10 manns
starfa hjá fyrirtækinu í þremur löndum. Guðbrandur
útskrifaðist sem tölvunarfræðingur úr Háskóla Íslands
1998. Hann hefur yfirumsjón með allri hugbún-
aðarþróun innan fyrirtækisins ásamt sölu- og markaðs-
málum í Evrópu. Brynjar Karl er fyrrverandi A-
landsliðsmaður í körfuknattleik. Hann spilaði körfu-
bolta í menntaskóla í Bandaríkjunum og hlaut
skólastyrk til þess að spila körfubolta í bandarísku Há-
skóladeildinni. Brynjar hefur fengist við þjálfun á öll-
um stigum körfubolta hérlendis síðustu 13 árin. Hann
hefur yfirumsjón með sölumálum og vöruþróun.
Aðalvörur Sideline Sports eru Sideline Organizer og
Sideline Video Analyzer. Sideline Organizer er hug-
búnaður sem gerir daglegt starf þjálfarans auðveldara
og hjálpar honum að skipuleggja sig. Hugbúnaðurinn
skiptist í æfinga- og leikaðferðasafn, dagatal, teikni-
kerfi, tímaseðlaskrá, meistaraáætlun og tölfræðihluta.
Allir þessir þættir eru sjálfstæðir hlutar en tengjast
innbyrðis. Þjálfarinn hefur mjög mikil not fyrir kerfi
sem þetta til að halda utan um æfingar og leikaðferðir,
teikna upp kerfi, greina vinnu sína með tölfræði, miðla
efni til leikmanna o.fl.
Kostir hugbúnaðarins eru þeir að þjálfarinn getur
komið öllum þeim gögnum, sem tengjast hans þjálfun
til lengri og skemmri tíma, á einn stað. Hingað til hafa
þjálfarar notast við stílabækur, útgefnar fræðslubækur
og forrit eins og Word og Excel til að halda utan um sín
æfingasöfn. Sideline Organizer sameinar þá þætti sem
þjálfarar þarfnast á einum stað, í einu forriti. Kerfið
gerir þjálfaranum kleift að sameina kosti gagna-
geymslu í formi æfingasafns.
Sideline Video Analyzer er hugbúnaður sem þjálfari
notar til þess að greina leik á myndrænu formi. Hug-
búnaðurinn býr til gagnagrunn með öllum mynd-
skeiðum í greindum leikjum. Þjálfarinn getur svo sett
fyrirspurnir inn í þennan gagnagrunn um tölfræði úr
leikjum ásamt myndskeiðum.
Alþjóðlegt fyrirtæki
NOKKUR ensk knattspyrnulið
hafa keypt hugbúnað frá Sideline
Sports og má þar nefna Bolton.
Brynjar Karl viðurkennir það fús-
lega að þekking hans á ensku
knattspyrnunni sé ekki mikil og
hafði hann t.d. ekki hugmynd um
hver Sam Allardyce var þegar
hann fundaði með Bolton á sínum
tíma. „Ég veit ekki hvert Guðni
Bergsson ætlaði þegar hann sá
hvernig ég kom fram við „Stóra
Sam“ en ég hafði ekki hugmynd
um hver hann var. Ég fékk að
funda með þeim og kynna hugbún-
aðinn. Hugtakið coach, eða þjálf-
ari, var mun stærra í mínum huga
en einhver yfirmaður knatt-
spyrnumála eða hvað svo sem
Englendingar kalla þann sem ræð-
ur öllu. Ég var vanur því að selja
vöruna okkar í Bandaríkjunum og
beindi því orðum mínum að þeim
sem voru coach hjá félaginu eða
þjálfarar. Ég ræddi nánast ekki
neitt við knattspyrnustjórann Sam
Allardyce á þessum fundi. Jú, ég
bað hann um að kveikja og
slökkva ljósin í salnum enda sat
hann alveg við vegginn. Og eftir
fundinn spurði ég Allardyce hvort
hann myndi ekki ganga frá eftir
okkur í salnum. Eftir fundinn var
ég alveg miður mín þegar mér var
sagt frá því hver það var sem réði
ferðinni hjá félaginu. Ég hafði
ekki hugmynd um hver hann var
og satt best að segja hélt ég að
hann væri húsvörður eða eitthvað
álíka. En það sem skiptir mestu
máli er að Bolton keypti hugbún-
aðinn og Allardyce var mjög sátt-
ur við það sem ég hafði fram að
færa,“ segir Brynjar.
Reuters
Húsvörður! Sam Allardyce, knatt-
spyrnustjóri Newcastle og fyrrver-
andi „stjóri“ hjá Bolton.
Hélt að
„Stóri
Sam“
væri hús-
vörðurinn
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
En hvernig stendur á því að FIBA
leitar til Íslands þegar kemur að
leikgreiningu á leikjum frá stórmót-
um og framleiðslu á kennsluefni
sem er aðgengilegt fyrir alla þá sem
hafa áhuga?
Brynjar Karl situr fyrir svörum í
einni kennslustofu FSu þegar Morg-
unblaðið náði tali af honum en af og
til er samtal okkar truflað vegna
símtala erlendis frá og nokkrir leik-
menn FSu þurfa einnig að fá athygli
frá þjálfaranum. Það er greinilega
nóg að gera í vinnunni.
Guðbrandur kemur öllu í verk
„Áður en við byrjum þá verður
það að koma fram að Guðbrandur er
sá sem kemur öllu í verk og sér um
að hugbúnaðurinn virkar. Án hans
og annarra starfsmanna værum við
ekki komnir svona langt. Þetta er
eiginlega til komið vegna samnings
sem að Sideline Sports gerði við
FIBA fyrir u.þ.b. 2 árum þegar
FIBA gerði hugbúnað Sideline
Sports að opinberum hugbúnaði sín-
um. Eftir það hafa þeir verið að
fylgjast með þróuninni og hvernig
hann er notaður við þjálfun hjá FSu
liðinu. Þetta hefur verið að vinda
upp á sig jafnt og þétt. Það eru
kannski ekki margir á Íslandi sem
vita hvað við erum að gera hérna á
Suðurlandinu. Enda eru fáir sem
tengja alþjóðlegt brautryðjendastarf
í körfubolta við Selfoss. Þeir hjá
FIBA hafa mikla trú á því sem við
erum að gera hérna hjá FSu og einn
af yfirmönnum FIBA, Zoran Rado-
vic frá Serbíu, mun koma hingað til
lands á næsta ári til þess að skoða
hvað er svona merkilegt að gerast í
einhverjum smábæ á Íslandi. Þetta
er raun miklu meira en viðkenning
á störfum okkar hjá FSu, Körfu-
knattleiksakademíunni. Þetta er yf-
irlýsing frá FIBA um að það sem
við erum að gera sé á heimsmæli-
kvarða. Það er töluverð ábyrgð sem
að fylgir öllu okkar samstarfi við
FIBA þar sem öll okkar vinna mun
hafa mikil áhrif á hvernig vinnu-
brögð þjálfara er að þróast og það
hvernig íþróttin er kennd. “
Hvernig tókst ykkur að selja
FIBA þessa hugmyndafræði og
hugbúnað?
„Það er löng saga á bak við
þetta allt saman. Ég fór í mikið
ævintýri árið 2002 þegar ég fór til
Bandaríkjanna og stofnaði Sidel-
ineSports US. Í það ferðalag fór ég
með fartölvu og föt í tösku, en ég
hafði í raun enga hugmynd um
hvað ég ætlaði mér að gera. Ég
þekkti tvo aðila í Bandaríkjunum,
þjálfara sem ég hafði verið hjá, og
það er óhætt að segja að ég hafi
rennt blint í sjóinn. Það gekk ótrú-
lega vel á fyrsta árinu og ég náði
að mynda tengslanet úti um allt og
það gekk vel að selja hugbúnaðinn.
Þessi tími var í raun alveg ótrúleg-
ur. Ég ferðaðist í þrjú ár út um
þver og endilöng Bandaríkin og
það kom oft fyrir að ég vissi ekki
hvar ég ætlaði að sofa um nóttina.
Og stundum vissi ég ekki einu
sinni í hvaða ríki ég var staddur
þegar ég vaknaði og þá var eina
leiðin að finna símaskrá og átta sig
á því hvar maður var. Þetta var
mikið ævintýri. Í einni af söluferð-
unum kynntist ég Oliver Purnell
sem á þeim tíma var þjálfari há-
skólaliðsins Dayton og þjálfaði
bandaríska Ólympíulandsliðið með
Larry Brown sem þjálfaði NBA
meistara Detroit Pistons. Á sama
tíma fór ég líka að vinna með þjálf-
urum Grizzlies og kenna þeim á
hugbúnaðinn og einn þeirra var að
skrifa einhverjar greinar inn á
FIBA-vefinn. Á þeim tíma vorum
við ekkert að spá í FIBA þannig að
það kom okkur verulega á óvart
þegar fræðslustjóri FIBA hringdi á
skrifstofuna og lýsti áhuga sínum á
því sem við vorum að gera. FIBA
menn voru þá búnir að sjá hugbún-
aðinn í notkun hjá nokkrum aðilum
eins og Grizzlies og bandaríska Ól-
ympíuliðinu og þetta varð til þess
að boltinn fór að rúlla,“ segir
Brynjar.
Skrifa skýrslur og leikgreina
stórmót á vegum FIBA
Og hvað eruð þið að gera fyrir
FIBA?
„Það er í raun tvennt sem við er-
um að gera. Við leikgreinum stór-
mót á þeirra vegum og búum einnig
til fræðsluefni sem er birt er á
FIBA-vefnum. Við berum ábyrgð á
að skrifa skýrslur um Evrópu – og
heimsmeistarakeppnina en þar för-
um við yfir upptökur úr hverjum
einasta leik í karla – og kvenna-
flokki hjá U18 ára liðum og eldri.
Við leikgreinum hverja sókn í gegn-
um Sideline-forritið og skilgreinum
hvert einasta atvik. Þetta eru oftast
Allir leikir á heims- og Evrópumótum á vegum
FIBA eru krufðir til mergjar á Íslandi Íslenska
hugbúnaðarfyrirtækið Sideline Sports er leiðandi í
framleiðslu kennsluefnis á vefsíðu FIBA
STÆRÐ FIBA, Alþjóðakörfuknattleikssambandsins, er mikil en það er tal-
ið að allt að 450 milljónir leikmanna á öllum aldri stundi íþróttina á heims-
vísu. FIBA, er með 213 sérsambönd frá jafnmörgum þjóðum í sínum röð-
um. Miðað við umfang og stærð FIBA er það í raun ótrúlegt að kennsluefni
sem birt er í margmiðlunarformi á heimasíðu FIBA er framleitt frá A-Ö á
Selfossi. Já, á Selfossi en ekki í Bandaríkjunum, Ítalíu eða þeim löndum
sem eru í fremstu röð á heimsvísu. Litla Ísland er enn og aftur í fremstu
röð í útrásinni. FIBA hefur gert samning íslenska fyrirtækið Sideline
Sports um að fyrirtækið taki að sér að framleiða allt kennsluefni í körfu-
knattleik fyrir sambandið næstu fjögur árin. Stofnendur Sideline Sports og
aðaleigendur eru Guðbrandur Þorkelsson og Brynjar Karl Sigurðsson.
LeBron James
er leikgreindur
á Selfossi