Morgunblaðið - 30.06.2008, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 2008 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/ÞÖK
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
FYRIRSPURNUM vegna fasteigna
í Reykjanesbæ hefur fjölgað undan-
farið, að sögn tveggja fasteignasala
þar í bæ. Salan hefur þó ekki tekið
mikinn kipp en er skárri en hún var
seint í vetur og snemma í vor.
Samkvæmt nýlegri frétt Fast-
eignamats ríkisins var 37 kaupsamn-
ingum þinglýst í Reykjanesbæ í maí
síðastliðnum, en 32 á Akureyri, 28 á
Árborgarsvæðinu og 12 á Akranesi.
Álversframkvæmdir í Helguvík
eru taldar eiga sinn þátt í auknum
áhuga á fasteignum á Suðurnesjum.
Fasteignaverð þar er einnig lægra
en í höfuðborginni og sveitarfélögum
næst henni. Aðallega eru það íbúðir í
fjölbýli sem hafa selst í Reykja-
nesbæ og af voru 24 kaupsamningar
af 37 í maí vegna slíkra íbúða. Þá
voru 11 samningar vegna eigna í sér-
býli og tveir um annars konar fast-
eignir. Aðallega seljast íbúðir á því
verðbili þar sem lán Íbúðalánasjóðs
duga fyrir 80% af kaupverði.
„Fer allt af stað aftur“
„Við erum mjög bjartsýnir og vit-
um að þetta fer allt af stað aftur,“
sagði Guðlaugur Guðlaugsson hjá
Fasteignasölunni Stuðlabergi. Hann
sagði talsvert spurt um fasteignir og
að makaskiptum á fasteignum virtist
aftur vera að fjölga. Guðlaugur
kvaðst þó eins búast við því að rólegt
verði fram á næsta haust.
Júlíus Steinþórsson, fasteignasali
hjá Eignamiðlun Suðurnesja, sagði
að áhugi á fasteignaviðskiptum virt-
ist vera að vakna á ný.
Fyrirspurnum um húsnæði hefði
fjölgað undanfarið og það færðist
einnig í vöxt að fólk skoðaði eignir.
Engu að síður væri enn rólegt yfir
fasteignamarkaðnum. Júlíus benti á
að samkvæmt fenginni reynslu væri
sumarið fremur rólegt í fasteigna-
sölu.
Álver eykur eftirspurn suður með sjó
Ólafsvík | Það lá vel á þeim félögum, Hólmkatli Ögmundssyni og Hilmari Júl-
íussyni. Þeir eru á besta aldri, Hólmkell 74 ára og Hilmar 70 ára, og dvelja á
dvalarheimilinu Jaðri í Ólafsvík og eru í góðu formi, að eigin sögn. Starfsfólk
Jaðars útvegaði þeim lítið trampólín svo þeir gætu sýnt dömunum á bænum
listir sínar. Var ekki annað að sjá en að þeim hafi tekist vel til því dömurnar á
Jaðri voru yfir sig hrifnar af léttleika piltanna á leiktækinu.
Morgunblaðið/Alfons
Hressir piltar á Jaðri
TÖLUVERÐUR erill var hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu að-
faranótt sunnudags en 123 mál
komu til kasta hennar frá miðnætti
á laugardegi til hádegis á sunnu-
degi.
Flest málin voru vegna brota á
lögreglusamþykkt, þ.e. vegna
þvagláts á almannafæri og annarra
óspekta. Einn var sleginn í höfuðið
með steini fyrir utan Hverfisbarinn
við Hverfisgötu og var hann fluttur
á slysadeild til aðhlynningar. Ekki
er vitað hverjir voru þar að verki
en dyraverðir á barnum tilkynntu
árásina.
Nokkur dæmi voru um að fólk
hindraði lögreglu við störf sín.
Tveir eru grunaðir um ölvun við
akstur og eitt minni háttar fíkni-
efnamál kom upp. Ölvun í mið-
bænum var ekki sýnilega meiri en á
venjulegu laugardagskvöldi.
thorbjorn@mbl.is
Migið á hús og
maður laminn
með steini
ÁKVÖRÐUN umhverfissviðs
Reykjavíkur um að öll starfsemi
Þyrluþjónustunnar í Fluggörðum
á Reykjavíkurflugvelli skyldi
stöðvuð hefur verið felld úr gildi
af úrskurðarnefnd um holl-
ustuhætti og mengunarvarnir.
Forsaga málsins er sú að lengi
höfðu borist kvartanir frá íbúum
í Skerjafirði vegna hávaða sem
fylgdi þyrluumferð. Umhverf-
issvið Reykjavíkur þrýsti á
rekstraraðila flugvallarins, Flug-
stoðir, um úrbætur og tók í jan-
úar ákvörðun um að krefjast þess
að öll starfsemi Þyrluþjónust-
unnar yrði stöðvuð.
Úrskurðarnefndin komst að því
að umhverfissvið hefði ekki gætt
meðalhófs í ákvörðun sinni auk
þess sem meginreglur stjórn-
sýsluréttar um tilkynning-
arskyldu, andmælarétt og fulla
rannsókn málsins hefðu verið
virtar að vettugi við meðferð
málsins. Því taldi nefndin að fella
yrði ákvörðunina úr gildi.
andresth@mbl.is
Ákvörðun um
þyrlur ógild
VINNUSLYS varð í Njarðvík í
gærmorgun þegar starfsmaður
féll fjóra metra úr skæralyftu
sem hann var að vinna í og niður
á steinsteypt gólf.
Maðurinn var fluttur á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja til
skoðunar. Að sögn vakthafandi
læknis á heilbrigðisstofnuninni
var maðurinn fótbrotinn en ekki
alvarlega slasaður að öðru leyti.
Hann var sendur til Reykja-
víkur þar sem meiðsl hans voru
rannsökuð frekar.
thorbjorn@mbl.is
Féll fjóra
metra úr lyftu
Lögmannsstofan flytur:
Lögmannsstofa Loga Egilssonar hdl. flytur frá Hlíðasmára 8,
Kópavogi að Reykjavíkurvegi 60, Hafnarfirði.
Af þeim sökum verður stofan lokuð mánudaginn 30. júní.
Skrifstofan opnar í nýjum heimkynnum,
þriðjudaginn 1. júlí.
Lögmannsstofa
Loga Egilssonar hdl.ehf.
Reykjavíkurvegi 60, 2hæð
Sími: 575 7230
Kraftur í kringum Ísland
Peningagjöf er hægt að leggja inn á reikning
327-26-112233, kennitala 571199-3009.
Styrktarsími Krafts:
907-2700 (1000 kr)
www.krafturikringumisland.com