Morgunblaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 9 FRÉTTIR TVÖ varðskip Landhelgisgæslunn- ar, Ægir og Týr, eru í Reykjavík- urhöfn þessa stundina, og þykir það harla óvenjulegt. Ástæðan er sú, að Ægir er á leið í slipp en Týr er í höfn vegna manna- skipta. Er gert ráð fyrir að Týr haldi úr höfn um helgina, en honum er haldið úti allt sumarið. Eftirlitsflug og varðskipið Baldur sjá um gæsluna Landhelgisgæslan er með eflda gæslu á meðan varðskipin vantar, m.a. með því að láta þyrlur og Fokk- er-flugvélina fljúga eftirlitsflug. Fokker-vélin fór í gær í eftirlits- flug suðvestur og austur af landinu og þyrlan Gná fór í eftirlitsflug um allt Vesturland til Ísafjarðar, en varð að snúa við um miðjan dag vegna mótorhjólaslyss við bæinn Garða á Snæfellsnesi. Þá er sjómælinga- og varðskipið Baldur við gæslustörf í Ísafjarðar- djúpi og í Jökulfjörðum vegna mik- illar umferðar smá- og skemmtibáta. „Það eru nokkur nýmæli að Bald- ur sé við gæslustörf. Það endur- speglar breyttar aðstæður fyrir vestan [þar sem er] mikil umferð af smábátum, [auk þess er] miklu meiri umferð á Hornströndum held- ur en var, þannig að við teljum ör- yggisins vegna að nauðsynlegt sé að sinna þessu betur,“ sagði Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæsl- unnar, sem einmitt var staddur á Baldri þegar haft var samband við hann. Baldur er yngsta skip Gæslunnar en Ægir það elsta. Baldur var sér- staklega byggður til mælinga, en hann er einnig minnsta skipið. andresth@mbl.is Morgunblaðið/G.Rúnar Bæði Ægir og Týr eru í Reykjavíkurhöfn þessa dagana, en Týr fer þó fljótt. Bæði varðskipin í Reykjavíkurhöfn  Stórefld gæsla á láði og legi meðan skipin eru í landi  Baldur sinnir gæslu Í HNOTSKURN »Smíði á nýju varðskipi ogeftirlits- og leitarflugvél stendur yfir. »Skipið er smíðað í Chile ogverður tilbúið í árslok 2009. »Flugvélin er kanadísk ogverður tilbúin í júlí 2009. LÉLEGUSTU úthafskarfavertíð skipa HB Granda frá upphafi veið- anna er lokið. Fjögur skip stunduðu veiðarnar að þessu sinni og sam- kvæmt upplýsingum Birkis Hrann- ars Hjálmarssonar, rekstrarstjóra togara félagsins, er aflasamdráttur- inn milli ára um 45%. Þetta kemur fram á vef HB Granda. Að sögn Birkis fóru Örfirisey RE, Þerney RE, Helga María AK og Venus HF til úthafskarfaveiða í maí sl. Skipin komu í land fyrir sjó- mannadaginn en eftir hann fóru þrjú skipanna í úthafið að nýju. Örfirisey RE fór þá til veiða á heimamiðum. Um var að ræða prufutúr þar sem reyndar voru veiðar með tveimur trollum samtímis. ,,Úthafskarfavertíðin nú var ákaf- lega rýr. Heildaraflinn var á milli 3.100 og 3.200 tonn en til samanburð- ar má nefna að í fyrra var afli skip- anna 5.770 tonn,“ segir Birkir, í frétt á vef HB Granda. Hann upplýsir að fimmti frystitog- ari félagsins, Höfrungur III AK, hafi það sem af er árinu verið á grálúð- uveiðum og hafi þær veiðar gengið þokkalega. Togararnir flýja þorskinn Útgerð frystitogaranna gengur orðið út á það að flýja þorskinn, er haft eftir Birki á vef fyrirtækisins. Fyrirtækið hafi reyndar gert ráð- stafanir til að eiga eftir töluvert af þorskkvótanum fyrir sumarið en þrátt fyrir það sé vandi á höndum vegna þess hve mikið er af þorski þar sem reynt er að veiða aðrar tegund- ir. Að sögn Birkis eru það þorskurinn og hátt olíuverð sem eru helsti vandi togaraútgerðarinnar um þessar mundir. Ekki dugi þó að væla yfir því. Þorskkvótinn hljóti að aukast á kom- andi árum og vonandi lækki olíu- verðið frá því sem nú er. sisi@mbl.is Úthafskarfavertíðin brást alveg í ár Fréttir í tölvupósti Fréttir í tölvupósti Kanaríflakkarar 2008 15. ára afmælishátíð, Árnesi Gnúpverjarhreppi, 11.-13. júlí Harmonikkuball föstudagskvöld, húllumhæ. Hljómsveit Ingvars Hólmgeirssonar, Siggi Hannesar. Söngvari: Þorvaldur Skaptason. Laugardagur: Hátíðarhlaðborð Begga kl. 19.00. Hinn frábæri Jóhannes Kristjánsson skemmtir matargestum kl. 20.30. Happdrætti - Glæsilegir vinningar Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar kl. 23.00. Mætum öll í Árnes. Kanaríflakkarar MM ACCESSORI LAGERSALA OUTLET LAUGAVEGI 51 Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Stórútsala Allar vörur í versluninni á útsölu ú t s a la vera Laugavegi 49 ÷ 40% ÷50% vera Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 Útsala Brjóstahaldarar Tveir fyrir einn 1. sæti í bókabúðum Eymundsson og M&M 25/6-1/7

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.