Morgunblaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Landsmót hestamanna Eftir Guðrúnu Huldu Pálsdóttur gudrunhulda@mbl.is METTE Mannseth er án efa einn afkastamesti knapi Landsmóts hestamanna en auk þess að sýna fimmtán hross í kynbótadómi er hún eigandi Hróðs frá Refsstöðum, sem í ár hlýtur heiðursverðlaun fyrir af- kvæmi. Eftir vel lukkaða yfirlitssýningu stóðhesta, þar sem Mette sýndi fimm hross, var unnt að spyrja þessa metnaðarfullu tamningakonu nokkurra spurninga milli þess sem hún gaf ungum aðdáendum eig- inhandaráritanir. „Tvö hross misstu skeifur en þrátt fyrir það hækkaði eitt þeirra í ein- kunn. Hesturinn sem ég sýndi síð- ast, Háttur frá Þúfum, varð rosalega hræddur við umhverfið svo ég varð að hætta,“ segir Mette þegar hún er spurð að því hvernig sýningar dags- ins hafi gengið. Besta árangri náði Mette í 4 vetra flokk þegar Seiður frá Flugumýri II varð efstur og Kappi frá Kommu varð þriðji í sama flokki undir stjórn hennar. Auk þess náðu tveir stóðhestar úr hennar ræktun, Hnokki og Háttur frá Þúf- um, góðum árangri. „Pressan er ekki eins mikil þegar ég sýni mín eigin hross og því verð ég ósjálfrátt alltaf aðeins rólegri.“ Skilyrði að Hróður yrði graður Mette áskotnaðist Hróður frá Refsstöðum þegar Gísli Gíslason, maðurinn hennar, gaf henni hann veturgamlan. „Gísli hafði keypt átta hross saman og valdi Hróð úr hópn- um og sagði mér að ég ætti að eiga hann. Hann setti það þó sem skilyrði að hann ætti að vera graður.“ Gísli sýndi Hróð síðan fjögurra vetra gamlan og hefur hróður hans aukist jafnt og þétt. „Það er bara gaman að hugsa til baka um ferlið og sjá hann svo fá þessi miklu verðlaun. Það er mikill heiður,“ segir Mette. Hún getur verið kampakát með árangurinn og segir hún að nú þegar hún hafi lokið keppni ætli hún að slappa af, setjast í brekkuna með áhorfendum og njóta veislunnar. Ljósmynd/Kristján Þór Finnsson Glæsileg Hófur frá Varmalæk og Mette höfðu brekkuna með sér í yfirlitssýningu 5 vetra stóðhesta. Hófur er undan Hróð frá Refsstöðum eins og fleiri úrvalsgæðingar á landsmótinu. Mette Mannseth slær í gegn NORÐMENNIRNIR Leif Øverås og Siv Knud- sen sátu makindalega í áhorfendabrekkunni er blaðamaður gaf sig á tal við parið. Leif seg- ist rækta íslenska hestinn í Vestur-Noregi og á nokkra hesta hér á landi, þ. á m. Hróðssoninn Baug frá Víðinesi sem keppti í töltinu. Þetta er fyrsta landsmótið sem þau sækja og líkar mjög vel. Siv finnst þó hafa verið fullvindasamt fyrstu dagana en ekkert sem skemmdi fyrir skemmtuninni. thuridur@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Eigandi Baugs í brekkunni „VIÐ erum fjölskylda,“ útskýrir Sveinn Andri Pálsson. Hann býr í Vestmannaeyjum ásamt foreldrum sínum, Ásu Birgisdóttur og Páli Heiðari Högnasyni. Hjá þeim situr (t.h.) ferðafélagi þeirra í hestamennskunni uppi á landi, Margrét Jónsdóttir frá Strönd í Vestur- Landeyjum, sem býr því „sneinsnar“ frá fjöl- skyldunni. „Við höfum líka fengið fólk ofan af landi til Eyja og þar þykir mjög gaman að ríða út,“ segir Páll Heiðar. thuridur@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Næstum nágrannar Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur thuridur@mbl.is EINN af hápunktum landsmóta er yfirlitssýning stóðhesta sem fram fór í gær. Hver vill heldur ekki sjá fram- tíðina fyrir? Undir hvern á að panta og hvers má maður vænta? Gaumur frá Auðsholtshjáleigu var efstur í flokki 7 vetra og eldri stóð- hesta með einkunnina 8,69. Þórður Þorgeirsson sýndi hestinn en hann er sem fyrr með allra farsælustu knöp- um landsins. Glotti frá Sveinatungu var efstur í 6 v. flokknum með 8,58 en hann sýndi Jakob Sigurðsson. Ómur frá Kvistum sýndur af fyrrnefndum Þórði er efstur 5 vetra fola með aðal- einkunnina 8,61 og efstur í 4 v. flokki er Seiður frá Flugumýri, sýndur af Mette Mannseth, með 8,42 í aðalein- kunn. Jakob og Fróði áfram í tölti Jakob Svavar Sigurðsson og Fróði frá Litlalandi voru öruggir í B-úrslit- um í tölti í gærkvöldi með 8,39 og þreyta því A-úrslitin í kvöld. Efstir inn í A-úrslit í B-flokki gæð- inga á úrslitadegi á morgun eru Ísleif- ur Jónasson og Röðull frá Kálfholti. Góður rómur var gerður að rækt- unarbússýningum en áhorfendur völdu Blesastaði 1A í símakosningu sem besta hópinn. Magnús Trausti Svavarsson og Hólmfríður Björns- dóttir eru ræktendurnir og hafa áður hlotið lof fyrir hrossin sín. Í hópnum voru þrír stóðhestar sem allir eru með 9,5 fyrir tölt í kynbótadómi. Gæðingafeður framtíðar- innar á Rangárbökkum Ljósmynd/Kristján Þór Finnsson Rými Krummi frá Blesastöðum vakti hrifningu manna á Gaddstaðaflötum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.