Morgunblaðið - 19.11.2007, Side 4
4 MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
Eftir Sigursvein Þórðarson
HAUKAR komust á topp N1-
deildarinnar með fyrirhafnarlitlum
sigri í Vestmannaeyjum á laug-
ardaginn, 37:23. Eftir fimm mín-
útna leik mátti sjá á andlitum Eyja-
manna að þeir voru búnir að gefast
upp og það kann ekki góðri lukku
að stýra. Gestirnir skoruðu fyrstu
fimm mörk leiksins og virtust ekk-
ert þurfa að hafa fyrir því að skora.
Í stöðunni 5:13 gerði Sigurður
Bragason, leikreyndasti leikmaður
ÍBV, sig sekan um ótrúlegt dóm-
greindarleysi þegar hann réðst að
Halldóri Ingólfssyni eftir að sá síð-
arnefndi hafði brotið á honum.
Uppskar hann réttilega rautt spjald
og við það veiktist lið ÍBV til muna.
Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka,
gat leyft sér að hvíla lykilmenn og
skipta út mannskapnum að vild,
ekkert sló þá út af laginu á meðan
sóknarleikur ÍBV var tilvilj-
anakenndur og skotin oft ótímabær
og illa hugsuð. Ljóst er að leikmenn
ÍBV þurfa heldur betur að girða sig
í brók ef þeir ætla sér ekki að fara
stigalausir í gegnum Íslandsmótið í
vetur. Leikur liðsins er hreinasta
hörmung og leikmenn sem áttu fyr-
ir mót að gegna lykilhlutverki hafa
algjörlega brugðist. Agaleysið er
algjört, sem sést best á því að fimm
leikmenn ÍBV hafa nú verið dæmd-
ir í leikbann það sem af er mótinu,
þar af einn tvívegis. Haukar hafa
líklega aldrei haft eins lítið fyrir
því að tylla sér á topp deildarinnar.
Leikur liðsins var afslappaður og
voru hornamennirnir Freyr Brynj-
arsson og Jón Karl Björnsson í
góðu formi í leiknum, Freyr sér-
staklega í hraðaupphlaupum og
Jón Karl af vítalínunni, en hann
skoraði úr jafnmörgum vítaköstum
og ÍBV brenndi af.
Leikur kattarins að músinni
FRAMARAR áttu ekki í erfiðleikum
með Akureyringa í Safamýrinni í
gær, þar sem liðin áttust við í N1-
deild karla í handknattleik.
Heimamenn tóku leikinn strax í
sínar hendur og voru með fjögurra
marka forskot í leikhléi, 12:8. Mun-
urinn varð mestur tíu mörk í seinni
hálfleik, en lokastaðan var 30:22 fyrir
Fram.
Eins og áður var Jóhann Gunnar
Einarsson atkvæðamesti leikmaður
Framliðsins og skoraði sjö mörk.
Gamli keppnismaðurinn frá Ung-
verjalandi, Zoltán Belányi, skoraði
fimm mörk fyrir Framara og þá
vörðu markverðirnir Björgvin Páll
Gústafsson og Magnús Erlendsson
vel. Magnús Stefánsson og Goran Gu-
sic voru grimmastir Akureyringa við
að skora, þeir gerðu báðir sjö mörk.
Jöfn barátta
Haukar eru á toppi N1-deildarinn-
ar með 14 stig eftir níu leiki, en síðan
koma HK og Fram með 13 stig.
Stjörnumenn eru með 11 stig eftir 8
leiki og Valsmenn eru með 8 stig eftir
átta leiki.
Það er ljóst að baráttan um Ís-
landsmeistaratitilinn verður jöfn og
spennandi.
Auðvelt hjá Fram
Logi Gunn-arsson er
að komast á skrið
eftir meiðsli og
var í byrjunarliði
Gijon þegar það
tók á móti Cai
Huesca Cosarsa í
spænsku LEB-
platínudeildinni.
Leikurinn endaði með 99:94-sigri
Gijon eftir framlengingu. Logi lék í
12 mínútur og gerði 2 stig.
Jón Arnór Stefánsson gerði 17stig og var stigahæstur Róm-
verja þegar þeir unnu Armani Mil-
ano, 80:74, á útivelli í ítölsku deild-
inni.
Pavel Ermolinskij er enn meidd-ur og var því ekki með Huelva
þegar liðið tók á móti Alerta Can-
tabria í LEB-gulldeildinni á Spáni.
Damon Johnson var hins vegar með
og gerði tvö stig í þær rúmu átta
mínútur sem hann lék.
Helgi Freyr Magnússon og fé-lagar hans í danska liðinu
Randers Cimbria unnu um helgina
Åbyhöj í Árósum, 85:76, og hafa nú
unnið þrjá leiki í röð. Helgi Freyr
lék í 25 mínútur, gerði 8 stig, tók 3
fráköst og stal boltanum þrívegis af
mótherjum sínum.
Halldór Karlsson og félagar íHorsens heimsóttu Skovbak-
ken í dönsku 3. deildinni og unnu
sannfærandi sigur, 91:57. Þeir eru
enn ósigraðir í deildinni.
Helena Sverr-isdóttir átti
fínan leik með
TCU þegar liðið
lagði Delware,
66:36. Helena lék
í 22 mínútur og
gerði 11 stig auk
þess sem hún átti
6 stoðsendingar.
María Ben Erlingsdóttir lékekki með UTPA-skólanum
þegar hann tapaði fyrir Houston-
Tillotson, 86:48. María brákaði bein
í ristinni í leiknum á undan þessum,
gegn Baylor, sem tapaðist stórt,
76:39, en þar gerði hún 4 stig.
Íslensku körfuknattleiksdóm-urunum Kristni Óskarssyni og
Sigmundi Má Herbertssyni var á
dögunum úthlutað verkefnum er-
lendis. Kristinn mun dæma leik
franska liðsins Dunkerque og KK
Zagreb í Frakklandi þann 27. nóv-
ember en þetta er leikur í EuroCup,
sömu keppni og KR tekur þátt í.
Daginn eftir dæmir hann síðan leik
USO Basket og Dynamo frá
Moskvu í Evrópukeppni kvenna.
Sigmundur dæmir leik Rhonda Re-
bels og Hondarriba-Irum frá Spáni
þann 5. desember og verður leikið í
Wales.
Fólk sport@mbl.is
Valsmenn hófu leikinn af miklum
krafti og komust í 3:1. „Já, við byrj-
uðum með látum og vorum bara
virkilega sprækir. Við keyrðum upp
hraðann, tókum miðju hratt og allt
var í fínu lagi. Ernir [Hrafn Arnar-
son] byrjaði inni á og það kom betri
taktur í sóknina hjá okkur við það,“
sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálf-
ari Valsmanna, í samtali við Morg-
unblaðið eftir leikinn í gær.
„Eftir þessa byrjun var eins og all-
ur vindur væri úr okkur og sannast
sagna virtust menn hálfþreyttir eftir
fyrsta korterið. Þó svo að við höfum
tapað hinum leikjunum þá fannst
mér þetta öðruvísi. Það vantaði sömu
lætin og baráttuna sem hefur ein-
kennt okkur. Þetta er í fyrsta sinn
sem ég finn eins og vott af andleysi
hjá okkur.
Vörnin komst aldrei í almenni-
legan gír. Hún hrökk í gang í tveim-
ur, þremur sóknum en síðan gekk
ekkert. Ég var aldrei fullkomlega
sáttur, hvorki með sóknina hjá okkur
né vörnina,“ sagði þjálfarinn.
Arnór átti góðan leik
Arnór Gunnarsson var marka-
hæstur hjá Val með sjö mörk úr sjö
skotum og var þjálfarinn ánægður
með hans frammistöðu. „Hann átti
frábæran leik og svo stóð Hjalti
Pálmason sig ágætlega er á leið leik-
inn. Aðrir fannst mér eiga að geta
betur en þeir sýndu í dag. Pálmar
byrjaði í markinu og Ólafur Gíslason
kom síðan inn á og varði ágætlega,
ég hefði kannski átt að setja hann
fyrr inn,“ sagði Óskar Bjarni.
Hann var ekki sáttur við leikinn.
„Þetta var daprasti leikurinn okkar í
keppninni, en svona er þetta víst
bara.“
Sverre sterkur í vörninni
Óskar Bjarni sagði að Gummers-
bach hefði leikið ágætlega. „Norð-
maðurinn Kenneth Klev átti góðan
leik. Róbert [Gunnarsson] var með
sex mörk úr átta skotum og Sverre
[Jakobsson] stóð sig frábærlega í
vörninni, en hann lék þar eiginlega
allan tímann og er sterkur þar ásamt
Klev. Momir Ilic hefur oft leikið þar
líka en gerði ekki mikið af því í dag.
Annars var Króatinn Vledran
Zrnic okkur erfiður. Hann er eld-
fljótur og sterkur leikmaður, hann
skoraði níu mörk úr þrettán tilraun-
um, en hann tekur vítaköstin fyrir þá
líka.
Þegar við spiluðum við þá heima
þá keyrðu þeir rosalega á okkur og
ég held að þeir hafi skorað ellefu af
fyrstu nítján mörkum sínum úr
hraðri miðju eða hraðaupphlaupum.
Okkur tókst að stöðva það núna en
þá skoruðu þeir bara hjá okkur þeg-
ar við stilltum upp. Við gerðum ekki
svo mikið af tæknilegum villum í dag
heldur áttum við hreinlega í erfið-
leikum með að finna glufu í vörn
þeirra og vorum því að taka erfið
skot á Ungverjann í markinu.“
Verðum að vera ferskari
„Leikmenn Gummersbach voru
ferskari en við í dag og það gengur
ekki því við verðum að vera ferskari
og gera betur en mótherjarnir í
hverjum leik ef við ætlum að ná ár-
angri. Það er ekkert flóknara en það.
En það var virkilega gaman og
lærdómsríkt að taka þátt í þessu.
Höllin hér í Köln er stór og mikil og
þótt það hafi ekki verið nema um
3.000 áhorfendur þá var mikil stemn-
ing og gaman í höllinni,“ sagði Óskar
Bjarni.
Þess má geta að Rússinn Oleg Ku-
leshov var meiddur og lék ekki með
og Slóveninn Roman Pungartnik var
í banni.
Morgunblaðið/Sverrir
Vörnin Valsmenn töpuðu fyrir Gummersbach í Köln í gær. Vörn Vals náði ekki eins vel saman og oft áður í vetur og hafði það sitt að segja.
Góð byrjun Vals dugði
lítt gegn Gummersbach
VALSMENN töpuðu fyrir Gum-
mersbach í Meistaradeild Evrópu í
handknattleik í gær. Leikið var í
Köln og lauk leiknum með 34:22-
sigri Alfreðs Gíslasonar og læri-
sveina hans. Á sama tíma vann
Celje Lasko lið Veszprém, 28:23.
Gummersbach er efst í riðlinum,
hefur aðeins tapað einu stigi, en
Valsliðið er neðst með einn unnin
leik og fær tækifæri til að komast
upp að hlið Veszprém á fimmtudag-
inn þegar liðin mætast á Hlíð-
arenda.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
Óskar Bjarni , þjálfari Valsmanna, var ekki sáttur og sagði þetta daprasta leik
liðsins í Meistaradeildinni Arnór með sjö mörk úr sjö tilraunum