Morgunblaðið - 11.02.2008, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.02.2008, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2008 23 SVO lengi sem elstu menn muna hefur landsbyggðinni verið stillt upp gegn höfuðborgarsvæðinu og öfugt: Þorskur, mal- arvegir, flugvellir, jarðgöng, hafnir, flutningabílar, op- inberir starfsmenn, gömul hús, ný hús, stjórnvöld, lambakjöt, lax, minkur, refur, fjöll, jarðhiti, fossar, ál og nú síðast olía – hafa verið uppspretta núnings innan landa- mæra Íslands. Alþing- ismenn hafa barist fyrir sínum kjör- dæmum með kjafti og klóm með þeim afleiðingum að erf- itt er að sjá heildarmyndina svo nokkru nemur. Það er ekki hægt að segja að byggðastefna hafi verið rekin með markvissum hætti á Ís- landi frá stofnun lýðveldisins. Kannski er byggðastefnan bara óheppilegt orð sem minnir um of á tilraunir í Sovét og allar þeirra 5 ára áætlanir. Verkefni ríkisvaldsins á hverjum tíma er að tryggja að grunngerð samfélagsins sé í lagi og að allir íbúar landsins njóti sambærilegra lífsgæða. Grunngerðin sam- anstendur af: samgöngum, fjar- skiptum, flutningi raf- orku, heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, lög- gæslu, fjölbreyttum möguleikum til mennt- unar, að nýta auðlind- ir á sjálfbæran hátt, menningu og auðvitað samfélagi manna. Hér er einföld formúla sem ætti að vera auðvelt að vinna eftir en því miður er það barnsleg trú að halda að það takist. Hugsanlega er vandamálið við útfærslu byggða- stefnunnar á hverjum tíma hin úr- elta kjördæmaskipan sem enn er við lýði. Þingmenn og ráðherrar keppast við að rétta hlut sinna kjördæma og hampa sínu fólki úr sinni sveit þegar kostur gefst. Þessi uppbygging lýðræðisins á Ís- landi hefur einna helst skilað sér í afar ómarkvissum aðgerðum og glórulausum framkvæmdum þar sem forgangsröðunin hefur verið kolröng. Þetta hefur síðan aukið á tortryggni á milli höfuðborgarinnar og landsbyggðarinnar svo um mun- ar. Skynsamlegasta leiðin er oftar en ekki hunsuð vegna nepótismans í stjórnsýslunni og endalauss hreppapots. Verkefni sveitarstjórna eru af öðrum toga en þó tengd. Í fyrsta lagi að tryggja að íbúarnir njóti þeirrar þjónustu sem er lögbundin. Í öðru lagi að bregðast við efna- hagsástandi hvers tíma með að- gerðum sem tryggja viðgang byggðarinnar – sem er auðvitað best gert út frá hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Í þriðja lagi er það skylda sveitarstjórna og landsvæða að móta sér stefnu til skamms og langs tíma sem öllum er ljós og unnið er eftir. Það er gríðarlega mikilvægt að framtíð- arsýnin sé klár og ekki sé stöðugt verið að skipta um klár úti í miðri á. Sveitarstjórnarmönnum eru mis- lagðar hendur við þetta og mý- mörg dæmi á síðustu áratugum sanna það. Það er ekki bara hægt að kenna ríkisvaldinu um ófarir sínar – ábyrgðin er auðvitað líka heima í héraði. Vegna ólíkrar stöðu sveitarfélaganna í landinu er mis- jafnt hvernig til tekst við að sinna verkefnunum. Ábyrgð stjórnvalda gagnvart landsbyggðinni er ljós. Hana hafa þau vanrækt með afgerandi hætti sl. áratugi. Frændhyglin og hei- móttarskapurinn hafa þar ráðið för. Útdeiling fjármuna vegna svo- kallaðra mótvægisaðgerða og úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga síðustu vikurnar er dæmi um þessi klíku- stjórnmál. Fjölgun starfsmanna á vegum landbúnaðarráðuneytisins á Suðurlandi í tíð síðustu rík- isstjórnar er annað rakið dæmi um þessa ömurlegu stjórnarhætti. Þegjandi og hljóðalaust fjölgaði op- inberum starfsmönnum í heimahér- aði ráðherrans um á annað hundr- að á meðan ekkert gerðist á öðrum svæðum. Skipulögð vinnubrögð og áætlanir þar sem verkefnin eru sett í forgangsröð eru algjör for- senda fyrir árangri. Þetta verður núverandi ríkisstjórn að taka með í reikninginn. Vonir manna um að Samfylk- ingin kæmi fersk inn og tæki á þessari einkavinavæðingu í stóru jafnt sem smáu hefur ekki styrkst með mörgum þeirra ákvarðana sem teknar hafa verið sl. misseri – svo ekki sé talað um furðulegar ákvarðanir fjármálaráðherra sem samstarfsflokkurinn reynir að tala sem minnst um og vonar að falli í gleymskunnar dá sem fyrst. Næstu mánuðir verða án efa at- hyglisverðir. Búið er að end- urskipuleggja ráðuneyti byggða- mála svo um munar. Það er ekki víst að breyting verði en ljóst er að margir binda vonir við þessar breytingar og að þær skili sér í gegnsærri leikreglum og ákvarð- anatöku. Eigi byggð í landinu að blómstra sem aldrei fyrr – hvort sem um er að ræða í höfuðborg eða á Melrakkasléttu – þarf að taka upp nýjar aðferðir. Byggðastefna við Austurvöll og í dreifbýli Grímur Atlason skrifar um byggðastefnu » Skynsamlegastaleiðin er oftar en ekki hunsuð vegna nep- ótismans í stjórnsýsl- unni og endalauss hreppapots. Grímur Atlason Höfundur er bæjarstjóri Bolung- arvíkur. ÁRIÐ 1975 var Reykjanesfólkv- angur formlega stofnaður, en skömmu áður hafði sérstakur fólk- vangur verið stofn- aður um skíðaaðstöð- una í Bláfjöllum. Reyndar var það hugmyndin í upphafi, að það svæði tilheyrði Reykjanesfólkvangi og frumkvöðlarnir sáu fyrir sér samfellt útivistarsvæði fyrir almenning frá Heið- mörk til Krýsuvík- urbergs. Merkir brautryðjendur Þegar sagan að baki er skoðuð, vekur athygli hversu margir þjóðþekktir ein- staklingar komu hér við sögu og hversu hlutur Reykjavík- urborgar var stór. Upphafið má rekja til tímamótaerindis Sig- urðar Þórarinssonar jarðfræðings um náttúruvernd á fundi Hins ís- lenska náttúrufræðifélags haustið 1949, þar sem Sigurður lýsti dap- urlegri umgengni við Grænavatn í Krýsuvík. Í framhaldinu stóð þá- verandi menntamálaráðherra, Ey- steinn Jónsson fyrir því, að fá Sig- urð til að hafa forystu um setningu fyrstu laga um náttúruvernd á Ís- landi. Síðar áttu leiðir þeirra eftir að liggja saman, þegar Eysteinn var formaður Náttúruverndarráðs. 1968 var stofnuð Samstarfsnefnd náttúruverndarnefnda á höf- uðborgarsvæðinu og í framhaldi af því samþykkti borgarstjórn Reykjavíkur árið 1969, að svæðið sunnan frá Elliðaárdal og Elliða- vatni til Krýsuvíkurbergs, verði gert að almenningssvæði (fólk- vangi). Á þessum tíma er Geir Hallgrímsson borgarstjóri og Birg- ir Kjaran formaður Náttúruvernd- arráðs og í náttúruverndarnefnd Reykjavíkur sátu: Sturla Frið- riksson, Sverrir Scheving Thor- steinsson og Kristján Eldjárn. Það kemur svo einkum í hlut Páls Lín- dal borgarlögmanns og Elínar Pálmadóttur blaðamanns, þá for- manns náttúruverndarnefndar í Rvk, að fylgja málum eftir. Það var því sannkallað einvala lið, sem ruddi brautina fyrir stofnun Reykjanesfólkvangs. Þetta óskabarn frumkvöðlanna, Reykjanesfólkvangur hefur hins vegar lengst af verið hálfgert olnbogabarn, þrátt fyrir aðild flestra sveitarfélaga á höf- uðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum. Eldfjallagarður – hugmynd Land- verndar Nú hafa samtökin Landvernd sett fram hugmyndir um stofnun sérstaks eldfjallagarðs á Reykjanesskaga, sem nái frá Þingvalla- vatni að Eldey með Reykjanesfólkvang sem e.k. miðju. Hug- myndin er að skapa samstöðu um fjóra meginþætti: útivist, ferðamennsku, nátt- úruvernd og orku- vinnslu og jarðefnavinnslu. Jarð- fræði Reykjanesskagans er einstök á margan hátt. Hér gengur neð- ansjávarhryggur á land í orðsins fyllstu merkingu, plötuskilin milli Evrópu og Ameríku mjög sýnileg með stöðugri gliðnun, eldstöðvar og hraun af öllum mögulegum gerðum og margbreytileg mó- bergsfjöll um allt. Hvergi á jarð- skorpunni finnst sambærileg fjöl- breytni. Allt svæðið er einstakt fyrir rannsóknir og náttúruskoðun. Þá er atvinnusaga svæðisins til lands og sjávar nánast skráð í landslagið með ótölulegum fjölda fornminja og í Húshólma eru ómetanlegar minjar um byggð sem fór undir hraun fyrir 8-9 hundruð árum – kannski elstu mannvist- arminjar á landinu. Litadýrðin á jarðhitasvæðunum gleður alls stað- ar augað og undir kraumar orkan. Strandlengjan er svo enn einn heimurinn með öllum sínum fugla- björgum og fornu verstöðvum. Svo má finna ósnortin víðerni eins og í Brennisteinsfjöllum og stöðugt eru að finnast nýir og nýir hellar með öllum sínum dropasteinum og af- kimum. Stórfenglegastur er Þrí- hnúkagígur, þar sem dýptin er um 200 metrar og ummál hvelfingar inni í gígnum ótrúlegt. Svæði fyrir milljón ferðamenn Stutt verður í að Suðurstrand- arvegur milli Þorlákshafnar og Grindavíkur klárist með bundnu slitlagi og þá opnast afbragðs hringleið kringum skagann. Í miðju þessarar leiðar er Krýsuvík. Þar er kjörin miðstöð þjóð- og auðlindagarðs sem bæri nafnið eld- fjallagarður eða hliðstætt heiti. Í Krýsuvík hóf Sigurður Þórarinsson hina formlegu baráttu fyrir löggjöf um náttúruvernd á Íslandi og eng- inn staður því betri sem mið- punktur eldfjallagarðs til heiðurs Sigurði og öðrum frumkvöðlum jarðvísinda hér á landi. Það styttist í erlendan ferða- mann númer ein milljón á ári. Fyr- ir allan þennan hóp bjóðast ótal önnur tækifæri á Reykjanesskag- anum en Bláa lónið. Tilvist þess sýnir hvað hægt er að gera. Á jöðrunum er svo allt þéttbýlið – höfuðborgarsvæðið og Suðurnesin sem kallar á stöðugt fleiri tækifæri til margbreytilegrar útivistar og afþreyingar. Í kjölfar Vatnajökulsþjóðgarðs Frumkvöðlarnir að stofnun fólk- vanganna á Reykjanesskaganum unnu gagnmerkt starf. Nú er kom- ið að næsta stóra skrefi. Að baki er hinn nýi Vatnajökulsþjóðgarður og kjörið að bjóða íbúunum á suð- vesturhluta landsins upp á raun- verulegan þjóðgarð. Hin glæsilegu orkufyrirtæki Orkuveita Reykja- víkur og Hitaveita Suðurnesja eiga að taka þessum hugmyndum fagn- andi og mynda sátt um leið, sem allir geta hagnast á. 1968 voru stofnuð samtök nátt- úruverndarnefnda á höfuðborg- arsvæðinu. Nú, 40 árum síðar er kannski komið að því að stofna samtök um stofnun eldfjallagarðs á Reykjanesskaganum. Það myndi áreiðanlega gleðja mjög frum- kvöðlana sem stofnuðu Reykjanes- fólkvang á sinni tíð. Eldfjallagarður á Reykjanesskaga Reynir Ingibjartsson leggur til að eldfjallagarður á Reykjanes- skaga verði næsta stórverkefni á eftir Vatnajökulsþjóðgarði Reynir Ingibjartsson » Litadýrðin á jarðhita- svæðunum gleð- ur alls staðar augað og undir kraumar orkan. Höfundur er í stjórn Reykjanesfólkvangs. ÞAÐ eru tímamót hjá fjölskyldum þegar barn byrjar í grunnskóla. Framundan er 10 ára skólaganga sem mun hafa varanleg áhrif á líf barna. Það er því mikið í húfi að barn- ið aðlagist skóla- samfélaginu vel, barna, foreldra og samfélags- ins alls vegna. Grunnskólalögin kveða á um þá skyldu grunnskólans, í sam- vinnu við heimilin, að búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóð- félagi sem er í sífelldri þróun og að grunnskól- inn stuðli að góðu sam- starfi aðila. Þessar skyldur kalla á náið samstarf heimila og skóla. Skólastefnu Ak- ureyrarbæjar er ætlað að efla sjálfstæði skóla og draga fram eft- irsóknarverða þætti í skólastarfi. Akureyr- arbær leggur áherslu á að gefa foreldrum/ forráðamönnum kost á að velja skóla fyrir börn sín. Því er mikilvægt að foreldrar fái tækifæri til að kynna sér starfsemi skólanna vel og hvað þeir hafa að bjóða. Hornsteinar í metnaðarfullri skólastefnu Akureyrarbæjar eru þekking – leikni – virðing – vellíðan. Áhersla er lögð á að jafnt sé lögð rækt við bókvit, verksvit og siðvit. Þannig er litið á menntun sem heild- stæða reynslu sem spannar alla ævi og fæst við skilning og hagnýtingu en leggur auk þess áherslu á líðan og stöðu hvers og eins í samfélaginu. Nokkrir punktar um grunnskóla Akureyrarbæjar. Við alla grunn- skólana eru starfrækt skólamötu- neyti þar sem boðið er upp á heitar máltíðir í hádeginu. Nemendum í 1.-4. bekk stendur til boða dvöl í frístund eftir að skóla lýk- ur á daginn og þá daga sem foreldra-, starfsdagar, jóla- og páskafrí eru í skólum. Síðastliðið haust hófst til- raunaverkefni sem kallast Fjöl- greinafjör sem er samstarf, skóla-, íþrótta-, samfélags- og mannrétt- indadeildar og Íþróttabandalags Ak- ureyrar. Verkefnið felst í því að sam- þætta íþrótta- og tómstundastarf og frístund í grunnskólum Akureyrar. Þar er öllum börnum sem fædd eru árið 2000 boðið upp á mismunandi hreyfingu og tómstundir tvisvar sinn- um í viku. Mun framhald verkefnisins ráðast af því hvernig til hefur tekist. PMT (parent ma- nagement training) – foreldrafærni, er þjón- usta við börn, foreldra og skóla sem hefur það meginmarkmið að fyr- irbyggja alvarlega hegðunarerfiðleika og taka markvisst á hegð- un barna. SMT – skóla- færni er hliðstæð aðferð og PMT þar sem lögð er áhersla á að koma í veg fyrir og draga úr hegðunarvanda með því m.a. að kenna og þjálfa félagsfærni, hvetja æskilega hegðun og samræma viðbrögð starfsfólks gagnvart nemendum sem sýna óæskilega hegðun. Að þessu verkefni koma skóladeild, fjöl- skyldudeild og heilsu- gæsla og hafa 46 fag- aðilar hlotið PMT grunnmenntun. Niðurstöður PISA rannsókn- arinnar 2006 leiða í ljós að grunnskól- arnir á Akureyri eru vel yfir með- altali Íslands í öllum greinum, sem könnuð voru að þessu sinni, þ.e. les- skilningi, stærðfræði og náttúrufræði og að árangri nemenda á Akureyri hefur ekki hrakað eins og fram hefur komið í fréttum af árangri Íslands í heild. Nemendur í grunnskólum Ak- ureyrarbæjar standa sig best í stærð- fræði og er árangurinn vel yfir með- altali, en í lesskilningi og náttúrufræði liggur árangurinn við eða yfir meðaltali OECD ríkjanna. Þessu ber að fagna en jafnframt að nýta niðurstöður til enn frekari dáða. Kynningarfundur um val á grunn- skóla verður í Brekkuskóla miðviku- daginn 13. febrúar og vil ég hvetja foreldra/forráðmenn barna sem eru að hefja skólagöngu að mæta á fund- inn og kynna sér sérstöðu og áherslur skólanna. Skólaval hjá Akureyrarbæ Elín Margrét Hallgrímsdóttir skrifar um grunnskóla á Akureyri » Akureyr- arbær legg- ur áherslu á að gefa foreldrum/ forráðamönnum kost á að velja skóla fyrir börn sín. Elín Margrét Hallgrímsdóttir Höfundur er formaður skólanefndar Akureyrarbæjar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.