Morgunblaðið - 05.07.2008, Síða 1
L A U G A R D A G U R 5. J Ú L Í 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
182. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
DAGLEGTLÍF
ROTTURNAR ERU
BLÍÐUSTU SKINN
REYKJAVÍKREYKJAVÍK
Skiptibúð fyrir tölvuleiki
er tilvalin í kreppunni
Guðbergur Bergsson: Það sem vant-
ar í íslenska list er hið huglæga eða
hugsun. Það er ekki nóg bara að búa
eitthvað til. Þetta er allt öðruvísi
vinna en að vera að pæla kálgarð.
Slæm er andúðin, en
verri er viðurkenningin
Stórundarleg Gay Pride-ganga var
farin í Riga í Lettlandi fyrir
skömmu. Íris Ellenberger var á
staðnum og segir frá baráttu sam-
kynhneigðra þar í landi.
Stórundarleg Gay Pride-
ganga í Riga í Lettlandi
Oliver Stone hefur gert kvikmyndir
um Kennedy og Nixon en nú er
komið að George W. Bush, sem er
sennilega umdeildastur þessara
þriggja Bandaríkjaforseta.
Kvikmynd Olivers Stone
um Bush væntanleg
LESBÓK
SÖFNIN Í LANDINU
síða 15 í Lesbók
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
TREGLEGAR gengur að innheimta
kröfur hjá einstaklingum og fyrir-
tækjum en áður. Innheimtufyrir-
tækin finna fyrir samdrættinum í
þjóðfélaginu en telja þó enga hol-
skeflu hafa skollið á ennþá. En menn
bera kvíðboga fyrir haustinu.
Svipaða sögu segja talsmenn
bankanna, þeir telja vanskilin ekki
hafa aukist að neinu marki ennþá en
hafa meiri áhyggjur af greiðslustöðu
fólks í haust ef spár um fjöldaupp-
sagnir og stóraukið atvinnuleysi
ganga eftir. Hjá Íbúðalánasjóði
fengust þær upplýsingar að umsókn-
um um aðstoð vegna greiðsluerfið-
leika hefði fjölgað um 34% miðað við
sama tíma í fyrra.
„Uggur í fólki“
Þá er mikið annríki hjá Ráðgjaf-
arstofu um fjármál heimilanna og
greinilegt að fjárhagsáhyggjur fólks
hafa aukist á árinu því biðlistar hafa
myndast eftir viðtölum. Ákveðið hef-
ur verið að fjölga starfsfólki til að
anna eftirspurninni. Hrafnkell Sig-
Eiga erfitt með að borga
Ráðgjafarstofa heimilanna hefur ákveð-
ið að fjölga starfsfólki vegna annríkis
tryggsson, sviðstjóri fyrirtækjasviðs
hjá Intrum, segir fleiri mál koma inn
á borð fyrirtækisins en oft áður. Al-
mennt sé að þyngjast í innheimtunni.
„Klárlega eru minni peningar í
umferð og það hefur greinilega áhrif
á einhverja. Það er uggur í fólki og
menn leita allra leiða til að bæta
verkferla. Samt er ekki hægt að tala
um holskeflu ennþá. Flestir vilja
hafa sín mál í lagi,“ segir Hrafnkell.
Haustdrungi vofir yfir | 12
Í HNOTSKURN
»Starfsmenn fjármálastofn-ana finna áþreifanlega fyr-
ir því að greiðslubyrði al-
mennings hefur þyngst.
»Ekki síst er ungt fólk orðiðskuldum vafið með hús-
næðiskaupum og bílalánum,
sem fara síhækkandi, í viðbót
við námslánin.
»Á sama tíma hafa bank-arnir nánast tekið fyrir
alla lánafyrirgreiðslu.
ENGA var líkara en þessi reiðmaður sem reið vasklega um Þjórsárbrúna í
gærdag væri hræddur um að hann væri að missa af Landsmóti hestamanna
á Hellu. Fleiri kappar fylgdu í kjölfarið, allt keppendur og fulltrúar hesta-
mannafélaga í þolreið Laxness og Icelandair, um 40 km leið frá Selfossi á
Hellu. Góð veðurspá og frábærir gæðingar gefa vonir um allt að fimmtán
þúsund gesti um helgina en mótinu lýkur á morgun. | 20
Stefnan tekin á Landsmót hestamanna
Morgunblaðið/hag
Steypuskemmdir í turni Hall-
grímskirkju reyndust miklu meiri
en talið var áður en Ístak hóf við-
gerð á turninum í vor.
Viðgerðin hófst efst í turninum,
undir sjálfri turnspírunni. Þar er
búið að fjarlægja múrhúð og steypu
af stórum flötum. Víða er steypan
svo morkin að hún er eins og
mylsna. Ytra byrði járnagrind-
arinnar blasir við þar sem dýpst
hefur verið farið inn í veggina. Þá
þarf að fjarlægja súlurnar, eða
stöplana, utan á turninum og
byggja þær upp að nýju.
Áætlað var að verkið myndi
kosta 230 milljónir, en nú þykir
ljóst að kostnaðurinn hafi verið
vanmetinn. » 13
Steypan eins og mylsna
Lóðasala hefur
minnkað mikið í
nýju íbúðahverf-
unum í höf-
uðborginni og í
nágrenni hennar.
Berir hús-
grunnar og hálf-
kláruð hús blasa
við í hverfunum
enda hefur fólk lítið fé milli hand-
anna eins og efnahagsástandið er í
dag. Þá lækkuðu bæjaryfirvöld í
Hafnarfirði nýlega lóðaverð í nýju
Vallahverfi og lóðum hefur verið
skilað við Reynisvatnsás í Reykja-
vík. » 12
Líflaust er í nýju
íbúðahverfunum
Taívaninn Lin, sem vinnur við að
sendast með frystan mat, var
óheppinn um daginn þegar hann
ætlaði að heilla kærustuna. Hann
raðaði logandi kertum á gólfið í
hótelherberginu þar sem þau hugð-
ust gista, kertin mynduðu orðin I
love you [Ég elska þig].
En um 40 mínútum síðar, þegar
þau gengu inn, var eldur laus á hót-
elinu. „Lögreglan handtók Lin og
dró hann fyrir dómara,“ sagði í
China Post. Lin slapp með um
700.000 kr. í sekt. kjon@mbl.is
Logandi ást
FÍDEL er sonur Paul Ramses og Rosemary Atieno At-
hiembo. Faðir hans hefur nú verið sendur í hælisleit-
endabúðir á Ítalíu af Útlendingastofnun, sem aldrei tók
mál hans fyrir.
Þó Fídel sé fæddur á Íslandi bætir það hvorki lagalega
stöðu hans né foreldranna og verður honum því líklega
vísað úr landi innan skamms ásamt móður sinni.
Ekki er vitað hvert leið mæðginanna liggur en miðað
við lýsingar í skýrslu Amnesty International eru aðstæður
í hælisleitendabúðum á Ítalíu mjög slæmar og vart boð-
legar ungbörnum.
Íslandsdeild Amnesty hvetur íslensk stjórnvöld til að endurskoða ákvörð-
un sína. Með því að senda Paul úr landi hafi þau gengið á rétt Fídels til að
njóta umönnunar beggja foreldra. |4
Framtíðin óviss hjá
Fídel og móður hans
Fídel litli.