Morgunblaðið - 11.02.2008, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 11.02.2008, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2008 39 ER ÞESSI EINI AF HVERJUM NÍU SKYLDUR ÞÉR? Á síðasta ári voru greiddir út 35.695 vinningar í Happdrætti Háskólans sem þýðir að einn af hverjum níu Íslendingum hlaut vinning. Verður þú í hópi vinningshafa í ár? – Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni. ÞAÐ ER FÝLUSVIPUR á jussu- legum snákafangaranum þar sem hann pillar baneitraðar kobraslöng- ur upp í pokaskjatta. Síðan skýtur hann vatnakarfa með ör og boga og gefur litlum dreng í soðið. Jafnvel góðverk ná ekki að létta geð þessa guma sem heldur síðan eins og þrumuský til smiðju sinnar og meitlar rauðglóandi stálið. Að því loknu leggst mannvinurinn og þús- undþjalasmiðurinn í vélaviðgerðir og ferst það vel úr hendi sem ann- að, en lífsleiðinn drýpur af honum sem fyrr. Enda er þessi þungbúni hlunkur með sitt staðnaða hippa- yfirbragð enginn annar en John Rambo (Stallone). Gamla eins- mannsherdeildin enn á vappi í frumskógum Austur-Indlandsskag- ans eftir að við skildum við hann í Rambo 3, fyrir 20 árum. Býr í bát við fljótsbakka, Taílandsmegin við landamæri Myanmar, sem kvik- myndagerðarmennirnir kalla sínu gamla nafni, Burma. Reikna sjálf- sagt með að sauðsvartur almúginn kveiki frekar á því og tengi innan- landsátökunum sem geisað hafa í stríðshrjáðu landinu svo lengi sem elstu menn muna. Skyndilega er friðurinn úti í þess- ari huggulegu einkaparadís, það birtast á árbakkanum mélkisulegir friðarsinnar frá kristilegunm söfn- uði í Kólóradó og biðja bátseigand- ann að ferja sig móti straumnum til Burma. Þar ríkir sem fyrr óöld borgarastyrjaldar, Bandaríkja- mennirnir eru með mat og meðöl í farangrinum. Rambó bregst illa við uns Sara (Benz), kvenmaðurinn í hópnum telur karli hughvarf. Hann skilar af sér hópnum handan landa- mæranna og heldur til baka. Nokkru síðar kemur annar kirkj- unnar þjónn á fund Rambós og grátbænir hann að flytja flokk málaliða yfir í nágrannalandið, þeir eiga að gera tilraun til að bjarga hjálparstarfsmönnunum sem eru lentir í fangabúðum hermanna stjórnarinnar. Þunglyndisdrunginn víkur fyrir gömlum réttlætishugsjónum og manndrápseðlið er ekki langt und- an, hefur blundað í hárbandsp- rýddri hetjunni sem drepur tífalt á við hvern málaliða þegar allar flóð- gáttir ofbeldis og djöfulskapar opn- ast í frumskóginum. Stallone er takmarkaður leikari en var liðtæk- ur leikstjóri átakaatriða, en í vítinu við landamærin missir hann mikið til stjórn á atburðarásinni. Svo er að sjá sem allir séu að stúta öllum, erfitt að greina í sundur vini frá óvinum á meðan líkin hrannast upp eins og þarabunkar í landsynningi. Þetta er ójafn leikur, Rambó og tæpur tugur málaliða þurfa að kljást við óvígan her trylltra, þung- vopnaðra stríðsmanna til að frelsa fangana, en það þarf ekki að spyrja að leikslokum. Stallone reynir sem fyrr að plástra einfaldan friðarboðskap á aftökurnar en það tekur hann eng- inn alvarlega nema ef vera skyldi höfundurinn sjálfur. Rambo er framlenging á blóðidrifnum hetjuóð drápsmaskínunnar, í rauninni hefur ekkert breyst á 20 árum í þeirri ýktu ofbeldisveröld annað en þung- lamaleg aukakíló. Myndin er hvorki verri né betri en obbinn af átaka- myndum samtímans og vekur engar vangaveltur aðrar en þær; Hvers vegna beið Stallone í 20 ár með að koma framlengingarsnúrunni í sam- band? Hvað sem því líður þá bendir lokakaflinn eindregið til þess að John Rambo standi ekki í frekari stríðsrekstri, hvort sem bíógestir líta á það sem sorgartíðindi eða gleðifrétt. Góði dátinn Rambó Sæbjörn Valdimarsson KVIKMYND Laugarásbíó, Háskólabíó, Borgarbíó Akureyri. Leikstjóri: Sylvester Stallone. Aðalleik- arar: Sylvester Stallone, Julie Benz, Paul Schulze, Matthew Marsden, Graham McTavish. 95 mín. Bandaríkin 2008. Rambo bbmnn Hárbandsprýdda hetjan „Drepur tífalt á við hvern málaliða þegar allar flóðgáttir ofbeldis og djöfulskapar opnast í frumskóginum.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.