Morgunblaðið - 25.11.2007, Side 10

Morgunblaðið - 25.11.2007, Side 10
10 B SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ HAFRANNSÓKNASTOFNUNIN Starfsmaður óskast Hafrannsóknastofnunin óskar eftir að ráða starfsmann til starfa á Veiðiráðgjafarsviði. Starfið felst í vinnu við móttöku og innslátt gagna, sýnatöku á sjó og landi auk ýmissa smærri tilfallandi verkefna. Um er að ræða fullt starf með starfsaðstöðu í Reykjavík. Laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráð- herra og viðkomandi stéttarfélags. Hafrannsóknastofnunin stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um laus störf hjá stofnuninni Umsóknir, með upplýsingum um menntun, aldur og fyrri störf, ásamt nöfnum tveggja meðmælenda, sendist Hafrannsókna- stofnuninni fyrir 10. desember nk. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veita Sigfús Jóhannesson (sigfus@hafro.is) og Björn Ævarr Steinarsson (bjorn@hafro.is) í síma 575 2000 / 691 8297. Hafrannsóknastofnunin er stærsta rannsókna- stofnun landsins á sviði haf- og fiskirannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi skynsamlega nýtingu og verndun auðlinda hafsins. Mikill hluti starfseminnar tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrann- sóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur fimm útibú, tilraunaeldisstöð í eldi sjávar- lífvera, tvö rannsóknaskip og hefur að jafnaði 160 starfsmenn í þjónustu sinni. Hafrannsóknastofnunin, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík. Sími 575 2000. Norðurþing Sálfræðingur óskast til starfa hjá Fjölskylduþjónustu Þingeyinga Starfið felur í sér greiningar og ráðgjöf hjá skóla- og félagsþjónustu. Starfshlutfall er samningsatriði. Hjá Fjölskylduþjónustu Þingeyinga starfar metnaðarfullur og samhentur, þverfaglegur hópur með hags- muni þjónustuþega að leiðarljósi. Fjölskylduþjónusta Þingeyinga sinnir samþættri velferðarþjónustu sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum. Aðsetur er á Húsavík. Á Húsavík er öflugt félags- og menningarlíf og aðstæður til uppeldis barna hinar ákjósan- legustu. Í bænum er öflugt þekkingar- og háskólasetur auk leik-, grunn-, tónlistar- og framhaldsskóla. Góð aðstaða er til líkams- ræktar og útivistar og öll nauðsynleg þjónusta er á staðnum. Ferðaþjónusta er með blóma og skammt í nokkrar af helstu náttúruperlum landsins, s.s. Ásbyrgi, Mývatn, Goðafoss og Dimmuborgir. Umsóknarfrestur er til 10. desember 2007. Upplýsingar um starfið veita Freydís Jóna Freysteinsdóttir félagsmálastjóri í síma 464 6100, netfang freydis@nordurthing.is, og Erla Sigurðardóttir, menningar- og fræðslufulltrúi, í síma 464 6100, netfang erla@nordurthing.is. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið. Norðurþing er öflugt sveitarfélag sem einkennist af fjölbreyttu mannlífi og miklum sköpunarkrafti manns og náttúru. Sölumaður óskast Rótgróin fasteignamiðlun í Reykjavík leitar að öflugum sölumanni til starfa sem fyrst. Árangurstengd laun. Viðkomandi þarf að vera vel skipulagður og geta unnið sjálfstætt. Reynsla af sölumennsku æskileg. Fullum trúnaði heitið. Áhugasamir vinsamlega sendið inn umsóknir á auglýsingadeild Mbl. merktar: ,,Sölumaður - 247”.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.