Morgunblaðið - 19.11.2007, Side 8
8 MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
íþróttir
SEX þjóðir tryggðu sér um helgina
sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins
í knattspyrnu. Ítalía, Frakkland,
Holland, Króatía, Pólland og Spánn
eru komin áfram og hafa nú tólf
þjóðir tryggt sér farseðilinn á EM í
Austurríki og Sviss næsta sumar.
Þær eru, auk framantalinna landa,
Grikkland úr C-riðli, Tékkland og
Þýskaland úr D-riðli og Rúmenía úr
G-riðli, auk þess sem gestgjafarnir
verða með.
Það var mikil dramatík í Glas-
gow þar sem Christian Panucci
tryggði Ítölum 2:1-sigur með marki
á lokamínútu leiksins. Skotar hefðu
með sigri komist á EM en eru nú úr
leik, en Frakkland og Ítalía komast
áfram úr riðlinum.
Mikil spenna er í C-riðli þar sem
Norðmenn og Tyrkir berjast um að
komast áfram með Grikkjum. Tyrk-
ir lögðu Norðmenn, 2:1, í Noregi
um helgina og eru með stigi meira,
þeir taka á móti Bosníumönnum á
miðvikudaginn á meðan Norðmenn
fara til Möltu.
Englendingum dugar stig á
heimavelli gegn Króatíu til að kom-
ast áfram úr E-riðli.
Danir eru úr leik eftir tapið gegn
Norður-Írum og Svíar þurfa aðeins
eitt stig á heimavelli gegn Lettum
til að komast áfram og skilja Írana
þar með eftir heima, en þeir verða
að vinna á Spáni og vona að Lettar
leggi Svía til að komast áfram.
Fresta varð einum leik í A-riðli
vegna mikilla snjóa í Serbíu. Portú-
gal og Finnland mætast í Lissabon
á miðvikudaginn og er það líkast til
leikur sem ræður úrslitum um hvor
þjóðin fylgir Pólverjum áfram.
Serbar gætu þó með því að vinna
báða leiki sína fengið 26 stig líkt og
Portúgal og Finnland, ef Finnar
vinna á miðvikudaginn, en þar dug-
ar Portúgölum að fá eitt stig.
Ítalinn Panucci kom Frökkum áfram
EIÐUR Smári Guðjohnsen mun ekki
þekkjast boð um að taka þátt í hinum
árlega góðgerðarleik gegn fátækt í
Malaga á morgun. Þar etja kappi ann-
ars vegar lið sem Ronaldo valdi og
hins vegar lið Zinedine Zidane. Marg-
ir heimþekktir leikmenn hafa verið
valdir til að spila í þessum leik og var
Eiður Smári á meðal þeirra.
„Það var mikill heiður að vera val-
inn til að taka þátt í þessum leik og
vissulega hefði verið gaman að spila
með mörgum heimsklassaleikmönn-
um, en ég ákvað að gefa ekki kost á
mér af persónulegum ástæðum,“
sagði Eiður Smári í samtali við Morg-
unblaðið um helgina, en hann hafði
áður ákveðið að gefa ekki kost á sér í
landsleikinn við Dani á miðvikudag-
inn af sömu ástæðu.
Zidane og Ronaldo völdu 45 leik-
menn til að taka þátt í leiknum og má
þar nefna leikmenn eins og Victor
Valdes, félaga Eiðs Smára hjá Barce-
lona, Pavel Nedved (Juventus), Juli-
ano Belletti (Chelsea), Robert Pires
(Villareal), Michel Salgado (Real Ma-
drid) og Roberto Soldado (Real Ma-
drid).
Ein kona er í hópnum, hin bras-
ilíska Marta sem leikur með sænska
liðinu Umeå.
Eiður Smári leikur ekki
Jakob JóhannSveinsson,
sundmaður úr
Ægi, keppti um
helgina á heims-
bikarmóti í sundi
í Berlín. Hann
varð í 19. sæti í
100 metra
bringusundi í
gær en á laugardaginn náði hann
11. sætinu í 200 metra bringusundi
og 18. sæti í 50 metra bringusundi.
Tvö heimsmet voru sett á heims-bikarmótinu í gær. Svíinn Stef-
an Nystrand setti heimsmet í 50
metra skriðsundi, 20,93 sekúndur,
og bætti met Rolands Schoeman frá
Suður-Afríku um 5/100 úr sekúndu,
en hann varð að sætta sig við annað
sætið að þessu sinni. Thiago Pe-
reira frá Brasilíu setti heimsmet í
200 metra fjórsundi, synti á 1.53,14
sekúndum og bætti metið um 17/100
úr sekúndu. Marleen Veldhuis frá
Hollandi setti Evrópumet í 100
metra skriðsundi, synti á 52,14 sek-
úndum.
Svissneski tenniskappinn RogerFederer, stigahæsti tennisleik-
ari heims, sigraði á ATP-meist-
aramótinu í Kína um helgina. Hann
lagði Spánverjann David Ferrer
örugglega í úrslitum, 6-2, 6-3 og 6-2.
Frank Lampard, miðjumaðurChelsea og enska landsliðsins,
óttast áhorfendur á leik Englands
og Króatíu á miðvikudaginn á Wem-
bley. Englendingar verða að vinna
Króata til að tryggja sér farseðilinn
á EM í Austurríki og Sviss næsta
sumar. Lampard er hæddur um að
ensku áhorfendurnir fari að láta í
sér heyra ef hlutirnir ganga ekki vel
hjá enska landsliðinu – og setja þar
með pressu á ensku leikmennina.
Marco vanBasten,
landsliðsþjálfari
Hollands, hefur
ákveðið að gefa
þremur af sínum
eldri og reyndari
leikmönnum frí í
Evrópuleiknum
gegn Hvíta-
Rússlandi á mið-
vikudaginn. Hollendingar tryggðu
sér sæti á EM í Austurríki og Sviss
næsta sumar á laugardaginn með
því að leggja Lúxemborg að velli,
1:0. Leikmennirnir þrír sem fá frí
eru Edwin van der Sar, Manchest-
er United, Clarence Seedorf, AC
Milan, og Ruud van Nistelrooy, hjá
Real Madrid.
Skotar eru ekki sáttir við spánskaaðstoðardómarann Juan Carlos
Jimenez, sem veifaði flaggi sínu og
dæmdi aukaspyrnu á Skota, sem
Ítalar skoruðu sigurmark sitt upp
úr, 2:1. Það sást greinilega að það
voru Skotar sem áttu að fá auka-
spyrnu, en ekki Ítalar.
Fólk sport@mbl.is
Metaregnið hófst á föstudag og lauk
ekki fyrr en í boðsundum í mótslok í
gærkvöldi. Brian Marshall, verkefn-
isstjóri landsliða, var sáttur við met-
aregnið en átti ekki frekar von á því
vegna þess að flestir miða æfinga-
áætlanir sínar við að ná lágmörkum
fyrir Ólympíuleikana og ættu að
vera upp á sitt besta eftir nokkrar
vikur. „Við gerðum áætlun fyrir Ól-
ympíuhóp fyrir sex mánuðum og
þessir sundmenn einbeita sér öðru-
vísi með það mót í huga. Árangurinn
er líklega betri en við áttum von á, í
fyrra voru slegin 12 Íslandsmet og 9
unglingamet en það er skemmtileg-
ast að þetta eru ekki sama sundfólk-
ið og í fyrra, nú eru fleiri mættir til
leiks. Til dæmis að Erla Dögg Har-
aldsdóttir er að komast undir 1.10 í
100 metra bringusundi, það er af-
rekstími og gott því hún stefnir á að
ná lágmarks tíma fyrir Ólympíu-
leika. Átta unglingar eru búnir að ná
inn á Norðurlandamótið, sem haldið
verður í Færeyjum eftir tvær vikur,
nokkrir eru að reyna við Ólympíu-
lágmarkið í Hollandi eftir þrjár vik-
ur og svo er þrír að keppa á Evr-
ópumeistaramóti í 25 metra laug,“
sagði Brian. Hann var að sjálfsögðu
ánægður með árangurinn og telur að
vinna marga hafa skilað þessum ár-
angri. „Þessi tuttugu unglingamet
sýna hve það er góð uppbygging í
gangi. Það eru fleiri að synda, ný
kynslóð er að koma og líka faglegir
þjálfarar, sem eru vel að sér í fræð-
unum en stjórnir félaganna eru líka
að standa sig vel því það eru margir
á bak við hvern sundmann.“
Mikið fjör var á sunnudeginum
þegar 5 Íslandsmet og 7 unglinga-
met féllu. KR-ingurinn Ragnheiður
Ragnarsdóttir gaf tóninn er hún sló
eigið Íslandsmet í 50 metra skrið-
sundi á 25,46 sekúndum og lauk deg-
inum með því öðru meti í 4x100
metra boðsundi.
Uppskera
Erla Dögg úr ÍRB stóð henni lítt
að baki með Íslandsmet í 200 metra
fjórsundi á 2:16,62 mínútum og síðan
í 50 metra bringusundi á 32,27 sek-
úndum. Hún hafði daginn áður sett
Íslandsmet í 100 fjórsundi á 1:02,71
mínútu, Ragnheiður var einnig undir
metinu en það dugði ekki til.
Segja má að Erla Dögg hafi
sunddrottning mótsins er hún sló í
gegn á Meistaramótinu með
4 Íslandsmet og bætti sinn tíma í
öllum sundum.
„Ég átti ekki alveg von á þessum
metum en þetta er fínt og ég er
ánægð. Ég var ekki hugsa um að ná
mínu besta á þessu móti því ég stefni
á að ná Ólympíulágmörkum erlendis
í desember.
Þar ætlaði ég að ná mínum bestu
tímum en þetta var góður undirbún-
ingur fyrir það. Ég er í frekar mikl-
um æfingum og er að hugsa um að
hvíla fyrir það mót,“ sagði Erla Dögg
eftir mótið.
Hún sló einnig 4 Íslandsmet í
stúlknaflokki á sama móti 2004 en
veiktist árið eftir. Erla Dögg virðist
samt komin á skrið því hefur slegið 9
Íslandsmet á mánuði. „Það kom
lægð en ég hef verið að bæta mig og
æfa vel og uppskera því þessi árang-
ur um helgina er sá langbesti.
Hann er góður fyrir sjálftraustið
og góð reynsla, sem er nauðsynlegt
fyrir æfingarnar.“
Örn Arnarson úr SH slær ekki
slöku við og þó að hann sé ekki í sínu
besta formi sló hann eitt met um
helgina, synti 100 metra skriðsund á
48,42 sekúndum.
„Ég átti von ágætum árangri að
mestu leyti en ekki von á Íslands-
meti í 100 metra skriðsundi á föstu-
daginn því ég enn eftir mánuð í að
vera í mínu besta formi. Maður getur
svo sem ekki kvartað en ég er að fara
létta æfingar fyrir Evrópumótið og
þetta veit á gott. Allar æfingar miða
að því að ná árangri á því móti og
þessi árangur er góðs viti því ég enn
eftir að taka snerpuæfingar og ef
áætlanir mínar standast á ég enn eft-
ir að ná meiri hraða svo þetta er ekki
slæmt.
Ég ætlaði að synda nálægt mínum
besta tíma en það féll eitt met og ég
var nálægt tveimur öðrum,“ sagði
Örn eftir mótið.
Á laugardeginum sló Sigrún Brá
Sverrisdóttir úr Fjölni Íslandsmet í
200 metra skriðsundi á 2:01,58 og
karlasveit ÍRB eigið met í 4x50
metra fjórsundi á 1:44,36 mínútum
en sveitina skipa Hjalti Rúnar Odds-
son, Guðni Emilsson, Birkir Már
Jónsson og Árni Már Árnason.
Stúlkurnar í sunddeild KR ráku
síðan endahnútinn á mótið með Ís-
landsmeti í 4x100 m skriðsundi er
þær syntu á tímanum 3:55, 48 sek. og
bættu met sveit Ægis um 0,4 sek.
Morgunblaðið/Eggert
Sunddrottning Erla Dögg Haraldsdóttir frá Reykjanesbæ setti fjögur Íslandsmet á Meistaramótinu í 25 m hlau um helgina.
Metaregn í Laugardal
HVORKI meira né minna en 12 Ís-
landsmet og 23 unglingamet féllu á
Meistaramótinu í sundi í 25 metra
laug, sem fram fór í Laugardalnum
um helgina. Nokkuð sem sundmenn
áttu tæplega von á, því sterkasta
sundfólkið er að byggja sig upp fyr-
ir alþjóðleg mót á næstu vikum og
hefur hagað æfingum sínum eftir
því. Erla Dögg Haraldsdóttir úr
Sundfélagi Reykjanesbæjar var í
ham með 4 Íslandsmet. Örn Arn-
arson úr SH og Ragnheiður Ragn-
arsdóttir úr KR skiluðu einnig sínu.
Eftir Stefán Stefánsson
12 Íslandsmet og 23 unglingamet féllu á MÍ í sundi í 25 metra laug