Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.2008, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.2008, Blaðsíða 13
aftur undir teppið. Þetta átti ekki aðeins þátt í að sjálfsmat þjóðarinnar batnaði eftir því sem leið á 10. áratuginn heldur var aftur hægt að taka Stalín í sátt þegar grimmdarverkin voru gleymd. Árið 1989 litu aðeins 12% Rússa á Stalín sem „merkilegasta mann allra tíma og allra þjóða“, en tíu árum síðar var þessi tala kominn upp í 35%. Árið 1990 litu 48% hins vegar á hann sem versta manninn í rússneskri sögu, en árið 1997 var þessi tala kominn niður í 36%. Stalín aftur á stall Undir Pútín er keisaratímabilið enn dásamað, og ku helsta hetja Pétursborgarans Pútíns vera Pétur mikli. En einnig er litið til Sov- étríkjanna sem stórveldistímabils, og Pútín telur hrun þeirra mikinn harmleik. Stalín hef- ur aftur verið settur á stall í skólabókunum, en þær hrósa honum sem einum mesta leið- toga Rússlands. Í raun virðist því sem öll tímabil Rússlandssögunnar hafi verið hafin til vegs og virðingar undir Pútín, nema þá kannski helst niðurlægingartímabilin undir Jeltsín og Gorbatsjov. Í Time-viðtalinu hrósar Pútín þeim þó fyrir að hafa lagt niður kerfi sem hlaut ekki lengur stuðning fólksins, og segist ekki viss um að hann hefði haft hug- rekki til að gera slíkt sjálfur. Samkvæmt því virðist sem leiðtogi Rússlands í dag hafi meiri áhuga á hagvexti en því að endurreisa Sov- étríkin. Það er meira sem Stalín og Pútín eiga sam- eiginlegt en starfið. Afi Pútíns var kokkur Stalíns, og eins og hann hafði áhrif á mataræði Stalíns hefur Stalín haft áhrif á hugmyndir barnabarnsins, sem ku fletta bókum úr bóka- safni Stalíns í gríð og erg. Í Time-blaðinu seg- ir Simon Montefiore, höfundur bókarinnar Young Stalin, að persónudýrkun Rússa á Pút- ín sé einmitt besta vörn hans gegn hugs- anlegum óvinum þegar hann lætur af embætti forseta og tekur við forsætisráðherrastöð- unni. Sigrinum fagnað á ný Á 60 ára afmæli sigursins hinn 9. maí 2005 bauð Pútín öllum helstu þjóðarleiðtogum heims í heimsókn. Flestir komu, þar á meðal Halldór Ásgrímsson, en ekki þó leiðtogar Eistlands og Litháen, sem litla ástæðu sáu til að fagna sigri Rússa. Sumir hinna vestrænu fjölmiðla fundu þó ástæðu til að gagnrýna há- tíðarhöldin og fannst þau minna um of á hinar árlegu hersýningar Sovétríkjanna. Nú nýlega bárust þær fréttir frá rússneska varn- armálaráðuneytinu að frá og með næsta 9. maí mundu hersýningarnar verða endurreistar. 6.000 hermenn munu ganga yfir Rauða torgið, ásamt skriðdrekum og kjarnorkuflaugum. Sendiherra Breta í Rússlandi, Tony Bren- ton, líkti Rússlandi við Sovétríkin í blaðinu Guardian eftir að leyniþjónustumenn yf- irheyrðu starfsmenn ræðismannsskrifstofu Bretlands. Í sama blaði segir fræðimaðurinn Nikolay Petrov við Carnagie-miðstöðina í Moskvu: „Markmiðið er að sýna fram á að Rússland var mikilfenglegt fyrir byltinguna, var mikilfenglegt á tímum Sovétríkjanna og að það sé verið að endurreisa mikilfengleik þess nú.“ Hinn nýi Stalín? Maria Feretti útskýrir endurreisn Stalíns í hugum Rússa með því að fólk hafi fengið nóg af hinni stöðugu gagnrýni á Rússland, sem það taldi gagnrýni á Stalín enn einn angann af. Á sama tíma vildi fólk finna eitthvað já- kvætt í sögunni sem hægt væri að byggja nýja þjóðarvitund á. Eitt af því hafi verið sigurinn í seinni heimsstyrjöldinni, og er þá lögð áhersla á leiðtogahæfileika Stalíns. En einnig virðist sem það sé nú aftur ráðamönnum í Rússlandi í hag að gera veg hans sem mestan. Rússneski sagnfræðingurinn Lev Gudkov segir: „Sigur í stríði réttlætti alræðisstefnuna í Sovétríkjunum. Eftir því sem minningarnar um kúgun Stalíns hverfa, því meira fer al- menningsálitið að vera hlynnt honum. Minn- ingarhátíðir um stríðið þjóna fyrst og fremst miðstjórnarvaldinu og kúguninni sem eftir endalok alræðisvaldsins hefur nú verið þving- að upp á menninguna og samfélagið af Pútín.“ oðanir Rússa á Stalín Reuters Til heiðurs leiðtoganum Rússneskir komm- únistar bera sovéska fánann og mynd af Stalín í göngu sinni að grafhvelfingu leiðtogans á Rauða torginu í Moskvu 21. desember síðast- liðinn en þá voru liðin 128 ár frá fæðingu hans. »Undir Pútín er keisaratímabilið enn dásamað og ku helsta hetja Pétursborgarans Pútíns vera Pétur mikli. En einnig er litið til Sovétríkjanna sem stórveldistímabils og Pútín telur hrun þeirra mikinn harmleik. Stalín hefur aftur verið settur á stall í skólabókunum en þær hrósa honum sem einum mesta leiðtoga Rússlands. Í raun virðist því sem öll tímabil Rússlandssögunnar hafi verið hafin til vegs og virðingar undir Pútín, nema þá kannski helst niðurlægingartímabilin undir Jeltsín og Gorbatsjov. Höfundur er sagnfræðingur og rithöfundur. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.