Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.2008, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.2008, Blaðsíða 13
hans átti mikilvægan þátt í að móta finnska þjóðernisvitund. Sumt í tónlist hans mætti kalla rembing. Það mætti líka kalla það djúpa þjóðernisást, allt eftir því hvaða smekk maður hefur. En ávallt er hún lífræn. Já, það má elska Sibelius eða hata hann. Kannski fer það fyrst og fremst eftir því hvernig tónlist hans er spiluð. Ég persónu- lega hef ekki haft smekk fyrir henni, en það breyttist á þessum tónleikum. Það gerðist eitthvað furðulegt á þeim. Hvað var það eiginlega? Jú, Sigrún var frábær. En ekki bara hún. Petri Sakari stjórnaði hljómsveitinni og það var auðheyrt að í tónlist Sibeliusar var hann á heimavelli. Fyrir utan fiðlukonsertinn voru á efnis- skránni tvær sinfóníur, nr. 1 og 3, og það var hreinasti unaður að hlusta á þær. Sak- ari vissi nákvæmlega hvað var að gerast undir yfirborðinu; hann vissi upp á hár hvernig tónlistin átti að hljóma; og honum tókst að miðla því til áheyrenda. Ekki aðeins voru allskonar blæbrigði óvanalega fallega mótuð, heldur voru þau svo þrungin merk- ingu, svo full af skáldskap að það var alveg einstakt. Stígandin var líka úthugsuð, en samt fyllilega eðlileg; spennan jókst með hverju augnablikinu, enda var heildarsvip- urinn tignarlegur og sterkur. Tæknilega séð spilaði hljómsveitin frábær- lega vel, hvort sem málm- eða tréblásarar voru í forgrunni, slagverk eða strengir. Þarna fékk hver rödd að njóta sín, en samt spilaði hljómsveitin eins og einn maður. Þetta var fullkomið þjóðfélag, fullkomið líf. Maður sá Sibelius í nýju ljósi; fyrir mér voru þessir tónleikar opinberun. Ég held að Jap- anarnir, sem áttu að fá að njóta leiks Sinfóníunnar innan skamms, missi af miklu. Þarna fékk hver rödd að njóta sín, en samt spilaði hljómsveitin eins og einn maður. Þetta var fullkomið þjóðfélag, fullkomið líf. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2008 lesbók 13GAGNRÝNI Í eftirmála þessarar sögu ítrekar Ármann Jakobsson að hér sé um skáldað verk að ræða þótt það sé grundvallað á sönnum at- burðum og raunverulegu fólki. Ármann tek- ur fram að tilgangur sögunnar sé þó ekki „að lýsa þeim veruleika, hvorki fólkinu né atburðunum“ heldur vill hann segja sögu sem hafi „almennt gildi“. Það er eðlilegt að maður velti fyrir sér hvaða gildi það séu helst sem sagan heldur fram. Líklega má sjá þau strax í titli bókarinnar og þeirri setningu sem finna má í verkinu (172) og höfð eru að yfirskrift þessarar ritrýni. Boð- skapurinn – að vonina sé best að flytja með sér hvar sem maður rekst í lífsins ólgusjó – á kannski brýnna erindi við íslenska les- endur nú en þegar höfundur vann að verk- inu. Þær raunverulegu aðalpersónur sem sag- an er grundvölluð á eru hjónin Theodóra og Skúli Thoroddsen. Frásögnin hefst 1908 þegar Theodóra hefur fylgt manni sínum til Kaupmannahafnar þar sem hann er í sendi- nefnd ásamt Hannesi Hafstein ráðherra og fleiri íslenskum stjórnmálamönnum í þeim erindagjörðum að semja við Danakóng um framtíð- arskipan á sambandi Ís- lands og Danmerkur. Hér er um að ræða hið svokall- aða millilandafrumvarp sem var heitasta málið í ís- lenskum stjórnmálum þetta ár og varð Hannesi Hafsteini að falli í næstu kosningum. Skúli Thorodd- sen sem var eini nefnd- armaðurinn sem ekki studdi frumvarpið, á þeim forsendum að ekki væri kveðið á um að Ísland væri fullveðja ríki sem stefndi að fullum aðskilnaði frá Danmörku, varð hins vegar þjóðhetja – a.m.k. um stund. Þetta eru þeir atburðir sem frásögnin snýst um og þótt sjónarhorn sögunnar sé að mestu leyti bundið við Theodóru þokar hún nokkuð sem aðalpersóna eftir því sem líður á frásögnina. Lýsing Ármanns á Theodóru er í flesta staði áhugaverð; lesandinn kynn- ist líflegri, skemmtilegri og ákveðinni konu sem lætur sig almenningsálitið litlu varða, sérstaklega þegar kemur að uppeldis- aðferðum barna, og hefur sterkar skoðanir á pólitík. Sjálf hefur hún fætt 13 börn í heim- inn og þau 12 sem eftir lifa skilur hún eftir á Íslandi í umsjá Bauju, ráðskonu sinnar og barnfóstru, þegar hún fylgir Skúla til Kaup- mannahafnar. Þetta er fyrsta utanlandsferð Theodóru en helsta ástæða ferðar hennar er sú að Skúli er veikur og þarf, að hennar mati, meira á henni að halda en börnin. Tvær meginstoðir bera frásögnina uppi: persónulýsing Theodóru og hinir áður nefndu pólitísku atburðir. Eftir því sem líð- ur á verkið tekur hið síðarnefnda meira rými og við það verður einnig breyting á frásagnarhættinum á þann veg að stíllinn verður meira í ætt við ritgerðastíl, nokkuð á kostnað skáldskaparstílsins. Það þarf kannski ekki undra þegar maður hefur í huga bakgrunn höfundar sem er þekktur fræðimaður á sviði íslenskra bókmennta. Ár- mann Jakobsson er öruggur penni og frá- sögnin alltaf fumlaus og efnistök góð. Hann fer fremur hefðbundna leið í frásagn- araðferð, er hvorki að leika sér með form né stíl, en miðlar heilsteyptri frásögn sem held- ur lesandanum allt til loka. Vonarstræti er fróðlegt og læsilegt verk sem ætti að getað höfðað til margra, kannski ekki síst eldri lesenda. Þeir sem yngri eru fá þó hér ágætt tækifæri á að fræðast um merkilega tíma í Íslandssögunni og e.t.v. vekur verkið einnig áhuga á kvæðum og þulum Theodóru því þótt skáldskapur hennar sé ekki hluti af efnivið bókarinnar er að sjálfsögðu til hans vísað. Þegar barnauppeldi var lokið og Theodóra orðin ekkja tók við nýtt tímabil í lífi þessarar merkilegu konu og afraksturinn þekkja unnendur íslenskra bókmennta ef- laust betur en það tímabil sem Vonarstræti lýsir. Ármann Jakobsson Vonarstræti flytur maður með sér SKÁLDSAGA Ármann Jakobsson. JPV útgáfa 2008, 192 bls. | Vonarstræti BÆKUR SOFFÍA AUÐUR BIRGISDÓTTIR LEIKLIST Makbeð Þjóðleikhús, Smíðaverkstæðið „Þess vegna gríp ég ekki hvað er verið að sýna mér með ýmsum sniðugum lausnum í anda bíósins og öllum þessum morðum og blóði. . . .“ María Kristjánsdóttir. Janis 27 Íslenska óperan „Texti Ólafs Hauks er skemmtilegur, frjáls- legur og óþvingaður. Þó vantaði nokkuð á dramatíska fram- vindu í verkinu. “ Ingibjörg Þórisdóttir. Fólkið í blokkinni Borgarleikhúsið „Leikendur eru að vísu misgóðir og það er ekki fyrr en Halldóra Geirharðsdóttir fær stærra hlutverk í framvindunni sem erlenda farand- verkakonan Valery að sýningin fer á skrið. “ María Kristjánsdóttir. KVIKMYNDIR Reykjavík-Rotterdam bbbnn Sýnd í Háskólabíó „Reykjavík-Rotterdam er kvikmynd sem er áferðarfalleg og snyrtileg. Henni tekst að skemmta áhorfendum á átakalausan hátt“ Anna Sveinbjarnardóttir. Nights in Rodanthe bbmnn Sýnd í Sambíóunum Álfabakka, Kringlunni „Útlit myndarinnar er í stíl við efnið. Rómantíkin á að svífa yfir vötnum. “ Anna Sveinbjarnardóttir. Létt í lund (Happy-Go-Lucky) bbbbn Sýnd í Sambíóunum Álfabakka og Kringl- unni „Sú aðferð Leighs að þróa persónur og sögu- þráð í gegnum spunavinnu með leikurum nýtur sín einkar vel í Happy-Go-Lucky og mikið mæðir þar á Sally Hawkins í hlutverki Poppy, . . .“ Heiða Jóhannsdóttir. Hamlet 2 bbbnn Sýnd í Háskólabíói „Það tekst að byggja upp ágætis stemningu í kringum leikgerðina, og útlitið og tónlistin koma skemmtilega út.“ Anna Sveinbjarnardóttir. MYNDLIST Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús ID LAB, samsýning bbbnn Sýningin stendur til 11. janúar. „Tengsl tísku, hönnunar og myndlistar er við- fangsefni sýningarinnar ID LAB, en nafnið getur útlagst sem rannsóknarstofa ímyndar.“ Ragna Sigurðardóttir. Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41 Haraldur Jónsson – Myrkurlampi bbbmn Sýningin stendur til 26. okt „Sýningin vísar til hins inni- lega og felur í sér líkamlega nánd. “ Þóra Þórisdóttir. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús Libia Castro og Ólafur Ólafsson – Allir gera það sem þeir geta bbbbn Sýningin stendur til 2. nóv. „Hér velta Libia og Ólafur fyrir sér hlutverki ein- staklingsins í samfélaginu, birtingarmyndum einstaklinga í fjölmiðlum, málefnum líðandi stundar og möguleikum listasafnsins á að vera hluti af þessu öllu. “ Ragna Sigurðardóttir Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Bragi Ásgeirsson – Yfirlitssýning bbbbm Sýning stendur til 16. nóv. „Það er augljóslega mikil undirbúningsvinna við sýninguna. Vel er valið úr verkum og þótt ég hafi séð mörg þeirra áður kom sýningin mér samt á óvart og gaf mér enn dýpri innsýn í list Braga enda kærkomið tækifæri til að endurmeta framlag hans til myndlistar og sjá verk hans í nýju ljósi.“ Jón B. K. Ransu Í GANGI þjóðfélag Ekta „Sigrún gæddi leik sinn sterkum tilfinningum og spilaði af ótrúlegum glæsi- leik; fyrir bragðið var túlkun hennar lifandi og ekta.“ Sinfóníuhljómsveit Íslands Tæknilega séð spilaði hljómsveitin frábærlega vel, hvort sem málm- eða tréblásarar voru í forgrunni, slagverk eða strengir. Morgunblaðið/Einar Falur

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.