Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.2008, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.2008, Blaðsíða 9
öðrum við, þar á meðal Erró. Það var á þessari sýningu sem menn gátu séð í fyrsta skipti samvinnuverk, Arroyo, Aillaud og Re- calcati, Vivre et laisser mourir ou la fin tragique de Marcel Duchamp ( Að lifa og deyja eða hörmuleg endalok Marcels Duc- hamp), verk sem er samsett úr átta mál- verkum og sýnir hvernig málararnir þrír ráða Marcel Duchamp af dögum með því að spyrja hann spjörunum úr, gefa honum kinnhest og hrinda honum síðan nöktum niður stiga. Síðan eru popplistamennirnir Rauschenberg, Oldenbourg, Warhol og nýju realistarnir, Arman, Raysse og Restany látnir fylgja honum til grafar í kistu sveip- aðri bandaríska fánanum, eins og gert var við þá sem létust í Víetnamstríðinu og lík- mennirnir eru allir klæddir upp eins og hershöfðingjar. Inn á milli frásagnarinnar, sem er sett fram eins og myndasaga, eru málaðar eftirmyndir af þekktustu verkum Duchamps og á sýningunni lýstu þremenn- ingarnir því yfir að „það væri betra að vinna án þess að undirrita heldur en að undirrita án þess að vinna“ og skírskotuðu þar með í ready-made Duchamps. Þessi myndasyrpa olli gríðarlega miklu uppnámi, eins og við mátti búast og söfnuðu listamenn undir- skriftum til að mótmæla verkinu. Jafnvel nánustu vinir málaranna úr frásagnarfíg- úrasjóninni gagnrýndu þá fyrir uppátækið og súrrealistarnir fyrirgáfu þeim aldrei, því Duchamp var ennþá lifandi þegar verkið var málað og kom sjálfur á sýninguna. Sú kyn- slóð sem var í þann mund að uppgötva og meðtaka list Duchamps gat ekki skilið þessa harkalegu aðför, sem þeim fannst engan veginn réttlætanleg. . Teiknimyndir, útúrdúrar, spennusögur og pólitík Sýningarstjórarnir völdu 100 verk eftir u.þ.b. 20 listamenn sem þeir telja vera að- alkjarna frásagnarfígúrasjónarinnar og er sýningunni skipt niður eftir þemum og hvert þema aðskilið með því að mála vegg- ina og skilrúmin í mismunandi litum. Þetta er frekar óvenjuleg uppsetning og ekki víst að allir sætti sig við að sjá verkin sín á app- elsínugulum, eldrauðum, grænum eða bláum veggjum. En þó er eins og þessir sterku lit- ir veggjanna undirstriki ferskleika málverk- anna sem gætu þess vegna hafa verið máluð í gær. Það kemur skýrt fram í fyrstu sölum sýningarinnar að þessir listamenn, sem eru allir karlkyns, byrjuðu snemma að tjá hversdagsleg fyrirbæri með því að nýta sér fyrirmyndir úr fjölmiðlum, auglýsingum, spennusögum, plakötum, kvikmyndum, teiknimyndum, póstkortum og alls konar hluti neyslusamfélagsins, sem þeir gagn- rýndu líka hver á sinn hátt. Einnig sóttu þeir efnivið í listasöguna sjálfa og veigruðu sér ekki við ertandi samsetningar sem sjok- keruðu og hristu upp í hefðbundnum hugs- unarhætti. Til að koma þessu nýja mynd- máli og merkingu til skila leituðu þeir uppi nýjar aðferðir svo sem notkun myndvarpa, klippimyndatækni og notuðu flestir akrýl í staðinn fyrir olíuliti, sem gerði þeim kleift að mála hraðar. Þannig hvarf efnisáferðin, flöturinn varð sléttur, litakontrastarnir sterkari og verkin fengu kaldari ásýnd, sem skapaði líka ákveðna fjarlægð á milli verks- ins og áhorfandans. Þessir listamenn komu úr mismunandi umhverfi vegna þess að þeir voru flestir aðfluttir og höfðu ólíkan listræn- an bakgrunn. Sumir komu úr sjálfsprottnu myndmáli súrrealismans, aðrir úr þjóð- félagsraunsæi og enn aðrir höfðu farið í gegnum expressjónisma og abstrakt til- raunir. En það sem einkennir þennan hóp öðru fremur er hversu þjóðfélagslega meðvitaðir þeir eru og gæti það verið ein af ástæðunum fyrir því að þeir fengu ekki fyrr þá við- urkenningu sem þeir áttu skilið. Þeir horfa ekki bara raunsæjum augum á tilveruna, heldur taka þeir líka pólitíska afstöðu til heimsviðburða og eru flestir sannfærðir um að listin hefur pólitískt gildi og listamenn- irnir raunverulega ábyrgð. Þeir urðu fyrir sterkum áhrifum af Maí ’68. og sumir tóku virkan þátt í að teikna veggspjöld á vinnu- stofu Listaakademíunnar og hefur eitt af veggspjöldum Rancillac, með portrettmynd af Daniel Cohn-Bendit, orðið að eins konar táknmynd í Frakklandi fyrir tíðaranda þess- ara andófstíma. Þessir listamenn gerðu sér allir fullkomna grein fyrir því að byltingin fer ekki ein- göngu fram í innihaldi verkanna heldur líka í formgerðinni og pensilskriftinni og þess vegna eiga þessi verk jafnmikið erindi til okkar í dag. Verkin eru oft hvöss og ábyrgðarfull, en líka skondin og uppfinn- ingasöm og það þarf t.d. engin orð til að út- skýra boðskapinn í verki Errós þar sem hryðjuverkamaður krýpur með sprengju inni á gólfi í hvítþvegnu vestrænu baðher- bergi. Það kemur ekki á óvart að verk þess- ara listamanna, sem ollu uppþoti í listalífi Parísar á sjöunda áratugnum og gera enn, skyldu vekja áhuga hjá menntamönnum og hugsuðum eins og Gilles Deleuze, Alain Jo- uffroy , Jacques Derrida, Pierre Bourdieu, Michel Foucault og Jean-François Lyotard. Erró og frásagnarfígúrasjónin Þó að Erró hafi ekki tekið þátt í Mytholo- gies qutidiennes er hann einn af þeim fyrstu sem komu með gagnrýnið sjónarhorn og frásagnarfígúrasjón inn í málverkið þegar hann gerði verk eins og Snúning-byltinga- hreyfill (1961) eða Gírskipting kynslóðanna (1961-62) enda er verk eftir hann í fyrsta salnum Upphafið og síðan í öllum sölum nema þemasalnum Spennusögur. Það kemur líka skýrt fram í sýningarskránni hve fram- lag Errós er mikilvægt strax í upphafi, en sýningarskráin er mjög vel unnin og örugg- lega besta heimild sem nú er fáanleg um sögu frásagnarfígúrasjónarinnar. Erró, sem hét þá Ferró, tók m.a. þátt í sýningunni Anti-Proces sem vinir hans, Alain Jouffroy og Jean-Jacques Lebel skipulögðu 1960-61 í París, Feneyjum og Mílanó og var einn af fáum listamönnum hópsins sem fóru til New York. Hann dvaldi þar sex mánuði, kynntist öllum helstu popplistamönnunum og safnaði m.a. efni í verkið Foodscape sem er eitt af hans þekktustu og bestu verkum, en er því miður ekki á sýningunni. Það má endalaust deila um valið á verkunum, en fyrir þá sem þekkja feril Errós, hafa lesið nýútkomna bók Danielle Kvaran Erró í tímaröð eða Erró Margfalt líf eftir Aðalstein Ingólfsson, er ekki ólíklegt að þeir muni sakna nokk- urra lykilverka. Erró, sem heldur nú upp á 50 ára búsetuafmæli sitt í París, er einn af merkilegustu og vinsælustu listmönnum frá- sagnarfígúrasjónarinnar og sá sem hefur aldrei lent inni í skugganum. Honum hefur tekist með þrautseigju, ofurmannlegum af- köstum og stöðugri endurnýjun innan eigin stíls eða myndveraldar að halda ferli sínum í stigvaxandi þróun upp á við. Með einka- sýningunni Myndir aldarinnar, sem var haldin í Jeu de Paume í París um aldamótin 2000, staðfestist sú opinbera viðurkenning sem var þegar til staðar og með sýningunni í Grand Palais styrkist hún enn þessi mikla og réttláta virðing. Það biðu margir eftir sýningu um Frá- sagnarfígúrasjónina með mikilli eftirvænt- ingu og áður en hún var opnuð opinberlega voru listtímarit og dagblöð búin að birta langar greinar og viðtöl við listamennina og hefur ekkert lát orðið þar á. Frásagnarfíg- úrasjónin hefur nú loksins fengið uppreisn æru í hinni alþjóðlegu listasögu og var auð- séð á listaverkamessunni Art Paris sem var haldin 3.-7. apríl að galleríeigendur höfðu sett sig í startholurnar með því að stilla upp verkum eftir þá félaga í fjöldamörgum gall- eríum. Gallerí Louis Carré var t.d. með one- man show á 63 verkum eftir Erró sem runnu öll út á örskömmum tíma. garmenn Aillaud, Arroyo og Recalcati Að lifa og deyja eða hörmuleg endalok Marcel Duc- hamp, 1965, 8 málverka myndasyrpa, 162x114cm og 162x130cm Höfundur er listfræðingur í París. Erró Innviðir Ameríku no 9 , 1968, 130x162cm Í HNOTSKURN »Sýningin í Grand Palais í París stend-ur frá 16. apríl-13. júlí og fer síðan til ĺIVAM í Valencia á Spáni þar sem hún verður opin frá 19. september-11. janúar 2009. »Listamenn sem eiga verk á sýningunnieru: Valerio Adami, Gilles Aillaud, Henri Cueco, Equipo Cronica, Erró, Övind Fahlström, Gérard Fromanger, Peter Klasen, Jacques Monory, Bernard Rancillac, Antonio Recalcati, Peter Saul, Peter Stämpli, Hervé Télémaque, Jan Voss, Coopérative des Malassis. » Inn á milli frásagn- arinnar, sem er sett fram eins og myndasaga, eru mál- aðar eftirmyndir af þekkt- ustu verkum Duchamps og á sýningunni lýstu þremenn- ingarnir því yfir að „það væri betra að vinna án þess að undirrita heldur en að und- irrita án þess að vinna“ og skírskotuðu þar með í ready- made Duchamps. Þessi myndasyrpa olli gríðarlega miklu uppnámi, eins og við mátti búast og söfnuðu lista- menn undirskriftum til að mótmæla verkinu. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MAÍ 2008 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.