Morgunblaðið - 19.11.2007, Síða 7

Morgunblaðið - 19.11.2007, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2007 7 íþróttir Eftir Davíð Sveinsson og Einar Sigtryggsson Það sem einkenndi leik Fjölnis og Snæfells til að byrja með var að boltinn vildi ekki ofan í körfuna, kom þar bæði til góður varnarleikur beggja liða og þar af leiðandi ekki gott skotval leikmanna. Auðveldu skotin hjá Snæfelli geiguðu einnig. Seinni hluta leikhlutans skiptust lið- in á að skora enda staðan 17:17 að honum loknum. Heldur meira gekk á í sókninni í öðrum leikhluta þar sem aldrei munaði miklu á liðunum Magni minkaði muninn á lokasek. með glæsilegri þriggja stiga körfu og staðan 34:37 í hálfleik. Seinni hálfleik vilja Snæfellingar gleyma sem fyrst því ekkert gekk upp í sókninni meðan Fjölnismenn spiluðu góða vörn og skorðu jafnt og þétt með Karlton Mims sem besta mann. Hjá Snæfelli var Hlynur sá eini sem lék vel, barðist um alla bolta og var með 10 stig og 14 fráköst, And- ers Kotholm komst ágætlega frá sínu. Aðrir í liðinu voru alls ekki með í leiknum. Sendingar fóru margar forgörðum, hittni með ein- dæmum léleg og þurfa Snæfellingar að taka sig á ef þeir ætla að vinna fleiri leiki. Hjá Fjölni var Karlton Mims mjög góður auk þess að skora 21 stig jafnt og þétt allan leikinn stoppaði hann Justin Shouse algjör- lega af með góðum varnarleik. Terrance Herbert var einnig traust- ur. Fjölnismenn unnu þennan leik á baráttu heildarinnar í vörninni og öguðum sóknarleik. Bárður Eyþórsson, þjálfari Fjöln- is og fyrrum þjálfari Snæfells, sagði eftir leikinn að hann hefði spilast al- veg eins og hann hefði lagt hann upp. Skallagrímur að komast á flug Þór fékk Skallagrím í heimsókn í gærkvöldi. Bæði lið voru nýbúin að merja sigur á erkifjendum sínum í leikjum síðustu umferðar og því ef- laust með sjálfstraustið í botni. Skallarnir voru mun betri lengstum í leiknum, náðu strax góðri forustu og þrátt fyrir mikla baráttu heima- manna í síðasta leikfjórðungnum náði Þór aldrei að brúa bilið. Á end- anum skildu þrettán stig. Lokatölur 91:104 en dómararnir gáfu Skalla- grími stig þegar þeir fóru yfir leik- skýrsluna og því stendur 91:105 í henni. Það var fyrst og fremst öflug vörn í fyrri hálfleik og frábær hittni úr þriggja stiga skotum sem skiluðu Skallagrími fljótlega sextán stiga forustu. Höfðu þá níu þristar ratað rétta leið. Þeir voru einnig mun sterkari undir körfunni og hirtu því miklu fleiri fráköst. Snemma í þriðja leikhlutanum bættu Skalla- grímsmenn tveimur þristum í safnið og munurinn varð við það 22 stig. Eftir það áttu Þórsarar góðar risp- ur og smám saman minnkaði mun- urinn. Minnstur varð hann átta stig um miðjan lokaleikhlutann er gest- irnir héldu haus og lönduðu að lok- um öruggum sigri. Axel Kárason var mjög sáttur í leikslok „Þetta var alls ekki auð- veldur leikur en varnarleikurinn og góð hittni bjó til góða forustu fyrir okkur í fyrri hálfleiknum. Svo átt- um við alltaf góða spretti inni á milli þannig að munurinn hélst lengstum. Það er gott að vera búnir að taka tvo sigurleiki á þremur dögum. Við erum með tvo nýja útlendinga og nýjan þjálfara svo þetta er nánast nýtt lið. Í augnablikinu stefnum við á að gera betur en í fyrra. Það er betra að fara varlega í yfirlýsing- arnar,“ sagði Skagfirðingurinn geð- þekki að lokum. Já, Skallagrímur gæti svo sannarlega komið á óvart í vetur og velgt stóru liðunum undir uggum. Byrjunarliðið er feikisterkt en lítið má út af bregða þar sem breiddin virðist ekki mikil. Darrel Flake var mjög sterkur í vörn og sókn og Miloca Zehovic fór hamför- um í sókninni, hitti mjög vel allan tímann og skilaði 32 stigum. Þórs- arar voru varla með í fyrri hálfleik en svo fóru menn að stíga upp og sýna takta. Varnarleikur þeirra var hins vegar slakur og fráköstin allt of fá. „Það er bara ekki hægt að vinna ef varnarleikurinn er ekki í lagi,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari Þórs, og þar hitti hann naglann á höfuðið. Óvæntur sigur Fjölnis FJÖLNIR úr Grafarvogi gerði sér lítið fyrir í gærkvöldi og lagði Snæ- fell að velli í Stykkishólmi, 73:59. Keflvíkingar halda uppteknum hætti og unnu Hamar 67:56 og er langt síðan svo lágt skor hefur sést í Keflavík. Grindavík vann ÍR í Seljaskóla og Skallagrímur er kom- inn á fulla ferð og vann Þór á Ak- ureyri. Ljósmynd/Víkurfréttir Bestir Keflvíkingar eru á toppnum. Gunnar Einarsson skorar hér á móti Hamri í gæköldi.  Allt í hnút um miðja deild þar sem fimm lið eru með sex stig  Keflvíkingar ósigraðir á toppnum en skoruðu lítið gegn Hamri  Góður sigur Skallagríms Martin Laursen, sóknarmaður ídanska landsliðinu í knatt- spyrnu, verður ekki með landsliðinu á móti Íslendingum á Parken á mið- vikudaginn. Morten Olsen, lands- liðsþjálfari, féllst á að leyfa honum að fara til Englands og æfa með sínu liði, Aston Villa.    Morten Ol-sen, lands- liðsþjálfari Dana, vill að lið sitt leiki skemmtilega knattspyrnu og undir hans stjórn leikur danska lið- ið leikaðferðina 4- 3-3. Olsen vill ekki láta lið sitt leika eins og önnur landslið á Norðurlöndunum, 4-4-2, og treysta á langspyrnur fram völl- inn. Það er ekki knattspyrna sem Ol- sen er hrifinn af, en eftir tap Dana fyrir Norður-Írum í Belfast, var deilt á leikfyrirkomulag Dana.    Jon Dahl Tomasson, sókn-arleikmaður danska landsliðs- ins, stendur með Olsen og segir að danska landsliðið sé með það góða leikmenn að það geti hæglega leikið leikaðferðina 4-3-3. Jon Dahl lék ekki með Dönum í Belfast, en hann segist klár í slaginn gegn Íslend- ingum í Kaupmannahöfn á miðviku- daginn.    Luis Arago-nes, lands- liðsþjálfari Spán- verja, sagði eftir 3:0 sigur Spán- verja á Svíum á laugardaginn að hann ætlaði að hætta eftir EM næsta sumar. „Það er kominn tími á mig. Þetta er eins og með mjólkina. Hún hefur ákveðna dagsetningu og eftir það drekkur maður hana ekki,“ sagði Aragones, sem hefur ekki verið í náðinni hjá spænskum fjölmiðlum.    Alan Shearer, fyrrverandimarkahrókur Newcastle og enska landsliðsins, sem er 37 ára, er tilbúinn að taka við starfi landsliðs- þjálfara Englands. Tveir menn hafa verið sterklega orðaðir við enska landsliðið að und- anförnu – Jürgen Klinsmann, fyrr- verandi landsliðsþjálfari Þýska- lands, og Marco van Basten, landsliðsþjálfari Hollands, sem sagði um helgina að lið sitt hefði getu til að vinna til verðlauna á EM næsta sumar.    Steve McClaren, landsliðsþjálfariEnglands, hefur verið umdeild- ur að undanförnu, en hann tók gleði sína á ný þegar fréttir bárust frá Ísrael – að heimamenn hefðu lagt Rússa að velli í undankeppni EM. Englendingar eiga nú góða mögu- leika á að komast í lokakeppnina í Austurríki og Sviss næsta sumar. Þeir þurfa að leggja Króata að velli á Wembley á miðvikudaginn, til að tryggja sér farseðilinn á EM.    Jens Leh-mann, lands- liðsmarkvörður Þýskalands, þvertekur fyrir að hafa sýnt áhorfendum fing- ur í leik Þýska- lands og Kýpur í Hannover á laug- ardaginn, sem Þjóðverjar unnu, 4:0. Sagan segir að hann hafi lyft fingri á loft þegar áhorfendur fóru að hrópa og óska eftir að skipta varamark- verðinum Robert Enke inn á fyrir Lehmann. Þess má geta að Enke leikur með Hannover 96 og er vin- sæll hjá heimamönnum. Fólk sport@mbl.is NÝLIÐAR KR í Iceland Express- deild kvenna gerðu sér lítið fyrir og skelltu meisturum Hauka þegar lið- in mættust í DHL-höll KR-inga á laugardaginn. Talsverðar sveiflur voru í leiknum en með frábærum endaspretti tókst KR að sigra, 88:81. KR komst þar með að hlið Hauka með 10 stig í öðru sæti. KR gerði fyrstu sex stigin en Haukar komust yfir áður en KR skoraði átta síðustu stigin í fyrsta leikhluta, 18:13. Haukar unnu næsta leikhluta, 25:21, þannig að eitt stig skildi liðin að í hálf- leiknum. Meistararnir gerðu 31 stig í þriðja leikhluta en KR 22 og voru Haukar því yfir, 69:61, fyrir síðasta leikhluta. Haukar juku forystu sína, 75:64, en þá fannst KR-ingum nóg komið og Monique Martin tók til sinna ráða í sókninni og allt liðið einbeitti sér að vörninni. Martin átti stórleik, skoraði 45 stig og þar af 17 í síðasta leikhlut- anum, og tók auk þess 18 fráköst. Hildur Sigurðardóttir lék mjög vel sem og Sigrún Ámundadóttir. Hjá Haukum voru þær Telma Fjal- arsdóttir og Kristrún Sigurjóns- dóttir bestar. KR skellti Haukum HANN var jafn leikur ÍR og Grindavíkur í Seljaskólanum í gærkvöldi, allt fram á lokasek- úndur leiksins. ÍR var þremur stig- um yfir eftir fyrsta leikhluta, 25:22. Grindvíkingar unnu næsta hluta, 22:20, sá þriðji var jafn, 20:20, en Grindavík hafði betur í síðasta leikhlutanum, 29:23, og sigraði, 93:88. Sex leikmenn Grindavíkur sáu um að skora stig- in í gærkvöldi og allir náðu þeir tveggja stafa tölu nema Darboe sem var með 9 stig. Hjá ÍR voru líka fimm leikmenn sem náðu tveggja stafa tölu. Ray Cunn- ingham var með tvöfalda tvennu, skoraði 15 stig og tók 11 fráköst. Hann átti flottan leik eins og Sveinbjörn Claessen en hjá Grinda- vík voru nafnarnir Páll Kristinsson og Páll Axel Vilbergsson sterkir. Jafnt í Seljaskóla

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.