Fréttablaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 38
22 21. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
> ÓLÉTT LEIKKONA
Leikkonan Ellen Pompeo
úr spítaladramanu Grey‘s
Anatomy þarf að heimsækja
spítala meira á næstunni en
góðu hófi gegnir. Pompeo
á von á fyrsta barni sínu
með eiginmanninum Chris
Ivey. Þau hafa verið gift í
tvö ár eftir að hafa kynnst
í stórmarkaði fjórum árum
fyrr.
Pönkarinn og grunnskóla-
kennarinn Hlynur Áskels-
son, betur þekktur sem
Ceres 4, er hvergi af baki
dottinn heldur vinnur að
nýrri plötu. Venju sam-
kvæmt er pólitíkin aldrei
langt undan en Ceres sýnir
líka á sér nýja hlið og syng-
ur ballöður.
Mikla athygli vakti þegar Hlynur
birtist brúnn og „köttaður“ með
Party-Hanz, Agli Gillzenegger og
Gazman í hljómsveitinni Merzed-
ez Club sem söng Ho ho ho, we say
hey hey hey í söngvakeppni Sjón-
varpsins fyrir ári síðan. Fljótlega
fóru að berast fréttir af hugsanleg-
um landvinningum í útlöndum og
erlendir útgáfurisar voru sagðir
áhugasamir um að fá hljómsveit-
ina til liðs við sig.
Hins vegar hefur lítið frést af
verkefnum hjá sveitinni og fyrir
því er góð ástæða. „Ég held að það
sé alveg óhætt að setja kross yfir
leiðið hjá Merzedez Club, lýsa yfir
andláti hennar og vona að minn-
ing hennar hvíli í friði,“ segir
Hlynur í samtali við Fréttablaðið.
Dauðdaginn, sem flesta var farið
að gruna að væri óumflýjanleg-
ur, er staðreynd. „Við erum bara
eins og Bítlarnir, áttum okkar
stund og stað og ég leyfi mér stór-
lega að efast um að við komum
nokkurn tímann aftur saman,“
heldur Hlynur áfram og vill lítið
segja um ástæðurnar fyrir
sambandsslitunum, telur þó
að spennuþrungið andrúms-
loft milli Haffa Haff og Gillz
hafi skipt þar sköpum. „Og
svo voru menn ekki sammála
um aðferðir til brúnku; sumir
kusu ljósabekki á meðan aðrir
vildu fara í brúnkuspraut-
un.“ Hlynur kveðst þó
þakklátur fyrir að
hafa fengið tæki-
færi til að taka þátt
í þessu mikla ævin-
týri sem vissulega
hristi allrækilega
upp í Eurovision-
kepninni.
En Hlynur sjálf-
ur hefur ekki lagt
tónlistina á hilluna,
því hann vinnur nú
að plötu sem ráðgert
er að komi út þegar
sumarið er úti. Fyrsta
lagið af plötunni er þó
þegar farið að hljóma
og það rímar heldur
betur við samtímann.
Sungið er um banka,
lögfræðinga og stjórnmálamenn
og þann hausverk að hafa ekkert
val. „Bankarnir eru að eignast allt
og lögfræðingarnir fylgja á eftir
og hirða upp það litla sem eftir er,“
segir Hlynur en bætir því þó við að
ekki verði öll lögin af þessum
toga. „Nei, ég syng líka ballöð-
ur, það verða krappar beygj-
ur á þessari plötu,“ útskýrir
Hlynur. Auk þess verður lag
um fótbolta og knattspyrnu-
dómara sem kemur út þegar
Íslandsmótið í knattspyrnu
byrjar og lagið West
Ham verður að sjálf-
sögðu meðal góðra
gesta sem auka-
lag. „Þetta var
stutt gaman en var
grand á meðan á
því stóð.“
Lýsir yfir andláti Eurovision-
stjarnanna í Merzedez Club
SYNGUR UM SAMTÍMANN
Hlynur Áskelsson, Ceres 4,
syngur um þann hausverk
að eiga ekkert val. Ný plata
er væntanleg með pönk-
aranum og grunnskóla-
kennaranum þar sem hann
syngur ballöður til jafns við
pólítíska texta.
folk@frettabladid.is
Pabbi Rubinu Ali sem lék hina ungu Latiku í Ósk-
arsverðlaunamyndinni Slumdog Millionaire hefur
verið handtekinn, grunaður um að hafa
ætlað að selja dóttur sína fyrir 37 millj-
ónir króna. Málið þykir hið ótrúleg-
asta; fjölmiðlar hafa fjallað töluvert
um hvort aðstandendur kvikmyndar-
innar hafi staðið við sína skilmála
en þeir hafa sagst ætla að gera
sitt til að tryggja börnunum í
myndinni sómasamlega framtíð
með framtíðarsjóði.
Pabbinn neitar alfarið sök.
Slumdog-
pabbi kærður
DANNY BOYLE
Leikstjóri Slumdog Millionaire.
Ástmaður Kylie Minogue hefur
látið húðflúra nafn hennar á sig
til að sanna fyrir söngkonunni
að hann sé ástfanginn af henni í
alvörunni. Kylie og spænska
fyrirsætan Andres Segura
hafa verið saman um
nokkurt skeið og fyrirsæt-
an vildi endilega að Kylie
efaðist ekki eitt augna-
blik um trúmennsku
sína gagnvart henni.
FRÉTTIR AF FÓLKI
NUDD
Verð frá
1690.-
Selásbraut 98
110 Árbæ S:577 3737
í apríl og maí
Nánari upplýsingar og skráning:
sími 525 4444
endurmenntun.is
Að skrifa texta á ensku - viðskiptaenska
hefst 27. apríl
Ítalska fyrir byrjendur
hefst 27. apríl
ÍST 200:2006 Raflagnir bygginga
hefst 28. apríl
Mígreni
haldið 29. apríl
Íslenska flóran
hefst 4. maí
Facebook sem markaðstæki – aukanámskeið
hefst 4. maí
Fuglar og fuglaskoðun
hefst 5. maí
Frístundalóðir: Umhirða og skipulag
hefst 5. maí
Starfsandi og starfsmannastjórnun í ríkisstofnunum
hefst 6. maí
Námstefna um átraskanir
haldið 6. maí
Íslenski þroskalistinn
haldið 7. maí
Smábarnalistinn: Staðlaður þroskalisti
haldið 8. maí
Franska Rivieran
hefst 11. maí
Eldfjöll
hefst 13. maí
Safnhaugar í heimilisgörðum
hefst 18. maí