Morgunblaðið - 04.10.2008, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 2008 27
Árni Sæberg
Á leið úr landi Þó að á ýmsu gangi í efnahagslífinu heldur lífið áfram sinn vanagang. Í gær var verið að gera einkaþotu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar kaupsýslumanns klára til brottfarar.
HÁVAXTA-
STEFNA Seðlabanka
Íslands hefur um margt
beðið skipbrot. Þessa
dagana hamlar hún
ekki gegn verðbólgu,
heldur ýtir undir hana,
um leið og hún gerir at-
lögu að fyrirtækjum og
efnahag landsmanna.
Framundan eru gjald-
þrot fjölda fyrirtækja,
uppsagnir í stórum stíl og almenn
lífskjaraskerðing. Útrásin hefur og
stuðlað að því að Seðlabankinn og rík-
issjóður eru vanmáttugir að takast á
við vanda fjármálastofnana, nema að
leggja efnahagslegt sjálfstæði þjóð-
arinnar að veði.
Mistök Seðlabanka Íslands
Hávaxtastefnan stuðlaði að styrk-
ingu krónunnar lengi vel. Það, ásamt
með auðfengnu erlendu fjármagni á
gjafverði, ýtti undir óhóflega inn-
lenda neyslu og dró úr útflutningi en
þetta til samans stuðlaði að við-
skiptahalla og skuldasöfnun erlendis
sem á sér ekki fordæmi í sögu lands-
ins.
Samhliða innspýtingu erlends fjár-
magns, m.a. vegna gjaldeyrisútsölu
margra seðlabanka, gætti seðlabank-
inn íslenski þess ekki að auka bindi-
skyldu bankanna hér heima og þeir
gátu óáreittir stundað sín lána-
viðskipti án viðeigandi ábyrgða. Hjá
bönkunum var tilhlýðilegri íhalds-
semi kastað fyrir róða.
Ákvörðun Seðlabankans í þá veru
að koma í veg fyrir að bankar og
stærri fyrirtæki geri upp í erlendri
mynt hefur skapað ójafnvægi og
óvissu um rekstur þeirra fyrirtækja
sem hafa stóran hluta sinnar starf-
semi erlendis. Ætli Landsvirkjun
þakki ekki sínum sæla fyrir að gera
upp í dollurum þessa dagana.
Ósamræmi virðist ríkja um skrán-
ingu eigna og skulda inn og út úr
landinu og ýmsa aðra tölulega upp-
lýsingagjöf. Seðlabankastjóri hefur
stundum talað í véfréttastíl og ekki
enn fylgt eftir sumum orða sinna.
Stjórnvöld hefðu í samráði við Seðla-
bankann fyrir löngu átt að leggja
fram áætlun um hvern-
ig íslensk króna ætti að
lifa af í fjármálaheim-
inum. Og ef ekki,
hvernig mætti skipta
henni út fyrir líf-
vænlegri gjaldmiðil. Sú
skylda hvílir enn á
herðum ráðamanna.
Yfirvöld lögðu út-
þenslunni lið
Með aðkomu bank-
anna að húsnæð-
islánakerfinu í krafti
útsölufjárins, en húsnæðislánasjóður
vildi ekki verða undir í þeirri sam-
keppni, skapaðist þrýstingur á fast-
eignaverð langt umfram nauðsynlega
leiðréttingu. Þeir sem tóku lán í er-
lendri mynt sitja nú uppi með skuldir
sem hækka upp úr öllu valdi á meðan
verðmæti fasteigna þeirra stendur í
stað eða fellur. Að lokum standa ein-
staklingar og fjölskyldur uppi eigna-
laus og e.t.v. í gjaldþroti.
Sá mikli afgangur, sem hefur orðið
af rekstri ríkissjóðs á seinustu árum,
varð m.a. til vegna óhóflegrar eyðslu
landsmanna (viðskiptahalla) og hefðu
stjórnvöld átt að gera allt sem í þeirra
valdi stóð til þess að draga úr þensl-
unni, s.s. með auknum kaupum á
gjaldeyri, aðhaldi í ríkisrekstri, við-
námi gegn útþenslu hins opinbera,
e.t.v. slá á frest skattalækkunum og
leggja bönkunum strangari starfs-
reglur.
Aðkoma stjórnar og þings að
reglugerðarverkinu og þeim eftirlits-
stofnunum sem ætlað er að fylgjast
með starfsemi fjármálastofnana var
ábótavant. Sérstaklega er horft til
þess aðskilnaðar sem á að vera á milli
lánastarfsemi og áhættusækins
rekstrar bankanna. Einnig hefur
lengi verið fundið að skörun eigna-
tengsla, sem getur falið í sér slæmar
keðjuverkanir.
Útrásin byggð að hluta á sandi
Nú er komið á daginn að hinir eit-
ursnjöllu viðskiptajöfrar hafa spilað
með efnahagslegt fjöregg þjóð-
arinnar. Einhverra hluta vegna töldu
þeir, og jafnvel þjóðin öll, að þeir
hefðu yfir að ráða getu og hæfileikum
til þess að stýra fyrirtækjum á er-
lendri grund betur en fyrri eigendur.
Nú þegar kreppir að á lánamörk-
uðum er ljóst að eignir, keyptar að
stórum hluta fyrir lánsfé, þarf mögu-
lega að selja á undirverði. Íslendingar
hafa í ofanálag haft sérstakt lag á að
fjárfesta í greinum sem nú standa
illa. Í öllu þessu hafa hluthafar gleypt
þau rök að borga ætti þessum ein-
staklingum ofurlaun og kauprétt-
arsamninga upp á hundruð milljóna
króna, jafnvel milljarða.
Hvað er til ráða?
Hávaxtastefnan veldur enn búsifj-
um. Hún hefur átt sinn þátt í hruni
gjaldmiðilsins ásamt með stöðunni á
lánamörkuðum heimsins. Fyrirtæki
landsins hafa ekki aðgang að fé nema
á okurvöxtum. Veiking krónunnar
mun valda því að verðbólga helst hér
enn há, stöðva þenslu og kynda undir
því báli sem nú eyðir efnahag lands-
manna. Háir vextir gera ekki annað
en að hægja á hjólum efnahagslífsins,
að því marki að í óefni er komið.
Nú ríður á að stjórnvöld sýni festu í
orði og á borði. Vandræði á fjár-
málamörkuðum heimsins eru ekki á
valdi forsætisráðherra en þessi ann-
ars grandvari og ágæti maður þarf að
spýta í lófana og hefja upp raust sína:
Kalla til aðila atvinnulífsins og leggja
drög að bjargráðaáætlun, ekki ein-
ungis fyrir fjármálafyrirtæki, heldur
og heimilin í landinu, en margt er hér
gott sem byggja má á.
Tafarlaus lækkun vaxta gæti e.t.v.
slegið á kúf gjaldþrota og þrenginga
hjá fyrirtækjum landsins en einnig er
hún mikilvæg í ljósi endurskoðunar á
húsnæðislánum bankanna á næsta
ári. Það er ekki ofsögum sagt að efna-
hag okkar er nú stefnt í voða og fram-
undan sé marséring yfir til Brussel-
valdsins með skottið á milli fótanna ef
þeir á annað borð vilja okkur.
Stjórn efnahags- og peningamála
í uppnámi – útrásin byggð á sandi
Eftir Ólaf Als »Mistök Seðlabank-
ans eru dýrkeypt
sem og grandvaraleysi
stjórnvalda í uppsveifl-
unni. Þjóðin kallar eftir
bjargráðaáætlun fyrir
heimilin.
Ólafur Als
Höfundur er viðskiptafræðingur.
VELFERÐ-
ARSVIÐ Reykjavík-
urborgar á nú í við-
ræðum við tvo aðila
um rekstur á nýju bú-
setuúrræði með fé-
lagslegum stuðningi
fyrir allt að 20 manns.
Um er að ræða ein-
staklinga sem hafa
hætt neyslu áfengis
og/eða vímuefna, en
þurfa á umtals-
verðum stuðningi að
halda til að geta tek-
ið virkan þátt í sam-
félaginu.
Vonast er til að
samningar náist nú á
næstu dögum og að
rekstur geti hafist
jafnvel í nóv-
embermánuði þannig
að úrlausn fáist fyrir
þennan hóp.
Hið nýja búsetuúr-
ræði verður ekki ein-
ungis tímabundið
heimili þeirra ein-
staklinga sem þar
munu búa heldur er
ætlunin að þar fari fram öflug
virkniþjálfun svo heimilismenn
geti síðar haldið út í lífið og stað-
ið þar á eigin fótum. Eðli málsins
vegna þurfa þeir í fyrstu á mikl-
um félagslegum stuðningi að
halda en sá stuðningur mun
væntanlega minnka þegar færnin
til að taka þátt í samfélaginu
eykst og að lokum geta ein-
staklingarnir flutt út í samfélagið
að nýju.
Þess vegna er mikilvægt að
heimili fólksins sé í nánd við hið
daglega líf samfélagsins í
Reykjavík en ekki fjarri daglegu
amstri.
Það er afar mik-
ilvægt að vandað sé
til verka þegar geng-
ið er frá samningum
Reykjavíkurborgar
við utanaðkomandi
aðila um rekstur bú-
setuúrræðis sem
þessa.
Í slíkum samn-
ingum verður vel-
ferðarráð og velferð-
arsvið að tryggja
ákveðin grunnaat-
riði:
1. Rekstraraðili
hafi þekkingu og
reynslu af eftirmeð-
ferð og virkniþjálfun
vegna áfengis- og
vímuefnavanda.
2. Rekstraraðili sé
fjárhagslega ábyrgur.
3. Húsnæði fyrir
heimilið sé tryggt.
4. Velferðarsvið
Reykjavíkurborgar
hafi tryggt eftirlit
með starfseminni.
5. Velferðarsvið
Reykjavíkurborgar
ákveði í samráði við
rekstraraðila hverjir
fá notið umræddrar
þjónustu.
Þeir aðilar sem nú er verið að
ræða við um rekstur búsetuúr-
ræðisins uppfylla fyrstu tvö skil-
yrðin enda slíkt forsenda þess að
gengið sé til samninga.
Þá lítur út fyrir að báðir að-
ilarnir hafi til reiðu tryggt hús-
næði fyrir áfangaheimilið.
Síðustu tveimur skilyrðunum
ætti að vera einfalt að ganga frá í
samningi um reksturinn sem nú
er verið að vinna að.
Nýtt búsetuúr-
ræði með félags-
legum stuðningi
í burðarliðnum
Eftir Hall
Magnússon
Hallur Magnússon
» Það er afar
mikilvægt
að vandað sé til
verka þegar
gengið er frá
samningum
Reykjavík-
urborgar við
utanaðkomandi
aðila um rekstur
svona búsetu-
úrræðis.
Höfundur er varaformaður Velferð-
arráðs og fulltrúi Framsóknarflokks.