Morgunblaðið - 29.06.2008, Síða 15

Morgunblaðið - 29.06.2008, Síða 15
Um er að ræða 78 glæsilegar fullbúnar 90-140 fm íbúðir í lyftuhúsi. Ekkert hefur verið til sparað við hönnun íbúðanna sem eru bjartar og rúmgóðar. Íbúðirnar snúa mót suðri. Lofthæð í íbúðunum er 2,70 m sem er meira en gengur og gerist í nýbyggingum og aukin hljóðein- angrun er í íbúðunum. Gæði og þægindi eru einkennisorð íbúðanna sem verða afhentar með gólfefnum, innréttingum og tækjum. Bíla- stæði í bílageymslu fylgir hverri íbúð. Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar nú þegar. Húsin eru á mörkum þjónustu- og verslunarkjarna og í nágrenni við nokkur af vinsælustu útivistarsvæðum borgarbúa. Göngustígar tengja íbúðabyggðina í Mörkinni við aðra hluta borgarinnar. Örstutt í Elliðaár- dalinn. Í Mörkinni verður þjónustumiðstöð, þar sem skipulögð dagskrá verð- ur í gangi. Innangengt verður úr íbúðunum í þjónustumiðstöðina. Þangað kemur fólk til að fá góða og heilbrigða hreyfingu, fræðslu, skemmtun, aðhlynningu, þjálfun, félagsskap, góðan og hollan mat. Stefnt er að því að geta boðið íbúum við Suðurlandsbraut 58-62 uppá þjónustu eftir óskum og þörfum hvers og eins. Við þjónustu- miðstöðina verður auk þess púttvöllur . Hafin er bygging á hjúkrunarheimili í næsta nágrenni við íbúðirnar og íbúum í Mörkinni verður boðið uppá heimahjúkrun. Þá verður boðið uppá sjúkraþjálfun í þjónustumiðstöðinni. Sjá nánar inná www.thjonustuibudir.is Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095 Sími: 588 9090 NÝJAR FULLBÚNAR ÞJÓNUSTUÍBÚÐIR VIÐ SUÐURLANDSBRAUT 58-62 í Mörkinni í dag sunnudag frá kl. 12-14Sölusýning Tvær glæsilegar sýningaríbúðir í húsi nr. 62

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.