Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.2008, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.2008, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2008 7 Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@gmail.com The Foo Fighters með Dave „okk-ar“ Grohl í broddi fylkingar er þegar farin að vinna að næstu plötu en það er eins og það séu bara nokkrar vikur síðan síðasta plata Echoes, Silence, Patience & Grace kom út. Bassaleikarinn Nate Men- del segir þá félaga nú vinna baki brotnu við að setja saman ný lög. „Við erum að tilkeyra þau í hljóð- prufum, eitthvað sem við höfum ekki gert áður, þannig að þetta er komið á fljúgandi start hjá okkur. Það er mikið stuð í mannskapnum.“ Að þessu sögðu er samt óvíst hvenær efnið kemur út, en hljómsveitin er bókuð í tónleikastúss út árið. Men- del segir þetta snúna stöðu, því að þeim sé eðlilega uppálagt að fylgja síðustu plötu eftir en þá sé samt þeg- ar farið að klæja í það að búa til þá næstu. „Og ekki gengur að rúlla þessu inn á band strax,“ segir hann. „Þá verður þessu lekið.“ Foo Fighters hafa aldrei verið stærri en nú, staðreynd sem verður undirstrikuð með tveimur tónleikum á Wembley, 6. og 7. júní. Já, þetta eru svo sannarlega menn fólksins, hvort sem þeir eru staddir á íþrótta- leikvöngum eða í bílskúr á Stokks- eyri…    Japanska tuddarokksveitin (meðsmá-snúningi) Boris er klár með nýja skífu og kallast hún hinu upp- byggilega heiti Smile. Boris, sem spilar einslags tilraunakennt þunga- rokk, er ein af þannig sveitum sem hefur fengið náð fyrir augum ný- bylgjuunnand- ans, ásamt Sunn O))), Mastodon og hugsanlega Neurosis. Platan nýja er átta laga og kemur út 7. mars í Japan en Vesturlandabú- um er gert að bíða fram í apríl. Hinn mikli meist- ari, Stephen O’Malley (Sunn O) og trilljón aðrar hljómsveitir) leggur til gítar í einu laginu. O’Malley er og einn af eigendum Southern Lord út- gáfunnar, sem verður að teljast ein allra svalasta útgáfa samtímans hvað hina þungu list áhrærir.    Plata The Raconteurs, BrokenBoy Soldiers, þótti vera með sterkustu rokkplötum ársins 2006 en meðlimir í sveitinni eru m.a. Jack White úr White Stripes og Brendan Benson sem á að baki glæstan sólóferil þó að lágt hafi farið. The Racon- teurs sönnuðu á nefndri plötu að þetta var meira en eitt- hvert hlið- arverkefni og rokkþyrstir hafa legið á bæn síðan um að annarri plötu yrði lætt út. Fyrir stuttu póstaði svo sveitin stuttri tilkynningu á mys- pace-svæðið sitt þar sem sagt var að platan væri á lokastigi. Sveitin er að fínpússa í Nashville og lofar jafn- framt að platan komi út eins „fljótt og auðið er“ en mesta vinnan fór víst fram á seinni hluta síðasta árs. En semsagt, við getum farið að anda léttar. Það er farið að hilla undir snilldina. Rokk og ról! TÓNLIST Foo Fighters The Raconteurs Boris Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is Stephen Stills stofnaði Buffalo Springfieldvorið 1966, og fékk meðal annars til liðsvið sig Neil Young. Ári síðar kom útfyrsta breiðskífa sveitarinnar sem sló í gegn en ári eftir það var sveitin búin að vera. Stills gaf út eins konar sólóskífu sama ár og stofnaði síð- an tríó með þeim David Crosby og Graham Nash sem þeir kölluðu einfaldlega Crosby, Stills & Nash. Fyrsta platan kom út ári síðar og seldist bráðvel. Síðar slóst Neil Young í hópinn sem hét eftir það Crosby, Stills, Nash & Young; nema hvað. Buffalo Springfield þraut örendið meðal annars vegna þess að meðlimir sveitarinnar tókust á um stjórnvölinn; hver vildi koma sínum lögum að. Með það í huga meðal annars gerðu þeir félagar í Crosby, Stills, Nash & Young samkomulag um að samstarfið yrði lauslegt og hver mætti gefa það út undir eigin nafni sem honum sýndist. Stills var mikill hljómsveitarmaður, ef svo má segja, hafði gríðarlega gaman af að spila með fær- um hljóðfæraleikurum og helst vildi hann haga málum svo að lagasmíðar væru nánast spuni á staðnum; að hljómsveitarmenn næðu svo vel sam- an að þeir spiluðu sem einn maður. Hann fékk lítið færi á slíku innan Crosby, Stills, Nash & Young og stofnaði því sérstaka sveit fjölskipaða fyrir slíkar skemmtanir sem hann kallaði Manassas. Í Manassas var valinn maður í hverju rúmi; auk Stills má nefna þá Al Perkins, Chris Hillman, Fuzzy Samuels og Dallas Taylor, sem allir voru mikils metnir á sinni tíð og gamlir hundar (eins og ofanritaður) kannast við. Til viðbótar þeim sjö sem skipuðu eiginlega hljómsveit voru svo nokkrir hljóðfæraleikarar til lausráðnir, ef svo má segja, þar á meðal Rollingurinn Bill Wyman. Wyman lýsti því einhvern tímann að hann hefði hætt í Rolling Stones til að ganga í Manassas hefði honum verið boðið það og víst er að Stephen Stills segir að þau ár sem hann starfrækti hljómsveitina hafi verið skemmtilegasti tíminn á sínum tónlist- arferli. Þrátt fyrir það tókst sveitinni ekki að koma frá sér nema tveimur breiðskífum, sú fyrri, sem var samnefnd sveitinni, en þó ævinlega kynnt sem Stephen Stills Manassas, er klassísk í rokksögunni þótt hún sé nánast gleymd í dag. Skýringin á því hvers vegna slíkur gæðagripur hefur gleymst svo rækilega byggist að nokkru á því að Manassas var jafningjahljómsveit og þótt vissulega hafi Stills verið primus inter pares þá var hann ekki í stjörnuflokki þótt enginn frýi honum hæfileika sem lagasmið og hljóðfæraleikara. Manassas var býsna mikil skífa, tvöföld plata með ríflega klukkutíma af músík. Hún er ein af þeim skífum sem skemmtilegra er að eiga á vínyl en diski, enda var hún hugsuð sem fjórar plötuhlið- ar (og handskrifaðir textarnir sem fylgdu á víny- lútgáfunni eru ekki með á diskinum). Fyrsti hluti plötunnar, fyrsta plötuhliðin, The Raven/Hrafninn, er rokk sem kryddað er með kúbverskum hrynhita enda var slík músík í háveg- um höfð vestur í Kaliforníu á þeim tíma (Santana III kom til að mynda út 1971 og Caravanserai 1972). Annar hlutinn er svo The Wilderness/Óbyggðir, þar sem viðfangsefnið er kántrítónlist (Hillman við sama heygarðshornið), þjóðleg músík amerísk. Þriðja plötuhliðin er Consider/Hugsaðu, sem er nokkuð dæmigert þjóðlagarokk eins og önnur hver hljómsveit spilaði á þessum árum með pínlega ein- lægum textum (aulahrollur). Lokakafli plötunnar, fjórða plötuhliðin, er svo Rock And Roll Is Here To Stay/Lifi rokkið, sem er, eins og yfirskriftin gefur til kynna, mestmegnis rokk og ról og vel blússkotið á köflum, sérstaklega í lokalaginu, Blues Man, sem er hylling þeirra Jimi Hendrix, Al Wilson og Duane Allman sem allir féllu frá á besta aldri með skömmu millibili – Wil- son og Hendrix 1970 og Allman 1971. Hæst rís þessi skífa Stills og félaga í næstsíðasta lagi hennar, The Treasure, sem er eins konar sam- antekt á þeim stílum sem viðraðir eru á plötunni, en það lag er einmitt gott dæmi um þá draumsýn Stills að koma saman hljómsveit sem spilað gæti sem einn maður því lagið spratt úr hálfgerðum hljóðversspuna og varð til í einni töku, þeirri töku sem er á plötunni. Í draumi Stephens Stills POPPKLASSÍK Eftir Atla Bollason bollason@gmail.com A f ofangreindu er vonandi ljóst að Vampire Weekend er ekki alveg eins og hljómsveitir eru flestar. Eins og hljómsveitin Strokes vakti athygli fyrir rúmum hálfum ára- tug, eru þetta hvítir milli- og há- stéttardrengir, vel menntaðir enda kynntust þeir í Columbia. Blöðin keppast við að finna þeim stað við hlið Strokes í tónlistarsögunni en að svo stöddu er erfitt að sjá hvort það tekst. Því er hins vegar ekki að neita að fyrsta platan er gríðarlega sterk og áhrifin og hljómurinn vissulega fjöl- breyttari en hjá þeirri ágætu sveit. Arkitektúr og greinarmerki Textagerð Vampire Weekend er óvenjuleg, þeir fást ekki mikið við ástina eins og venjan er í popp- tónlist – það væri helst í laginu „Campus“ sem örl- ar á slíku, en þar eru tónlistarleg líkindi einnig hvað mest við Strokes. Annars staðar verða alls konar ólíkleg yrkisefni fyrir tungunni á söngv- aranum og textasmiðnum Ezra Koenig. Það er til að mynda ekki algengt að heyra rokkara syngja um arkitektúr eins og gert er í laginu „Mansard Roof“ – en þak að hætti François Mansart er vel þekkt frá lokum 19. aldar beggja vegna Atlants- hafs og hefur til dæmis orðið að einkenni margra skyndibitastaða, þ. á m. McDonalds. Sama gildir um greinarmerkjasetningu; lagið „Oxford Comma“ rammar frásögnina inn með því að fjalla um kommu á undan samtengingu í upptalningu þriggja eða fleiri hluta („pipar, salt, og timjan“ eða „pipar, salt og timjan“), en raunar segir ljóð- mælandi sér vera slétt sama um hvor leiðin er far- in. Í þessum anda kemur ekki á óvart að Vampire Weekend hafi hafið ferilinn með því að spila í partíum víðs vegar um Columbia svæðið og í hóp- um bókmenntaunnenda áður en rómur sveit- arinnar tók að berast víðar. Það var í fyrra sem sveitin komst á flug þegar hún lagði upp í tón- leikaferð um Bandaríkin gervöll, og fór að njóta nokkurra vinsælda hjá ýmsum bloggurum og vef- miðlum þegar fyrstu lög þeirra tóku að festast í möskvum Netsins. Afrísk áhrif Hlustendur tóku helst eftir óvæntum samslætti indírokks við afrískt popp eins og Paul Simon sótti í þegar hann gerði Graceland, og Damon Albarn þegar hann ferðaðist til Malí fyrir tæpum áratug. Rytmar eru gjarnan útfærðir á alls kyns slagverk og laglínurnar elta fáa dúrhljóma svo úr verður gríðarlega sólríkur og glaðvær blær, eins og í lag- inu „Cape Cod Kwassa Kwassa“. Hérlendis hefur sveitin unga Retro Stefson unnið með svipaðar hugmyndir og það er gaman að bera „Oxford Comma“ eða önnur laga Vampíruhelgarinnar saman við „Medallion“ eða „Papa Paulo“ (sem má bæði heyra á Mæspeisi Retro Stefsons: mys- pace.com/retrostefsonmusic). Þá ráða karíbískir rytmar í bland við pönk ferð- inni í „M79“ svo hugurinn hvarflar til ska- bandanna í Bretlandi níunda áratugarins. Sjálfir hafa drengirnir í Vampire Weekend minnst á brit- poppið sem innblástur, en Blur sóttu sérstaklega í hljóðheim ska-sins. En tengingarnar eru fleiri, í fyrrnefndu „M79“ gera semball og fiðla reglulega vart við sig svo hugurinn hvarflar til Bachs. Þá er hljóðfærið mellotron – einskonar gamaldags hljóðsmali (e. sampler) sem notar segulband í stað harðra diska eða disklinga – áberandi, en Bítl- arnir, Zombies og King Crimson gerðu þetta hljóðfæri að sínu síðla á sjöunda áratugnum. Vampíruhelgi í október? Þessi skemmtilegi og nútímalegi bræðingur heill- aði fjöldamörg útgáfufyrirtæki en eftir marga fundi og marga góða hádegisverði ákváðu Vamp- ire Weekend að skrifa undir hjá XL Recordings og komust þar í hóp með ekki ómerkari sveitum en Basement Jaxx, Prodigy, Sigur Rós, White Stripes og Devandra Banhart. Fyrsta skífan, samnefnd sveitinni, kom svo út fyrir skemmstu og hefur hlotið nær einróma lof gagnrýnenda. Hvort skífan getur af sér holskeflu af indí-afró-popp- böndum með sama hætti og Strokes opnuðu á fjöldann allan af bílskúrsrokkurum er erfitt að segja, en sem stendur býður platan hlustandanum í sólríkt ferðalag sem er víst til að standa fram á haust – en mér finnst ekki ólíklegt að aðstand- endur Airwaves hátíðarinnar reyni að gera hátíð- arhelgina að Vampíruhelgi. Sólelskar vampírur Vampire Weekend – Vampíruhelgi – er að mati undirritaðs afleitt hljómsveitarnafn; minnir helst á einhverja afbökun á My Bloody Valentine eða óheppilegt veggspjald utan á niðurníddum næturklúbbi sem varð fyrir augum hljómsveit- armeðlima þegar þeir leituðu nafns í örvænt- ingu. Raunin er víst önnur: Vampire Weekend er stuttmynd sem Ezra Koenig gerði sumarið eftir fyrsta árið sitt í háskóla, þar sem persónan Wal- cott missir föður sinn þegar vampírur ráðast á heimaland hans. Eðlilegt. Nafnið smitaðist yfir á hljómsveitina og fyrsta lagið sem sveitin samdi fjallar einmitt um nefndan Walcott og textinn byggist lauslega á efni kvikmyndarinnar (í myndinni átti Walcott að fara til Cape Cod og segja borgarstjóranum þar frá vampíruvánni...). Ljósmynd/Tim Soter Vampire Weekend Fyrsta skífan, samnefnd sveitinni, hefur hlotið nær einróma lof gagnrýnenda.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.