Morgunblaðið - 11.02.2008, Síða 1

Morgunblaðið - 11.02.2008, Síða 1
                               FRÉTTASKÝRING Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is Á MILLI Reyðarfjarðar og Egilsstaða eru tæp- ir 34 km og liggur leiðin að mestu um Fagradal, hæst í 350 metrum y.s.m. Veturinn hefur verið heldur þungur á þessum slóðum og dalurinn því stundum torfarinn vegna fannfergis og illviðra. Að öllu jöfnu er Fagradal haldið opnum milli kl. 07 og 23 yfir veturinn. Á milli 350 og 500 bílar hafa farið um dalinn á sólarhring undanfarið. Sveitarstjórnarmenn á Fljótsdalshéraði og víðar hafa ítrekað kallað eftir bættri vetrarþjón- ustu Vegagerðarinnar á leiðinni þar sem umferð um Fagradal er mikil og fólk sækir þjónustu og vinnu af Héraði á firði og öfugt. Til dæmis vinna um 100 manns af Héraðinu í álveri Alcoa Fjarða- áls. Fyrirtækið lagði mikið upp úr því á und- irbúningstíma verksmiðjunnar að samgöngur yrðu færðar til viðunandi horfs til að skapa stærra og tryggara atvinnusvæði. Vegir að álverinu klárir kl. sjö „Verstar fyrir okkur eru ferðirnar fjórar um Fagradal sem tengjast vaktaskiptum í álverinu,“ segir Guðmundur Bjarnason, verkefnisstjóri hjá Alcoa Fjarðaáli. „Þegar færð er slæm geta lokast af algerir lykilstarfsmenn, en mest bitnar þetta á vaktaskiptum og hefur gerst nokkrum sinnum í vetur. Ef við komum ekki fólkinu á milli þarf að boða menn út á aukavaktir úr nágrenni álversins og koma fólki í gistingu.“ Alcoa Fjarðaál hefur að sögn Guðmundar átt góð samskipti við Vegagerðina og óskað eftir að vegir að álverinu væru klárir kl. 7 á morgnana í síðasta lagi. Það hafi gengið í flestum tilfellum og Vegagerðin hafi staðið sig mjög þokkalega í að láta ryðja, salt- og sandbera eftir þörfum. Orri Harðarson snjóruðningstækjastjóri er einn þeirra sem ryðja Fagradalinn. „Þessi vegur á að vera opinn allan sólarhringinn. Sé snjór mikill er mun auðveldara að vinna alla nóttina en að byrja í morgunsárið þegar allt er komið á kaf og kannski bílar inni í sköflunum. Menn verða að átta sig á að þessi vegur er óhemjufjölfarinn. Þarna eiga að vera moksturstæki allan sólar- hringinn,“ segir Orri. Fagridalur á eftir að verða farartálmi að einhverju marki uns Stór-Aust- fjarðagöng verða byggð. Fagridalur er farartálmi Í HNOTSKURN » 3. október Tilkynnt um sam-runa REI og Geysir Green Energy. » 11. október MeirihlutiFramsóknar og Sjálf- stæðisflokks springur og Framsókn myndar nýjan með Samfylkingu, VG og F-lista. » 1. nóvember Samruna REIog GGE hafnað í borgarráði að tillögu stýrihóps. » 21. janúar Meirihlutinnspringur aftur og F-listi og Sjálfstæðisflokkur mynda nýjan. » 7. febrúar Stýrihópurinnskilar af sér lokaskýrslu um REI-málið. FRÉTTASKÝRING Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is SAMKVÆMT heimildum Morgunblaðsins í gærkvöldi var talið líklegt að Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson myndi halda áfram sem borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, en því er ósvarað hvort hann tekur við sem borgarstjóri. Almennt eru menn sammála um að staðan sé mjög alvarleg. Víst er að forystumenn flokksins hafa fundið þungann í málinu, að sjálfstæðismenn um allt land hafa áhyggjur af stöðunni og þrýst- ingur hefur farið vaxandi á að Vilhjálmi verði fund- in útleið úr því öngstræti sem hann hafi ratað í. Geir H. Haarde, formaður flokksins, talaði við Vilhjálm um helgina. Það er ekki REI-skýrsla stýrihópsins um málefni REI, sem veldur mestu um erfiðleika Vilhjálms, enda niðurstaðan í samræmi við málflutning sjálf- stæðismanna undanfarna mánuði. Ástæðan er yfirlýsing Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar í Kastljósi um að hafa leitað álits borgarlögmanns fyrirfram á því hvort hann hefði umboð til að sam- þykkja samruna REI og GGE. Hann bar það síðar til baka og sagðist hafa leitað til fyrrverandi borgarlög- manns. „Hann er ekkert að fara að segja af sér sem borg- arfulltrúi þó að hann hafi talað ónákvæmt í Kast- ljósinu,“ sagði einn úr forystu flokksins. „Svo er hitt hvort þetta sé uppsafnað og hann rúinn trausti – það má ræða það. En menn þurfa að vera sann- gjarnir og hafa eitthvað efnislegt í þessu.“ Sumir eru á því að Vilhjálmur eigi að hætta strax, óbreytt ástand skaði flokkinn, og orðaði einn það svo: „Öllum er nóg boðið.“ En það er líka hópur inn- an flokksins sem vill fara að öllu með gát, tryggja að Vilhjálmur haldi virðingu og „láta ekki fjölmiðla ráða því hvort Vilhjálmur segi af sér“. Þeir telja að staðan versni varla úr þessu, nema afdrifaríkar ákvarðanir verði teknar í óðagoti. Bakland Vilhjálms hefur löngum verið traust í kjarna flokksins, en fjarað hefur undan honum í at- burðarásinni síðustu daga. Má segja að stuðningur við hann sé mun minni nú en eftir að meirihluta- samstarfið við Framsókn sprakk í fyrrahaust. En svo virðist sem engan bilbug á Vilhjálmi sé að finna, hann sé fastur fyrir og það sé „stuð á karlinum“. „Öllum er nóg boðið“  Stuðningur sjálfstæðismanna við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson mun minni en eftir að meirihlutasamstarfið við Framsókn sprakk  Áfram borgarfulltrúi STOFNAÐ 1913 41. TBL. 96. ÁRG. MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is Mr. Skallagr msson >> 33 Komdu leikhœs Leikhœsin landinu OFGNÓTT AF ÖLLU HVERNIG ER HÆGT AÐ FORÐA FJÁRMÁLA- SKÚTU AFKVÆMANNA FRÁ STRANDI? >> 17 DÍLASKARFUR einn komst í feitt í Elliðaánum á laugardagsmorgun þegar hann veiddi stóran urriða. Við tók æsispennandi viðureign þar sem fiskur og fugl tókust á upp á líf og dauða. | 4 Ljósmynd/Óskar Andri Barist upp á líf og dauða Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is BRESKI tónlistarmaðurinn Eric Clapton heldur tónleika ásamt hljómsveit sinni í Egilshöllinni hinn 8. ágúst næstkom- andi. Tónleikarn- ir eru liður í Evr- óputónleikaferð Claptons sem hefst í sumar og kemur í kjölfarið á útgáfu safnplöt- unnar Complete Clapton, og mun hann því flytja öll sín vinsælustu lög á tónleikunum. „Clapton nýtur náttúrlega ómældr- ar virðingar sem tónlistarmaður, og ekki síst sem gítarleikari,“ segir Kári Sturluson sem stendur að tón- leikunum ásamt Grími Atlasyni. Alls verða um 10.000 miðar í boði á tónleikana, og verður fyr- irkomulag forsölu kynnt í næstu viku. | 33 Clapton með tónleika á Íslandi Eric Clapton

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.