Fréttablaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 34
18 21. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
LÚÐVÍK GEIRSSON ER FIMM-
TUGUR.
„Fólk býr ekki bara og
starfar í Hafnarfirði. Fólk
er mjög virkt og í lifandi
tengslum hvert við annað.“
Lúðvík Geirsson, bæjar-
stjóri í Hafnarfirði, og kona
hans Hanna Björk Lárusdótt-
ir fagna sameiginlega fimm-
tugsafmæli sínu með veislu
fyrir vini og vandamenn í
lista- og menningarmiðstöð-
inni Hafnarborg í dag.
Þennan dag árið 753 fyrir
Krists burð segir sagan að
Rómúlus og Remus hafi
stofnað Rómarborg. Sam-
kvæmt rómverskri goðafræði
voru þeir synir prinsessunnar
Rheu Silviu, getnir með stríðs-
guðinum Mars.
Sagt er að þeim hafi verið
hent í ána Tíber en þeir flotið
á henni, þar sem þeir voru
svo léttir, þar til þeir komu að bakka. Mars á að hafa sent úlfynju
þeim til bjargar sem ól þá síðan upp. Þeir stofnuðu síðar borg við
sama bakka og þá hafði rekið upp að forðum.
Svo fór að Rómúlus drap bróður sinn þegar þeir deildu um
hvor þeirra ætti að stjórna hinni nýju borg sem þeir höfðu nefnt
Róm. Samkvæmt goðafræðinni stóðu bræðurnir hvor á sinni
hæðinni þegar fuglahópur flögraði yfir Rómúlusi. Það var tákn um
að hann væri hinn rétti konungur borgarinnar.
ÞETTA GERÐIST: 21. APRÍL 753 FYRIR KRIST
Upphaf Rómarborgar
timamot@frettabladid.is
Ungmennafélag ABC barna-
hjálpar var stofnað á dögun-
um en það er opið öllum sem
vilja láta gott af sér leiða og
styðja við starf ABC. „Allir
sem eru ungir í anda geta
tekið þátt í starfi félags-
ins og ætlum við að hrinda
hinum ýmsu fjáröflunar-
verkefnum í framkvæmd,“
segir Kristína Lentz, sem er
í forsvari fyrir félagið. Hún
segir þörfina sjaldan hafa
verið meiri og í sama streng
tekur Guðrún Margrét Páls-
dóttir, formaður ABC barna-
hjálpar og móðir Kristínu.
„Um þrettán þúsund börn
eru í skólum og á barna-
heimilum ABC víðs vegar
um heiminn og kostar tugi
milljóna að sjá fyrir þeim í
hverjum mánuði. Fall krón-
unnar og hækkun matar-
verðs í heiminum hefur gert
það að verkum að endar ná
hvergi nærri saman. Þess
vegna þarf að ráðast í átak
til að halda starfinu í sama
horfi því við getum ekki
hugsað okkur að skera niður
og senda börnin burt.“
ABC-barnahjálp hefur
sett sér það markmið að
reyna að fá fimm þúsund
nýja stuðningsaðila á árinu
en það er fjöldinn sem þarf
til að brúa bilið eftir gengis-
hrunið. Guðrún segir bæði
hægt að styðja starfið með
því að styrkja einstaka
börn og með því að láta fé
af hendi rakna í neyðarsjóð.
Þá er hvers kyns önnur að-
stoð vel þegin og hafa ýmsar
hugmyndir kviknað hjá fé-
lögum í ungmennafélaginu.
„Við ætlum til dæmis að
fara af stað með hringiver
undir yfirskriftinni Gefðu
barni tækifæri og höfum
fengið til liðs við okkur
sjálfboðaliða til að hringja
út enda viljum við ekki að
hluti framlaga fari í kostn-
að. Þá langar okkur að vera
með fatasölu í Kolaport-
inu, 1. maí, kaffi, kökubas-
ar og ýmislegt fleira,“ segir
Kristína. „Við erum svo opin
fyrir öllum hugmyndum og
vonumst til að fá til liðs við
okkur fullt af hjálpfúsu og
hugmyndaríku fólki enda er
markmiðið að hafa starfið
skapandi og skemmtilegt.“
Opinn kynningarfundur
verður haldinn á skrifstofu
ABC-barnahjálpar að Síðu-
múla 29 í kvöld klukkan 20.
Ungmennafélagið hefur auk
þess opnað síðu á Facebook
þar sem hægt er að gerast
meðlimur en það er einnig
hægt með því að hafa sam-
band við skrifstofu ABC-
barnahjálpar. „Við stefnum
svo að því að halda fleiri
kynningarfundi á næstunni
og að vera bæði öflug og
áberandi í sumar.“
vera@frettabladid.is
KRISTÍNA LENTZ: STOFNAR ÁSAMT ÖÐRUM UNGMENNAFÉLAG ABC-BARNAHJÁLPAR
Ungir styðja við bágstödd börn
FÉLÖGUM FJÖLGAR Kristína stofnaði félagið ásamt nokkrum vinkonum
sínum og sífellt fleiri bætast í hópinn. MYND/LILJA KRISTJÁNSDÓTTIR
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Guðjónsson
frá Hofstöðum,
andaðist á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi fimmtudaginn
16. apríl. Útförin fer fram í Stykkishólmskirkju laugar-
daginn 25. apríl klukkan 14.00.
Laufey Guðmundsdóttir
Valgerður Gunnarsdóttir Jón Ásgeirsson
Kolbrún Gunnarsdóttir Jón Guðmundsson
Guðmundur Gunnarsson Erla Þórðardóttir
Jónína Gunnarsdóttir Benedikt Benediktsson
Kæru vinir. Við hugsum með þakklæti til
allra þeirra sem sýndu okkur hlýju, samúð,
kærleika og vináttu við andlát og útför
elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður,
bróður og afa,
Harðar Eiríkssonar
flugvélstjóra, Blönduhlíð 10.
Innilegar þakkir færum við starfsfólki á gjörgæsludeild
og deild 12E á Landspítalanum við Hringbraut. Við
biðjum guð að blessa ykkur og gleðja.
Helga Steffensen
Björn Sverrir Harðarson
Helga Sigríður Harðardóttir Steffensen Guðmundur E.
Jónsson
Valdimar Harðarson Steffensen Guðrún Ægisdóttir
Baldur Þórir Harðarson Estíva Birna
Björnsdóttir
Eiríkur Bjartmar Harðarson
bróðir og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Margrét Oddsdóttir
Ásvegi 31, Akureyri,
sem andaðist laugardaginn 11. apríl, verður jarðsungin
frá Akureyrarkirkju föstudaginn 24. apríl kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Þroskahjálp á
Norðurlandi eystra.
Jón E. Aspar
Sigríður Oddný Jónsdóttir Skúli Magnússon
Halldór Jónsson
Margrét Skúladóttir Bragi Thoroddsen
Magnús Ágúst Skúlason
Emelía Valey Magnúsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Fríður Á. Guðmundsdóttir
Hjallaseli 55, áður Gautalandi 7,
lést á Dvalarheimilinu Seljahlíð föstudaginn 17. apríl
sl. Jarðarförin auglýst síðar.
Hilmar Herbertsson Bára Björgvinsdóttir
Hans Herbertsson Aldís Daníelsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar elskulega móðursystir,
Ingibjörg Björnsdóttir
ljósmóðir
lést á Dvalarheimilinu Hlíð Akureyri 17. apríl sl.
Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju 24. apríl nk. kl.
13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta
Dvalarheimilið njóta þess.
Aðalheiður Ingibjörg Mikaelsdóttir
Rósa Björg Andrésdóttir
Ástkær fósturbróðir minn og frændi okkar,
Hjálmar Rögnvaldur
Bárðarson
skipaverkfræðingur,
fyrrverandi siglingamálastjóri,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi þriðju-
daginn 7. apríl. Útförin fer fram frá Garðakirkju á
Álftanesi miðvikudaginn 22. apríl kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristín Bárðardóttir
Guðrún Kristjana Hafsteinsdóttir
Bárður Hafsteinsson
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför systur
okkar,
Svölu Kalmansdóttur
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður Bólstaðarhlíð 40.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu, Hafnarfirði,
fyrir hlýhug og góða umönnun.
Kristín, Anna og Dröfn Kalmansdætur
og fjölskyldur þeirra.
Elskulegi eiginmaður, faðir, sonur, bróðir,
tengdasonur og mágur,
Gísli Þór Reynisson
Haukanesi 14,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju, miðviku-
daginn 22. apríl kl. 15.00.
Anna Margrét Kristinsdóttir
Gabríel Þór Gíslason
Anna Fríða Gísladóttir
Benjamín Ágúst Gíslason
Katrín Rósa Gísladóttir
Reynir Þorgrímsson
Rósa Guðbjörg Gísladóttir
Einar Örn Reynisson
Ingibjörg Reynisdóttir
Ólafur Tryggvason
Ragnar Már Reynisson
Elín Oddsdóttir
Eiginkonan mín, móðir, stjúpmóðir og
dóttir,
Björg Ólöf Bjarnadóttir
Hafnargötu 28, Vogum, Vatnsleysuströnd
verður jarðsungin frá Víðistrandakirkju miðviku-
daginn 22. apríl kl. 15.00.
Ragnar Óskarsson
Bjarni Birgir Fáfnisson
Þormar Elí Ragnarsson
Hafsteinn Veigar Ragnarsson
Ragna Sól Ragnarsdóttir
Halldór Leví Ragnarsson
Ester Hurle