Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.2008, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 22.11.2008, Qupperneq 9
staðir úti á landi nýta sér hráefnið til mat- argerðar sem fyrir er í héraði. Hér má nýta hugvit og þekkingu hönnuða til að brjóta til mergjar alla þessa þætti og benda á nýjar og ábatasamar lausnir.“ Öfug táknfræði Ég bið Sigurð að lýsa fyrir mér hvernig hönn- uðir bera sig að við yfirhalningu og umbreyt- ingu á þekktum fyrirtækjum og vörumerkjum. „Hvert fyrirtæki á sér sögu og kúltúr sem hönnuðurinn verður að skilja og virða. Segjum svo að Bang & Olufsen vilji breyta ímynd sinni, þá gengur ekki að yfirfæra vörumerki þeirra á litaglaða plastfjöldaframleiðslu frá Kína. Það yrði algjört stílbrot. Hönnuðurinn þarf fyrst og fremst að taka út hvar á mark- aðinum fyrirtækið á heima, og greina þær kröfur sem viðskiptavinir gera til þess, ekki bara í heimalandinu heldur á hverju markaðs- svæði fyrir sig. Þegar maður skilur hvað fyr- irtækið og hönnun þess stendur fyrir, þá þarf að finna sjónræna samsvörun þess, þ.e. ef ímyndin er allt í senn exklúsíf, hip og kúl, þá má hönnunin ekki vera þunglamaleg og gam- aldags, heldur létt, endurspegla tíðarandann, meðfærileg og svo framvegis. Hjá DGI köllum við þessa greiningu „reverse semiotics“ eða öf- uga tákn- og greiningarfræði, vegna þess að við segjum: Fyrirtækið eða varan vill standa fyrir ákveðin gildi, og sjónræn túlkun þessara gilda og samþætting þarf þá að vera á þennan og þennan veg til að hún komist til skila. Ég held að enginn hönnunarstofa beiti þessari að- ferð í viðlíka mæli og við.“ Var þessi aðferð notuð við yfirhalninguna á 66° á sínum tíma? „Í stórum dráttum. Ég held að kveikjan að því sem við tókumst á hendur hjá 66° hafi ver- ið hugljómun sem ég varð fyrir um 1996, þeg- ar ítölsk vinkona mín kom úr ferðalagi um Ís- land og hafði með sér dós af grænum baunum frá ORA – vegna þess að hana langað til að kaupa vöru frá Íslandi í stað minjagrips. Þá rann upp fyrir mér að framleiðsluvara gæti líka verið minjagripur. Ég og konan mín höfð- um síðan samband við Sjóklæðagerðina með dyggri aðstoð Arnar D. Jónssonar, prófessors í nýsköpun við HÍ, og buðum upp á samstarf um að byggja upp vörumerkið með hönnunar- og ímyndarnálgun. Við greindum markaðinn, 66° Norður og helstu samkeppnisaðila og sett- um upp aðgerðaáætlun sem byggði á hönn- unarstýringu og réttri „staðsetningu“ brands- ins. Við unnum mjög náið með hönnuðum og markaðsfólki fyrirtækisins og ákváðum að gera okkur mat úr íslenskri sérstöðu vör- unnar, árétta það sem var „ekta“ við hana en tengja hana um leið við það sem var að gerast í tískuheiminum. Ég held að þetta hafi verið ein af fyrstu tilraunum á heimsvísu til að tefla saman hátísku og útivist. Það var líka mik- ilvægt að nota íslenska markaðinn til að prufu- keyra þessa vöru; það hefði verið óhemju dýrt að fara með hana beint á alþjóðlegan markað. Við náðum góðu sambandi við aðila í íslenskri ferðamennsku, leiðsögumenn og fleiri, og fengum þá til að prófa þetta nýja „lúkk“. Þeir voru efins til að byrja með, 66° hafði látið und- an síga fyrir erlendum útivistarfatnaði. En eftir að hafa unnið traust þeirra, fórum við að lauma okkur inn í ferðamannaverslanir, frí- hafnir og loks inn á erlenda markaði. Fram- haldið þekkja svo allir.“ Samstarfið við 66° stóð yfir frá 1998 til ársbyrjunar 2005. „Þessari aðferðafræði hef ég líka beitt í vinnu minni fyrir Bláa lónið frá 1997 og er það reyndar frábært dæmi á heimsvísu um vel heppnað samstarf hönnuða og fyrirtækis með sterka sýn. Þar höfum við unnið með svoköll- uðu „holistic aproach“ – heildrænni nálgun – með gríðarlega góðum árangri og er sú saga efni í heila grein. Ég held að fæstir Íslend- ingar geri sér fyllilega grein fyrir hversu fjöl- þætt Bláa lónið er sem fyrirtæki ; það er gott dæmi um „sprota“ sem vex upp úr hrauninu, upp úr engu nema affallsvatni.“ Af virðisauka sköpunar Hvernig lítur hönnuður með svona reynslu á það sem gerst hefur á íslenskum hönn- unarvettvangi á undanförnum áratugum? „Hér er margt hæfileikafólk á sviði hönn- unar, enginn vafi á því og áberandi gróska og vakning á seinustu árum. Sérstaklega á því að finna hinn íslenska „anda“ eða „ hljóm“. En ís- lensk hönnun hefur fyrst og fremst verið stunduð á persónulegum grundvelli, ekki við- skiptalegum. Fyrir þessu eru margar ástæð- ur, sögulegar, landfræðilegar og viðskipta- legar. Um hana gilda því nánast sömu lögmál og myndlist. Og Ísland er ekkert einsdæmi að þessu leyti, því á allsnægtaborði vestrænnar menningar hafa hönnuðir í ríkum mæli farið út í það sem kalla mætti lúxusvæðingu hönn- unar, að búa til hluti í litlu upplagi fyrir fólk sem á peninga og vill hafa í kringum sig sjald- gæfa og nútímalega nytjahluti. Og ég vil taka fram að það er ekkert athugavert við hönnun af þessu tagi, ef peningar eru fyrir hendi til að standa undir henni. Hins vegar hefur vantað á Íslandi, trúlega vegna smæðar, virkjun hönn- unar til verðmætasköpunar og tengingu hönn- unar við markaðinn og fyrirtækin á mark- aðnum. Ég hélt fyrirlestur á Nýsköpunarþingi í febrúar 2007 um þessi mál undir yfirskrift- inni Virðisauki sköpunar – hönnun, ímynd og viðskipti og þó eitthvað hafi þróast til betri vegar síðan þá, má alltaf gera betur. Við erum að tala um muninn á óbeisluðum sköp- unarkrafti – sem er kannski sérstaklega ís- lenskt fyrirbæri – og beislun hans í ákveðnum tilgangi. Við eigum ekki nógu marga hönnuði með reynslu í því að móta og selja íslensk „brönd“ eða vinna náið með fyrirtækjum að gerð og markaðssetningu framleiðslunnar. Því er brýnt að byggja upp framleiðslumenningu í hönnunargeiranum, búa til greiningardeildir sem meta þarfir ólíkra markhópa og framleið- enda, búa til öflugt tengslanet, innanlands sem utan og styrkja markaðssetningu á íslenskri hönnun erlendis. Þetta gerist ekki í einni svip- an, en það verður að gerast.“ Er þá einsýnt að framtíð hönnunargeirans á Íslandi sé fyrst og fremst bundin við það sem kalla mætti „íslensk arfleifð“, verkefni sem tengjast ferðamennsku, landsins gæðum, sög- unni, staðbundna iðnaðarframleiðslu, landbún- aðarframleiðslu og matarmenningu? „Ég held að þar höfum við mest að bjóða, þar sé okkar sérstaða og hana eigum við að nota sem stökkpall inn á alþjóðamarkað. Svo við tölum bara um ferðamennskuna, þá er í henni mýgrútur ónýttra sóknarfæra, og þá er ég að tala um þá ferðamennsku sem kennd hefur verið við upplifanir, þar sem útlendingar koma til að upplifa á eigin skinni fyrirbæri sem hvergi fyrirfinnast annars staðar, ekki bara íslenskan mat, heldur einnig íslenskt rok, íslenskar sundlaugar, íslenskan sand, og í leið- inni mætti selja þeim vandaða vöru sem teng- ist þessum upplifunum. Þá skiptir miklu máli að vera ekki að byggja upp stór og einsleit batterí, heldur byggja á smærri samtengdum einingum sem gætu verið ólíkar innbyrðis. Sem dæmi: Af hverju þurfa flestir gististaðir úti á landi að vera keimlíkir hvað útlit og inn- viði snertir; af hverju geta þeir ekki lagt áherslu á það sem er sérstakt á hverjum stað? Mér hefur líka þótt furðulegt hve fáir mat- gangi íslenskrar hönnunar og leitast við að kynna fyrir íslenskum starfsbræðrum sínum þau sjónarmið sem eru ofarlega á baugi í evr- ópsku hönnunarsamfélagi. Sigurður er því í góðri aðstöðu til að brjóta til mergjar ýmisleg- an vanda sem hið litla íslenska hönnunarsam- félag hefur átt við að etja. Allt ferlið frá hugarflæði til sölu En hverju þakkar Sigurður framgang sinn? Hann nefnir heppni, kynni af þekktum ítölsk- um framleiðendum og hönnuðum á réttum tíma. En hann neitar því ekki að skýr mark- mið og stefnufesta hans sjálfs hafi einnig fleytt honum áfram. „Ég hef alltaf unnið í framtíðarsýnum hvort sem um er að ræða verkefni eða eigið lífs- hlaup, verið með í kollinum ákveðin markmið fyrir sjálfan mig, áform um það hvert ég vildi stefna og hvar ég vildi vera staddur á ákveðnum tíma. Þessi áform hafa að mestu gengið eftir. Nema hvað kílóin hafa orðið fleiri en ég gerði ráð fyrir; það er svo góður matur á Ítalíu. Nú finnst mér einmitt sem ég sé búinn að ganga í gegnum 20 ára ferli, nokkurn veg- inn í takt við mína upphaflegu sýn og að nú sé ég staddur á annars konar upphafsreit.“ Ég bið Sigurð að lýsa nánar þessari per- sónulegu stefnumótun. „Að sumu leyti varð það mér til happs að fara til Ítalíu án viðkomu í íslenskum lista- skóla. Ég var því ekki búinn að koma mér upp neinum fagurfræðilegum mælistikum. Þess vegna hafði ég enga fordóma gagnvart hönnun sem markaðsfyrirbæri; fannst frá upphafi mjög eðlilegt að skoða hana í því ljósi. En ég skynjaði fljótlega að til að hámarka vægi hönnunar, þyrfti ég að kynna mér allt ferlið frá hugarflæði og fæðingu hugmyndar í gegn- um framleiðsluferlið til markaðssetningar og loks sölu. Ég setti mér því þau markmið að vinna sér- staklega að ákveðnum ferlum innan hönnunar og byrjaði á hreinni sköpun, eins og þeirri vinnu sem ég innti af hendi strax eftir skólann fyrir Magis og Fila, síðan vildi ég skilja betur verkfræði og framleiðsluferlin og vann í mörg ár við verkfræðitengda hönnun, t.a.m. á plast- steypuvélum, timburvinnsluvélum og raf- tæknivörum fyrir ABB . Nú höfum við komið að u.þ.b.1000 vörueiningum fyrir það fyr- irtæki. Það hefur verið mjög góður skóli að selja „hard core“ framleiðslufyrirtækjum þá hugmynd að hönnun skipti máli en það hefur markaðurinn margsinnis staðfest. Eftir þetta vildi ég skilja markaðsmálin og hönnun og vann þá fyrir Unilver, sem er ensk- hollenskur neysluvörurisi með um 200 vöru- merki á sínum snærum. Þar unnum við að hönnun nýrra tannbursta, sem var mjög góður skóli og gekk mjög vel, þessir burstar hafa selst í bílförmum síðan og hlotið hönn- unarverðlaun. Sú aukning sem varð á sölu tannburstanna vakti athygli innan fyrirtæk- isins og eftir það fórum við að vinna náið með markaðsfræðingum þess að því að bæta að- ferðafræði og nýsköpunarferli fyrirtækisins. Allt þetta ferli hefur ekki verið beint af aug- um, heldur hafa hlutirnir skarast með ýmsum hætti. Upp úr 1997 varð mér ljóst að branding (mörkun) væri sá vettvangur þar sem flestir þættir hönnunar kæmu saman. Hefðbundin aðkoma, sem enn er algeng, er að mörkun snúist um miðlun. Að mínu mati snýst mörkun um samspil vörunnar/þjónustunnar og miðl- unar og hvernig þetta tvennt skilgreinir vöru- merkið. Frá þessum tíma hef ég unnið mikið að mörkun og þróun aðferðafræði bæði á Ís- landi með Bláa lóninu, 66°N, Capacent, Kaffi- tári, og erlendis með ABB, Kone, 3M, Etto o.s.frv. Þá hef ég lagt áherslu á hvernig stýra megi nýsköpun og gera hana stöðuga. Lokahnykkurinn á þessum langa þroska- ferli mínu var svo að takast tímabundið á hendur framkvæmdastjórn við Bláa lónið, það er að selja vöruna sem ég hafði hjálpað til við að hanna. Þar með var ég kominn í hring, ef svo má segja“ Hér er margt hæfileikafólk á sviði hönnunar, enginn vafi á því og áberandi gróska og vakning á sein- ustu árum. Sérstaklega á því að finna hinn íslenska „anda“ eða „ hljóm“. Höfundur er listfræðingur. andið Morgunblaðið/Ómar mundsdóttur og hópi í kringum hana að því að móta nýtt Ísland“ sem Björk hefur kallað saman til skrafs ægt sé að draga úr hinni svarthvítu sýn á land og þjóð ullinn meðalveg, um nýtingu auðlinda landsins. Þar nars vegar um hlutverk íslenskrar hönnunar í nútíð m þar hefur verið bryddað upp á hef ég minnst á hér. hópsins út á að leiða saman hönnuði og fyrirtæki arf þeirra við atvinnuþróunarfélög, sjóði og fjárfesta ra aðila um framtíðarlausnir. Hinn hópurinn fjallar út frá baðmenningu okkar og er á margan hátt svipað snertir. Í báðum tilfellum er ég að vinna með fólki raft og löngun til að koma hlutum í framkvæmd. f ég sérstakan áhuga á að gera það sem ég get fyrir geirann. Þar vil ég gjarnan koma á samstarfi milli þróun í hönnun á breiðum grundvelli, til dæmis milli stöðvar, Listaháskólans og annarra háskóla, jafnvel fir til háskólastofnana og hönnunarfyrirtækja er- hjá DGI í Mílanó gætum til dæmis hugsað okkur að nska hönnuði í þeim fræðum þar sem við stöndum ga, segjum litafræði, markaðsfræði og greining- Íslenski hönnunargeirinn má ekki fara að leggjast í fir og einangrunarhyggju akkúrat nú, þegar þjóðin sameiginlegu átaki hans að halda.“ landsins MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008 Lesbók 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.