Morgunblaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 25 Í landi Bæði varðskipin lágu við bryggju í gær. Svo sjaldgæfri sjón má líkja við fisk á þurru landi eins og þennan sem líklega syndir þó ekki framar. G. Rúnar Blog.is Haukur Nikulásson | 4. júlí Tilhneiging borg- arinnar að lauma breytingum í gegn Mér sýnist að það sé vax- andi tilhneiging hjá borg- aryfirvöldum að ætla að breyta deiliskipulagi og öðru með því að fara með þetta bakdyramegin í gegnum kerfið. Sjálfur uppgötvaði ég fyrir tilviljun að borgin hygðist breyta deiliskipulagi við Furugerði 1 sem er næsta hús við okkar í Furugerði 3 án þess að kynna okkur það öðruvísi en með lítilli auglýsingu sem helst þarf að finna með smásjá. Þetta finnast manni lágkúruleg vinnubrögð. … Meira: haukurn.blog.is Það skiptir miklu að tengsl Íslands við umheiminn hvíli á traustri stöðu í al- þjóðlegu umhverfi viðskiptamála og fjármála, ekki síður en stjórnmála. Á tímum mikilla og örra breytinga um- heimsins, hinnar svokölluðu hnattvæðingar, er þetta enn mikilvægara en fyrr. Það er skoðun okkar sem þessar línur ritum að eins og nú standa sakir verði slík staða ekki tryggð utan Evrópusambandsins. Við teljum því að hefja ætti und- irbúning að aðildarumsókn nú þegar, en með því væri jafnframt gefin til kynna fullur vilji til að endurheimta efnahagslegan stöð- ugleika og þar með greitt fyrir úrlausn þess bráða vanda sem fjármálastofnanir landsins eiga nú við að etja. Þótt slík ákvörðun stjórnvalda um afstöðuna til Evrópusam- bandsins sé efnahagslegs eðlis, væri hún í fullu samræmi og eðli- legu samhengi við þau nýju við- horf í varnarmálum sem komin eru til sögunnar eftir brottför bandaríska varnarliðsins. Áhugi Evrópuþjóða á þátttöku í eft- irlitsflugi með herþotum við Ís- land bendir varla til annars en að umhverfi Íslands tengist varn- arhagsmunum þeirra. Því hlýtur stefna Evrópusambandsins í ör- yggis- og varnarmálum (Euro- pean Security and Defence Po- licy – ESDP) að vera áhuga- og hagsmunamál Íslands. Gera verður greinarmun á þeirri alþjóðavæðingu sem felst í hnattrænt greiðari viðskiptum með afurðir og fjármuni, og hins vegar þeirri sameiningu markaða fyrir vörur, þjónustu, vinnuafl og fjármagn sem náðst hefur í Evr- ópusambandinu og í takmarkaðri spegilmynd þess, Evrópska efna- hagssvæðinu. Þar er byggt á sameiginlegu lagakerfi sem fjór- frelsi ESB hvílir á. Frjálst flæði fjármagns um heim allan er hins vegar óháð sérstöku samstarfi eða alþjóðlegu eftirliti samhliða því að það er undirstaða þess frjálsa markaðskerfis sem stuðl- ar að því að áhættufjármagn leiti í arðbæran farveg og að starf- semi á sviði fjármagnsþjónustu blómgist. Í opnu hagkerfi nútímans fel- ast miklir kostir hagvaxtar og velsældar, en þó ekki síður hætt- ur á sveiflukenndum óstöð- ugleika. Hér á landi hafa alvar- legir erfiðleikar komið fram í hagstjórn, einkum á sviði pen- ingamála. Þetta á ekki síst við um stjórnun banka og fjármála- fyrirtækja við aðstæður sem hafa gjörbreyst við það að fjármagns- flutningar urðu óheftir og EES- samningurinn kvað á um fullan aðgang að stofnun og rekstri bankastarfsemi í aðildarríkj- unum. Stefnan í peningamálum, sem fól í sér að Seðlabankinn skyldi halda ákveðnu lágu stigi verðbólgu með stjórn vaxta en gengi krónunnar ákveðast á frjálsum markaði lofaði góðu í fyrstu, en hefur illa staðist þrek- raunir síðustu ára. Það hefur sýnt sig að þau tæki sem Seðla- bankinn ræður yfir duga ekki til að halda verðbólgu í skefjum á tímum mikilla framkvæmda og ónógs stuðnings frá fjár- málastjórn landsins. Enn fremur hafa háir vextir leitt til hærra gengis en samkeppnisgreinar geta með góðu móti þolað og til mikils innstreymis skammtíma- fjármagns vegna vaxtamun- arviðskipta. Umhverfi íslenskra útflutningsfyrirtækja hefur fyllst óvissu og áhættu meir en góðu hófi gegnir, enda hafa allmörg þeirra flutt af landi brott, a.m.k. með hluta starfsemi sinnar. Nú er svo komið að spyrja verður hvort nauðsyn beri til þess vegna öryggis landsins að leita aðildar að myntbandalagi sem geti gefið peningamálum þá festu sem at- vinnulífið þarf á að halda. Um það þarf ekki að fara mörgum orðum að Bandaríkin gegndu hlutverki leiðtoga meðal lýðræðisríkja um hálfrar aldar skeið. Öryggi gegn yfirgangi Sovétríkjanna var tryggt með Atlantshafsbandalaginu, stofnað að þeirra frumkvæði og sömu- leiðis voru Bandaríkin sá efna- hagslegi bakhjarl sem Evrópa gat byggt á allt frá dögum Mars- hallaðstoðarinnar. Þótt Banda- ríkin horfi nú til annarra heims- hluta en Norður-Atlantshafssvæðisins til að tryggja öryggishagsmuni heldur varnarsamningur okkar frá 1951 fullu gildi. Við brottför þeirra frá Keflavík var talið að lítið myndi um að vera á okkar slóðum. Það hlaut því að koma okkur og öðrum á óvart að þegar bandarískar orustuvélar voru á brott frá Íslandi skyldu Rússar færa sig upp á skaftið og sýna hernaðarmátt sinn í lofti við strendur Íslands og Noregs. Ekki er annað en sjálfsagt og eðlilegt að á nýrri öld taki Evr- ópuþjóðir ýmsar ákvarðanir til að efla getu sína til að mæta hættuástandi. Slíkar ráðstafanir hafa verið teknar innan Evrópu- sambandsins en einnig er um að ræða ákvarðanir um hugsanlega samvinnu ESB og NATO í ör- yggismálum. Sú samvinna náði því miður ekki að þróast og hef- ur að mestu legið niðri síðan 2004. Frönsk stjórnvöld hafa nú nýlokið við mikið endurmat stefnu sinnar í varnar- og örygg- ismálum og boða að taka fullan þátt í starfsemi NATO, jafnframt því sem áhersla sé lögð á mjög aukið hlutverk Evrópuríkjanna á vettvangi Evrópusambandsins í samvinnu við NATO. Það eru hagsmunir Íslands að sjónarmið þess nái til þessarar umræðu. Sé athyglinni að nýju beint að efnahagsmálum má lýsa því svo að Ísland hafi fyrr á árum notið öryggis á þeim vettvangi af aðild að alþjóðastofnunum eins og Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum og OEEC/OECD sem fylgdu fram ákveðnum reglum ásamt beinni aðstoð ef á þyrfti að halda. Þetta er nú úr sögunni fyrir nokkru og reynslan hefur sýnt að við getum ekki rekið óháð peningakerfi á eigin spýtur svo vel fari, heldur verðum við að gerast aðilar að sameiginlegu myntkerfi. Þetta er í raun hliðstætt því sem gerst hefur í varnarmálum. Hvort tveggja leiðir til ályktunar um mikilvægi aðildar að Evrópusam- bandinu, umfram þær efnahags- legu ástæður sem frá öndverðu voru til staðar. Þetta mætti einn- ig orða þannig að með aðild að Evrópusambandinu geri Íslend- ingar nauðsynlegar ráðstafanir til frekari tryggingar landsins í efnahagslegu og öryggislegu til- liti. Sá er munur á því að vera innan eða utan landamæra nýrr- ar Evrópu. Eftir Einar Bene- diktsson og Jónas H. Haralz » Það er skoðun okkar sem þessar línur rit- um að eins og nú standa sakir verði slík staða ekki tryggð utan Evr- ópusambandsins. Jónas H. Haralz Einar Benediktsson er fv. sendiherra og Jónas H. Haralz fv. bankastjóri. Einar Benediktsson Öryggi í hnattvæddum heimi Gestur Guðjónsson | 4. júlí Verðmætum borgarinnar skóflað út um gluggann Þessi blessaði meirihluti í Reykjavík ætlar að setja Íslandsmet í að sóa verð- mætum borgarbúa og forgangsröðun hans er með þvílíkum ólíkindum og svo gersamlega á skjön við þá stefnu sem maður hélt að Sjálfstæðisflokkurinn væri að fylgja að manni fallast hendur. Keyptir eru hjallar við Laugaveg á of- urverði til að byggja verslunarhúsnæði á, í samkeppni við aðila á frjálsum markaði, á sama tíma og til stendur að selja fram- tíðarútivistarsvæði borgarbúa í Hvammsvík á hálfvirði, hálfa milljón hektarann meðan að gangverð á „venju- legum“ jörðum á Suðurlandsundirlend- inu er nær milljóninni. Þá er ekki tekið tillit til þeirra mannvirkja sem á jörðinni eru, þ.m.t. golfvöllur. Það verður skemmtilegt eða hitt þó heldur fyrir OR að nýta jarðhitann sem var undanskilinn þegar fyrirtækið á ekki lengur jörðina. Skemmst er að líta til neðri hluta Þjórsár í því sambandi. … Meira: gesturgudjonsson.blog.is Ingólfur Ásgeir Jóhannesson | 4. júlí Teigsskóg verður að verja Teigsskógur á Vest- fjörðum er bitbein í um- hverfisverndarbaráttunni. Þar á að leggja veg í gegnum fallegan og merkan birkiskóg. Eftir því sem ég kemst næst er um að ræða skammtímavegabætur og e.t.v. nokkrum krónum ódýrari en var- anlegri – og styttri – leið með jarð- göngum gegnum hálsa. Hér er því ekki horft langt fram á veg. Ýmis umhverfisverndarsamtök fjöl- menna í Teigsskóg nú um helgina. Á laugardaginn kl. 13 verður lagt verður upp frá Gröf í Þorskafirði þar sem Gunn- laugur Pétursson býður göngufólk vel- komið og segir frá áformum Vegagerð- arinnar … Meira: ingolfurasgeirjohann- esson.blog.is Sigurjón Þórðarson | 4. júlí Fer landinn síður í enskan Bónus? Landinn hefur staðið með útrásarvíkingunum og það jafnvel þótt þeir hafi sætt lögreglurannsóknum. Nú þegar kominn er botn í rannsóknirnar og dóm- stólar hafa komist að því að sök þeirra er minni en upphaflega var talið eru þeir skyndilega flognir á einka- þotum úr landi með fyrirtækin. Ég tel að meginástæðan sé ekki sá vægi dómur sem Jón Ásgeir hlaut, heldur efnahags- ástandið á Íslandi. Það er kaldhæðnislegt að Baugsmenn voru hvað stærstu gerendurnir í að taka stór erlend lán í gegnum Glitni og FL Gro- up, fyrirtækin sín, til að fjármagna ýmis kaup sem hafa gefið mismikið eða mislítið í aðra hönd nú þegar efnahagsástandið er öðrum þræði í vanda vegna þess að erf- iðlega gengur að endurfjármagna stóru lánin. Efnahagsástandið er að stórum hluta gríðarlegum lántökunum að kenna sem Baugsmenn eru núna að flýja. … Meira: sigurjonth.blog.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.