Morgunblaðið - 25.11.2007, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 B 11
Læknaritari
Skemmtilegt starf
Sjálfstætt starfandi læknir sem starfar við
læknisfræðilega ráðgjöf og viðskipti óskar eftir
að ráða starfsmann. Viðkomandi þarf að vera
reyndur læknaritari og hafa þekkingu og
reynslu í notkun Microsoft Office forrita.
Bókhaldsþekking er kostur. Samhliða starfinu
er um að ræða almenna skrifstofustjórn, eftirlit
með gangi verkefna, símsvörun, bókanir, gag-
naöflun og vörslu skjala. Viðkomandi þarf að
geta starfað sjálfstætt, haft sveigjanlegan
vinnutíma og haft bíl til umráða. Um er að
ræða u.þ.b. 50% starfshlutfall í verktöku og þarf
að viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.
Góð vinnuaðstaða er fyrir hendi, en starfið
mætti vinna a.m.k að hluta til frá heimili.
Meðmæla er óskað frá tveimur aðilum.
Vinsamlegast leggið umsóknir inn á augldeild
Morgunblaðsins eða sendið á box@mbl.is fyrir
fimmtudaginn 29. nóvember n.k. merktar:
“Traust - umsjón”.
Organisti og kórstjóri
Laus er staða organista og
kórstjóra við Grundar-
fjarðarkirkju frá og með
næstu áramótum.
Í Grundarfirði búa um 1000
manns og þar er hefð fyrir
miklu og góðu tónlistarlífi.
Í Grundarfjarðarkirkju er
13 radda pípuorgel smíðað
af þýska orgelsmiðnum
Reinhart Tzschöckel.
Áhugasamir hafi samband við sóknarprest í síma
438 6640 sem veitir nánari upplýsingar um
starfið. Einnig má hafa samband við formann
sóknarnefndar Runólf Guðmundsson í síma
892 0735.
Sóknarnefnd.
Ríkislögreglustjórinn
Ríkislögreglustjórinn
auglýsir laust starf löglærðs fulltrúa hjá
saksóknara efnahagsbrota
Saksóknari efnahagsbrota annast, f.h. ríkis-
lögreglustjórans, rannsókn og saksókn allra
stærri brota tengdra atvinnurekstri. Undir verk-
svið hans falla rannsóknir mála vegna allra
stærri auðgunarbrota, brota gegn sérrefsi-
lögum, s.s. skattalögum, tollalögum, lögum
um verðbréfaviðskipti, samkeppnislögum,
fiskveiðilöggjöfinni, umhverfislöggjöfinni, auk
þess sem hann annast rannsókn peninga-
þvættis- og spillingarmála.
Saksóknari efnahagsbrota leitar nú að áhuga-
sömum lögfræðingi til að starfa að rann-
sóknum og saksókn þeirra brota sem hann
annast meðferð á, auk þess að sinna öðrum
lögfræðilegum verkefnum sem koma til kasta
hans. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf
sem fyrst.
Umsóknum skal skilað til ríkislögreglustjórans,
Skúlagötu 21, 150 Reykjavík, en umsóknar-
frestur rennur út þann 15. desember 2007.
Björn Þorvaldsson, settur saksóknari, veitir
nánari upplýsingar um stöðurnar, í síma 570
2500.
Athygli er vakin á því, að umsóknir munu gilda
í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur
út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna um
auglýsingar á lausum störfum, með síðari
breytingum, nr. 464/1996, sem settar eru
samkvæmt heimild í 2. mgr. 7. gr. laga nr.
70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins.
Ráðningarkjör eru skv. kjarasamningi fjármála-
ráðherra f.h. ríkissjóðs og Stéttarfélags lög-
fræðinga. Starfshlutfall er 100%. Umsóknir sem
berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki
teknar til greina. Öllum umsóknum verður
svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin.
Reykjavík, 22. nóvember 2007,
ríkislögreglustjórinn.