Morgunblaðið - 25.11.2007, Blaðsíða 12
12 B SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Staða bókasafns- og
upplýsingafræðings
í heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
auglýsir stöðu bókasafns- og upplýsinga-
fræðings í skjala- og bókasafni ráðuneytisins
lausa til umsóknar.
Verkefni:
Þátttaka í daglegum rekstri skjalasafnsins
Fræðsla og þjónusta við starfsmenn
ráðuneytisins á sviði skjala- og upplýsinga-
mála, þ.m.t. notkun Lotus Notes-skjala-
stjórnarkerfisins Málaskrár
Önnur verkefni sem tengjast skjala- og
upplýsingamálum ráðuneytisins
Menntunar- og hæfniskröfur:
Áskilið er BA-próf í bókasafns- og
upplýsingafræði að lágmarki
Þekking og reynsla af skjalastjórn og
rafrænum skjalastjórnarkerfum
Góð íslenskukunnátta ásamt kunnáttu í
ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli
Sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð
Hæfni í mannlegum samskiptum
Launakjör eru samkvæmt samningi Félags
háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins.
Um er að ræða fullt starf og heyrir starfs-
maðurinn undir skjala- og upplýsingastjóra
ráðuneytisins. Æskilegt er að starfsmaður hefji
störf í byrjun febrúar 2008.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu, Vegmúla 3, 150 Reykjavík,
eigi síðar en 17. desember nk.
Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Ólafsdóttir,
skjala- og upplýsingastjóri ráðuneytisins, í
síma 545 8700.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
20. nóvember 2007,
heilbrigdisraduneyti.is
postur@htr.stjr.is