Morgunblaðið - 17.02.2008, Síða 4

Morgunblaðið - 17.02.2008, Síða 4
4 B SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Verksvið og ábyrgð Rafveitustjóri ber ábyrgð á uppbyggingu, endur- nýjun og rekstri rafdreifikerfis álversins, bæði háspennu- og miðspennukerfis, auk afriðlakerfis og tilheyrandi hjálpar- og stjórnbúnaði. Hann er faglegur umsagnaraðili um ýmislegt er snertir lágspennuveitu álversins. Rafveitustjóri sér um samskipti við raforkufyrirtæki og Landsnet, birgja, ráðgjafa og verktaka, auk þess að vera ábyrgðarmaður veitunnar gagnvart opinbrum aðilum. Hann ber ábyrgð á að þekking og kunnátta til daglegs reksturs dreifikerfisins sé til staðar hjá fyrirtækinu, svo og viðbúnaðaráætlun til að bregðast við rekstrartruflunum, bæði í aðveitu og dreifikerfi Norðuráls. Hvaða kröfur gerum við? Við leitum að rafmagnsverkfræðingi eða tækni- fræðingi með nokkurra ára starfsreynslu, helst í rekstrarumhverfi orkuveitna. Rafiðnfræðingur með staðgóða þekkingu á rekstri sambærilegra kerfa kemur einnig til greina. Aðrar hæfniskröfur ● Metnaður ● Góð samskiptahæfni ● Hæfni til að kenna, leiðbeina og þjálfa ● Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hóp ● Góð enskukunnátta, bæði á töluðu og rituðu máli Rafveitustjóri tilheyrir verkfræðideild Norðuráls og heyrir starfið undir framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs. Nánari upplýsingar veita Óskar Jónsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs og Rakel Heiðmarsdóttir, framkvæmdastjóri stafsmannasviðs, í síma 430 1000. Hvernig sækir þú um? Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir 10. mars n.k. Þú getur sótt um á vef fyrirtækisins, www.nordural.is, sent umsókn þína á netfangið umsokn@nordural.is eða póstlagt umsóknina merkta: Rafveitustjóri. Jafnrétti Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla og kvenna til starfa hjá Norðuráli. Trúnaður Við förum með umsókn þína sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað. Rafmagnsverkfræðingar - Rafmagnstæknifræðingar Rafveitustjóri óskast til starfa hjá Norðuráli á Grundartanga Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is Norðurál er eftirsóttur vinnustaður. Starfsmenn eru á fimmta hundrað talsins, verkefnin margvísleg og störfin fjölþætt. Hjá fyrirtækinu starfa m.a. verkfræðingar, tæknifræðingar, viðskiptafræðingar, sálfræðingar, efnafræðingar, eðlisfræðingar, líffræðingar, tölvunarfræðingar, rafeindavirkjar, rafvirkjar, vélvirkjar, vélstjórar & rafsuðumenn, auk ófaglærða starfsmanna sem öðlast dýrmæta sérhæfingu við störf sín og nám hjá fyrirtækinu. Menntasvið Laus störf: ● Skólaliði í 80% starf frá 1. mars. ● Sérkennari/kennari, þroskaþjálfi eða atferlisþjálfi til að vinna með nemanda með sérþarfir. Upplýsingar veita Sigurlaug S. Svavarsdóttir aðs- toðarskólastjóri (netfang: sigurlaugs@hamraskoli.is, sími: 664 8201) og Yngvi Hagalínsson skólastjóri (netfang: yngvih@hamraskoli.is, sími 664 8200). Hamraskóli Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í. Naglafræðingur Naglastofa á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir naglafræðingi til starfa. Umsóknir sendist á box@mbl.is merktar ,,S-21220”. Matreiðslumaður karl eða kona Við viljum ráða ungan og ferskan fagmann til starfa. Leitum að skipulögðum, öflugum og metnaðarfullum ungum fagmanni sem á auðvelt með að stjórna fólki og hefur útrásarþörf fyrir sköpunargáfu sína og metnað fyrir nýungum. Góð laun í boði fyrir réttann aðila. Áhugasamir sendi umsóknir sínar á box@mbl.is merkt: ,,M - 21215”. Laust embætti héraðsdómara Embætti héraðsdómara, sem dóms- og kirkju- málaráðherra veitir, er laust til umsóknar. Dómarinn mun eiga fast sæti við héraðsdóm Reykjaness, sbr. 1. mgr. 15. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998. Embættið er veitt frá og með 29. apríl 2008. Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðherra, Skuggasundi 3, 150 Reykjavík, eigi síðar en 3. mars nk. Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 12. febrúar 2008. Laus er staða aðstoðar- hjúkrunarstjóra á lungnasviði á Reykjalundi. Starfshlutfall er 80%. Lungnaendurhæfing er meðferðarúrræði fyrir fólk með skerðingu af völdum lang- vinnra lungnasjúkdóma s.s. langvinnrar lungateppu, astma og bandvefsjúkdóma í lungum. Endurhæfing byggist á samvinnu margra fagstétta og er sniðin að þörfum hvers einstaklings. Markmiðið er að stuðla að auknum lífsgæðum og aðlögun fólks sjúkdómi sínum með því að bæta líkamlega og félagslega færni og andlega líðan. Hjúkrunarfræðingar á Reykjalundi eru ráðnir á allar vaktir, en aðallega er um að ræða morgunvaktir og kvöldvaktir. Skipulagsform hjúkrunar á Reykjalundi er einstaklingshæfð hjúkrun, sem felst í virkri meðferðarvinnu, fræðslu og þátttöku í teymisstarfi. Hjúkrunarskráning er á tölvutæku formi og byggð á NANDA og NIC, samkvæmt skráningarhandbók Landlæknisembættisins. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins, en nánari útfærsla á starfskjörum er samkvæmt stofnanasamningi Reykjalundar og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Upplýsingar um starfið veita Lára M. Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri eða Jónína Sigurgeirsdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 585 2000. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir með tölvupósti: laras@reykjalundur.is eða jonina@reykjalundur.is Umsóknarfrestur er til 29. febrúar 2008 Atvinnuauglýsingar sími 569 1100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.