Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.2008, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.2008, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2008 6 LesbókKVIKMYNDIR Þ ýsk kvikmyndagerð hefur á und- anförnum árum beint sjónum að hinni stormasömu sögu Þýskalands á 20. öld og tekist þar á við hvert tabúið á fætur öðru. Hér er skemmst að minnast Fallsins (Der Untergang), kvikmyndar um síðustu daga Adolfs Hitlers og Þriðja ríkisins sem vakti at- hygli fyrir að bregða upp þrívíðri mynd af Hit- ler í stað þess að draga upp hefðbundnari mynd af honum sem einhliða skrímsli. Myndin fór sig- urför um heiminn og má kannski segja að hún hafi rutt veginn á alþjóðlegum markaði fyrir metnaðarfullar þýskar sögulegar kvikmyndir. Líf annarra (Das Leben der Anderen) fylgdi að mörgu leyti í fótspor Fallsins, en sú mynd tekst á við njósnir og kúgun Stasi í Þýskalandi austan járntjaldsins. Þó svo að sitt sýnist hverjum um framsetningu myndanna á sögulegum veru- leika, sem enn er hápólitískur í dag, einkennast báðar af tilraunum til endurmats sem reynir að takast á við þjóðartabú án undanbragða. Der Baader Meinhof Komplex (Baader Mein- hof-samtökin) í leikstjórn Uli Edel er nýjasta viðleitnin til þess að taka fyrir sársaukafullt tímabil í sögu þýsku þjóðarinnar í dramatískri kvikmynd. Myndin hefur þegar verið frumsýnd í Þýskalandi og fleiri löndum og er á dagskrá Kvikmyndahátíðarinnar í London (London Film Festival) sem stendur nú yfir. Eins og nafn myndarinnar gefur til kynna fjallar hún um þýsku hryðjuverkasamtökin RAF (Rote Ar- mee Fraktion), hóp ungs fólks sem beitti hryðjuverkum, mannránum og morðum í bar- áttu gegn því sem þau álitu vera upphafið að nýju fasísku tímabili í vesturþýsku samfélagi sem einkenndist af auðvaldshyggju, valdníðslu og stuðningi við heimsvaldastefnu Bandaríkj- anna. Í fjölmiðlum hlutu samtökin heitið Baader Meinhof-hópurinn, en í þeirri nafngift var vísað til tveggja leiðtoga hópsins, blaðamannsins Ul- riku Meinhof og róttæklingsins Andreas Baa- der sem var leiðandi í hópnum ásamt unnustu sinni Gudrun Ensslin. Kvikmyndin er byggð á samnefndri bók um samtökin sem kom út árið 1985, skrifuð af Stef- an Aust, fyrrverandi ritstjóra tímaritsins Der Spiegel. Bók Aust vakti athygli á sínum tíma fyrir það að tefla hreinskiptinni sýn á ofbeld- isverk Baader Meinhof gegn tilhneigingu til rómantískrar upphafningar á samtökunum sem hreyfingar ungs fólks í anda 68 kynslóðarinnar. Í kvikmyndinni er þeirri nálgunarleið bók- til þess að heimsækja, skotinn til bana í aðgerð- unum. Í kjölfarið voru RAF-samtökin formlega stofnuð og hlutu félagar þeirra m.a. þjálfun hjá palestínsku Fatah-samtökunum í Jórdaníu. Kvikmyndin rekur feril samtakanna frá stofnun og lýsir m.a. því hvernig Ulrika Meinhof, tveggja barna móðir á vel stæðu heimili, ákvað að grípa til skotvopna auk pennans og ganga til liðs við RAF. Umfjöllun myndarinnar lýkur „þýska haustið“ árið 1977, þegar rán samtak- anna á farþegaflugvél Lufthansa átti sér stað og næsta kynslóð Baader Meinhof var að taka við en samtökin störfuðu í ýmsum myndum allt fram til ársins 1998. Sem lýsing á ferli Baader Meinhof er kvik- myndin gríðarlega kraftmikil, en þar tekst að draga upp mynd af þeim stálhörðu öflum sem tókust á í þýsku samfélagi: Kaldrifjað kerfisvald sem mætt var með trylltu og blóðugu andófi. Baader Meinhof-samtökin mun vera dýrasta kvikmynd sem gerð hefur verið í Þýskalandi og ber hún þess merki að stefna á sömu mið hvað alþjóðlega dreifingu varðar og Fallið og Líf ann- arra. Kvikmyndin nálgast þó á köflum þá gryfju að upphefja hina ungu, svölu og sexí uppreisn- arseggi enda er myndin talsvert útlitsmeðvituð og greinilega ætlað að verða stórmynd á þýskan mælikvarða. Myndin hefur verið gagnrýnd fyrir það að vera ofbeldisfull, en ekkert er dregið undan í framsetningu á sprengjutilræðum og byssuárásum RAF, en alls féllu tugir borgara, hermanna og lögreglumanna fyrir hendi sam- takanna, sem einnig misstu marga úr sínum röðum. Gagnrýnin á ofbeldi í myndinni kemur reyndar á óvart, þar sem gagnrýninn fókus myndarinnar beinist fyrst og fremst að ofbeld- isverkum Baader Meinhof. En að sama skapi er leitast við að sýna hvað knúði meðlimi samtak- anna áfram og hvaða hugsjónir leiddu þau að þeirri niðurstöðu að starfsemi þeirra kallaði á ofbeldisfullar andófsaðgerðir. heida@mbl.is Samfélag í stríði við sjálft sig MYNDIR VIKUNNAR HEIÐA JÓHANNSDÓTTIR Der Baader Meinhof Komplex | Uli Edel Kraftmikil Sem lýsing á ferli Baader Meinhof er kvikmyndin gríðarlega kraftmikil arinnar fylgt að draga upp skýra og óvægna mynd af starfsemi Baader Meinhof-samtakanna án þess þó að láta fordæmingartón eða varn- arræðu drottna yfir umfjölluninni. Samtökin létu fyrst til sín taka árið 1968, en þá stóðu þau að íkveikju í stórverslun í mót- mælaskyni við harkaleg viðbrögð lögreglu við mótmælum námsmanna gegn opinberri heim- sókn shahsins í Persíu. Lögregla réðst að mót- mælendum með ofbeldi og skaut námsmann til bana. Baader og Ensslin voru dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir íkveikjuna en létu sig hverfa meðan á málaferlunum stóð og mynduðu neð- anjarðarhreyfingu. Þegar Baader var síðar handtekinn var hann frelsaður úr haldi lögreglu með hjálp Ulriku Meinhof og var starfsmaður útgáfufélags, sem Baader fékk brottfararleyfi U m daginn var ég hvött til að skrifa Fart- +Hot Tub í leitargluggann á YouTube. Snoturt fólk birtist ofan í heitum potti, brosandi þangað til brún leðja flæddi yfir vatnsflötinn svo þrennt flúði öskrandi en eftir sat kona hnípin í eigin saur. Hún er ekki það pínlegasta á netinu. Sjálf fæ ég iðrakveisu við að sjá Ísland til sölu á uppboðssíðunni Ebay- .com. Loftslagið er gott og Íslandshestarnir eru á sínum stað, samkvæmt glaðhlakkalegum selj- andanum, en efnahagurinn ergilega ótraustur. Það er vitnað í hann í einni af fjölmörgum grein- um um Ísland á fréttasíðu Dagens Nyheter, til dæmis skrifar greinarhöfundur nokkur: Hvern- ig gat nútímalegt land eins og Ísland hafnað í aðstæðum þar sem þjóðargjaldþrot er í raun og veru mögulegt? Svarið felst í þjóðernishyggju, pólitísku getuleysi og græðgi. Svona er tónninn í fjölmiðlamönnum heims- ins, landkynningin í boði alþjóðasamfélagsins með Breta í fararbroddi. Iðrin ólga við að lesa um rænuleysi landans svo maður skimar eftir blórabögglum. Áfellist fjárfesta, fasteigna- braskara og lagasetningar í fjármálageiranum í Bandaríkjunum jafnt sem geðveikina í Bush að þurrausa bandaríska efnahagskerfið svoleiðis með innrásinni í Írak að Bin Laden dansar gleðidans. Ýmislegt rifjast upp við að horfa á myndbrot með bandarískum þjóðfélagsrýnum á YouTube en þó er nærri lagi að rifja upp viðtöl við íslenska útrásarmenn og pólitíkusa. Þau vantar bara átakanlega á netið, samanber spjallþáttinn sem systir mín hefur dálæti á: Halldór Ásgrímsson réttlætir innrás í Írak með þeim rökum að konum sé nauðgað þar en Ingi- björg Sólrún segir: Konum er líka nauðgað í Dúfnafelli. Ég segi frá þessu í nútíð því á YouTube er allt í nútíð. Þar er ekki til þátíð. Allt gerist núna, aft- ur og aftur. Gallinn er bara sá að samtalið vant- ar á YouTube svo það átti sér ekki stað. Og kannski ýkir systir mín. Kannski sagði Ingi- björg að konum væri líka nauðgað á Íslandi. Þetta með Dúfnafell er bara íslensk fyndni. Eins og svo margt annað. Sem gerðist bara. Við höfum látið svo margt gerast. Í lömuðu lýðræði velmekta skiptum við meðvitundinni út fyrir þægindi; við belgdum okkur út af kampavíni og hamborgurum svo hvergi rúmaðist arða af ábyrgðarkennd, við hlóðum hærri yfirdrætti en hús og klóruðum stjórnmálamönnum bak við eyrun, líka eftir að misháar raddir vöruðu við heimskreppu. Og hvað næst? Hingað til höfum við sett traust okkar á bandaríska ráðamenn. Ef Sarah Palin hefði náð tangarhaldi á heiminum á undan kreppunni værum við kannski búin að kvitta upp á innrás í land þar sem fóstureyð- ingar eru leyfðar og byrjuð að þjóðnýta konur eins og í skáldsögu Margaret Atwood, The Handmaid’s Tale, þegar hugsunarleysið hefur fært íhaldssömum körlum völdin í Bandaríkj- unum. Það borgar sig að hugsa – en við kusum tapið. Vonandi sjá lesendur fréttamiðlanna okkur eins og ég sá konuna með magakveisuna. Hugsa: Vitleysa að striplast með skitu í kast- ljósinu en henni er ábyggilega eitthvað til lista lagt, hún gæti verið sniðug, áhugaverð og góð, þrátt fyrir þetta, þessi þjóð. audur@jonsdott- ir.com Við kusum tap NETIÐ Auður Jónsdóttir Engin fortíð Á YouTube er allt í nútíð. Þar er ekki til þátíð. Allt gerist núna, aftur og aftur. Í lömuðu lýðræði velmekta skiptum við meðvitundinni út fyrir þægindi V íetnammyndir eru líklega sú undirgrein bandarískra stríðsmynda sem maður hélt að væri búið að leggja á hilluna. En þá stígur gamla kempan Werner Herzog fram með Rescue Dawn (Dögun), sannsögulega kvikmynd sem byggð er á reynslu bandaríska herflug- mannsins Dieters Denglers, en hann var skotinn niður yfir Laos í Víetnamstríðinu og tekinn til fanga. Vistin í fangabúðunum var hræðileg og að lokum skipulagði Dengler djarfan flótta. Í Rescue Dawn túlkar Christian Bale stríðsfangann Dengler sem er orðinn hrakinn og horaður þegar hann leggur á flótta um djúpan frumskóg þar sem óvinir eru á hverju strái. Þetta er glæsileg kvikmynd sem greinir sig skýrt frá bandarískum stríðsmyndum hvað raunsæislega og jarðbundna nálgun varðar, og sérstaklega eru samskipti Dieters við sam- fanga sína einlæg og laus við þá karlrembu sem oft vill loða við stríðsmyndir. Enginn leikstjóri kann betur en Herzog að fanga á myndrænan hátt manninn í baráttu við náttúruöflin, og þá ekki síst frumskóginn. Þess má geta að árið 1996 gerði Herzog heimildarmyndina Little Dieter Needs to Fly, en hún fjallaði um sama efni frá öðru sjónarhorni. Rescue Dawn er væntanleg til sýningar í íslenskum kvik- myndahúsum. Rescue Dawn | Werner Herzog Djúpt í frumskóginum A nna Boden og Ryan Fleck hafa sent frá sér nýja kvikmynd, sem nefnist einfaldlega Sugar (Sykur). Ástæða er til að fagna nýrri mynd frá þeim Boden og Fleck, en síð- asta kvikmyndaverkefni þeirra var hin frábæra Half Nelson (2006) með Ryan Gosling í aðalhlutverki sem fjallar um gagnfræðaskóla- kennara með eiturlyfjavanda. Sug- ar er hins vegar íþróttamynd og er einkar óhefðbundin sem slík. Þar má segja að formgerð íþrótta- myndarinnar verði tilefni hugleiðinga um menn- ingarlegan árekstur og hið sígilda minni um ameríska drauminn. Þar segir af Sugar, ungum pilti frá Dóminíska lýðveldinu sem hefur mikla hæfileika sem kastari í hafnabolta, og vinnur að því hörð- um höndum í þar til gerðum íþróttabúðum að komast til Bandaríkjanna á samning hjá hafnaboltaliði. Þegar draumurinn rætist tekur hins vegar við erfið menningarleg aðlögun í hinum annarlegu Miðvesturríkjum Bandaríkjanna og á Sugar erfitt með að festa rætur í hinu nýja um- hverfi þrátt fyrir að mikið sé í húfi. Sugar er sýnd á London Film Festival um þessar mundir. Sugar | Anna Boden og Ryan Fleck Rifinn upp með rótum

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.