Morgunblaðið - 11.02.2008, Side 2
2 MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
HREIN eign lífeyrissjóðanna var
1.647 milljarðar króna í lok des-
ember sl. og jókst á árinu um 146
milljarða króna. Þetta er 9,7%
aukning samanborið við 23,1%
aukningu árið á undan. Árið 2006
jukust eignir lífeyrissjóðanna um
281 milljarð króna. Þessar upp-
lýsingar koma fram í tölum sem
Seðlabankinn birtir.
Lækkun á verði hlutabréfa í lok
ársins kom illa við lífeyrissjóðina.
Í nóvember og desember lækkuðu
verðbréf með breytilegum
tekjum, þ.e. hlutabréf og eignir í
sjóðum sem fjárfesta í hlutabréf-
um og skuldabréfum, um 58 millj-
arða. Þrátt fyrir þessa miklu
lækkun hækkaði eign lífeyrissjóð-
anna af þessum verðbréfum um
32 milljarða á árinu. Á árinu 2006
hækkaði eign lífeyrissjóðanna af
þessum bréfum um 209 milljarða.
Erlendar eignir lífeyrissjóðanna
hækkuðu um 14 milljarða í fyrra
en 145 milljarða árið 2006.
Í nóvember lækkuðu heildar-
eignir lífeyrissjóðanna um 32
milljarða, en það er mesta lækkun
í einum mánuði síðan Seðlabank-
inn fór að taka saman tölur um
eignir sjóðanna. Þessi lækkun
hélt ekki áfram í desember því að
í þeim mánuði hækkaði eignin um
145 milljónir. Á síðustu mánuðum
hafa lífeyrissjóðirnir einbeitt sér
að því að fjárfesta í skuldabréf-
um.
Eignir lífeyrissjóðanna
hækkuðu um 9,7% í fyrra
Hlutabréfaeign sjóðanna lækkaði um 58 milljarða króna undir lok ársins
Árvakur/Golli
Aukning Hrein eign lífeyrissjóðanna jókst um 146 milljarða í fyrra.
Ólafsvík | Ærnar sex sem hafa
hafst við í Ólafsvíkurenni síðan í
haust, og hafa verið í sjálfheldu,
komust í manna hendur í gær.
Eftir að eigandinn Guðmundur
Jörundsson hafði samband við
björgunarsveitina Lífsbjörg í
Snæfellsbæ, fóru félagar í sveit-
inni í skoðunarferð á sunnudags-
morgun til þess að meta að-
stæður.
Skömmu eftir hádegi fóru
björgunarmenn af stað á Ennið
ásamt Guðmundi og félaga hans
til þess að freista þess að ná í
ærnar. Davíð Óli Axelsson for-
maður Lífsbjargar sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að þetta
hefðu verið erfiðar aðstæður og
mikið rok á fjallinu, „en þetta
heppnaðist og er ég mjög
ánægður með hvernig til tókst
við þessa björgunaraðgerð og
gott að þetta er yfirstaðið“. Dav-
íð Óli segir ennfremur að ærnar
hafi verið mjög styggar, ,,og
þegar við vorum búnir að reka
þær niður úr Ólafsvíkurenni, þá
reyndu ærnar að taka á sprett
aftur upp á ennið, en sem betur
fer tókst okkur að koma í veg
fyrir það“. Komið var með ærnar
niður um sexleytið í gærdag.
Guðmundur Jörundsson sagði að
björgunarferð lokinni að björg-
unarsveitarmenn væru hetjur.
,,Mér er mikið létt og var í raun
búinn að afskrifa að fá ærnar
aftur í hús, það er búið að vera
leiðindaveður undanfarnar vikur
og því átti ég ekki von á að fá
ærnar í hendur aftur.“ Guð-
mundur segir að ærnar séu í
mjög góðum holdum og því hafi
þær haft nóg að éta á fjallinu
þessa mánuði.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Sex ær
heimtar
úr helju
Ær voru í sjálfheldu í Ólafsvíkurenni mánuðum saman
LÖGMENN sjö ára
gamallar filippseyskrar
stúlku, sem sögð er vera
dóttir Bobbys Fischers,
segjast ætla að freista
þess að ná sátt um skipt-
ingu dánarbús skák-
meistarans við aðra sem
gera kröfur í búið.
Filippseyski skák-
fréttavefurinn Chess Plaza Weekender
segir, að lögmenn stúlkunnar Jinky Young
hafi safnað og lagt mat á gögn, sem styðja
kröfu hennar um arf eftir Fischer.
Lögmaðurinn Samuel Estimo segir að
hann sé að reyna að ná sambandi við
Miyoko Watai til að ræða við hana um
hugsanlegt samkomulag þannig að ekki
þurfi að koma til málaferla. Watai giftist
Fischer í Japan árið 2004.
Þá sagði Estimo, að mágur Fischers og
tveir synir hans gætu ekki gert kröfur um
arf.
Bobby Fischer
Vilja sátt
um dánarbú
Fischers
KARLMAÐUR á þrítugsaldri er talinn
hafa sloppið ótrúlega vel úr alvarlegu
sundlaugarslysi á Flúðum á laugardag.
Hann stakk sér út í grynnri enda laug-
arinnar og hlaut hálsbrot og var fluttur á
Landspítalann eftir að hafa verið skoð-
aður á sjúkrahúsi á Selfossi.
Læknir á slysadeild, sem tók á móti
sjúklingnum, segir manninn hafa sloppið
við lömun en hann var lagður inn á sjúkra-
húsið. Ekki var þó þörf á innlögn á gjör-
gæsludeild enda gáfu áverkarnir ekki til-
efni til þess.
Mjög er hætt við lömun þegar fólk lend-
ir í slysum og hálsbrotnar.
Hálsbrotnaði í
sundlaugarslysi
„ÞETTA gengur nokkuð vel allt
saman. Í gær [laugardag] settum við
saman vinnuskjal vegna samninga
við Starfsgreinasambandið og Flóa-
bandalagið. Það er eiginlega grund-
vallarskjal, sem hægt er svo að vinna
út frá. Svo fæðast sams konar skjöl
fyrir aðra hópa, einn af öðrum. Svo
þarf eitthvað að stoppa í þetta eins
og gengur, en þetta er allt á jákvæð-
um nótum,“ segir Vilhjálmur Egils-
son, framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins um gang kjarasamninga.
Vilhjálmur segir að gangi allt vel
gætu samningar náðst í þessari viku,
en áfram verður fundað í dag. Þá
ræða SA við Alþýðusambandið, Sam-
iðn og Rafiðnaðarsambandið.
Hann segir að jafnframt þurfi að
ræða aðkomu
stjórnvalda að
samningunum.
Hún sé nauðsyn-
leg. Þar megi
nefna nokkur at-
riði eins og að hið
opinbera hækki
ekki laun starfs-
manna sinna um-
fram það sem
gerist í almennum
kjarasamningum. „Ef ríkið fer langt
fram úr okkur, brýtur það niður allt
sem við erum að gera. Þá skiptir
vaxta- og peningastefnan miklu máli,
en það verður að segjast eins og er að
eins og þessi stefna er nú, nær hún
því ekki einu sinni að geta talizt
slæmur brandari. Með því að halda
vöxtum svona háum án þess að það
skili nokkrum árangri erum við að
stimpla okkur sem hálfgerða vand-
ræðaþjóð. Vextirnir eru alltof háir og
algjör óþarfi að halda þeim svona
uppi. Vaxtahækkanirnar byrjuðu
2004 og nú fjórum árum seinna hafa
þær nánast engu skilað. Verðbólga
er til dæmis mjög svipuð nú og þá, en
vextir nærri 10 prósentustigum
hærri,“ segir Vilhjálmur.
Hann nefnir einnig atvinnumálin.
Atvinnuástand gæti orðið erfitt
næsta haust og þá sé nauðsynlegt að
stjórnvöld verði tilbúin með aðgerðir
til að svara því. Þá sé einnig nauð-
synlegt að greiða fyrir fjárfestingum
í stóriðju.
Kjarasamningar gætu
náðst í þessari viku
Vilhjálmur Egilsson segir aðkomu stjórnvalda mikilvæga
Vilhjálmur
Egilsson
ÞORGERÐUR Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra tók á
laugardag fyrstu skóflustunguna
að 4. áfanga nýbygginga Háskólans
á Akureyri. Í viðbyggingunni verða
hátíðarsalur og fyrirlestrarsalur,
auk smærri kennslurýma. Einnig er
gert ráð fyrir bílastæðum og há-
skólatorgi. Auk ráðherra tóku til
máls Þorsteinn Gunnarsson rektor
og Reynir Albert Þórólfsson for-
maður Félags stúdenta.
Skóflustunga Þorsteinn Gunnarsson rektor, Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir ráðherra og Reynir A. Þórólfsson, formaður Félags stúdenta.
Skóflustunga við HA
Á ANNAÐ hundrað bæjarbúa í danska
bænum Havndal, heimabæ Ívars Jörg-
enssonar, 18 ára íslensks pilts, tók þátt í
leitinni að Ívari um helgina en hans hefur
verið saknað í rúma viku. Lögreglan hefur
hvarf hans til rannsóknar.
Að sögn móður Ívars hafa borist vís-
bendingar í málinu sem verið er að vinna
eftir, en ekki er unnt að ræða þær nánar
að svo komnu máli.
Bíll Ívars fannst fljótlega eftir að leit
hófst í síðustu viku en bíllinn var eldsneyt-
islaus og lyklarnir enn í kveikjulásnum.
Telur faðir Ívars líklegast að hann hafi
villst og ætlað að ganga til næsta bæjar.
Íslenski pilturinn
enn ófundinn