Fréttablaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 6
6 21. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR STJÓRNMÁL Afar alvarlegt er að Fréttablaðið og Morgunblaðið birti nafnlausar auglýsingar með hræðsluáróðri og lygum um stefnu vinstriflokkanna, segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinsti grænna. Undir það tekur Sigrún Jóns- dóttir, framkvæmdastjóri Samfylk- ingarinnar. Bæði Samfylkingin og Vinstri græn hafa sent ritstjórum blaðanna bréf þar sem birtingu á nafnlausum auglýsingum með póli- tískum áróðri er mótmælt. „Þessar auglýsingar tala fyrir sig sjálfar. Það hefur ekki verið venj- an að menn fari yfir í að reyna að afbaka málflutning annarra,“ segir Steingrímur. Undir auglýsinguna skrifar Áhugahópur um endurreisn Íslands. Þar er varað við skattahækkunum komist Samfylking og Vinstri græn til valda eftir kosningar, og tekin dæmi um meintar skattahækkan- ir. „Ég hef ekkert á móti því að menn takist á, en það er dapurlegt ef ein- hverjir sem blanda sér í baráttu hafa ekkert fram að færa og byggja baráttuna á því að rangtúlka áhersl- ur annarra,“ segir Steingrímur. Hann segir skattastefnu VG liggja fyrir í kosningastefnuskrá. Þar sé til að mynda skýrt að engin áform séu uppi um að setja á eigna- skatt, og ekki hafi verið rætt um skattahækkanir á fyrirtæki. Full- yrðingar um annað séu hrein ósann- indi. Aðrar upplýsingar sem fram komi í auglýsingunni séu svo ýmist beinlínis rangar eða settar fram með afar villandi hætti. „Einhvers staðar er komin sú örvænting í kosningabaráttuna að menn grípa til þessara ráða,“ segir Steingrímur. Hann segir að birting á slíkum neikvæðum auglýsingum snúist vonandi í höndum þeirra sem beiti slíkum meðölum og fólk gleypi ekki nafnlausan áróður. Samkvæmt prentlögum eru nafn- lausar auglýsingar birtar á ábyrgð ritstjóra blaða, segir Steingrímur. Hann segir það umhugsunarefni að stærstu dagblöð landsins birti slík- ar auglýsingar. Sigrún segir þær upplýsingar sem fram komi í auglýsingunni ýmist villandi eða beinlínis rangar. Samfylkingin telji til að mynda að vandinn í ríkisfjármálunum verði ekki leystur með skattahækkun- um. Áherslan eigi að vera á aðhald í ríkisfjármálum og að koma í veg fyrir að skotið sé undan skatti. Ekki hefur tíðkast á undanförnum árum að birta neikvæðar auglýsingar af þessu tagi í kosningabaráttu, segir Sigrún. Hún skorar á þá sem að aug- lýsingunni standa að koma fram undir nafni. „Tilgangurinn blasir við, hann hlýtur að vera að draga upp vill- andi mynd af málflutningi stjórn- málaflokkanna.“ brjann@frettabladid.is Gagnrýna villandi pólitískar auglýsingar Forsvarsmenn VG og Samfylkingar gagnrýna birtingu Fréttablaðsins og Morg- unblaðsins á nafnlausum pólitískum auglýsingum. Innihalda hræðsluáróður og lygar segir formaður VG. Nafnlausar auglýsingar eru á ábyrgð ritstjóra. Þór Jónsson almannatengill hafði milligöngu um kaup hóps sem kallar sig Áhugafólk um endurreisn Íslands á heilsíðuauglýsingum í Morgun- blaðinu og Fréttablaðinu. Hann segir að ábyrgðarmenn og greiðendur auglýsingarinnar hafi fullyrt við sig í gær að þeir muni gera grein fyrir sér í dag. Í auglýsingunum eru settar fram fullyrðingar um áform Samfylkingar og Vinstri grænna um skattahækk- anir. Ekki kemur fram hverjir standa fyrir auglýsingunum. Auglýsingarnar hafa verið gagnrýndar fyrir nafnleysi þeirra sem að þeim standa. Einnig hafa þær upplýsingar sem þar eru settar fram verið gagnrýndar. Þór segir að hans eina aðkoma að auglýsingunum hafi verið að fá upplýsingar um verð og senda aug- lýsingarinnar inn. Það hafi hann gert sem almanna- tengill í aukastarfi. „Ég tók að mér verkefni og leysti það af hendi eins og fyrir var lagt. Ég get ekki sagt hver fól mér það en ábyrgðarmenn og greiðendur aug- lýsingarinnar hafa fullyrt við mig að þeir gefi sig fram á morgun [í dag].“ segir Þór. Hann veit ekki til þess að til standi að birta fleiri auglýsingar á næstunni. Þór starfar sem forstöðu- maður almannatengsla hjá Kópavogsbæ, en tekur fram að aðkoma hans að auglýs- ingunum tengist starfi hans þar ekki á nokkurn hátt. Þór á að baki langan feril sem fjölmiðlamaður og var til að mynda fréttamaður á Stöð 2 og NFS. Almannatengill hafði milligöngu um kaup á pólitískum auglýsingum í blöðum: Gefur ekki upp aðstandendur ÞÓR JÓNSSON SKATTAHÆKKANIR Það boðar vinstri stjórn! Samfylkingin og Vinstri grænir áforma skatta ofan á staðgreiðsluskatta 1. Hátekjuskattur á laun yfir 500 þúsund krónum Hátekjuskattur vinstra manna leggst m.a. á iðnaðarmenn, vélavinnufólk, tölvufræðinga, lyfja- og meinafræðinga, lækna, byggingarmenn og arkítekta fyrir utan yfirmenn og stjórnendur í atvinnulífinu. Hátekjuskatturinn leggst þungt á barnafjölskyldur og þá sem auka við sig vinnu til að standa skil á skuldum. Auk þess er hann vinnuletjandi og dregur úr framleiðslu þegar síst skyldi. Hætta er á atgervisflótta úr landi. 2. Eignaskattur 2% Eign Nýr skattur 20 mkr. 400.000 30 mkr. 600.000 40 mkr. 800.000 50 mkr. 1.000.000 60 mkr. 1.200.000 3. 40% hækkun fjármagnstekjuskatts á fjármagnstekjum yfir 120.000 krónum Fjármagnstekjuskattur verður til þess að draga úr sparnaði almennt en hann er grunnurinn að endurreisn samfélagsins. 4. Hækkun skatta á fyrirtæki Koma verður hjólum atvinnulífsins af stað en ekki beita hamlandi aðgerðum gegn atvinnulífinu. Auknar skattbyrðar leiða til uppsagna og samdráttar. Vinstri menn vilja lækka laun og hækka skatta. Hverjir eiga að borga skatta vinstri manna þegar allir eru komnir á vonarvöl? Við viljum ekki skattpínt þjóðfélag! Áhugafólk um endurreisn Íslands + + + + + Hugmyndir vinstri manna um eignaskatt bitna á fjölskyldufólki og eldri borgurum. Þeir sem fjármagna „velferðarbrú” vinstri manna breytast úr greiðendum í þiggjendur. Mánaðarlaun Skattur núna Viðbót á ári Alls á ári 600.000 180.995 36.000 2.207.940 700.000 218.195 72.000 2.690.340 800.000 255.395 168.000 3.232.740 900.000 292.595 264.000 3.775.140 1.000.000 329.795 360.000 4.317.540 Mánaðarlaun H á te kj u sk a tt u r AUGLÝSING Ekki kemur fram hver stendur fyrir auglýsingunum. Því bera ritstjórar fjölmiðla sem birta þær ábyrgð á efni þeirra samkvæmt lögum um prentrétt. STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON SIGRÚN JÓNSDÓTTIR Einhvers staðar er komin sú örvænting í kosninga- baráttuna að menn grípa til þessara ráða. STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON FORMAÐUR VINSTRI GRÆNNA Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is Hjólafestingar síðasta vetrardag- Hafnarborg 22. apríl kl. 20 fyrsta sumardag- Neskirkja 23. apríl kl. 16 Sigrún Hjálmtýsdóttir Jónas Þórir Jón Kristinn Cortez ÞRESTIR VORTÓNLEIKAR 2009 Hefur þú náð ólöglega í höfundarréttarvarið efni í gegnum netið? Já 33% Nei 67% SPURNING DAGSINS Í DAG Ertu búin(n) að ákveða hvað þú ætlar að kjósa? Segðu skoðun þína á vísir.is Auglýsingasími – Mest lesið SKIPULAGSMÁL Þórður Magnússon hjá Torfusamtökunum segir að verk- takar sem eigi húseignir í miðbæn- um geti ekki eingöngu kennt borg- aryfirvöldum um að þær séu tómar eða í niðurníðslu. Hann segir enn fremur að þeir beiti aðra eigendur þvingunum til að komast yfir hús- eignir á heilum byggingarreitum. „Það er nokkuð varhugavert hjá verktökum, sem eiga mörg þessara auðu húsa í miðbæ Reykjavíkur, að kenna borgaryfirvöldum eingöngu um það hversu hægt hefur gengið með uppbyggingu á þessum reit- um sem búið er að leyfa niðurrif á,“ segir Þórður Magnússon hjá Torfu- samtökunum. „Hefðu þeir kosið að koma með tillögur sem væru í samræmi við það deiliskipulag sem var í gildi 2003 hefði enginn getað staðið í vegi fyrir þeim. En þeir vita upp á sig sökina því þeir hafa alltaf sóst eftir að fá að byggja meira og rífa meira en deiliskipulagið leyfir.“ Hann segir mörg dæmi þess að íbúar hafi kvartað undan ógæfu- fólki í húsum í eigu verktaka. „Það bjó fólk á Frakkastígs-Laugavegs- reitnum fyrir tíu árum og þá var þetta notalegt íbúðarhverfi, með fal- legum bakgörðum. Síðan hafa verk- takar séð að það megi rífa þessi hús og þá hafa þeir keypt þau og leigt ógæfufólki. Með því skapa þeir þrýsting á þá sem eftir eru að færa sig og þannig leggja þeir undir sig reitinn.“ - jse Fulltrúi Torfusamtakanna gagnrýnir málflutning eigenda tómra húsa: Segir verktaka beita þrýstingi ÞÓRÐUR MAGNÚSSON Verktakar geta ekki einungis kennt borgaryfirvöldum um niðurníðslu húsa í miðborginni, segir Þórður. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FJÁRMÁL Lánasjóður sveitarfélaga ohf. stendur vel og skilaði 1,2 milljörðum króna í tekjuafgang á síðasta ári. Tekjurnar voru sex milljón krónum meiri en á árinu 2007. Í nýjasta hefti Sveitarstjórnar- mála kemur fram að sjóðurinn hefur ekki tapað útláni frá því að hann hóf starfsemi árið 1967. Ávöxtun á lausu fé árið 2008 var einnig góð, en það er að mestu varðveitt í Seðlabankanum. Eigið fé um áramótin var 11,3 milljarð- ar, ríflega milljarði meira en árið á undan. Gert er ráð fyrir svip- aðri afkomu á árinu 2009 og síð- ustu tvö ár. - kóp Lánasjóður sveitarfélaga: Milljarður í tekjuafgang KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.