Morgunblaðið - 25.11.2007, Síða 2

Morgunblaðið - 25.11.2007, Síða 2
2 B SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjár- málaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum, Fossvogi og Hringbraut, skrifstofu starfsmannamála, Eiríksgötu 5, á heimasíðu www.landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landspítali er reyklaus vinnustaður. Sálfræðingur Laust er til umsóknar fullt starf sálfræðings við sálfræði- þjónustu LSH. Starfið felur einkum í sér sálfræðiþjónustu á endurhæfingarsviði, Grensásdeild, sem sinnir fjölbreyttu og krefjandi endurhæfingarstarfi. Reynsla af störfum á sjúkrahúsi er æskileg sem og reynsla af meðferðarsam- starfi við aðrar fagstéttir og af rannsóknar-störfum. Leitað er eftir sálfræðingi með mjög góða samstarfs-hæfi- leika. Starfið er laust frá 1. janúar 2008 eða eftir sam- komulagi. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um mennt- un, fyrri störf og rannsóknir. Mat á umsóknum byggist á innsendum gögnum og við- tölum við umsækjendur. Umsóknir berist fyrir 10. desember 2007 til Eiríks Arnar Arnarsonar, forstöðusálfræðings 23C við Hringbraut, og veitir hann upplýsingar í síma 543 9216, netfang : eirikur@landspitali.is. M bl .9 3 4 0 2 0 M bl .9 3 4 0 2 0 M bl .9 3 4 0 2 0 Grundarfjarðarbær Starf aðalbókara og ritara Grundarfjarðarbær auglýsir starf aðalbókara og ritara á skrifstofu bæjarins laust til umsóknar. Aðalbókari og ritari sér um og annast vinnu við bókhald og fjárreiður bæjarins og stofnana hans. Unnið er að verkefnum í samstarfi við aðra starfsmenn á skrifstofunni og skrifstofu- stjóra. Viðkomandi aðstoðar við uppgjör og tekur þátt í öðrum störfum á skrifstofunni, svo sem umsjón með heimasíðu, aðstoð við nefndir, bréfaskriftir fyrir nefndir og bæjar- stjórn, kemur að launavinnslu o.fl. Næstu yfir- menn eru skrifstofustjóri og bæjarstjóri. Starfið er fjölþætt og er eitt stöðugildi. Grundarfjörður er framsækið sveitarfélag með rúmlega níu hundruð íbúa. Góð þjónusta er í bænum, þ. á m. fjölbrautaskóli, grunn- og leikskóli, tónlistarskóli, heilsugæsla, verslanir, ýmis önnur þjónusta, verktakafyrirtæki og íþróttaaðstaða. Umhverfi og náttúrufegurð við Breiðafjörðinn eru víðkunn og rómuð. Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingi sem er skipulagður og agaður í störfum og hefur mikla hæfileika til góðra mannlegra samskipta. Æskilegt er að viðkomandi hafi háskólamennt- un sem nýtist í starfinu, en góð reynsla af sam- bærilegu starfi kemur vel til greina. Viðkom- andi þarf að búa yfir góðri þekkingu og færni í tölvuvinnslu. Starfsmaðurinn hefur samstarf við alla starfsmenn og stjórnendur bæjarins og einnig eru mikil samskipti við íbúana. Leiðbeint og aðstoðað verður við húsnæðisleit ef þörf er á því. Umsóknarfrestur er til og með 4. desem- ber 2007. Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og ferilskrá (CV) skal skila til skrif- stofu Grundarfjarðarbæjar merktum „Starf aðalbókara og ritara“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu í starfið. Bæjarstjóri og skrifstofustjóri veita frekari upp- lýsingar um starfið í s. 430 8500 eða á skristofu Grundarfjarðarbæjar að Grundargötu 30 í Grundarfirði. Tölvupóst má senda á: baejarstjori@grundar- fjordur.is Heimasíða: www.grundarfjordur.is Bæjarstjóri Grundarfjarðar. Atvinnuauglýsingar sími 569 1100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.