Morgunblaðið - 03.03.2008, Qupperneq 35
þeim nýju. Það hafa verið byggðar
blokkir á undanförnum árum þar
sem eru tugir íbúða með á annað
hundrað ofnum, sameiginlegt hita-
kerfi í öllu húsinu. Ef einhverju
þarf að breyta í einni íbúð verður að
loka fyrir allt kerfið. Ef einn íbúð-
areigandi vill endurbyggja eldhúsið
eða baðið kemur það sama í ljós,
það verður að loka fyir heitt og kalt
vatn í allri blokkinni meðan vatns-
lögnum er breytt. Þó að þetta sé
miklu minni sambýli, segjum sex til
tíu íbúðir, getur þetta samt verið til
mikilla óþæginda. Þarf þetta að
vera svona, er ekki hægt að hafa
þetta eins og með rafmagnið, að
loka fyrir í hveri íbúð? Það er svo
sannarlega hægt að hafa þetta
þannig en það er yfirleitt ekki gert.
Enn er verið að byggja sambýlishús
með þessu gamla lagi, eitt sameig-
inlegt hitakerfi í fjölmörgum íbúð-
um, það kerfi er ekki hægt að stilla
nema komast í allar íbúðirnar í
einu, það er aðeins hægt að loka
fyrir heitt og kalt vatn í inntaks-
klefum. Og hver er ástæðan?
Ástæðan er sú að þannig var þetta
hannað í gær og fyrradag, í fyrra
og fyrir tugum ára, þannig er það
hannað í dag og verður líklega á
morgun. Þarna er tregðulögmálið í
gangi eða eigum við að segja hugs-
analeti. Það væri vel hægt að hanna
lagnakerfi í fjölbýlishús þannig að
hægt væri að loka fyrir öll lagna-
kerfi innan hverrar íbúðar og
reyndar má túlka bygging-
arreglugerðina frá 1998 þannig að
þetta sé skylda en því miður er hún
ekki nógu afgerandi í orðalagi.
Reyndar virðist vera það ljós í
myrkrinu að þar sem gólfhitakerfi
eru hönnuð og lögð í fjölbýlishús þá
sé þetta nánast sjálfgefið; að hægt
sé að loka fyrir gólfhitakerfi hverr-
ar íbúðar og stilla gólfhitakerifð
sem sjálfstætt kerfi án þess að það
hafi áhrif í öðrum íbúðum. Þá þarf
að fylgja því eftir að þannig sé það
einnig með heitt og kalt neysluvatn,
það á einnig að vera hægt að loka
fyir þau lagnakerfi í heild á einum
stað í hverri íbúð. Lílega má segja
hönnuðum það til afsökunar að þeir
séu oft undir hælnum á húsbyggj-
andanum sem telur oft, án þess að
hafa skoðað það nánar, að það
hleypi upp kostaði að gera hlutina
öðruvísi í dag en gert hefur verið
áður. Ef menn settust niður og
skoðuðu málið kæmust þeir líklega
að þeirri niðurstöðu að svo þarf alls
ekki að vera. En það eru einnig til
hönnuðir sem hafa tekið upp þá
reglu að hanna lagnakerfi þannig að
hægt sé að loka fyrir lagnakerfi í
hverri íbúð, en þetta ætti að verða
regla allra. Og kaupendur nýrra
íbúða, þið eigið að vera hnýsnari og
kröfuharðari. Spyrjið fleiri spurn-
inga eins og þessarar; er hægt að
loka fyir öll lagnakerfi inni í íbúð-
inni? Það er mikill plús, það gagn-
stæða mjög neikvætt.
Höfundur er pípulagningameistari
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 F 35
Sími 575 8500 - fax 575 8505Síðumúla 11, 2. hæð • 108 Reykjavík
Sverrir
Kristjánsson
lögg. fast.sali
Þór
Þorgeirsson
lögg. fast.sali
Brynjar
Fransson
lögg. fast.sali
Brynjar
Baldursson
sölumaður
Sverrir B.
Pálmason
viðskiptalögfr.
Ingi Björn
Albertsson
Sölumaður
Pálmi
Almarsson
lögg. fast.saliFasteignamiðlun var stofnsett árið 1979 af Sverri Kristjánssyni
www.fasteignamidlun.is Opið mánudaga til fimmtudaga 09:00-18:00, föstudaga 09:00-16:30
Sérhæðir
AUSTURBRÚN - SÉRHÆÐ
123,20 fm 5 herbergja íbúð á 1. hæð, neðri sér-
hæð með sérinngangi í þríbýlishúsi ásamt 27,30
fm bílskúr eða samtals 150,50 fm Íbúðin skiptist
m.a. í rúmgóða stofu og borðstofu með útgangi út
á suðursvalir, þrjú svefnherbergi, rúmgott eld-
hús, baðherbergi o.fl. Búið er að endurnýja allar
miðstöðvarlagnir að miðstöðvarofnum. Einnig er
búið að endurnýja járn á þaki og rennur. Verð
36,0 millj.
NESVEGUR - BÍLSKÚR
Falleg og töluvert endurnýjuð neðri sérhæð í þrí-
býlishúsi við Nesveg í Reykjavík. Eignin skiptist
þannig að hæðin er 107,5 fm, herbergi í kjallara
er 8,5 fm og bílskúr er 18 fm eða samtals 134 fm
Íbúðin skiptist í 3-4 herbergi, rúmgóða stofu með
suðursvölum út af og útsýni upp að Bessastöð-
um, eldhús með nýrri innréttingu að hluta og ný-
uppgert baðherbergi. Gólfefni eru flest nýleg og
húsið er steniklætt að utan. V. 45,5 m.
4ra herbergja
LJÓSHEIMAR - LAUS - LYFTUHÚS
Í einkasölu 3ja-4ra herb. 110 fm íbúð á 4. hæð í
lyftuhúsi með útsýni. Íbúðin skiptist m.a. í stofu
og borðstofu með útgangi út á vestursvalir, tvö
svefnherb., rúmgott eldhús, flísalagt baðherbergi
o.fl. Húsið er allt klætt að utan. Búið er að endur-
nýja dren- og skólplagnir hússins. Tvennar svalir.
Íbúðin er laus við kaupsamning. Þetta er mjög
góð staðsetning í barnvænu hverfi, stutt í alla
þjónustu, skóla og útivistarsvæði. Verð 25,9 millj.
HRÍSRIMI - ENDURNÝJUÐ
Falleg og töluvert endurnýjuð 3-4 herb. 95 fm
íbúð á 3.h. ( efstu ) í fjölbýli við Hrísrima í Grafar-
vogi. Íbúðin skiptist í 2-3 svefnherb með nýju
parketi á gólfi, flísalagt baðherb. með baðkari og
innréttingu, eldhús með nýjum flísum á gólfi
ásamt fallegri innréttingu, stofan er með nýju
parketi á gólfi og svölum út af og sérgeymsla í
kjallara. Hús nýlega tekið í gegn að utan og þak
yfirfarið. Stutt í alla þjónustu. Áhv. 8,4 m. V. 24,5
DALSEL - LAUS FLJÓTLEGA
Vorum að fá i einkasölu fallega og mikið endur-
nýjaða 109 fm, 4ra herb. íbúð á tveimur hæðum
ásamt stæði í bílgeymslu. Nýtt baðherbergi, nýr
stigi milli hæð, ný gólfefni og hurðir. Húsið er
klætt að utan. Íbúðin er laus fyrir jól. Áhv. 10,7
millj. lán frá Íbúðalánasjóði. Verð 24,9 millj.
3ja herbergja
RJÚPNASALIR - BÍLSKÚR
Falleg 3ja. herb. 95,6 fm íbúð á jarðhæð í litlu fjöl-
býli (byggt 2003) ásamt 30 fm bílskúr eða samtals
125,6 fm Sérinngangur er í íbúðina sem skiptist
annars í flísalagða forstofu, tölvuherbergi, 2
svefnherb. flísalagt þvottaherb., rúmgóða parket-
lagða stofu með útgang út á stóra skjólgóða ver-
önd, eldhús með fallegri innréttingu og góðum
tækjum og flísalagt baðherb. með baðkari. Sér-
geymsla á hæðinni og bílskúr við hliðina á húsi.
Áhv. 13,5 m. V. 30,7 m.
SKIPASUND
Falleg og töluvert endurnýjuð 3ja herb. 68,4 fm
íbúð í tvíbýlishúsi. Íbúðin er lítið niðurgrafin kjall-
araíbúð sem skiptist í rúmgott hol með plastpark-
eti á gólfi, nýuppgert flísalagt baðherb. með bað-
kari og innréttingu, 2 herb. með plastparketi á
gólfi, eldhús með fallegri innréttingu og tækjum
og stofu með plastparketi á gólfi. Á hæðinni eru
2 sérgeymslur og sam. þvottaherbergi. Áhv. 6,0
m. V. 21,0 m.
LAUGATEIGUR
Í einkasölu mikið endurnýjuð 2ja herbergja 84 fm
kjallaraíbúð í tvíbýlishúsi með sérinngangi á
þessum vinsæla stað í nágrenni Laugardalsins.
Íbúðin skiptist m.a. í anddyri, hol, stofu með út-
gangi út á hellulagða vesturverönd, svefnherb.,
eldhús með nýrri viðarinnréttingu, endurnýjað
baðherbergi o.fl. Parket og flísar á gólfum. Þetta
er mjög góð staðsetning í barnvænu hverfi, stutt í
alla þjónustu, skóla og útivistarsvæði. Verð 22,9
millj.
KAMBASEL - LAUS
Í einkasölu 2ja herb 67 fm endaíbúð á 2. hæð sem
skiptist í m.a. stofu með útgangi út á suðvestur-
svalir, hjónaherbergi, eldhús með nýrri innrétt-
ingu, baðherbergi o.fl. Þvottaherbergi í íbúð.
Íbúðin er laus. Þetta er mjög góð staðsetning í
barnvænu hverfi, stutt í alla þjónustu, skóla og
útivistarsvæði. Verð 16,7 millj.
LANGHOLTSVEGUR - LAUS
Vorum að fá í einkasölu mjög bjarta og mikið
endurnýjaða 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýl-
ishúsi, með sérinngangi frá svalagangi. Eldhús er
nýtt svo og baðherbergi. Parket og flísar á gólf-
um. Mjög rúmgóðar suðursvalir og glæsilegt út-
sýni. Íbúðin er ný máluð og til afhendingar við
kaupsamning. Verð 16,7 millj.
Nýbyggingar
TRÖLLAKÓR - KÓP.
Til sölu 3ja og 4ra herb íbúðir í nýju 21 íbúða
lyftuhúsi við Tröllakór í Kópavogi ásamt 21 stæða
bílgeymsluhúsi. Afhending í mars 2008. Íbúðirnar
afhendast fullbúnar að innan án gólfefna en það
verða flísar á bað- og þvottaherbergi. Verð á 3ja
herb. 102 fm íbúðum frá kr. 25,0 millj. ásamt stæði
í bílgeymslu og 4ra herb. 136 fm íbúðum frá kr.
32,9 millj. ásamt stæði í bílgeymslu. Byggingarað-
ili er byggingarfélagið Gustur ehf.
Atvinnuhúsnæði
SMIÐJUVEGUR - KÓP.
Gott 745,7 fm iðnaðar- og atvinnuhúsnæði á góð-
um stað við Smiðjuveg. Eignin skiptist í 3 eignar-
hluta. Miklir möguleikar, gott verð.
STÓRHÖFÐI
Til leigu 876 fm gott iðnaðar og lagerhúsnæði við
Stórhöfða. Góð lofthæð, innkeyrsludyr og ca 500
fm útsvæði. Laust við samning.
Atvinnuhúsnæði til
Atvinnuhúsn. til leigu
Lóðir
BRATTAHLÍÐ - MOSFELLSBÆ Höfum
fengið til sölu 945 fm einbýlishúsalóð í grónu
hverfi. Lóðin er í enda á lokuðum botnlanga
og má byggja á henni 250 fm einbýlishús á
einni hæð með bílskúr. Verð miðast við að
gatnagerðagjöld séu greidd en ekki bygg-
ingaréttargjald. Nánari upplýsingar á skrif-
stofu Fasteignamiðlunar. Verð 20 millj.
TIL LEIGU - TIL LEIGU
213 fm skrifstofuhúsnæði í Síðumúla. Laust.
152 fm skrifstofuhúsnæði á Viðarhöfða.
Laust
1.173 fm lager og iðnaðarhúsnæði við Stór-
höfða. Laust.
303 fm skrifstofuhæð í Skeifunni. Laust.
94 fm skrifstofuhúsnæði við Klapparstíg.
Laust.
680 fm skrifstofu- lager- og iðnaðarhúsnæði í
Skeifunni. Losnar fljótlega.
550 fm skrifstofuhúsnæði við Skógarhlíð.
Laust
143 fm skrifstofuhúsnæði við Hlíðasmára í
Kóp. Laust.
LAUTASMÁRI
Falleg og velskipulögð 3ja herb. 84 fm íbúð á 2.h. í
fjórbýli við Lautasmára í Kópavogi. Íbúðin skiptist
í flísalagt anddyri með skápum, rúmgóða parket-
lagða stofu með suðursvölum út af, eldhús með
góðri innréttingu og tækjum, þvottaherb./búr, tvö
parketlögð herbergi og flísalagt baðherb. með
baðkari og innréttingu. Sérgeymsla í kjallara
V. 24,2 m.
2ja herbergja
ÞÓRÐARSVEIGUR - LYFTUHÚS
2ja herb. 51 fm íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi. Íbúðin
skiptist m.a. í anddyri, stofu með útgangi út á rúm-
góðar vestursvalir, svefnherbergi, eldhús, flísa-
lagt baðherbergið o.fl. Verð 17,8 millj.
LAUGAVEGUR - LAUS
Í einkasölu 2ja herbergja 45,0 fm íbúð á 1. hæð
(miðhæð) í þríbýlishúsi ásamt 9,0 fm geymslu í
geymsluskúr eða samtals 54,0 fm Íbúðin skiptist
m.a. í stofu, svefnherb., eldhús, baðherb. o.fl.
Íbúðin þarfnast lagfæringar að innan. Íbúðin er
laus. Verð 13,9 millj.
FJÖLDI ANNARRA EIGNA Á SKRÁ,
SJÁ HEIMASÍÐU OKKAR,
www.fasteignamidlun.is