Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.2008, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 23.02.2008, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ lesbók Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Kurt Kopecki kom fyrst til Íslands fyr-ir tæpum tíu árum. Hann kom til aðheimsækja vini sína, og til að leika átvennum tónleikum í Salnum með einum þeirra, Davíð Ólafssyni bassasöngvara. Nokkrum árum síðar var staða tónlistarstjóra Íslensku óperunnar laus og hann varð spennt- ur, hafði fylgst með tónlistarlífi hér gegnum sömu vini. Þá starfaði hann við óperuna í Biel í Sviss. Kurt kom aftur í heimsókn og úr varð að á miðju ári 2003 var hann ráðinn til starfans. Hér hefur Kurt Kopecki svo alið manninn í bráðum fimm ár. Hann hefur fylgt Íslensku óp- erunni gegnum talsverða breytingatíma þar sem markmið hafa verið að festa Óperuna í sessi með fastri áhöfn og reglulegu sýn- ingahaldi. Kurt hefur æft uppfærslur, stjórnað sýningum, leikið á píanó, leikið með söngvurum óperunnar á tónleikum og já – eins og gert er á Íslandi – gengið vasklega í öll þau störf sem sinna þarf. Kurt Kopecki er kvæntur afburða fiðluleik- ara. Hún heitir Réka Szilvay og er dóttir ung- versk-finnska fiðluleikarans og tónlistarupp- alandans Géza Szilvay, sem er einnig stórt nafn í músíkheiminum. Réka er nú prófessor í fiðlu- leik við Sibeliusarakademíuna í Helsinki. Fjölbreytt tækifæri í Finnlandi Finnland er ekki bara land hinna mörgu vatna; það er líka land hinna mörgu hljómsveit- arstjóra. Þaðan koma margir bestu hljómsveit- arstjórar dagsins í dag. Þess vegna er það spennandi fyrir Kurt Kopecki að einmitt þar hefur hann fengið spennandi tækifæri og getað haslað sér völl sem hljómsveitarstjóri, með góð- um árangri. „Já, sem betur fer verður þetta æ meira með hverju ári. Ég hef verið að stjórna í Finnsku þjóðaróperunni, óperunni Zaide eftir Mozart. Frumsýningin var árið 2006 en svo var óperan tekin upp aftur nú í haust. Í desember fékk ég boð um annað verkefni þar, en það er ekki hægt að segja frá því strax,“ segir Kurt Kopecki. Óperuhúsið í Helsinki er nýtt, var vígt 1993, og er óhemjufallegt með frábærum hljómburði. Hljómsveitarstjórinn ungi Mikko Frank, sem komið hefur hingað sem gesta- stjórnandi með Sinfóníuhljómsveit Íslands var nýlega ráðinn listrænn stjórnandi. Hann orðaði það þannig við okkar mann, að hann vildi fá hann til starfa fljótt aftur, og reglulega í fram- tíðinni. „Já, það var Mikko Frank sem bauð mér að koma aftur. Hann er búinn að starfa við húsið í eitt og hálft ár, fyrst sem tónlistarstjóri, en eftir erfiðleika í húsinu er hann nú listrænn stjórnandi og aðalhljómsveitarstjóri. Það er bú- ið að skipta stjórn óperunnar í tvo hluta; hann fer með listrænu stjórnina og svo er önnur manneskja sem fer með fjármálastjórn.“ Kurt segir að í samanburði við hljómsveit- arstjórn í Íslensku óperunni í Gamla bíói, sé hljómsveitarstjórn í Finnsku þjóðaróperunni „allt öðruvísi en samt ekki“. Zaide, Tosca, La traviata – þetta eru alltaf sömu verkin, hvar sem þau eru sett upp. „Það sem mér finnst gaman að sjá þegar maður kemur frá litlum óperuhúsum eins og ég – frá Sviss og héðan frá Íslandi – verður allt einfaldara. Það kemur maður þegar klukkuna vantar fimm mínútur í sjö og segir: „Maestro Kopecki, þér vitið að sýningin byrjar eftir fimm mínútur?“ Ég segi já takk, ég veit það. Þá eru enn þrír menn eftir til að sjá um að ég komi inn á réttum tíma. Það er nóg af mannskap og sem hljómsveitarstjóri getur maður einbeitt sér að tónlistinni. Það er ekkert annað að gera. Það er líka spennandi að stjórna í stórri hljómsveit- argryfju og vera aðeins fjær sviðinu. Annars er ekkert sem ekki er hægt að venjast með góðum fyrirvara.“ Sífellt stærri hljómsveitir En Kurt hefur fleiri járn í eldinum því að hann stjórnar finnskum sinfóníuhljómsveitum nú reglulega sem gestastjórnandi, og fleiri hljóm- sveitir bætast við hvert ár. „Þetta hefur þróast þannig að það hefur bæst við ein hljómsveit á ári. Sumar þessara hljómsveita eru í litlum bæj- um og ekki það mikið um að vera að maður komi á hverju ári. En svo eru það hljómsveitir eins og Saimaa sinfóníettan, sem ég heimsæki nú í apríl til að stjórna Beethoven, Sibelius og Weber. Ég hef ekki unnið með henni áður. Svona spinnst þetta áfram og ég fer smám sam- an ofar á hljómsveitalistann, til stærri og betri hljómsveita.“ Það er talsverður munur á Finnlandi og Ís- landi hvað þetta varðar, við vitum hvernig það er hér, en í Finnlandi hefur hver sá staður sem vill kalla sig borg, og jafnvel stærri bæir, sína eigin hljómsveit. „En þannig var það ekki alltaf í Finnlandi. Það var pólitísk ákvörðun á sjöunda áratugnum að búa til tónlistarlandið Finnland. Sem betur fer er það ennþá til. En í Finnlandi í dag er þó líka talað um peningaskort og að hljómsveitir gætu átt eftir að upplifa erfiða tíma.“ Hljóðritar með Sinfó fyrir RÚV Kurt Kopecki segir dvöl sína á Íslandi góða. „Þess vegna er ég hér. Hér er gaman að vera og gaman að starfa, þrátt fyrir það hvað allt er lít- ið. Þetta er satt. Hér fæ ég mörg tækifæri til ýmissa verkefna. Ég er auðvitað hér í Óp- erunni; ég hef fengið tækifæri til að stjórna Sin- fóníuhljómsveitinni; ég hef hljóðritað með henni fyrir Ríkisútvarpið og unnið fyrir Listahátíð. Þetta eru verkefni sem hefði orðið mjög erfitt fyrir mig að fá að vinna í Evrópu, vegna þess að samfélagið þar er stærra og sam- keppnin meiri. Það sem er svo gott hér er að fá þessi dýrmætu tækifæri. Að vinna í upptökum með manni eins og Bjarna Rúnari Bjarnasyni tónmeistara RÚV og hans fólki, sem hefur svo mikla reynslu, gerir manni auðvelt að læra sín vinnubrögð á stuttum tíma. Þessi margvíslega reynsla safnast saman, bætist við það sem ég hef fyrir og skilar sér vonandi til baka í mínu aðalstarfi í Óperunni.“ Það sem Kurt hljóðritaði síðast með Sinfón- íuhljómsveit Íslands fyrir RÚV er meðal ann- ars Sinfonia Concertante eftir Mozart, með Auði Gunnarsdóttur í einsöngshlutverki og Þórunni Ósk Marinósdóttur í einleikshlutverki á víólu. Í apríl hljóðritar hann aftur verk með hljómsveitinni, þar sem Edda Erlendsdóttir verður einleikari, og svo í júní með Þóru Ein- arsdóttur söngkonu. „Þú sérð að það er nóg að gera!“ Og ekki nóg með þetta því að Kurt Kopecki spilar líka á píanó og kemur fram á tónleikum með einsöngvurum Óperunnar. „Næstu tón- leikar eru ráðgerðir í Salnum, ásamt Tómasi Tómassyni sem syngur í uppfærslunni og eig- inkonu hans. Þeir tónleikar verða 11. mars. En nú verð ég að öllum líkindum með aðra tónleika í Salnum á undan þeim; með Arndísi Höllu Ás- geirsdóttur sópransöngkonu 27. febrúar. Það er þessi endalausi fjölbreytileiki sem gerir starf hér svo spennandi. Ég get borið þetta saman við störf mín í Óperunni í Finnlandi. Þar er ég bara hljómsveitarstjóri,“ segir Kurt Kopecki. Hann rifjar upp sögu af einum þekkasta kollega sínum og landa, austurríska hljómsveitarstjór- anum Franz Wesler-Möst. „Hann sagði ein- hvern tíma að starf hljómsveitarstjórans fælist í því að raða upp stólum á undan æfingu. Þar hæfist starfið. Þetta er alveg satt, ef maður horfir á starf sitt þeim augum.“ Kurt Kopecki kveðst ánægður með það að nú, í fyrsta sinn á fimm árum á Íslandi, sé upp- selt á allar sýningar óperunnar fyrir frumsýn- ingu. „Og hún Drífa [Kristinsdóttir] sem er bú- in að starfa hér í 20 ár, segir að í hennar tíð hafi þetta ekki gerst fyrir frumsýningu. Fyrir okkur er það ótrúlegt að eftirspurnin skuli vera svona mikil og gaman að finna að við séum að gera eitthvað sem fólk hefur áhuga á að sjá.“ Í sýningunni á La traviata, sem nú er á fjöl- um Óperunnar, vippar hljómsveitarstjórinn sér upp úr hljómsveitargryfjunni og skemmtir gestum í veislum Víólettu og Flóru – og áheyr- endum þar með líka, með dillandi píanóleik. „Ég geri það mjög oft á æfingum að klifra upp úr gryfjunni upp á svið, til að þurfa ekki að fara gegnum allan kjallaran. Leikstjórinn tók eftir þessu, og ég gat ekki neitað honum um að gera þetta í sýningunni. Það er gaman að gera það í óperuhúsi sem þú myndir ekki sjá á DVD- upptöku. Það er svo nauðsynlegt fyrir óperuna að vera lifandi og skapandi, annars þarf fólk ekki að fara í óperuhús.“ Margt að sjá og uppgötva Spurningin liggur í loftinu, hvort Kurt sé ef til vill að yfirgefa Ísland, og hann segir umbúða- laust að svo sé ekki. „Ég er að minnsta kosti ráðinn hér út næsta starfsár. Réka konan mín er hins vegar alveg búsett í Helsinki núna, eftir að hún var skipuð prófessor í Síbelíus- arakademíunni. Auðvitað langar okkur hjónin að vera meira saman. Okkur finnst báðum mjög gott að vera á Íslandi. Fólkið hér er indælt og landið er frábært. Þegar veðrið er gott, eins og í dag, viljum við njóta þess og fara eitthvað í göngutúr. Um daginn fórum við í Búrfellsgjá í Heiðmörk og vorum alveg ein. Það er svo margt að sjá og uppgötva á Íslandi. Þótt ég færi burtu einhvern daginn yrðu tengslin við landið alltaf mjög sterk.“ Kurt talar um landið okkar af þekkingu, og augljóst að hér hefur hann markað spor í bók- staflegustu merkingu. Hann fer oft á fjöll og gengur um landið, og beinast liggur við að spyrja hvort hann sé búinn að klífa öll fjöll hér. „Ekki alveg öll, og ekki einu sinni öll fjöllin í bókinni hans Ara Trausta [Guðmundssonar]. Þau eru 151. Fyrsta verkefnið er að klára þau, og svo sé ég til. Ég nýt þess að vera úti í nátt- úrunni. Maður situr svo lengi í myrkrinu í Óp- erunni á æfingum og maður þarf að hafa eitt- hvað annað eins og útiveru. Í hljómsveitinni eru líka nokkrir góðir fjallamenn. Ari Trausti finnst mér líka góð fyrirmynd. Hann er fjölhæfur maður – jarðfræðingur, útvarpsmaður, sjón- varpsmaður, rithöfundur, fjallamaður, og veit stundum meira um óperur en ég. Lífið verður að ná út fyrir veggi Óperunnar og ég fæ svo margt úr náttúrunni sem bætir mig sem lista- mann, og líka sem manneskju. Ef ég væri í New York, London, eða jafnvel í Þýskalandi, þyrfti ég að keyra í langan tíma til að komast á stað eins og Heiðmörk eða Esjuna. Hér er þetta í 15 mínútna fjarlægð frá heimili mínu. Það væri sorglegt að búa á Íslandi og þekkja bara mið- borg Reykjavíkur og Reykjanesbrautina.“ Kurt gerir ekki mikið úr því að hann tali ótrúlega góða og skiljanlega íslensku. „Þetta var einfaldlega ákvörðun – ég tók þá ákvörðum strax að læra málið. Ég hef gaman af því að læra tungumál. Þegar ég byrjaði að tala málið og komst í gegnum heilan dag á íslensku opn- aðist líka landið fyrir mér – og fólkið, miklu bet- ur en áður. Hér tala allir ensku, og mér fannst ég alltaf velkominn, jafnvel fyrst þegar ég tal- aði bara ensku. En þegar ég gat setið til borðs með fimmtán Íslendingum og enginn þurfti að tala ensku mín vegna, þá fannst mér ég vera kominn heim.“ Morgunblaðið/Frikki Úr gryfjunni upp á fjöll Starfið „Það er þessi endalausi fjölbreytileiki sem gerir starf hér svo spennandi. Ég get borið þetta saman við störf mín í Óperunni í Finnlandi. Þar er ég bara hljómsveitarstjóri,“ Kurt Kopecki tónlistarstjóri Ís- lensku óperunnar fær góð tæki- færi í Finnlandi en nýtur ver- unnar á Íslandi þar sem tæki- færin eru líka mörg - og fjölbreytt.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.