Morgunblaðið - 29.06.2008, Page 15
Um er að ræða 78 glæsilegar fullbúnar 90-140 fm íbúðir í lyftuhúsi.
Ekkert hefur verið til sparað við hönnun íbúðanna sem eru bjartar og
rúmgóðar. Íbúðirnar snúa mót suðri. Lofthæð í íbúðunum er 2,70 m
sem er meira en gengur og gerist í nýbyggingum og aukin hljóðein-
angrun er í íbúðunum. Gæði og þægindi eru einkennisorð íbúðanna
sem verða afhentar með gólfefnum, innréttingum og tækjum. Bíla-
stæði í bílageymslu fylgir hverri íbúð.
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar nú þegar.
Húsin eru á mörkum þjónustu- og verslunarkjarna og í nágrenni við
nokkur af vinsælustu útivistarsvæðum borgarbúa. Göngustígar tengja
íbúðabyggðina í Mörkinni við aðra hluta borgarinnar. Örstutt í Elliðaár-
dalinn.
Í Mörkinni verður þjónustumiðstöð, þar sem skipulögð dagskrá verð-
ur í gangi. Innangengt verður úr íbúðunum í þjónustumiðstöðina.
Þangað kemur fólk til að fá góða og heilbrigða hreyfingu, fræðslu,
skemmtun, aðhlynningu, þjálfun, félagsskap, góðan og hollan mat.
Stefnt er að því að geta boðið íbúum við Suðurlandsbraut 58-62
uppá þjónustu eftir óskum og þörfum hvers og eins. Við þjónustu-
miðstöðina verður auk þess púttvöllur .
Hafin er bygging á hjúkrunarheimili í næsta nágrenni við íbúðirnar og
íbúum í Mörkinni verður boðið uppá heimahjúkrun. Þá verður boðið
uppá sjúkraþjálfun í þjónustumiðstöðinni.
Sjá nánar inná www.thjonustuibudir.is
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
NÝJAR FULLBÚNAR
ÞJÓNUSTUÍBÚÐIR VIÐ
SUÐURLANDSBRAUT 58-62
í Mörkinni í dag sunnudag frá kl. 12-14Sölusýning
Tvær glæsilegar sýningaríbúðir í húsi nr. 62