Morgunblaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 15 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Breyttur Jeppi breyttur af Arctic Trucks. Allir bílar sem sendir eru til Afganistan á vegum norska hersins fara í gegnum miklar breytingar. Rekur Arctic Trucks sérstaka þjónustustöð fyrir norska herinn þar sem allar breytingar á öku- tækjum hans fara fram fyrir luktum dyrum og undir strangri öryggisgæslu. Fara allir bílar sem sendir eru á vegum norska hersins til Afganistan í gegnum umfangsmiklar breytingar hjá Arctic Trucks áður en þeir eru sendir. Nýlega tók Arctic Trucks þátt í hersýningunni Eurosatory í París og segir Hallveig að breyttir jeppar fyrirtækisins þar hafi vakið mikla athygli. Á næstu mánuðum Gert er ráð fyrir því að Arctic Trucks hefji starfsemi í Rúss- landi innan tíu mánaða. Hallveig segir að áherslan þar verði á breytingar á Toyota-bílum í sam- vinnu við Toyota í Rússlandi. Starfsmenn Arctic Trucks breyttu jeppum fyrir hinn vin- sæla breska bílaþátt Top Gear, þegar Jeremy Clarkson og fé- lagar keyrðu, fyrstir manna, á norðurpólinn í bifreið. Þessi þátt- ur vakti mikla athygli í Bretlandi og hyggst Arctic Trucks hefja starfsemi þar á haustmánuðum. Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is ÍSLENSKA bifreiðabreytingafyr- irtækið Arctic Trucks mun hefja starfsemi í Rússlandi og Bret- landi innan tíðar. Auk þess að starfa á Íslandi starfar fyr- irtækið nú þegar í Noregi og í Lettlandi. Arctic Trucks hefur í um 15 ára skeið sérhæft sig í jeppa- breytingum og hefur fyrirtækið til að mynda rekið þjónustu- miðstöð í Drammen í Noregi. Hluti af starfseminni í Noregi er að sinna verkefnum fyrir norska herinn og segir Hallveig Andr- ésdóttir, skrifstofustjóri Arctic Trucks, að norski herinn sé mik- ilvægur viðskiptavinur fyrirtæk- isins. Arctic Trucks færir enn út kvíarnar ÞETTA HELST ... ● HEILDARVELTAN í kauphöllinni í gær, nam um 28 milljörðum króna, þar af var velta með hlutabréf fyrir um 1,1 milljarð og hefur hún ekki verið minni í tvö ár. Lítil sem engin breyting varð á úrvalsvísitöluni sem lokaði í 4.295 stigum og hafði þá lækkað um 0,02%, eftir minnstu hlutabréfaveltu í tvö ár. Mest hækkun var á gengi hluta- bréfa SPRON, eða um 2,7%. Þá hækkaði Teymi um 2,6%. Gengi bréfa Atlantic Airways lækkaði um 3,9% og þá lækkuðu bréf Eek Banka Group um 2,7%. sigrunrosa@mbl.is Minnsta hlutabréfa- velta í tvö ár ● BRESKI prófess- orinn Robert Wade hafði mjög rangt fyrir sér í grein sem hann skrifaði um íslenskt efnahagslíf í Financial Times fyrr í þessari viku. Þessu halda þeir Friðrik Már Bald- ursson, prófessor við Háskólann í Reykjavík, og Richard Porter, prófessor við London Bus- iness School, fram í grein í Financial Times í gær. Í greininni rekja þeir Friðrik og Por- ter það sem þeir segja aðfinnsluvert við fullyrðingar Wades. Í lok grein- arinnar segja þeir að hluti af skrifum Wades sé á pólitískum nótum. Þá gagnrýna þeir hann fyrir að fara frjálslega með tölfræðilegar upplýs- ingar. Það sé óviðeigandi við þær viðkvæmu aðstæður sem nú séu á fjármálamörkuðum. gretar@mbl.is Segja prófessor hafa mjög rangt fyrir sér Friðrik Már Baldursson ● FJÖLDI þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu vikuna 27. júní til og með 3. júlí var 64, sam- kvæmt tilkynningu frá Fast- eignamati ríkisins. Vikuna áður var fjöldinn 62 og þar áður 33. Heild- arveltan var 3.680 milljónir króna og meðalfjárhæð á samning 47,9 milljónir. Á sama tíma var samtals 5 kaup- samningum þinglýst á Akureyri og 11 samningum þinglýst á Árborg- arsvæðinu. gretar@mbl.is Svipaður fjöldi kaup- samninga milli vikna Eftir Halldóru Þórsdóttur og Sigrúnu Rósu Björnsdóttur halldorath@mbl.is | sigrunrosa@mbl.is ÞESSI aðgerð ein og sér hefur eng- in afgerandi áhrif,“ segir Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs. Félagið hefur selt allar eignir sínar á Íslandi og verður starfrækt í Bretlandi, þar sem 85% eignanna eru staðsett. Kaupandi 39% hlutar í Baugi er Stoðir, áður FL Group, sem hefur verið breytt í nýtt fjárfestingarfélag eftir endurskoðun á rekstri og fjár- festingastefnu félagsins. Lítil áhrif á tekjur ríkisins Gunnar segir að fram að þessu hafi um 70% eigna Baugs verið er- lend og því muni flutningurinn ekki hafa teljandi áhrif á tekjur ríkisins af starfseminni. „Fyrirtæki í eigu Baugs greiða sína skatta í þeim löndum þar sem þau eru staðsett. Hvar Baugur er staðsettur hefur engin áhrif á það.“ Hjá Baugi starfa rétt rúmlega 40 manns, á Íslandi og í Bretlandi, en ekki liggur fyrir hversu mikið af starfsfólki mun færast út. Áfram verður lögð áhersla á erlendar fjár- festingar í smásöluverslun, en fyrir á félagið hluti í þekktum merkjum á borð við Iceland, House of Fraser, Hamley’s, Goldsmiths, Magasin du Nord, Illum og Saks. Engin breyting hjá Högum Að sögn Gunnars verður starfsemi Haga, sem rekur eins og kunnugt er ýmsar verslunarkeðjur hér á landi, alfarið óbreytt og þar með áfram á Íslandi. Baugur hefur verið eigandi Haga, en langstærsti hluthafinn í Baugi er Gaumur, fjárfestingarfélag í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu hans. Eignarhald Haga færist nú til Gaums. „Það má segja að Hagar hafi verið eina fjárfestingin sem eftir var á Ís- landi eftir að fjölmiðlahlutinn, 365 hf., og FL Group voru aðskilin frá fé- laginu í vor.“ Kaupverð Baugs er 25 milljarðar króna og greiðist með hlutabréfum í Stoðum. Eru kaupin gerð með fyr- irvara um áreiðanleikakönnun og samþykki hluthafa. Aðrir hluthafar Baugs eru Kevin Stanford, Don McCarthy, Bague SA og starfsmenn félagsins. Baugur farinn frá Íslandi Morgunblaðið/Árni Sæberg Flutt Höfuðstöðvar Baugs flytjast nú af Túngötunni og til húsakynna Baugs í London, þar sem starfsemi Baugs og Stoða verður undir sama þaki.  Þýðir að Jón Ásgeir getur tekið aftur við stjórnarformennsku  Félagið hefur selt allar eignir sínar á Íslandi  Eigið fé Stoða eykst um 25 milljarða við kaupin Í HNOTSKURN »FL Group heitir nú Stoðireftir endurskipulagningu. »Stoðir hafa keypt 25 millj-arða hlut í Baugi. »Styrkur Invest er stærstihluthafi Stoða. »Gaumur er stærsti hluthafiStyrks Invest. »Baugur hefur þegar seltGaumi hlut sinn í Högum.             ! "#$ %& ' (                       ! " !   # $  % !   ! &  '()*+ '   , - . /0.  1 2     345     6 1     (   (7/   /81  +9 0 1 - - :  -      ; 1    ;   !   -0   !  "                                                          :-  !  - <  ! # ' >? @?@ AB @?A ?@B B@ 45@ @CC 3C 35? ADD A?5 BC? BD@ AB DC5 A> A5> BB5 34A C3@ 43? A>? DB@ 3@? A? 5>C CCC 3A B>D 43C @3 B>> B>@ @3 DDC CCC 5D C3C CCC @ 3@B BBB @ B>B >CB A ADC 3D? 3C4 C3> 3 53@ 3@A , , , , 5@ 5C? 45C , ?EC@ 4EAC @4EBC ?EA5 A5E@5 ADE3C A4E?C ?DBECC @@EBC >?E5C 3E34 BE?? AEB> >BE3C AEA5 A>4E5C A55>ECC @DBECC AD4E5C , , , DD35ECC ACECC , ?EC? 4EAD @?EAC ?EA? A5E3C ADEDC A4E>C ?5CECC @3ECC >>E@C 3EDC BE>4 AEBB >BE?C AE@C AB>ECC A5?5ECC @55ECC AD>ECC @@ECC , >E5C D5CCECC ACE5C 4ECC /0! - A 5 AB @C 3D @ D 3> @@ 3 D A3 @C ? @ 5 3 A 4 , , , , @ , F   - - D ? @CC> D ? @CC> D ? @CC> D ? @CC> D ? @CC> D ? @CC> D ? @CC> D ? @CC> D ? @CC> D ? @CC> D ? @CC> D ? @CC> D ? @CC> D ? @CC> D ? @CC> D ? @CC> D ? @CC> D ? @CC> D ? @CC> 3C 4 @CC> 4 A@ @CC? 3 4 @CC> 3 ? @CC> D ? @CC> ? 3 @CC> *&G # *&G $    H H *&G % & G    H F6 I +      H H /' F      H H *&G 'A5 *&G DC     H H ● FRANSKI bankinnn Societe Generele hefur verið sektaður um 4 milljónir evra, nær 500 milljónir króna, vegna skorts á innra eftirliti sem kostaði bankann 4,9 millj- arða evra. Þetta kom fram á vef- miðli BBC í gær en þar sagði jafn- framt að gerðar hefðu verið verulegar athugasemdir við veik- leika í upplýsingakerfum bankans. Franski verðbréfamiðlarinn Jer- ome Kerviel, var eins og kunnugt er sakaður um að bera ábyrgð á tapinu. Hann lýsti yfir sakleysi sínu og segir að bankanum hafi verið fullkunnugt um gjörðir sínar, sem bankinn þarf nú enn að borga fyrir. sigrunrosa@mbl.is. Societe sektaður vegna eftirlitsskorts Meðeigandi/framkvæmdastjóri Bókhaldsfyrirtæki óskar eftir meðeiganda/framkvæmdastjóra. Þarf að hafa góða reynslu og verkefni með sér. Mjög góð 220 fm skrifstofu eign á frábærum stað er í félaginu með útleigu á aðstöðu. Upplýsingar í síma 862-5028  Flutningur Baugs til Bretlands þýðir að félagið þarf að sjálfsögðu að lúta þarlendri hlutafélagalöggjöf. Fram kom í Financial Times í gær að þar væru gerðar ríkari kröfur til félaga en á Íslandi hvað varðar upplýsingagjöf.  Flutningurinn þýðir líka að Jón Ásgeir Jóhannesson getur tekið aftur við stjórnarformennsku í félaginu af Ingibjörgu Pálmadóttur, þar sem hann hefur hreinan skjöld gagnvart breskum yfirvöldum. Hvað breytist með flutningi? ÞRÁTT fyrir það bakslag sem er í efnahagslífinu núna, eru lang- tímahorfur góðar. Þetta kom fram á fundi sendi- nefndar Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins í gær þar sem kynntar voru helstu nið- urstöður athugana þeirra á íslensku efnahagslífi. Eins og vænta mátti taldi nefndin að krónan ætti enn eftir að lækka og tengdi það við m.a. hátt hlutfall erlendra skulda í einkageir- anum. Einnig kom fram að hún teldi Seðlabankann á réttri leið með því að halda stýrivaxtastiginu áfram háu. Bankinn þyrfti að standast þrýsting um lækkun enn um sinn auk þess sem jákvætt væri, að komin væri lánsheimild til að styrkja gjaldeyr- isforðann. Röng tímasetning breytinga Nefndin ítrekaði að lykilatriði væri að áfram yrði unnið að breytingum á Íbúðalánasjóði til að auka áhrif pen- ingastefnunnar. Tímasetning á hækk- unum lána og afnámi stimpilgjalda hefði hins vegar mátt vera betri, í ljósi þess hve mikilvægt væri að ná fast- eignaverði niður og vinna gegn verð- bólgu. Bent var á að ýmsar hættur steðj- uðu að bönkunum: þeim geti reynst erfitt að tryggja sér fjármagn á óstöð- ugum markaði, fyrirtæki í viðskiptum væru oft verulega skuldsett, innri vöxtur hefði verið of hraður og erfitt að gera sér grein fyrir fjárhagslegum styrk hluthafa. sigrunrosa@mbl.is Jákvæðar horfur þrátt fyrir allt Húsnæðisverð ennþá of hátt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.