Morgunblaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 8
8 B SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Svæfingalæknir
Laus er staða svæfingalæknis við Heilbrigðis-
stofnun Suðurlands á Selfossi.
Starfshlutfall er samkomulagsatriði. Einnig er
mögulegt að tveir læknar sinni þessu verkefni.
Við mat á umsóknum verður mikið lagt upp úr
eiginleikum sem lúta að samstarfi og sveigjan-
leika, skipulögðum og sjálfstæðum vinnu-
brögðum og hæfni í samskiptum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Lækna-
félags Íslands og fjármálaráðherra eða sam-
kvæmt samningi læknafélaganna og TR.
Staðan veitist frá 1. jan. 2008 eða eftir nánara
samkomulagi.
Upplýsingar um stöðuna veitir Óskar Reykdals-
son, framkvæmdastjóri lækninga, í síma 868-
1488 eða á netfangi: oskar@hsu.is
Umsóknir ásamt staðfestum upplýsingum um
læknismenntun og læknisstörf sendist á
viðeigandi eyðublöðum sem fást á skrifstofu
landlæknis til Óskars Reykdalssonar fyrir 7. des.
nk.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands var stofnuð 1.
sept. 2004 við sameiningu heilsugæslustöðva
á Suðurlandi og Heilbrigðisstofnunarinnar á
Selfossi. Þjónustusvæði stofnunarinnar nær til
um 20.000 íbúa á Suðurlandsundirlendinu.
Um er að ræða 8 heilsugæslustöðvar, eitt
sjúkrahús á Selfossi með 55 sjúkrarúm, auk
þess sem stofnunin rekur Réttargeðdeildina á
Sogni í Ölfusi.
Alls eru um 220 stöðugildi við Heilbrigðis-
stofnun Suðurlands.