Morgunblaðið - 19.11.2007, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2007 5
Alexander Petersson gerði þrjúmörk þegar Flensburg heim-
sótti Melsungen á laugardaginn í
þýsku deildinni í handbolta. Þetta
var mikill markaleikur og höfðu
gestirnir betur, 47:40. Já, 87 mörk,
eða 1,45 að meðaltali á mín.
Gylfi Gylfason gerði tvö mörkfyrir Wilhelmshafener í jafn-
teflisleik gegn Wetzlar úti, 28:28.
Heiðmar Felixsson gerði tvömörk þegar lið hans, Burg-
dorf, burstaði Spenge 46:30 í þýsku
annarri deildinni á föstudaginn.
Það dugði ekki Nimes að RagnarÓskarsson gerði 12 mörk þegar
liðið heimsótti Crétile í frönsku
deildinni á föstudagskvöldið. Crétile
vann 29:25 og Nimes því enn í tíunda
sæti deildarinnar.
Snorri Steinn Guðjónsson gerði 4mörk fyrir GOG þegar liðið
vann Mors 37:25 á útivelli í dönsku
deildinni. Ásgeir Örn Hallgrímsson
gerði þrjú mörk fyrir GOG.
Tryggvi Haraldsson gerði 7 mörkfyrir Ribe og Hafsteinn Inga-
son 2 þegar liðið gerði sér lítið fyrir
og gerði 26:26 jafntefli við Lemvig í
dönsku annarri deildinni. Vil-
hjálmur Halldórsson skoraði ekki
fyrir Lemvig.
Vignir Svavarsson var marka-hæstur hjá Skjern, átta mörk,
þegar liðið vann Ringsted, 33:24.
Í sænsku deildinni gerði ValdimarFannar Þórsson fimm mörk fyr-
ir Malmö sem tók á móti Hamm-
arby. Liðin skildu jöfn, 24:24.
Elías Már Halldórsson gerði fjög-ur mörk fyrir Empor Rostock í
þýsku annarri deildinni þegar liðið
tók á móti TSV H. Anderten og tap-
aði 31:24.
Heiðar Leví Guðmundsson áttistórleik í marki Sävehof þegar
liðið tapaði 22:18 fyrir Metalurg
Skopje í EHF-bikarnum. Heiðar
Leví varði yfir 20 skot í leiknum.
Sigfús Sigurðsson lék ekki meðAdemar Leon gegn Zagreb í
Meistaradeild Evrópu í Zagreb, þar
sem liðið vann, 26:25.
Árni Þór Sigtryggsson var ekki ámeðal markaskorarara Granol-
les, sem vann stórsigur á Lokomo-
tive í EHF-keppninni, 36:21.
Ólafur Stefánsson skoraði 4/1mark fyrir Ciudad Real, sem
vann Pilotes Posada á útivelli í 1.
deildarkeppninni á Spáni, 36:24.
Fólk folk@mbl.is
Það var hreint skelfilegt að horfa
upp á leikmenn HK fyrsta stundar-
fjórðunginn í leiknum í gær. Þeir
voru sem byrjendur og báru alltof
mikla virðingu fyrir leikmönnum
FCK. Eftir 13 mínútur var staðan
9:1, FCK í vil og allt stefndi í stór-
sigur. Það uppgjör efstu liða deild-
anna í Danmörku og á Íslandi virtist
ætla að snúast upp í hreina martröð
fyrir HK-liðið. Sóknarleikur liðsins
var slakur þar sem sótt var linnu-
laust inn á miðja vörn danska liðsins,
skotin að markinu voru máttlaust og
„sænsku“ 6/0 vörn FCK reyndist létt
að verjast Kópavogsbúum. Af fyrstu
níu mörkum FCK komu sex úr
hraðaupphlaupum. Allt stefndi í
stórsigur FCK. Leikmenn og þjálf-
arar HK tóku leikhlé og fóru yfir
stöðuna og reyndu að berja í brest-
ina. Það tókst þeim svo um munaði.
Sóknarleikurinn batnaði til muna
þar sem Ólafur Bjarki Ragnarsson
og Augustas Strazdas fóru mikinn
auk Sergeis Petraytis á línunni sem
reyndist leikmönnum FCK afar erf-
iður. Loks þegar leikmönnum HK
tókst að skora úr sóknum sínum dró
úr hraðaupphlaupum danska og það
hóf að stilla upp á teig. Þannig tókst
HK að verjast leikmönnum FCK vel,
ekki hvað síst eftir að Strazdas hóf
að „klippa“ út miðjumann FCK í
stað þess að taka Martin Boqvist,
vinstri skyttu danska liðsins úr um-
ferð. Leikmenn HK tóku að saxa á
forskot FCK smátt og smátt og var
það komið niður í fjögur mörk í lok
fyrri hálfleiks.
Petraytis var mikilvægur
HK hóf síðari hálfleik af miklum
krafti og hélt áfram að saxa á forskot
andstæðingsins. Allur annar bragur
var á leik HK-liðsins sem bar enga
virðingu fyrir leikmönnum danska
liðsins, líkt og vottaði fyrir í byrjun
fyrri hálfleiks. Þeir tóku fast á Dön-
unum í vörninni og léku á tíðum
skemmtilega í sókninni. Tveimur
mörkum undir, 20:22, og manni færri
upp úr miðjum síðari hálfleik tókst
HK að jafna leikinn í fyrsta skipti.
Petraytis vann boltann í tvígang í
vörninni og í framhaldinu gafst kost-
ur á hraðaupphlaupum sem voru
nýtt til þess að skora. Með örlítilli yf-
irvegun og heppni hefði HK átt að ná
forystunni en úr því varð ekki.
Óvandaður sóknarleikur þar sem
Kópavogsliðinu lánaðist aðeins að
skora tvö mörk í síðustu tíu upp-
hlaupunum varð þess valdandi að
leikmenn FCK sluppu með skrekk-
inn og tveggja marka sigur í fartesk-
inu heim til Kaupmannahafnar.
Petkevisus var frábær
Leikmenn HK verðskulduðu að fá
meira út úr leiknum en þeir fengu úr
því sem komið var. Þeim tókst með
mikill baráttu og dugnaði að snúa
vonlítilli stöðu upp í vongóða stöðu.
En segja má að þá hafi þrotið örend-
ið á lokakaflanum sem sást glöggt á
sóknarleiknum. Egidijus Petkevi-
sius var frábær í markinu og hélt lið-
inu á floti á köflum. Petraytis lék vel
á línunni og var drjúgur í vörninni.
Ólafur Bjarki stóð sig afar vel í sókn
sem vörn en því miður var Augustas
Strazdas alltof mistækur, einkum á
lokakaflanum. Lið FCK leikur mjög
sænskan handknattleik undir stjórn
Magnusar Andersson og skyldi eng-
an undra þar sem um er að ræða
einn skæðasta leikmanna sænska
landsliðsins á síðasta áratug, á gull-
öld sænska landsliðsins. Sterk 6/0
vörn með hávöxnum leikmönnum,
góður markvörður, Steinar Ege,
landsliðsmarkvörður Norðmanna.
Sóknarleikurinn er einfaldur með
mikið af „klippingum“ milli tveggja
manna. Þegar horft var á leik liðsins
í síðari hálfleik hafði maður á tilfinn-
ingunni að leikmenn væru ekki á
fullri ferð og talsvert var um mistök
og einbeitingarleysi. Vafasamt verð-
ur að telja að HK takist að snúa
blaðinu við og vinna ytra eftir viku.
Lékum á 75% getu
„Sennilega var góð byrjun okkar
þess valdandi að við lentum í vand-
ræðum með HK liðið þegar á leið.
Menn mínir urðu kærulausir og
gerðu sig seka um alltof mörg mis-
tök sem gerði að verkum að HK-liðið
komst upp að hlið okkar,“ sagði
Magnus Andersson, þjálfari FCK, í
samtali við Morgunblaðið eftir leik-
inn. „Við urðum kærulausir, lékum
ekki nema af 75% getu og gerðum
alltof mikið af mistökum í sóknar-
leiknum. Ég er ánægður með úrslit-
in en óánægður með leikinn í heild-
ina af okkar hálfu. Sigur skipti
mestu máli þegar upp var staðið,“
sagði Andersson ennfremur og bætti
við að leikur FCK hafi e.t.v. ein-
kennst af þeim vanda sem liðið á við
að etja yfirhöfuð, ekki aðeins í þess-
um leik. Á milli getur það leikið afar
vel en fellur síðan niður lægra plan
þess á milli og gerir sig sekt um
mörg mistök.
Andersson segir að þótt staða
FCK sé vænleg fyrir síðari leikinn sé
ekkert öruggt. „Ég vonast til þess að
við lærum sitthvað af þessum leik og
komum reynslunni ríkari til leiks í
Kaupmannahöfn á sunnudag. Við
verðum að gera færri mistök í þeirri
viðureign en við gerðum núna. Við
munum ekki hafa efni á öðru en leika
af fullum krafti gegn HK í síðari
leiknum, annars getur illa farið,“
sagi hinn geðþekki þjálfari FCK,
Svíinn Magnus Andersson.
Slæm byrjun reyndist
HK-liðinu dýrkeypt
Morgunblaðið/Ómar
Sókn Hér sækir Tomas Eitutis að marki danska liðsins FCK í Digranesi í gær. Hann skoraði tvö mörk fyrir HK.
ÞEGAR upp var staðið frá leik HK
og FCK Håndbold í gær geta leik-
menn HK nagað sig í handarbökin
fyrir að leika hreint eins og byrj-
endur fyrsta stundarfjórðunginn.
Orkan sem fór í að vinna upp níu
marka forskot sem leikmenn HK
færðu Dönunum á upphafskafl-
anum hefði komið sér vel undir lok-
in þegar HK-liðinu hafði með mik-
illi baráttu og þrautseigju tekist að
jafna metin, 23:23. Leikmenn FCK
voru klókari og útsjónarsamari á
endasprettinum og tókst að knýja
fram tveggja marka sigur, 26:24,
eftir að hafa verið fjórum mörkum
yfir í hálfleik, 15:11.
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„ÉG veit bara ekki hvaða skrekkur þetta var í mönnum í byrjun
leiks. Það var alveg ljóst að við lögðum ekki upp með að allar
sóknaraðgerðir gengju út á sækja inn á miðjuna. Það gerðum við
fyrstu tíu til 15 mínúturnar með þeim afleiðingum að við komust
ekkert í vörn þar sem við fengum hvert hraðaupphlaupið á okkur
á fætur öðru,“ sagði Gunnar Magnússon, annar þjálfara HK-
liðsins, eftir tveggja marka tap, 26:24, fyrri FCK Håndbold í
EHF-keppninni í handknattleik í Digranesi.
„Ég bara skil ekki hvað gerðist hjá okkur á þessum upphafs-
kafla. Framganga okkar var ekkert lík því sem liðið er vant að
leika.
Þegar okkur tókst loks að hrista úr okkur skrekkinn og leika
eins menn og líkt og lagt var upp með þá sýndum við allt aðrar og
betri hliðar, vorum líkari sjálfum okkur. Segja má að við höfum
leikið frábærlega síðustu 40 mínúturnar en því miður dugði það
ekki til. Í fjörutíu mínútur vorum við síst lakari aðilinn,“ sagði
Gunnar ennfremur og tók undir þá skoðun blaðamanns að HK-
liðið hefði verðskuldað jafntefli eftir þá vinnu sem liðið lagði á sig
við að vinna upp níu marka forskot FCK.
„Við vorum klaufar í lokin að ná ekki jafntefli. Það var eins og
menn mínir hefðu ekki haft trú á því innst inni í sínu hjarta að þeir
gætu haldið fengnum hlut þegar þeir höfðu jafnað leikinn. Síðan
má segja að kappið hafi einnig farið með okkur, forsjána vantaði.
Menn fóru að breyta út af leikkerfum síðustu mínúturnar og því
skoruðum við fá mörk á lokakaflanum. Menn ætluðu að bjarga
heiminum í stað þess að halda sig við það sem hafði reynst okkur
vel og hjálpað okkur við að jafna metin. Engu að síður er ég stolt-
ur af piltunum. Þeir gáfust aldrei upp þrátt fyrir erfiða stöðu,“
sagði Gunnar Magnússon, annar tveggja þjálfara HK.
Gunnar: „Upphafskaflinn óskiljanlegur“
ÍSLANDSMEISTARAR Stjörnunnar í handknattleik kvenna
fengu heldur óvæntan skell á heimavelli á laugardaginn – þeir
máttu þola tap fyrir FH í Mýrinni, 26:25. Fyrir leikinn hafði
FH fengið tvö stig úr átta leikjum, en Stjarnan var á toppi
deildarinnar með 15 stig. Framarar skutust upp að hlið Stjörn-
unnar með því að gera jafntefli við Hauka að Ásvöllum í gær-
kvöldi, 24:24. Framstúlkur eru taplausar í deildinni.
Ragnhildur Guðmundsdóttir skoraði sjö mörk fyrir FH og
Dröfn Sæmundsdóttir gerði sex mörk. Sólveig Lára Kjærne-
sted skoraði sjö mörk fyrir Stjörnuna.
Valsstúlkur fögnuðu öruggum sigri á Akureyri, 25:12.
Nora Valavic skoraði sex mörk fyrir Val og Kristín Guðmunds-
dóttir og Eva Barna fimm hvor.
Grótta vann stórsigur er liðið lagði HK í Digranesi, 36:21.
Karólína Gunnarsdóttir skoraði sjö mörk fyrir Gróttu, Arndís
María Erlingsdóttir og Palva Plalarninkova sex hvor. » 6
FH skellti Stjörnunni