Morgunblaðið - 05.07.2008, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
MINNST 50 manns særðust þegar sprengja sprakk á
tónleikum í gær í Minsk, höfuðborg Hvíta-Rússlands,
þegar fagnað var sjálfstæðisdegi ríkisins. Alexander
Lúkasjenko, hinn einræðissinnaði forseti landsins, var
meðal gesta á tónleikunum en sakaði ekki. Ekki er vit-
að hverjir stóðu fyrir tilræðinu en lögreglan sagði að
ef til vill hefðu „óknyttabullur“ verið að verki.
Sprengingin varð laust eftir miðnætti aðfaranótt
föstudags að staðartíma og höfðu mörg þúsund manns
safnast saman við stríðsminnismerki í miðborginni.
Dmítrí Kúdjakov, 32 ára gamall karlmaður, sagðist
hafa fundið öfluga höggbylgju og séð reyk.
„Fólk fór að gráta. Sumir féllu á mig og það var
mikið af blóði.“ Fundist hafa skrúfur og boltar á svæð-
inu sem þykir benda til að um heimagerða sprengju
hafi verið að ræða. Síðar fannst önnur sprengja í borg-
inni. „Það voru á henni fingraför og önnur ummerki
sem gætu gert okkur kleift að leysa málið,“ sagði
Vladímír Námov innanríkisráðherra.
Ströng öryggisgæsla og eftirlit er hvarvetna í
Hvíta-Rússlandi. Engin fordæmi eru fyrir tilræðum af
þessu tagi í landinu á síðari árum, að sögn fréttavefjar
BBC.
Tugir særðir í Minsk
Reuters
Tilræði Hugað að særðum manni í Minsk í gær.
Sprengjutilræði á tónleikum
í höfuðstað Hvíta-Rússlands
Í HNOTSKURN
»Hvíta-Rússland hefur um 10 milljónir íbúa oger á vesturlandamærum Rússlands. Það varð
sjálfstætt þegar Sovétríkin leystust upp árið 1991.
»Landið er mjög fátækt og einangrað, einnahelst er að það eigi samskipti við Rússland.
»Evrópusambandið og Bandaríkin hafa gagn-rýnt Lúkasjenko fyrir mannréttindabrot.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
GLEÐIN leyndi sér ekki á meðal
kínversku ferðamannanna þegar
þeir gengu um borð í flugvél China
Southern Airlines á leið til Taipei,
höfuðborgar Taívans, í fyrsta beina
fluginu frá Kína í um sex áratugi.
„Þetta er heilög stund,“ sagði Liu
Shaoyong, forstjóri flugfélagsins
China Southern Airlines og einn far-
þeganna, við lendingu í Taipai.
„Mig hefur langað til að fara til Al-
ishan frá barnæsku,“ sagði Wang Qi,
sem einnig var í hópi um 250 farþega
í þessu tímamótaflugi, með vísun til
vinsæls ferðamannastaðar á Taívan.
Á sama tíma flaug hópur ferða-
manna frá Taipei til kínversku stór-
borgarinnar Shanghai, en allt frá
árinu 1949, þegar kommúnistar tóku
völdin í Kína, hefur ekki verið þar
sama stjórn og í Taívan. Spennan í
samskiptum stjórnvalda hefur oft
verið mikil og þegnarnir þurft að
fara í gegnum þriðja landið á leið
sinni til Kína frá Taívan og öfugt.
Þessi tímamót má fyrst og fremst
rekja til þess að Ma Ying-jeou, ný-
kjörinn Taívansforseti, hefur þrýst á
Kína að setja eldri ágreining til hlið-
ar, svo að greiða megi fyrir sam-
vinnu, einkum á efnahagssviðinu.
Kína mun senn bjóða upp á einn
verðmætasta ferðamannamarkað
heims. Er skrefið nú því talið bjóða
upp á mikil tækifæri fyrir taívanskt
efnahagslíf.
Ferðafrelsi vitnar um
þíðu á Taívan-sundi
TAÍLENSKI fíllinn Noppakhao, sem er sjö
ára gamall tarfur, málar mynd af öðrum fíl í
héraðinu Ayutthaya, um 80 kílómetra norðan
við höfuðborgina Bangkok. Eigandi Nop-
pakhao hefur ágætar tekjur af fígúratívri list
fílsins en myndirnar þykja afar vel gerðar.
Fílar hafa lengi verið notaðir bæði til burðar
og í hernaði í Taílandi og eru í miklu dálæti
meðal landsmanna. Tekist hefur að kenna
dýrunum knattspyrnu og sýna þau umtals-
verða hæfileika á því sviði, þau eru bæði fljót-
ari og liðugri en útlitið gefur til kynna.
Reuters
Noppakhao mest fyrir að mála portrett af öðrum fílum
FORINGI Bleika gengisins ind-
verska, „Gulabi gang“, hvetur kyn-
systur sínar til dáða á fundi. Með-
limirnir eru 10.000 og foringi
þeirra heitir Sampat Devi Pal. Þær
berjast fyrir kvenréttindum,
klæddar bleikum sarí-búningum og
vopnaðar bardagastöfum.
Reuters
Bleikar konur og keikar
ÁRIÐ 1949 flúði Chiang Kai-
shek, formaður Kuomintang,
flokks þjóðernissinna, frá Kína
og setti á fót stjórn í Taipei á
Taívan, eftir ósigur í borg-
arastríði gegn kommúnistum
undir forystu Maó Zedong.
Ferðafrelsi milli Kína og Taipei
hefur síðan verið skert.
S&S
Fyrsta farþegaflugið milli Kína og Taívan í nær sex áratugi
Í loftið Kínverskir ferðamenn á leið
sinni til Taipai, Taívan, í gær.
Reuters
DÓMARI í máli bandaríska fjöl-
miðlarisans Viacom gegn vefsíð-
unni YouTube hefur að kröfu Via-
com óskað eftir gögnum um þá sem
hafa skoðað myndskeið á YouTube.
Kanna á hvort sé vinsælla, efni
varið af höfundarrétti eða annað
efni. Gagnasöfnunin þykir þó
stríða gegn lögum um persónu-
vernd.
Talsmenn Viacom staðhæfa að
YouTube þrífist á að líta viljandi
framhjá lögum um höfundarrétt.
Flett ofan af
„Jútjúburum“
BRESK góðgerðarsamtök sem
beita sér fyrir bættu kynheilbrigði
hafa biðlað til stjórnvalda um að
setja á laggirnar kynfræðslu fyrir
börn allt niður í fjögurra ára.
Talsmenn samtakanna segja for-
eldra ekki þurfa að óttast að ef
börn fræðist ung um kynlíf muni
þeim liggja á að byrja að stunda
kynlíf. Rannsóknir sýni að í raun sé
því þveröfugt farið og þegar þar að
komi verði þau varkárari.
Kynfræðslu
á leikskólana?
SÖNNUN fyrir
því að hin al-
menna afstæð-
iskenning Ein-
steins standist er
fundin. Eðlisfræð-
ingar við McGall-
háskóla í Mont-
real fylgdust með
tvístirni þar sem
tifstjörnur snúast
á sama sporbaug.
Tifstjarna er lítil
og geysiþétt nifteindastjarna sem
gefur frá sér slög útvarpsbylgja líkt
og viti gefur frá sér ljós, nema hraðar.
Þegar tvístirnið uppgötvaðist árið
2003 var ljóst að þar væri kjörið að
rannsaka áhrif almenns afstæðis, þar
sem tifstjörnur eru gríðarþéttar og
þyngdarsviðið milli þeirra er því afar
sterkt. Þeim tókst að staðfesta það
sem kenning Einsteins sagði til um,
að í slíku þyngdarsviði myndi snún-
ingsás stjörnu smám saman breyta
um stefnu eftir því sem hin tif-
stjarnan á sporbaugnum snerist um
hana. sigrunhlin@mbl.is
Tifstjörnur
sammála
Einstein
Heili Vaxmynd
af Alberti
Einstein