Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.2008, Síða 4
Eftir Þröst Helgason
throstur@mbl.is
T
hor Vilhjálmsson er meist-
ari í spuna. Þeirri kúnst
verða ekki gerð mikil skil í
dagblaðsviðtali. Ég hef
hitt Thor þrisvar sinnum
síðustu tíu mánuði. Fyrsta
viðtalið stóð í fjóra klukku-
tíma. Ég varpaði fram
spurningu: Hvernig byrjaði þetta allt saman?
Og Thor svaraði. Og þannig liðu fjórir tímar.
Og að endingu sagði Thor: „Já, hvernig byrj-
aði þetta? Það er góð spurning!“
Næst var ég með plan um fleiri spurningar
og markvissari. Þrír tímar liðu hratt. Og á
milli þess sem Thor spann vefinn sagði hann:
„Maður reynir að svara þegar þú kemur með
svona fínar spurningar.“
Svo er það þriðja heimsókn. Maður er ekki
með nein plön. Hlustar bara og skýtur inn
orði og orði.
Thor er með stóra kaffiskál á stofuborðinu
sem honum var gefin í París fyrir löngu.
Hann segir ætlast til að hún sé notuð á
morgnana, en hann sofi af sér flesta morgna.
Kaffið úr henni dugi sér hins vegar vel á
nóttunni.
„Ég byrja oft að vinna seint á kvöldin og
freistast til þess að halda áfram fram á nótt.“
Og fram á morgun jafnvel?
„Já, oft.“
Hvað gerir nóttin fyrir þig?
„Þá er næði. En reyndar finnst mér ég of
mildur á nóttunni. Er ekki nægilega gagn-
rýninn á sjálfan mig.
Ég byrjaði á þessari næturvinnu þegar ég
þýddi Hlutskipti manns eftir André Malraux
1983. Ég byrjaði um miðnætti og þýddi til
klukkan átta á morgnana, grófþýddi og sett-
ist svo aftur yfir textann á daginn. Mér var í
mun að gegna skyldu minni við hann og þjóð-
ina. Ég held það sé gott fyrir mann að túlka í
fullum trúnaði annars manns hugsun.“
Kemur textinn stundum fullskapaður úr
pennanum?
„Styttri textar gera það stundum en flest
þarfnast pússningar. Og lengri bækur verða
auðvitað bara til með mikilli yfirlegu.
Á yngri árum þurfti maður að ná þessu
strax en það hefur breyst. Aðalatriðið er að
koma sér að verki, ekki síst þegar um stórar
bækur er að ræða. Sumir kalla það la vía
dolorosa, að koma sér að verki.
En þegar ég er alveg tómur þá reynist mér
vel að hlusta á Bach. Hann er mikill sálu-
hjálpari. Þá er líka gott að berjast við ber-
serki í Júdófélaginu.“
En þegar eitthvað kemur yfir þig, kallarðu
það þá innblástur?
„Já, þú átt við einhverjar svona náð-
arstundir,“ segir Thor og lyftir annarri hend-
inni. „Maður þarf að vinna sig upp í þetta
ástand sem kalla má innblástur. Þegar heil
bók er skrifuð þarf maður að finna einhvern
takt, rím, mynstur, víddir. Stundum eru það
bestu dagarnir þegar manni finnst maður al-
veg tómur og þarf að hafa mikið fyrir því að
byrja en síðan kemur eitthvað á endanum …
og allt í einu er herbergið orðið fullt af fólki.“
Hvað ertu að skrifa núna?
„Það er af ýmsu tagi. Ég er að reyna að ná
hlutum út úr tölvunni, hún er ekki þægileg
við mig tölvan, stendur uppi í hárinu á mér,
stríðir mér. Mér gengur best að skrifa upp á
gamla mátann, rissa.“
Þú gengur um með penna og blað í vas-
anum.
„Já, ég er alltaf með eitthvað á mér til að
skrifa niður punkta. Ég er ekki nógu fingra-
lipur til þess að skrifa á tölvu.“
Að mannkynið gæti endað
Hvers vegna skrifarðu? Manstu hvernig eða
hvers vegna þú byrjaðir?
„Ég man ekki hvenær ég byrjaði. En þetta
hefur alltaf verið mér brýn nauðsyn.“
Kom ekkert annað til greina?
„Ja, ég fór dult með þetta lengi, pukraðist.
Ég hafði verið einfari sem barn. Í mennta-
skólanum hélt ég skipulega fram hjá náminu.
Varði tímanum í lestur á skáldskap. Ég var
heppinn að lenda í fangi ofurafla eins og
Tolstoi. Hann ætlaði alveg hreint að drepa
mann. Maður þorði varla að sofna. Um svipað
leyti las ég Dostojevskí. Maður var að reyna
að átta sig á sjálfum sér, til hvers maður
væri. En ég lærði ekkert í íslensku í Mennta-
skólanum, kennslan var ekki góð.
En, hvað vakir fyrir manni? Það er erfitt
að svara því. Þetta leitar á mann.
Einu sinni var ég á leið frá Napólí til Róm-
ar í yfirfullri lest, menn stóðu hver utan í öðr-
um og sumir héngu utan á lestinni. Ég stóð
við glugga og þá kom þetta að mér og ég
byrjaði að skrifa í bók sem ég hélt svona upp
í loft.“ Thor sýnir hvernig hann heldur bók-
inni yfir höfði sér og skrifar. „Síðan tekur
bókin að síga hægt og hægt í höndum mér
þar til hún situr allt í einu kyrr, og þá sé ég
að það kemur auga undan bókinni!“
Thor hlær.
„Þetta fannst mér svo fallegt!
En ég man að atómsprengjan hafði mikil
áhrif á okkur. Ég var að vinna í pakkhúsi við
að afferma bíla og annað. Og einn morguninn
barst fréttin af sprengjunni og þá rann það
upp fyrir okkur að mannkynið gæti endað.“
„Fantasiförbjud“
Og árin og áratugirnir sem tóku við voru um-
byltingarsamir.
„Þegar við komum Birtingi á fót hér heima
1955 þá töluðu Svíar mikið um að það væru
ekki til nein skáld og rithöfundar heldur bara
„kulturarbetare“. Og þeim var líka illa við
hugarflug og töluðu um „fantasiförbjud“. Það
mátti ekkert standa í bók sem lesandinn vissi
ekki fyrir. Það gæti farið í fínu taugarnar.
Þeir höfundar voru bestir sem sögðu manni
strax í upphafi hvert þeir ætluðu í bókinni.
Það átti líka að hlusta eftir „fólkinu“ sam-
kvæmt sovétboði en það var hugtak sem þeir
sömdu á kontórum, einstaklingar rúmuðust
ekki í því. Samkvæmt þessari pólitík átti líka
að fara fram stöðug endurskoðun en sú hug-
mynd komst aldrei til framkvæmda, menn
áttu bara að vera trúir og hlýðnir og búa til
vígorð sem var dengt á andstæðingana. En
vígorðin geta orðið að sannleika fyrir þeim
sem eru fátækir innra með sér. Og þá fer allt
til fjandans. Og fór.
Einhverjir verða að hjálpa fólki að dreyma.
Svíarnir og reyndar kommarnir höfðu rangt
fyrir sér.“
Mitt Sturm und Drang
Hvernig orkaði sjöundi áratugurinn á þig og
þessar hræringar sem kenndar hafa verið við
’68? Var þetta orkumikill tími?
„Það er alltaf mikil orka, maður verður
bara að skynja hana og virkja. Löngu áður en
ég vissi hvað ég ætti að gera af mér í lífinu
var mikil orka innan í mér. Og hún fann sér
farveg í skrifum. En síðan fór allt á fleygiferð
á þessum árum. Svíarnir gáfu meira að segja
fantasíuna eftir. Þeir höfðu þá setið um hana
í tíu ár.
Í maí ’68 var ég á Feneyjatvíæringnum. Ég
man ég stóð á Markúsartorginu. Þar voru
þrjú hundruð fjölmiðlamenn og vígasveit lög-
reglumanna með hjálma sem huldu augu
þeirra og prik sem þeir lömdu í lendar sínar.
Svengdarlegir stúdentar stóðu uppi á kirkju-
tröppum og hrópuðu slagyrði. Ég lenti mitt á
milli þeirra og lögreglunnar. Og þar sem ég
trúi ekki á heróisma þegar hann hefur enga
merkingu þá hljóp ég af stað í átt að stórri
grænni hurð sem þrír strákar voru að reyna
að opna. Ég fékk eitthvert afl frá forverunum
og ýtti upp hurðinni. Þar inni stóðu stað-
armenn sem voru á móti þessari truflun á
túrismanum og skömmuðu strákana. Ég fór
aftur út og þá blasti við myndhöggvari sem
heitir Emilio Vedova, en Vedova þýðir eig-
inlega ekkja. Hann veifaði rauðri dulu framan
í mótmælendurna eins og spænskur matador
og þá komu þeir hlaupandi og ég þurfti aftur
að taka á rás og hljóp inn í súlnagöng og
smeygði mér inn á veitingastað sem var verið
að loka með járnhliði. Fyrir innan voru dúkuð
borð og rauðvín í karöflum. Ég tók mér kar-
öflu og settist.
Næstu daga varð maður meira var við
myndlistarmenn, allir með þennan sérstaka
svip sem myndlistarmenn settu upp á þeim
tímum og höfðu áunnið sér – núna getur hver
sem er verið myndlistarmaður og sett upp
svip.
En það var mikið hlaupið þetta ár og það
var eins og menn héldu að hugmyndir að
betra heimi myndu birtast þeim á hlaup-
unum. Og þá átti enginn maður yfir þrítugu
að vera marktækur, nema Marcuse sem var
rúmlega áttræður.
Einhverjir verða að hjál
Fjörutíu ár eru liðin frá því að fyrsta skáldsaga Thors Vilhjálmssonar, Fljótt fljótt sagði fugl-
inn, kom út 1968. Bókin var lykilverk í bylgju módernískrar skáldsagnagerðar hérlendis. Síð-
an hefur Thor markað mörg djúp spor í íslenska bókmenntasögu. Fyrir réttum tuttugu árum
hlaut hann Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Grámosinn glóir og fyrir tíu árum
hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Morgunþulu í stráum. Á síðasta ári var Thor
tilnefndur til ítölsku bókmenntaverðlaunanna Nonnino og Grámosinn kom út í spænskri þýð-
ingu. Í þessu viðtali er Thor spurður hvenær hann skrifar, hvernig og hvers vegna, hann er
inntur eftir byltingum sjöunda áratugarins, uppreisnarandanum, viðtökunum og þróun skáld-
skaparins.
4 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Í HNOTSKURN
»Skáldsögur Thors eru Fljótt fljóttsagði fuglinn (1968), Óp bjöllunnar
(1970), Folda (1972), Fuglaskottís (1975),
Mánasigð (1976), Turnleikhúsið (1979),
Grámosinn glóir (1986), Náttvíg (1989),
Tvílýsi (1994), Morgunþula í stráum
(1998), Sveigur (2002).
»Smásagnasöfn Thors eru Maðurinner alltaf einn (1950), Dagar mannsins
(1954), Andlit í spegli dropans (1957),
Skuggar af skýjum (1977).
»Ferðasögur Thors eru Undir gervi-tungli (1959), Regn og rykið (1960),
Svipir dagsins, og nótt (1961), Hvað er
San Marinó (1973).
»Ljóðabækur Thors eru Ljóð mynd(1982), Sporrækt (1988), Snögg-
færðar sýnir (1995), Stríðsmenn andans
(1997).