Morgunblaðið - 19.11.2007, Side 2

Morgunblaðið - 19.11.2007, Side 2
2 MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins SIDELINE Sports, sem var stofnað árið 2001, stendur fyrir öflugri markaðssetningu á alþjóðamarkaði sem hugbúnaðar- og ráðgjafafyrirtæki við þjálfun íþrótta- fólks í mismunandi íþróttagreinum. Stofnendur Sidel- ine Sports og aðaleigendur þess eru Guðbrandur Þor- kelsson og Brynjar Karl Sigurðsson en um 10 manns starfa hjá fyrirtækinu í þremur löndum. Guðbrandur útskrifaðist sem tölvunarfræðingur úr Háskóla Íslands 1998. Hann hefur yfirumsjón með allri hugbún- aðarþróun innan fyrirtækisins ásamt sölu- og markaðs- málum í Evrópu. Brynjar Karl er fyrrverandi A- landsliðsmaður í körfuknattleik. Hann spilaði körfu- bolta í menntaskóla í Bandaríkjunum og hlaut skólastyrk til þess að spila körfubolta í bandarísku Há- skóladeildinni. Brynjar hefur fengist við þjálfun á öll- um stigum körfubolta hérlendis síðustu 13 árin. Hann hefur yfirumsjón með sölumálum og vöruþróun. Aðalvörur Sideline Sports eru Sideline Organizer og Sideline Video Analyzer. Sideline Organizer er hug- búnaður sem gerir daglegt starf þjálfarans auðveldara og hjálpar honum að skipuleggja sig. Hugbúnaðurinn skiptist í æfinga- og leikaðferðasafn, dagatal, teikni- kerfi, tímaseðlaskrá, meistaraáætlun og tölfræðihluta. Allir þessir þættir eru sjálfstæðir hlutar en tengjast innbyrðis. Þjálfarinn hefur mjög mikil not fyrir kerfi sem þetta til að halda utan um æfingar og leikaðferðir, teikna upp kerfi, greina vinnu sína með tölfræði, miðla efni til leikmanna o.fl. Kostir hugbúnaðarins eru þeir að þjálfarinn getur komið öllum þeim gögnum, sem tengjast hans þjálfun til lengri og skemmri tíma, á einn stað. Hingað til hafa þjálfarar notast við stílabækur, útgefnar fræðslubækur og forrit eins og Word og Excel til að halda utan um sín æfingasöfn. Sideline Organizer sameinar þá þætti sem þjálfarar þarfnast á einum stað, í einu forriti. Kerfið gerir þjálfaranum kleift að sameina kosti gagna- geymslu í formi æfingasafns. Sideline Video Analyzer er hugbúnaður sem þjálfari notar til þess að greina leik á myndrænu formi. Hug- búnaðurinn býr til gagnagrunn með öllum mynd- skeiðum í greindum leikjum. Þjálfarinn getur svo sett fyrirspurnir inn í þennan gagnagrunn um tölfræði úr leikjum ásamt myndskeiðum. Alþjóðlegt fyrirtæki NOKKUR ensk knattspyrnulið hafa keypt hugbúnað frá Sideline Sports og má þar nefna Bolton. Brynjar Karl viðurkennir það fús- lega að þekking hans á ensku knattspyrnunni sé ekki mikil og hafði hann t.d. ekki hugmynd um hver Sam Allardyce var þegar hann fundaði með Bolton á sínum tíma. „Ég veit ekki hvert Guðni Bergsson ætlaði þegar hann sá hvernig ég kom fram við „Stóra Sam“ en ég hafði ekki hugmynd um hver hann var. Ég fékk að funda með þeim og kynna hugbún- aðinn. Hugtakið coach, eða þjálf- ari, var mun stærra í mínum huga en einhver yfirmaður knatt- spyrnumála eða hvað svo sem Englendingar kalla þann sem ræð- ur öllu. Ég var vanur því að selja vöruna okkar í Bandaríkjunum og beindi því orðum mínum að þeim sem voru coach hjá félaginu eða þjálfarar. Ég ræddi nánast ekki neitt við knattspyrnustjórann Sam Allardyce á þessum fundi. Jú, ég bað hann um að kveikja og slökkva ljósin í salnum enda sat hann alveg við vegginn. Og eftir fundinn spurði ég Allardyce hvort hann myndi ekki ganga frá eftir okkur í salnum. Eftir fundinn var ég alveg miður mín þegar mér var sagt frá því hver það var sem réði ferðinni hjá félaginu. Ég hafði ekki hugmynd um hver hann var og satt best að segja hélt ég að hann væri húsvörður eða eitthvað álíka. En það sem skiptir mestu máli er að Bolton keypti hugbún- aðinn og Allardyce var mjög sátt- ur við það sem ég hafði fram að færa,“ segir Brynjar. Reuters Húsvörður! Sam Allardyce, knatt- spyrnustjóri Newcastle og fyrrver- andi „stjóri“ hjá Bolton. Hélt að „Stóri Sam“ væri hús- vörðurinn Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is En hvernig stendur á því að FIBA leitar til Íslands þegar kemur að leikgreiningu á leikjum frá stórmót- um og framleiðslu á kennsluefni sem er aðgengilegt fyrir alla þá sem hafa áhuga? Brynjar Karl situr fyrir svörum í einni kennslustofu FSu þegar Morg- unblaðið náði tali af honum en af og til er samtal okkar truflað vegna símtala erlendis frá og nokkrir leik- menn FSu þurfa einnig að fá athygli frá þjálfaranum. Það er greinilega nóg að gera í vinnunni. Guðbrandur kemur öllu í verk „Áður en við byrjum þá verður það að koma fram að Guðbrandur er sá sem kemur öllu í verk og sér um að hugbúnaðurinn virkar. Án hans og annarra starfsmanna værum við ekki komnir svona langt. Þetta er eiginlega til komið vegna samnings sem að Sideline Sports gerði við FIBA fyrir u.þ.b. 2 árum þegar FIBA gerði hugbúnað Sideline Sports að opinberum hugbúnaði sín- um. Eftir það hafa þeir verið að fylgjast með þróuninni og hvernig hann er notaður við þjálfun hjá FSu liðinu. Þetta hefur verið að vinda upp á sig jafnt og þétt. Það eru kannski ekki margir á Íslandi sem vita hvað við erum að gera hérna á Suðurlandinu. Enda eru fáir sem tengja alþjóðlegt brautryðjendastarf í körfubolta við Selfoss. Þeir hjá FIBA hafa mikla trú á því sem við erum að gera hérna hjá FSu og einn af yfirmönnum FIBA, Zoran Rado- vic frá Serbíu, mun koma hingað til lands á næsta ári til þess að skoða hvað er svona merkilegt að gerast í einhverjum smábæ á Íslandi. Þetta er raun miklu meira en viðkenning á störfum okkar hjá FSu, Körfu- knattleiksakademíunni. Þetta er yf- irlýsing frá FIBA um að það sem við erum að gera sé á heimsmæli- kvarða. Það er töluverð ábyrgð sem að fylgir öllu okkar samstarfi við FIBA þar sem öll okkar vinna mun hafa mikil áhrif á hvernig vinnu- brögð þjálfara er að þróast og það hvernig íþróttin er kennd. “ Hvernig tókst ykkur að selja FIBA þessa hugmyndafræði og hugbúnað? „Það er löng saga á bak við þetta allt saman. Ég fór í mikið ævintýri árið 2002 þegar ég fór til Bandaríkjanna og stofnaði Sidel- ineSports US. Í það ferðalag fór ég með fartölvu og föt í tösku, en ég hafði í raun enga hugmynd um hvað ég ætlaði mér að gera. Ég þekkti tvo aðila í Bandaríkjunum, þjálfara sem ég hafði verið hjá, og það er óhætt að segja að ég hafi rennt blint í sjóinn. Það gekk ótrú- lega vel á fyrsta árinu og ég náði að mynda tengslanet úti um allt og það gekk vel að selja hugbúnaðinn. Þessi tími var í raun alveg ótrúleg- ur. Ég ferðaðist í þrjú ár út um þver og endilöng Bandaríkin og það kom oft fyrir að ég vissi ekki hvar ég ætlaði að sofa um nóttina. Og stundum vissi ég ekki einu sinni í hvaða ríki ég var staddur þegar ég vaknaði og þá var eina leiðin að finna símaskrá og átta sig á því hvar maður var. Þetta var mikið ævintýri. Í einni af söluferð- unum kynntist ég Oliver Purnell sem á þeim tíma var þjálfari há- skólaliðsins Dayton og þjálfaði bandaríska Ólympíulandsliðið með Larry Brown sem þjálfaði NBA meistara Detroit Pistons. Á sama tíma fór ég líka að vinna með þjálf- urum Grizzlies og kenna þeim á hugbúnaðinn og einn þeirra var að skrifa einhverjar greinar inn á FIBA-vefinn. Á þeim tíma vorum við ekkert að spá í FIBA þannig að það kom okkur verulega á óvart þegar fræðslustjóri FIBA hringdi á skrifstofuna og lýsti áhuga sínum á því sem við vorum að gera. FIBA menn voru þá búnir að sjá hugbún- aðinn í notkun hjá nokkrum aðilum eins og Grizzlies og bandaríska Ól- ympíuliðinu og þetta varð til þess að boltinn fór að rúlla,“ segir Brynjar. Skrifa skýrslur og leikgreina stórmót á vegum FIBA Og hvað eruð þið að gera fyrir FIBA? „Það er í raun tvennt sem við er- um að gera. Við leikgreinum stór- mót á þeirra vegum og búum einnig til fræðsluefni sem er birt er á FIBA-vefnum. Við berum ábyrgð á að skrifa skýrslur um Evrópu – og heimsmeistarakeppnina en þar för- um við yfir upptökur úr hverjum einasta leik í karla – og kvenna- flokki hjá U18 ára liðum og eldri. Við leikgreinum hverja sókn í gegn- um Sideline-forritið og skilgreinum hvert einasta atvik. Þetta eru oftast  Allir leikir á heims- og Evrópumótum á vegum FIBA eru krufðir til mergjar á Íslandi  Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Sideline Sports er leiðandi í framleiðslu kennsluefnis á vefsíðu FIBA STÆRÐ FIBA, Alþjóðakörfuknattleikssambandsins, er mikil en það er tal- ið að allt að 450 milljónir leikmanna á öllum aldri stundi íþróttina á heims- vísu. FIBA, er með 213 sérsambönd frá jafnmörgum þjóðum í sínum röð- um. Miðað við umfang og stærð FIBA er það í raun ótrúlegt að kennsluefni sem birt er í margmiðlunarformi á heimasíðu FIBA er framleitt frá A-Ö á Selfossi. Já, á Selfossi en ekki í Bandaríkjunum, Ítalíu eða þeim löndum sem eru í fremstu röð á heimsvísu. Litla Ísland er enn og aftur í fremstu röð í útrásinni. FIBA hefur gert samning íslenska fyrirtækið Sideline Sports um að fyrirtækið taki að sér að framleiða allt kennsluefni í körfu- knattleik fyrir sambandið næstu fjögur árin. Stofnendur Sideline Sports og aðaleigendur eru Guðbrandur Þorkelsson og Brynjar Karl Sigurðsson. LeBron James er leikgreindur á Selfossi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.